Morgunblaðið - 30.11.1978, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978
Frumvarpið:
Full vísitala 1. marz
Greinargerðin:
Skert vísitala 1. marz
I 1. ííroin frumvarps til laga um
tímahundnar ráðstafanir til við-
náms jíOíjn vorðhóljíu. síðari
málsgroin. sosirs „Frá 1. marz
1979 skal groiða vorðhætur á
laun samkvæmt vorðhótavísitölu
151 stig. að viðhættri þeirri
stigatiilu. or verðhótavísitala
reiknuð samkvæmt ákvæðum
kjarasamninga. hækka frá 1.
dosomhor 1978 til 1. marz 1979.
shr. þó ákvæði 1. kafla laga nr.
96/1978 um kjaramál."
Eins og af orðalagi þossu sést
or það hundið í lögum. að greiða
skuli vorðhætur á laun. sem
nomur stigahækkun umfram vísi-
tölu 151 stig, som er verðvótavísi-
talan í dag. Er þar okkert ákvæði
í lögunum um að okki skuli
vorðhæta umfram 5% hækkun
verðhótavísitölu,, svo sem þing-
menn Alþýðuflokksins gerðu
kriifu til.
Hins vegar skal á það bent, að í
greinargerð með frumvarpinu,
sem ekkert lagagildi kemur til með
að hafa, segir: „Ríkisstjórnin mun
meðai annars beita sér fyrir
eftirgreindum aðgerðum: 1. Stefnt
verði að því í samráði við aðila
vinnumarkaðarins að verðlags- og
peningalaunahækkanir 1. marz
1979 verði ekki meiri en 5%.“
Fulltrúaráð sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík:
EllertB.
Schram
endur-
kjörinn
formaður
Sveinn H. Skúlason ráðinn
framkvæmdastjóri
ELLERT B. Schram alþingismað-
ur var endurkjörinn formaður
fulltrúaráðs sjálfsta'ðisfélaganna
í Reykjavík á aðalfundi þess sl.
þriðjudag en alls sóttu um 300
manns fundinn. Á þessum fundi
urðu einnig framkvæmdastjóra-
skipti íulltrúaráðsins. Vilhjálm-
ur I>. Vilhjálmsson. sem verið
hofur framkvæmdastjóri ráðsins
um árabil. lét nú af því starfi og í
hans stað var ráðinn Svoinn II.
Skúlason.
Ellert B. Schram
allra sjálfstæðismanna um að leiða
saman krafta sína til nýrra átaka,
skarpari og ákveðnari en nokkru
sinni fyrr. Stjórnmálabarátta ræðst
ekki af einum kosningum. Hún er
þrotlaust stríð, þar sem ekki má
láta hugfallast þótt orrusta tapist.
Vopn okkar er málstaðurinn, mark
okkar er frjálst þjóðfélag, samfélag
þar sem einstaklingarnir fá að
njóta sín.“
Forsætisrádherra:
Borgin er óðum að færast í jölabúning, og það er farinn að verða meiri straumur fólks um miðborgina, því að
það eru margir sem vilja ljúka sem mestu af jólainnkaupum áður en sjálf jólaösin byrjar fyrir alvöru.
Fjöldi stéttarfélaga, þar af
3 landssambönd, með lausa
kjarasamninga frá 1. des.
ALLMÖRG stéttarfélög þar af 3
landssambiind. hafa sagt upp
samningum frá og með 1. desem-
bor. on samningar allra annarra
félaga. sem ekki neyttu heimildar
til uppsagnar. framlengjast sjálf-
krafa í þrjá mánuði. Þá hafa 16
félög gert tilraun til þess að
afturkalla uppsögn kjaraliðar
samninga. sem sagt var upp eftir
að febrúarlögin voru sett. en
vinnuveitendur hafa ekki
samþykkt uppsögnina. Því eru
flestöll launþegafélög með lausan
launalið. en bundinn samning að
öðru leyti.
Þau félög, sem hafa sagt upp
samningum að öllu leyti og
hyggjast hefja samningsgerð, eru:
Rafiðnaðarsamband íslands,
Múrarafélag Reykjavíkur,
Farmanna- og fiskimanna-
samband íslands, Landssamband
íslenzkra verzlunarmanna fyrir
hönd 20 félaga víðs vegar um land,
Félag Blikksmiða, Verzlunar-
mannafélag Akureyrar, Félag
matreiðslumanna, vegna samnings
við skipafélögin, Mjólkurfræðinga-
félag Islands, Verkstjórasamband
íslands, Verzlunarmannafélag
Reykjavíkur og loks Flugvirkjafé-
lag Islands, en hið síðastnefnda
hefur annan samningstíma og
hefur sagt upp frá og með 1.
febrúar 1979.
Þau félögj sem reyndu að
afturkalla uppsögn kaupliða
kjarasamninga, voru Trésmiðafé-
lag Reykjavíkur og iðnnemar, sem
voru fyrstir til. Síðan á síðustu
dögum októbermánaðar hafa eftir-
talin félög afturkallað uppsagnir
sínar: Landssamband vörubif-
reiðastjóra, Verkakvennafélagið
Framtíðin, Hafnarfirði, Trésmiða-
félag Akureyrar, Verkalýðsfélagið
Þór, Selfossi, Verkamannafélagið
Hlíf, Hafnarfirði, Sveinafélag
húsgagnasmiða, Félag bifreiða-
smiða, Verkalýðsfélagið Rang-
æingur, Hellu, Verkalýðsfélag
Borgarness, Verkamannafélagið
Dagsbrún, Reykjavík, ASB, félag
afgreiðslustúlkna í brauð- og
mjólkursölubúðum, Iðja, félag
verksmiðjufólks í Reykjavík,
Verkalýðsfélagið Vaka, Siglufirði,
Bakarasveinafélag íslands og
Verkalýðsfélag Akraness. Samtals
eru þetta 16 félög en vinnuveit-
endur samþykktu ekki afturköllun
uppsagnar kaupliða og er því
kaupliðurinn óbundinn.
Sjö með loðnu
SJO loðnuskip tilkynntu um afla
til Loðnunefndar í gær. Fóru
fjögur skipanna til Siglufjarðar,
eitt til Akraness, en um tvö var
ekki vitað hvert færu. Skipin sem
fengu afla voru: Óskar Halldórs1
son 410, Stapavík 450, Albert 450,
Magnús 450, Súlan 450, Hilmir 360
og Skírnir 170 tonn.
Aðrir í stjórn Fulltrúaráðsins
voru kjörnir: Gunnar Thoroddsen,
Björn Þórhallsson, Sigurður Haf-
stein, Kristín Magnúsdóttir, Val-
garð Briem og Gísli Baldvinsson.
Auk þess eiga sæti í fulltrúaráðinu
formenn allra sjálfstæðisfélaganna,
alls 16 talsins.
Enginn er skyldugur að
greiða hærri verðbótavísitölu
— heimilt ef mönnum sýnist svo
Á aðalfundinum var flutt skýrsla
um liðiö starfsár, og þá einkum
fjallað um kosningarnar, starf og
undirbúning vegna þeirra svo og
stöðuna að kosningum loknum og
um endurskipulag fulltrúaráðsins.
í lokaorðum í skýrslu formanns
sagði hann m.a.: „Kosningaúrslitin í
sumar voru ekki endalok. Þau voru
kallmerkið í nýrri sókn. Áskorun til
Ólafur Jóhannesson for-
sætisráðherra svaraði því
aðspurður á Alþingi í gær,
hvern veg bæri að skilja
fjórðu grein í frumvarpi
ríkisstjórnarinnar um
tímabundnar ráðstafanir
gegn verðbólgu, þess efnis,
að greiða skuli verðbætur
skv. verðbótavísitölu 151
stig fram til 1. marz nk.
„Hana á að skilja þannig,“
sagði forsætisráðherra, „að
engum er skylt að greiða
hærri verðbætur á laun á
þessu tímabili, heldur en í
greininni segir... Hinsveg-
ar er það einnig — svo og í
samræmi við tilvitnun í 1.
kafla kjaraiaganna — að
mönnum er heimilt að
semja um það að greiða
hærri vísitölu alveg eins og
þeim er heimilt að semja
um það að greiða hærri
grunnlaun... það er ekk-
ert bann við því, að á þessu
tímabili sé samið um hærri
vísitölugreiðslur né heldur
um hærri laun.“
Metsala Vigra
í V-Þýskalandi
Skuttogarinn Vigri.
SKUTTOGARINN Vigri
fékk í gær mesta verð fyrir
afla, sem íslenzkt skip
hefur fengið í V-Þýzka-
landi. Vigri seldi í Cux-
haven 222.5 tonn fyrir 481
þúsund vþýzk mörk eða 79
milljónir króna. Meðal -
verðið var því 355 krónur á
kíló. Skipstóri á Vigra er
Steingrímur Þorvaldsson.
Afli skipsins var að mestu
leyti ufsi og karfi til
helminga, en lítið af
þorski.
Ögri, systurskip Vigra, átti
eldra sölumetið og var það frá 18.
október á síðasta ári. Þá seldi
skipið 273 tonn fyrir 471.500 mörk.
Þrjú fiskiskip seldu afla sinn
erlendis á mánudag og fékk Lárus
SveinsSon SH 126 mjög gott verð
fvrir afla sinn í Grimsby. Skipið
seldi 68 tonn fyrir 32.8 milljónir
króna og var meðalverðið því 482
krónur, sem er næsthæsta meðal-
verð, sem íslenzkt fiskiskip hefur
fengið, Vélbáturinn Haffari seldi
35 tonn í Fleetwood fyrir rúmlega
13 milljónir króna og var meðal-
verðið 375 krónur. Þá seldi Arin-
björn RE 105.3 tonn í Hull og fékk
tæplega 45 milljónir fyrir aflann,
eða 426.30 kr. meðalverð á kíló.
Þetta kom fram í svari forsætis-
ráðherra vegna fyrirspurnar frá
Steinþóri Gestssyni (S), m.a.
vegna samþykktar meirihluta
borgarstjórnar Reykjavíkur um að
greiða laun eftir samningi, sem
gerður var 1977. Spurði hann af
því tilefni, hvort heimilt væri að
greiða hærri verðbætur, en frum-
varpsgreinin hljóðaði upp á — eða
hvort hún va-ri bundin við 151 stig
sem hámark. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær hefur ríkt
ágreiningur í stjórnarliðinu um
það, hvort lagafrv. banni greiðslu
hærri verðbóta. Lúðvík Jósepsson
hefur talið að svo væri ekki, en
Ólafur Ragnar Grímsson taldi frv.
hins vegar bindandi að þessu leyti.
Annarri umræðu um frumvarp-
ið lauk í neðri deild kl. hálftvö í
fyrrinótt. Fyrstu umræðu lauk kl.
1 í fyrrinótt. Frumvarpið var í gær
afgreitt til efri deildar, þar sem
útvarpsumræður fóru fram um
það.