Morgunblaðið - 26.11.1978, Side 29
bárujárnið. Hvergi annarsstaðar á
landinu er framleitt bárujárn.
Vírnet hf. sér landinu fyrir öllum
almennum naglasaum, ýmist gal-
vaniseruðum eða óryðvörðum.
Upphaflega var ætlunin að fram-
leiða þar girðingarefni, af því
hefur ekki orðið því til þess þarf
flóknar og dýrar vélar. Á staðnum
er plastverksmiðja. Þar vinna
fjórir menn. Þar er framleitt
einangrunarplast og einangrunar-
hólkar fyrir grönn hitaveiturör. í
steypustöðinni er rörsteypa. Þar
eru framleiddar milliveggjaplötur
og gangstéttahellur. Hjá prjóna-
stofu Borgarness vinna fimmtán
manns, þar af þrír karlmenn.
Prjónastofan framleiðir fóðraða
ullarjakka, peysur, vettlinga, húf-
ur og fleira, allt fyrir útlendan
markað; I Skotlandi er verksmiðja
í eigu prjónastofunnar sem vinnur
úr prjónaskapnum, því stúlkurnar
hafa ekki undan prjónavélunum.
Átta menn vinna við yfirbygging-
ar fyrir vöruflutningabíla. Á
staðnum er húfugerð sem fram-
leiðir loðhúfur og fleira. Ýmsir
verktakar vinna við byggingariðn-
aðinn og hitaveituframkvæmdirn-
ar. í Borgarnesi er sláturhús. Þar
er slátrað áttatíu þúsund fjár. Það
er það mesta sem slátrað er á
einum stað á landinu. Stór hópur
fólks hefur vinnu við það meðan
sláturtíðin stendur yfir. Hún er í
tvo mánuði, september og október.
Þá er unnið ' fram á kvöld.
Bornesingar eiga hlut í skuttogara
sem gerður er út frá Akranesi. Ef
upp kæmi atvinnuleysi yrði fisk-
inum ekið þaðan til vinnslu í
Borgarnesi. Um ýmislegt er að
velja ef menn hafa hug á að setjast
þar að og fá vinnu. Ungt fólk flyst
til Borgarness.
Þjónusta
Borgarnes er mikil þjónustu-
miðstöð fyrir héraðið og þjónar
öllu vesturlandinu á ýmsum svið-
um. í Borgarnesi er miðstöð fólks
og vöruflutninga. I Borgarnesi er
heilsugæslustöð. Þar hefur aðsetur
húsamatsmaður ríkisins fyrir allt
vesturlands.
Brúin
Þegar séð var að nýja brú þyrfti
yfir Hvítá var leitað að heppilegu
brúarstæði. Rannsóknir leiddu í
ljós að heppilegastur staður var
yfir Borgarfjörðinn. Þar mun hún
greiða leiðina og stytta. Jarðveg-
urinn við Hvanneyri var of votur
enda hefði styttingin ekki orðið
eins mikil þar. Smíði brúarinnar
hófst í júlí ’75. Hún mun stytta
leiðina vestur um rúma þrjátíu
kílómetra og búið er að reikna út
að brúin mun skila arði. Heitt vatn
verður leitt í brúnni og sími. Brúin
er góð fjárfesting. Bættar sam-
göngur er brýnasta fjárfesting
landsbyggðarinnar. Það á eftir að
steypa einn stöpul í brúna og
ganga frá einu þili. En siðan á '
eftir að fylla jarðveg út að henni.
Ráðgert var að brúin kæmist í
gagnið á næsta ári en það er alveg
óvíst. Byggingarhraðinn fer eftir
fjárveitingu. Ovíst er hvort brúin
kemst í gagnið fyrr en 1980. En
eitt er víst að margt gott hefur
þessi brú þegar leitt af sér.
Texti: Ásgeir bórhallsson.
stórlega hjúkrunarfræðinám
úr H.I. og hefur að engu
námsmat það, sem lagt hefur
verið til grundvallar öðru
námi í landinu. Miðað við
úrskurð Kjaradóms virðist
sem hann hafi ekki kynnt sér
nám B.Sc. hjúkrunarfræð-
inga til hlítar og lýsa nem-
endur furðu sinni á slíkum
vinnubrögðum.
Fundurinn telur einnig, að
hér sé um gróflegt jafnréttis-
brot að ræða, þar sem hefð-
bundnar kreddur virðast
ráða skiptingu kynjanna nið-
ur í starfsstéttir og einnig sé
nám okkar sett skör lægra en
almennt gerist og gengur um
háskólanám.
Gæði og
smekklegt útlit...
SIEMENS-ryksugurnar grundvallast á
áratuga tækniþróun og sérhæfðri fram-
leiðslu SIEMENS-verksmiðjanna.
SIEMENS-ryksugan er hljóðlát og auðveld
í notkun.
Rafeindastýrður 10OOW-mótor tryggir
mikinn sogkraft, sem aðlaga má
aðstæðum hverju sinni.
Leitið upplýsinga um SIEMENS-ryksugur
og sannfærist um kosti þeirra.
SIEMENS
-ryksugur sem endast
SMITH&
NORLAND
Nóatúni 4, Reykjavík
Sími 28300
Rosenthal verslun
vio Laugaveginn
Viö bjóöum yður velkomin í Rosenthal
verzlunina, Laugavegi 85.
Við sýnum og seljum hinar heimsfrægu
postulínsvörur frá Rosenthal, — gullfallegar
vörur og gulltryggðar. Verðgildi Rosenthal, sem
felst m.a. í því að Rosenthal postulín er aóeins til
í fyrsta gæðaflokki, lækkar ekki meó árunum.
Þess vegna eru margir, sem fjárfesta í
Rosenthal. Enda eru vörurnar listaverk, sem
halda alltaf fullu verðgildi.
Safnarar um allan heim, safna hinum víðfrægu
jólaplöttum frá Rosenthal, en færri fá en vilja.
Safnaraverð jólaplatta frá árinu 1971 er í dag
áætlað kr. 200.000.— væri hægt að fá hann
keyptan.
Komið og skoðið Rosenthal. Það kostar ekkert
að kynna sér möguleikana á Rosenthal safni.
N
Rosenthal — gullfallegar vörur — gulltryggðar.
Laugavegi 01