Morgunblaðið - 25.11.1978, Blaðsíða 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. NÓVEMBER 1978
Heimaleikurinn
ræður úrslitum
P'YIíRI leikur VíkinKs á móti sænska liðinu Ystad í Evrópukeppni hikarhafa í handknattleik fer fram í
Laujíardalshöllinni í das ok hefst kl. 15.30. AÖKÖnKumióasala veröur í höllinni frá kl. 13.00.
Þetta er í 2. skiptið. sem Víkinjíur tekur þátt í Evrópukeppni í handknattleik. Víkingur varð
íslandsmeistari 1975 og árið eftir tók félagið þátt í Evrópukeppni meistaraliða en var slegið út í 1. umferð
af margföldum Evrópu- og Uýzkalandsmeisturum Gummersbach. I 1. umferð Evrópukeppni bikarmeistara
drógust Víkingar gegn enjika liðinu Ilalewood en Englendingarnir drógu lið sitt út úr keppninni og
Víkingarnir komust þar með fyrirhafnarlaust í 2. umferð. Víkingsliðið hefur sýnt ótvíræðar framfarir
undir stjórn pólska þjálfarans Bodans Kowalski og þeir eru staðráðnir í því að vinna Svíana og komast í 2.
umferö.
Eitt bezta lið Svíþjóðar
Ystad IF er tvímælalaust eitt
bezta handknattleikslið Svíþjóðar
um þessar mundir. Að sögn
íslenzkra handknattleiksmanna,
sem leikið hafa í Svíþjóð undan-
farið, leikur liðið hraðan og
skemmtilegan handknattleik, enda
fær það ailajafna flesta áhorfend-
ur á leiki sína af sænsku liðunum.
Er yfirleitt uppselt á leiki liðsins
heima í Ystad, en íþróttahöllin þar
er mjög glæsileg og rúmar^ yfir
2000 áhorfendur.
Ystad er bær í Suður-Svíþjóð.
Handknattleikur er svo gróin
íþróttagrein í Ystad að bærinn er
oft kallaður Mekka handknatt-
leiksins í Svíþjóð og má segja að
hann hafi þar svipaða stöðu og
Hafnarfjörður hér heima á Is-
landi. Ystad IF varð Svíþjóðar-
meistari árið 1976 og liðið sigraði í
sænsku deildarkeppninni s.l. vor,
hlaut 32 stig í 22 leikjum, einu
stigi meira en Lugi, lið Jóns
Hjaltalíns Magnússonar, og tveim-
ur stigum meira en Drott, lið
Ágústs Svavarssonar. í Svíþjóð er
sá háttur hafður á, að fjögur efstu
liðin í deildarkeppninni leika
aukakeppni um Svíþjóðarmeist-
aratitilinn og þá keppni vann
Drott naumlega. Deildarkeppnin
er nýlega hafin í Svíþjóð og hefur
Ystad hlotið 9 stig í 6 fyrstu
leikjum sínum.
Margir góðir leikmenn eru í liði
Ystad IF en þrír þeirra eru
þekktastir. Stjörnuleikmaður liðs-
ins er Basti Rasmussen, 24 ára
gamall slökkviliðsmaður, sem leik-
ið hefur 80 landsleiki fyrir Svíþjóð.
Basti er einn vinsælasti leikmað-
urinn í sænskum handknattleik,
mikill spilari og góð skytta. Hann
var annar markhæsti deildar-
keppninnar s.l. keppnistímabil,
skoraði 151 mark í 22 leikjum.
(Ágúst Svavarsson var í 4. sæti
með 128 mörk). Annar landsliðs-
maður í Ystad er Sven-Áke Frick,
32 ára gamall verkfræðingur með
65 landsleiki að baki. Hann er
kjölfestan í vörn liðsins og einnig
drjúgur markaskorari. Erik Lars-
son heitir mikill vinstrihandar
skytta í liðinu, 24 ára gamall.
Hann hefur leikið 6 landsleiki en
s.l. 2 ár hefur hann ekki gefið kost
á sér í landsliðið, Svíum til mikilla
vonbrigða.
Eftirtaldir leikmenn skipa lið
Víkings í leiknum gegn Ystad IF:
Nr. 1: Eggert Guðmundsson, 22
ára gamall, 45 leikir í meistara-
flokki Víkings.
Nr. 2i Magnús Guðfinnsson, 19
ára gamall, 23 ieikir í mfl. Víkings.
Nr. 3: Steinar Birgisson, 24 ára
gamall, 33 leikir í mfl. Víkings.
Nr. 4i Olafur Jónsson, 24 ára
gamali, 111 leikir í mfl. Víkings. 3
landsleikir.
Nr. 5i Skarphéðinn Óskarsson,
27 ára gamall, 172 leikir í mfl.
Víkings.
Nr. 6s Sigurður Gunnarsson 19
ára gamall, 33 leikir í mfl. Víkings,
2 landsleikir.
Nr. 7j Páll Björgvinsson, 27 ára
gamall, 271 leikur í mfl. Víkings,
26 landsleikir.
Nr. 8i Erlendur Hermannsson,
22 ára gamall, 90 leikir í mfl.
Víkings.
Nr. 9i Árni Indriðason, 28 ára
gamall, 31 leikur í mfl. Víkings, 40
landsleikir.
Nr. 10i Ólafur Einarsson, 26 ára
gamall, 35 leikir í mfl. Víkings, 57
landsleikir.
Nr. 11 x Viggó Sigurðsson, 24 ára
gamall, 145 leikir í mfl. Víkings, 34
landsieikir.
Nr. 12i Kristján Sigmundsson,
21 árs gamall, 27 leikir í mfl.
Víkings, 22 landsleikir.
• Leikreyndasti maður
Víkings og ein aðalkjöl-
festan í liðinu er Páll
Björgvinsson. Mbl. innti
hann eftir möguleikum
Víkings í leiknum í dag.
— Náum við góðum leik
þá vinnum við með fimm
til sex marka mun í
leiknum, sagði Páll. En
til þess að það megi
takast verður markvarsl-
an að vera í lagi hjá
okkur, hún hefur verið
slök í undanförnum leikj-
um. Þá geta áhorfendur
ráðið miklu um hversu
vel okkur tekst til. Ég vil
hvetja alla stuðnings-
menn Víkings til að mæta
og hjálpa, okkur yfir
hjallann. A heimavelli
Svíanna í Ystad fá þeir
geysilega hvatningu frá
áhorfendum og því verð-
ur það sama að verða upp
á teningnum hér, ef
möguleikar eiga að vera
fyrir hendi.
— Við komum til með
að reyna mikið af nýjum
leikkerfum og keyrum
upp hraðann eins og
hægt er. Við verðum að
nýta öll þau tækifæri sem
okkur gefast, sagði Páll.
Þ.R.
Slyngur veiðimaður
• Gullbjörninn eins og Jack Nicklaus, golfleikarinn
heimsfrægi, er oftast kallaður, virðist ekki síður slyngur
veiðimaður en golfleikari eftir myndinni að dæma. Eftir
sex klukkustunda viðureign tókst honum að landa 616 kg
sverðfiski þeim er sést á myndinni. Er þetta stærsti fiskur
sem veiðst hefur á sjóstöng í Ástraliu þetta árið.
Jón stóð sig
vel í Belgíu
JÓN Diðriksson, íslandsmet-
hafi í millivegalengdahlaup-
um, tók þátt í víðavangs-
hlaupi í Belgíu um síðustu
helgi og stóð sig með mikl-
um ágætum. Varð Jón þriðji
í hlaupinu sem var 8 km.
Sigurvegari varð félagi Jóns
frá Vestur-Þýzkalandi, Vald*
ur Koha, og í öðru sæti varð
brezki hlauparinn Richard
Newble. í fjórða og fimmta
sæti urðu einnig brezkir
hlauparar, M. Knatt og M.
Brameld.
Hlaupið fór fram í bænum
Hannut. Hlaut Jón tímann
25:06 mínútur, en Koha fékk
íþróttaháskólann í Köln.
Nokkrir Islendingar stunda
nám við þann skóla, þ.á m.
Sigurður T. Sigurðsson fyrr-
verandi Islandsmeistari í fim-
leikum, en hann æfir nú
stangarstökk af krafti við mjög
góðar aðstæður í Köln. Jón
sagðist hafa æft vel f haust og
vetur og sagðist hann hafa
góðan tíma til æfinga.
— ágás.
Handbolti um helgina:
HK og Fylkir mætast
24:38 mín. og Newble 24:43 mín.
Arangur Jóns er athyglisverð-
ur þar sem andstæðingur hans
eru mjög frambærilegir lang-
hlauparar. Koha, sem er í sama
félagi og Jón, Jágermeister
Bonn-Troisdorf, hljóp t.d. 5 km
í sumar á 13:34 og 10 km á
28:53.
í viðtali við Mbl. sagði Jón að
hlaupið hefði farið fram á
sléttlendi og að fjölmargir
áhorfendur hefðu fylgst með
hlaupinu. Hægt var að hlaupa
á gaddaskóm. Hlaut Jón fern
verðlaun fyrir frammistöðu
sína. Félag hans sigraði einnig
í sveitakeppni, þar sem þeir
áttu fyrsta, þriðja og sjötta
mann í hlaupinu.
Jón Diðriksson stundar nú
nám í íþróttafræðum við
KEPPNIN í 1. deild karla í handknattleik mun að mestu liggja í dvala um
helgina. Leikmenn Víkings fá þó ekki að hvílast því að þeir mæta sænsku
meisturunum Ystad á laugardaginn. Lið HK og Fylkis verða einnig í
eldlínunni. Nokkrir leikir munu þó fara fram í 2. deild karla, 1. og 2. deild
kvenna og 3. deild karla, þeir eru.
Laugardagur.
Vestmannaeyjar 3. deild karla Týr—Dalvík kl. 14.30
Akureyri 2. deild karla Þór—Ármann kl. 15.30
— — — 1. deild kvenna Þór—Valur kl. 16.45
Akranes 3. deild karla ÍA-UBK kl. 15.00
Varmá 1. deild karla HK—Fylkir kl. 15.00
Njarðvík Sunnudagur. 2. deild kvenna UMFG—Þróttur kl. 13.00
Njarðvík 3. deild karla UMFN—Dalvík kl. 13.00
— — — 2. deild kvenna UMFN—Fylkir kl. 14.15
Laugardalshöll 1. deild kvenna KR—Víkingur kl. 20.10
— 2. deild karla Leiknir—Þróttur kl. 21.10
Þrátt fyrir allt eru þarna nokkrir athyglisverðir leikir, svo sem viðureign
nýliðanna í 1. deild karla, HK og Fylkis. Bæði hafa liðin hlotið 2 stig til þessa,
en að HK ólöstuðum, hafa Fylkismenn virkað sterkara lið. HK leika hins
vegar á heimavelli og gæti því viðureignin orðið hin skemmtilegasta. í fyrstu
deild kvenna verður leikur KR og Víkings, en bæði eru liðin við hinn óæðri
enda deildarinnar, KR raunar án stiga. Þá er stórleikur í 3. deild karla á
dagskrá á Akranesi á laugardeginum, en þá mætast lið ÍA og Breiðabliks,
sem bæði virðast líkleg til að blanda sér alvarlega í toppbaráttuna í deildinni.