Morgunblaðið - 30.11.1978, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978
7
Alþýöubanda-
lagiö — kaup-
ránsflokkur
Einíngarsamtök komm-
únista (marx-leninista)
gefa út Verkalýðsblaðiö.
Þar segír svo í forystu-
grein frá „framkvæmda-
nefnd miðstjórnar" um
efnahagsráöstafanir
vinstri stjórnarinnar:
„Þegar Þetta er skrifaö,
er fullljóst orðið að ríkis-
stjórnin og forystulið
samtaka launafólks hafa
fyrirhafnarlítið náð sam-
komulagi um að ræna
launafólk góöum hluta
beinna kjarabóta 1.
desember. Þar með hefur
forysta „verkatýðsflokk-
anna“, Albýðubandalags
og Albýðuflokks — og
Þeirra menn í verkalýös-
forystunni náð hámarki í
blekkingarsirkusnum
sem sömu aðilar hófu i
febrúar s.l. Þá var
réttilega sett fram krafa
um „samningana í gíldí“,
sem tákn um að nú stæði
baráttan um að verja
fenginn hlut gagnvart
gróðaáhlaupum auð-
valdsins. En eftirleikinn
Þarf ekki að rekja í löngu
máli. Verkalýðsforystan
og AIÞýöubandalag/
Albýðuflokkur skipu-
lögðu aldrei baráttu
verkalýðsins til aö
hnekkja bráðabírgðalög-
unum um kauprán.
„Samningana í gildi“
varð í meðförum pessara
afla áróðurstæki til aö ýta
undir atkvæðastreymi í
kosningunum s.l. vor, og
Þannig var reiði launa-
fólks nýtt til að senda
fleiri framagosa í Þæg-
indasæti viö kjötkatla
auðvaldsins. Nú hefur
flagðið komið undan
skinninu fagra: AlÞýðu-
bandalagið er
forystuflokkur kaupráns-
flokkanna í ríkisstjórn.
Albýðubandalagið og
armur Þess i verkalýðs-
hreyfingunni er í forystu
við að reyna aö bjarga
gróða auðvaldsins með
beinu og augljósu kaup-
ráni.
Stjórnarflokkarnir
hamra á Því, ekki síst
AlÞýöubandalagiö, aö
skert kauphækkun 1.
des., skuli bætt „með
öðrum leiðum“. Talað er
um lækkun skatta, bætta
félagslega Þjónustu,
auknar niðurgreiöslur, aö
atvinnurekendur megi
ekki velta öllu út i verð-
lagið o.s.frv. En fyrir
verkafólkið sjálft eru slík-
ar viljayfirlýsingar kaup-
ræningja AlÞýöubanda-
lagsins ekki meira virði
en pappírinn sem Þær
eru skrifaðar á. Auðstétt-
in sjálf veit hvað henni
kemur vel og hún ber
verkalýðsforystuna og
AB-forystuna í gullstólum
Þessa daganal Kaupránið
Þýðir einfaldlega að at-
vinnurekendur Þurfa ekki
að leggja jafn mikið í
kaupgreiðslur og áður,
Þó aö Þurfi að borga
örlítið fleiri krónur. Flest-
ar hækkanir hafa fengið
skjóta afgreiðslu, nægir
Þar aö benda á Flugleiðir,
gos- og smjörlíkisfram-
leiðendur, olíufélögin,
póst og síma.“
Olafur
og Tómas
Olafur Jóhannesson,
forsætisráðherra, hefur
vanið sig á sérstæða
framkomu gagnvart sam-
ráðherrum sinum úr
Framsóknarflokknum,
eins og Einar Ágústsson,
fyrrum utanríkisráðherra,
varð rækilega var við í
utanríkisráðherratíð
sinni. Nú er Tómas Árna-
son, f jármálaráðherra,
hins vegar fórnarlamb
Ólafs. Fjármálaráðherra
beitti sér mjög ■ ríkis-
stjórninni fyrir tillögum,
sem voru ápekkar tillög-
um Þeim, sem AIÞýðu-
flokkurinn lagði fram í
síöustu viku. Tómas
Árnason gekk svo langt
aö leggja slíkar tillögur
fyrir Þingflokksfund
Framsóknarflokksins og
fékk Þær sampykktar. A
ríkisstjórnarfundi sem
haldinn var á miðvikudag
í síðustu viku lagði Olatur
Jóhannesson, forsætis-
ráöherra, svo fram sínar
tillögur, sem voru nánast
samhljóða tillögum
AlÞýðubandalagsins.
Forsætisráðherra hafði
ekki einu sinni fyrir Því
aö skýra fjármálaráð-
herra frá Þessum tillög-
um sínum, hvað Þá Þing-
flokki Framsóknarflokks-
ins.
Aðalstræti 4
Bankastræti 7
iandkönnuöui
i
".'•rsf'K'j" •#> ,*
Frotmiöir sogunnar
Ditstýín: fcli/abdh Lv'itt'íwtl
landkönnu&ur, sæfan
og sjóræningi
Francis Drake var knúinn sterkri
trúarhvöt og girnd eftir ráns-
feng Hann sigldi ungur for-
boðnar slóöir, braust að ,,gull-
kistum heimsins“ og sigldi um-
hverfis jörðina á árunum
1577-80.
Ævintýraleg frásögn ótrúlegs
æviskeiðs.
Bókaúti>áfan Örn o{> örlygur hf.
Vesturgötu 42, sími 25722
▲ Stjórnunarfélag íslands Jk
Fyrir þá sem vilja auka
útflutningstekjur.
ÚTFLUTNINGSVERZLUN
Dagana 11.—13. desember n.k. gengst Stjórnunarfélag
íslands fyrir námskeiði í Útflutningsverzlun. Námskeiöið
veröur haldið að Hótel Esju og stendur frá kl. 15—19 alla
dagana eöa alls í 12 klst.
Námskeiö þetta er einkum ætlað starfsfólki útflutningsfyrirtækja og
fyrirtækja er hyggja á útflutning, og megin tilgangurinn er að gera
starfsfólk hæfara til að leysa hin ýmsu vandamál í útflutningsstarf-
inu. Á námskeiðinu verður aðallega leitast við kynna:
— frágang og gerð útflutnings-
skýrslna
— val markaöa
— val dreifiaðila
— söluörvandi útflutningsaðgeröir.
Auk þess verða fleiri atriði er snerta
útflutning kynnt.
Úlfur Sigmundsson.
Leiöbeinendur veröa Úlfur Sigmundsson og starfsfólk útflutnings-
miðstöðvar iðnaðarins. Þátttaka tilkynnist f síma 82930 hjá
Stjórnunarfélagi íslands. Hringiö ennfremur og biðjið um að fá
sendan ókeypis upplýsingabækling um námskeiö SFÍ.
m.t.
Ármúla 28 — Sími 37033