Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978
33
Minning:
Jóhann Jensson
Teigi, Fljótshlíð
Fæddur 10 fcbrúar 1895.
Dáinn 14. nóvember 1978.
I dag verður kvaddur hinstu
kveðju frá Breiðabólstaðarkirkju
Jóhann Jensson, bóndi, sem um
langt og farsælt skeið sat höfuð-
bólið Teig í Fljótshlíð. Með
Jóhanni er genginn merkur maður,
sannur bústólpi og sómi sinnar
stéttar, sem gott er að minnast.
Foreldrar Jóhanns voru Jens
Guðnason og kona hans Sigrún
Sigurðardóttir, er lengi bjuggu í
Árnagerði í Fljótshlíð. Þar ólst
Jóhann upp í fjölmennum og
glaðværum systkinahópi. Ungur
byrjaði hann að taka þátt í
daglegum störfum á heimili for-
eldra sinna, svo sem venja var.
Einnig lá leið hans sem margra
ungra manna í Rangárþingi út í
Vestmannaeyjar á vertíð. Þar ytra
bauðst honum meðal annars að
læra húsasmíði, en hann hafnaði
góðu boði, með því að hugur hans
stóð allur til búskapar og ræktun-
ar.
Hinn 5. júlí 1925 kvæntist
Jóhann og var eiginkona hans
Margrét Albertsdóttir, einkadóttir
hjónanna í Teigi, Salvarar Tómas-
dóttur og Alberts Ágústs Eyvinds-
sonar. Hófu ungu hjónin búskap
sama ár á hluta af Teigsjörðinni.
Teigur í Fljótshlíð var um aldir
kirkjustaður og höfuðból að fornu
og nýju, þar sem löngum hafa setið
stórbændur og héraðshöfðingjar.
Albert Ágúst hafði keypt jörðina
árið 1918 og setið hana af miklum
myndarskap. En hann féll frá
1930, mjög um aldur fram. Eftir
það bjó Jóhann um skeið í sambýli
við mág sinn, Eyvind Albertsson.
Því lauk þó fyrr en varði og með
sviplegum hætti, því að Eyvindur
drukknaði í Þverá aðfararnótt
þriðja í páskum 1936, ungur að
aldri og sérstakur efnismaður, sem
öllum var hinn mesti harmdauði.
Upp frá þessu bjó Jóhanrt einn á
jörðinni, þar til synir hans komust
upp og stofnuðu þar til eigin
búskapar móti honum. Jóhann sat
Teig með miklum sóma. Hann var
góður og gildur bóndi og bætti svo
jörð sína að húsakosti, ræktun og
öðrum framkvæmdum að hiklaust
má telja hana í röð fremstu
bújarða landsins.
I búskap sínum var Jóhann í
Teigi einstakt snyrtimenni. Lét
hann sér alltaf sérstaklega annt
um búfé sitt. Var hann þannig ekki
síðri í kvikfjárrækt en í jarðyrkju,
enda leyndi árangurinn sér ekki,
því að jafnan átti hann úrvals-
gripi. Einkum og sér í lagi var
hann snjall hestamaður og átti um
dagana marga afburða hesta og
gæðinga. Kom það sér líka vel
framan af búskaparárum hans,
meðan samgöngur voru allt aðrar
og erfiðari en síðar varð. Bithagar
í Teigi liggja líka að verulegu leyti
SVAR MITT
EFTIR BILLY GRAHAM
Eg r illa settur. Mér finnst, að öllum sé í nöp við mig, og ég er
sífellt að skrökva. Mér finnst ekkert vera raunverulegt.
Það er augljóst, að þér lifið í heimi ímyndunar, ef
marka má þessi orð yðar, að yður finnst ekkert vera
raunverulegt og að öllum sé í nöp við yður. Sálfræðingur
mundi kannski fræða yður á því, að orsök þssa væri
sektarkennd, og ég væri honum sammála.
Hvernig vitið þér, að öllum er í nöp við yður? Og hvers
vegna eruð þér sífellt að segja ósatt? Svo virðist sem þér
finnið yður sekan og óverðugan vegna ósanninda yðar,
og þér hafið ímyndað yður, að öllum sé illa vð yður. Sé
það rétt, að „öllum sé í nöp við yður“, kann ástæðan að
vera sú, að þér eruð ósáttur við sjálfan yður.
Biblían segir: „Þú skalt ekki bera ljúgvitni gegn
náunga þínum.“ Lygi vekur sektarkennd í brjósti
venjulegs manns og veldur oft sjálfsfyrirlitningu.
Hver er lækningin? Kristur fyrirgaf fólki, sem hafði
drýgt alls konar syndir, þar á meðal þá synd að skrökva.
Þér þurfið að vita, að Guð elskar yður þrátt fyrir
ósannindi yðar. Opnið hjarta yðar fyrir elsku hans og
fyrirgefningu. Þá öðlizt þér frið og nýtt sjálfsmat. Það
sýnir, hvers virði við erum í augum Guðs, að Kristur dó
fyrir syndir okkar og að Guð elskaði okkur svo heitt, að
hann gaf son sinn, til þess að við gætum hlotið
fyrirgefningu.
Og telji Guð okkur verð þess, að við frelsumst, ættum
við að hata syndir okkar, sem skilja okkur frá Guði. En
ekkert gott hlýzt af sjálfsfyrirlitningu nema hún knýi
okkur til Guðs og við öðlumst þann frið, sem hann einn
getur veitt.
Jesús sagði: „Komið til mín ... og ég mun veita yður
hvíld“ (Matt. 11,28).
Á leið í skóla §^| gœtið að
sunnan Þverár, sem á fyrri árum
var foraðsvatnsfall. Gátu því
ferðir suður yfir ána verið hinar
verstu. Kom það sér þá vel að bæði
var Jóhann glöggur og traustur
vatnamaður og vel ríðandi, svo að
af bar. Þessar aðstæður eru nú
gjörbreyttar, svo sem kunnugt er,
með því að Þverá var veitt í
Markarfljót fyrir atbeina Vatna-
félags Rangæinga.
Jóhann Jensson var maður
hlédrægur og hæverskur í hví-
vetna. Ekki sóttist hann eftir
opinberum störfum og þess háttar
vegtyllum. En allt slíkt sem hann
var kvaddur til rækti hann af alúð
og skyldurækni, svo sem framast
mátti verða. Naut hann og jafnan
fyllsta trausts og virðingar sam-
ferðámanna sinna. Að eðlisfari var
Jóhann félagslyndur og glaðvær.
Hafði hann líka mikið yndi af söng
og ljóðum. Ungur gerðist hann
fylgismaður samvinnustefnunnar
og var einlægur liðsmaður hennar
alla tíð. Þá var hann mjög vakandi
gagnvart öllum framförum og
tækninýjungum og fljótur að
tileinka sér allt slíkt sem til heilla
horfði fyrir búskap og bújörð,
enda stóð bú hans jafnan með
sérstökum blóma.
Hjónin í Teigi, Margrét og
Jóhann, eignuðust sex börn, sem
nú eru öll fulltíða og hið mesta
myndar- og atgervisfólk. Þau
systkin eru sem hér segir:
Guðni, f. 1926, tryggingarfull-
trúi hjá Kf. Rangæinga, Hvols-
velli, kvæntur Svanlaugu Sigur-
jónsdóttur frá Seljalandi og eiga
þau 2 börn. Albert, f. 1926, kennari
við Héraðsskólann í Skógum,
kvæntur Erlu Þorbergsdóttur frá
Hraunbæ í Álftaveri og eiga þau 5
börn. Ágúst, f. 1927, verslunar-
maður hjá Kf. Árnesinga, Selfossi,
áður bóndi í Teigi, kvæntur
Sigrúnu Runólfsdóttur frá
Bræðratungu í Vestmannaeyjum
og eiga þau 4 börn. Sigrún, f. 1930,
húsfreyja á Hvolsvelli, gift
Nikulási Guðmundssyni frá Múla-
koti, bifreiðastjóra hjá Kf. Rangæ-
inga, Hvolsvelli, og eiga þau 3
börn. Árni, f. 1932, bóndi í Teigi,
kvæntur Jónínu B. Guðmundsdótt-
ur frá Fljóti í Fljótshlíð og eiga
þau 2 börn. Jens, f. 1942, bóndi í
Teigi, heitbundinn Auði Ágústs-
dóttur frá Brúnastöðum í Hraun-
gerðishreppi.
Fráfalli Jóhanns Jenssonar í
Teigi fylgir sorg og söknuður. En
þegar vinnudagurinn er orðinn
langur og heilsa mjög þrotin, þá
má ef til vill segja að hvíldin sé
kær. Og fyrir okkur sem eftir
stöndum hérna megin móðunnar
miklu, er það huggun harmi og
fylgir okkur fram um veg. Eg og
fjölskylda mín sendum eftirlifandi
eiginkonu, börnum, tengdabörn-
um, barnabörnum og öðrum ást-
vinum einlægar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Jóhanns
Jenssonar.
Jón R. Hjálmarsson.
Kynning
á enskum gólfteppum
Sýnum í dag í teppadeild
ensk gólfteppi frá Giltedge og CMC.
Ný munstur og litir.
Opiö frá kl. 9—4.
Veriö velkomin.
Bazar
Bazar og kökusala veröa haldin aö Hallveigar-
stööum í dag, laugardaginn 25. nóvember kl. 2.
Kvenfélagið Heimaey.
Hjartans þakkir til allra sem glöddu mig meö
gjöfum, skeytum og heimsóknum á afmælisdag-
inn. Guö blessi ykkur öll.
Halldóra Halldórsdóttir
Mýrum,
Villingaholtshrepp.
PnygjitiMaMiþ
óskar eftir
blaðburðarfólki
AUSTURBÆR:
□ Laugavegur1—33,
VESTURBÆR:
□ Miöbær
□ Lambastaöahverfi
□ Ægisíöa
□ Kvisthagi
ÚTHVERFI
□ Sogavegur
UPPL. I SIMA
35408