Morgunblaðið - 29.11.1978, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 29. NÓVEMBER 1978
19
Tómas
Tómasson
rœðismaður Eist-
lands á Islandi
Okkur barst til eyrna lát vinar
okkar, Tóniasar Tómassonar,
ræðismanns eistnensku þjóðarinn-
ar á íslandi.
Árið 1938 heimsótti Tómas
Eistland og sem konsúll var hann
gestur okkar ástsæla forseta,
Konstantin Páts.
Árið 1953 kom ég til Reykja-
vikur á vegum góðtemplararegl-
unnar. Stórstúkuþing Norðurlanda
var þá haldið á íslandi. Mér
veittist þá sú ánægja að fá
tækifæri til að heimsækja Tómas,
og var það afar ánægjulegt. Ótal
Eistlendingar sem komið hafa til
Islands hafa notið gestrisni
Tómasar.
Mér er enn í fersku minni þegar
ég var fyrir nokkrum árum
staddur í Reykjavík, hinni fögru
höfuðborg íslands, að ég ásamt
fieiri Eistlendingum, sem hér
funduðu, heimsóttum Tómas og
nutum gestrisni hans. Þegar við
kvöddum þennan heiðursmann
með föstu handabandi óskaði hann
okkur allra heilla, og síðast en ekki
síst af heilum hug óskaði hann
þess, að aftur mætti koma sá tími,
að eistneska þjóðin fengi frelsi sitt
á ný og dætur og synir eistnesku
þjóðarinnar gætu gengið um sitt
land frí og frjáls.
Innilegar samúðarkveðjur send-
um við frú Agnesi og öðrum
vandamönnum hans á Islandi.
Bernhard Máelo. Stockholm.
við varðveitum það mjög vel, og
það eru góðar minningar um
góðan strák sem hét Jón Ingi.
Svo biðjum við Guð að varðveita
og styrkja í þessari miklu sorg
foreldra hans þau Ingimund Jóns-
son og konu hans Steinunni
Snjólfsdóttur, systkini hans og
vini.
Camilla. Bára og Þorsteinn.
Minninq:
Jón Ingi
Ingimundarsm
Fa'ddur 11. janúar 1959.
Iláinn 12. nóvember 1978.
Þeir sem Guðirnir elska deyja
ungir.
Ingi, eins og við ávörpuðum
hann alltaf, er nú ekki lengur á
meðal okkar. Við verðum að sætta
okkur við að þeir sem Guðirnir
elska deyja 'ungir, og það er
sorgleg staðreynd því að Ingi
heitinn var ekki nema nítján ára
þegar þetta hræðilega slys varð.
Ingi var sannur vinur í blíðu og
stríðu. Það mátti alltaf reiða sig á
hjálp frá Inga hendi, og hann gerði
alltaf allt sem í hans valdi stóð til
að allir væru ánægðir.
Ef maður var eitthvað dapur, þá
hýrnaði strax yfir manni, um leið
og Ingi birtist svona glaðlegur og
elskulegur eins og hans var ávallt
vani. Ingi heitinn og Egili yngri
bróðir hans voru mjög samrýmdir;
ef maður sá Inga þá var manni
óhætt að segja: þarna eru Ingi og
Egill, því það leið ekki á löngu
áður en Egill birtist og öfugt. Það
er tæplega tveggja ára aldursmun-
ur á þeim bræðrum en það var
stundum eins og þeir væru einn og
sami maðurinn, svo mikil var ástin
og virðingin á milli þeirra.
Þetta hræðilega slys úti á sjó
varð til þess að nú fáum við aldrei
oftar að sjá þetta upplífgandi og
fallega andlit.
Það verður ekki annað sagt en
að nú vantar mikið í okkar
vinahóp. I hann er komið djúpt
skarð og þetta skarð verður aldrei
bætt, þótt víða verði leitað. Við
biðjum bara þess að Egill, eða litli
bróðir, eins og við höfum heýrt
Inga heitinn nefna hann, megi
finna hamingju á ný. Sömuleiðis
fjölskylda hans og vinir.
Það eru núna margir með
brostið hjarta, og það eru þeir sem
þekktu Inga heitinn, því að hann
var alveg sérstakur maður.
En það besta sem við eigum, er
mjög dýrmætt og enginn og ekkert
getur tekið það frá okkur, því að
Elsku \ir'
bfagðaðu nú á öllum
tegundum *, „
'Kókoskökur
•Spesíur
•Kókostoppair
•Vanilluhringir
sÞ KEXVERKSMIÐJAN FRON
t
Alúðar þakkir öllum þeim til handa, sem sýndu okkur svo mikla hlýju og
samúö viö fráfall sonar okkar, bróöur, mágs og frænda,
ÞORLÁKS BJARNA HALLDÓRSSONAR.
Else, Halldór Þorláksson,
Björn Halldórsson, Brynja Axelsdóttir,
Anna Halldórsdóttir, Magnús S. Magnússon,
Eva Halldórsdóttir,
Elísabet Björnsdóttir, Halldór Björnsson.
t
Innilegar þakkir fyrir auösýnda samúö og vináttu viö fráfall og útför
eiginmanns míns, fööur okkar, tengdafööur og afa,
HALLDORS MAGNÚSSONAR,
Brekkustíg 4 a,
fyrrv. bóndi Vindheimum, ÖKusi,
Sesselja Einarsdóttir,
Jónína Halldórsdóttir, Hannes Ingibergsson,
Guörún Halldórsdóttir, Roger Dawson,
Magnea Halldórsdóttir, Grímur Lórusson,
Hafsteinn Halldórsson, Helga Frióriksdóttir,
og barnabörn.