Morgunblaðið - 30.11.1978, Side 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978
Námsmenn fá aðeins
72% fj árþarfarinnar
Uppsaladeild Sambands ísl.
námsmanna erlendis hefur sent
frá sér ályktun er samþykkt var á
fundi dcildarinnar fyrir stuttu og
er hún svohljóðandii
Samkvæmt fjárhagsáætlun LÍN,
sem gerir ráð fyrir 100% lánshlut-
falli og að tillit sé tekið til
fjölskyldustærðar, þarf 3.6
milljarða kr. fjárveitingu fyrir
núlíðandi skólaár. Frumvarpið
gerir hins vegar aðeins ráð fyrir
2.2 milljarða kr. fjárveitingu til
LÍN ásamt 400 milljóna kr.
lánsheimild, sem þýðir aðeins 72%
af raunverulegri þörf.
Fundur Uppsaladeildar SÍNE
krefst 100%. lánshlutfalls og raun-
verulegra bóta á högum fjöl-
skyldufólks. Fundurinn tekur ekki
mark á úrlausnum, sem eingöngu
miðast við andlitslyftingu vegna
kosningaloforða og ekki stuðla að
raunverulegum bótum á kjörum
námsmanna. Fundurinn skorar á
Alþingi að sýna málinu skilning og
sýna þann skilning í verki.
Selás — Einbýlishúsalóð
Til sölu einbýlishúsalóö á góöum staö í Selási.
Byggingarhæf næsta sumar.
Upplýsingar í síma 84775 og 85022.
Seljendur
Höfum kaupendur aö 2ja til 6 herb. íbúðum, raöhúsum
og einbýlishúsum í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfiröi.
Austurbrún
Til sölu í toppklassa 2ja herb. íbúö. Uppl. á
skrifstofunni.
Haraldur Magnússon,
viðskiptafræðingur,
Sigurður Benediktsson,
sölumaður.
LAUFAS
SÍM! 82744
REYNIMELUR 82 FERM
3ja herb. íbúð á 4. hæð með góðu útsýni, í góðu standi og
meö góðri sameign. Verð 16 milljónir.
STAPASEL 83.5 FERM
3ja herb. íbúð á jaröhæö (ekki niðurgrafið) í tvíbýlishúsi
tæplega tilbúið undir tréverk. Verö 9.7 milljónir.
FLUÐASEL 115 FERM
4ra herbergja íbúö með stóru holi á 2. hæö næstum fullbúin.
Bílskýli. Verö 16.5—17 milljónir.
FELLSMÚLI 120FERM
5 herb. íbúð á 4. hæð meö stórri stófu, rúmgóðu eldhúsi og
tengingum fyrir þvottavél í baðherbergi. Verð: Tilboö.
Haligrimur Ólafston, viöakiptafraaöingur
SÍMAR 21150-21370
S0LUSTJ. LARUS Þ VALDIMARS
L0GM JÓH. Þ0RÐARS0N HDL
Til sölu og sýnis m.a.
Gnoöarvogur — Mávahlíö
Bjóöum til sölu góöar 5 herb. hæöir. Mikiö endurnýjaöar.
Mjög góð kjör miöaö við pessa eftirsóttu staöi.
Fáum væntanlega á næstunni
einbýlishús 150 fm. auk bílskúrs. Nýlegt fullgert á glæsilegri
lóö á vinsælum stað í borginni.
Viö Hraunbæ
óskast 3ja til 4ra herb. íbúö. Traystur kaupandi.
Góð 4ra til 5 herb. íbúö
óskast helst í vesturborginni eða í Hlíðunum. Skipti
möguleg á góöri 3ja herb. íbúð í vesturborginni.
Teigar — Tún — Laugarnes
Þurfum að útvega sér hæð með bílskúr. Ennfremur góða 3ja
til 4ra herb. íbúó.
Purfuíö aö útvega AIMENNA
2til 3ja herb., FASTEI6NASALAN
Ii4':> ibuö. f LAUGAVEGi 49 SIMAR 21150 21370
Hluti fundarmanna á 20. vetrarfundi Sambands íslenskra rafveitna, er fram fór f ráðstefnusal Hótel
Loftleiða í gær og fyrradag. Ljósnti Emilfa.
20. vetrarfundi
S.l.R. lauk í gær
VETRARFUNDI Sambands ís-
lenskra rafveitna, sem hófst á
mánudag, lauk síðdegis f gær. Á
fundinum voru flutt fjölmörg
erindi er gáfu góðan þverskurð af
þeim vandamálum sem raforku-
iðnaðurinn f landinu á við að
glíma um þessar mundir.
Fundurinn hófst á mánudag
með ávarpi formanns S.I.R., Aðal-
steins Guðjohnsen, rafmagns-
stjóra.
Að því loknu flutti iðnaðarráð-
herra, ffjörleifur Guttormsson,
ávarp, og hófust síðan eiginleg
fundarstörf með því að Jóhannes
Nordal, stjórnarformaður Lands-
virkjunar, flutti ítarlega ræðu um
„Orkulindir íslands og hagnýtingu
þeirra“. Að lokinni umræðu um
ræðu Jóhannesar, flutti Þorvaldur
Garðar Kristjánsson síðan ræðu
um „Tillögur Skipulagsnefndar
orkumála". Gerði hann þar grein
fyrir áliti bæði meirihluta og
minnihluta nefndárinnar og urðu
talsverðar umræður að framsögu-
ræðu Þorvalds lokinni.
Síðdegis á mánudag var fundar-
gestum síðan sýnd kvikmynd
Landsvirkjunar, „Virkjun".
í gærmorgun var fundinum
Fasteignasalan
Norðurveri Hátúni 4 a
Símar 21870 og 20998
2ja herb. íbúð
viö Kleppsveg
3ja herb. íbúðir
viö Hamraborg, Lynghaga,
Sogaveg og Hverfisgötu.
4ra herb. íbúðir
viö Kópavogsbraut.
6 herb. íbúð
viö Krummahóla.
Einbýiishús
við Básenda, Reykjavíkurveg
og Sólvallagötu.
í smíöum
raöhús í Seljahverfi
íbúðir í tvíbýlishúsi í Hafnarfirði.
Okkur vanfar allar
stærðir íbúða og húsa.
Miklar útborganir.
Jón Bjarnason, hrl.
Hilmar Valdimarsson,
fasteignaviðskipti.
Óskar Þ. Þorgeirsson,
Sölustjóri s: 34153.
síðan haldiö áfram með því að
Haukur Páimason, yfirverkfræð-
ingur, ræddi um verðlagningu
raforku og voru síðan frjálsar
umræður að lokinni framsögu-
ræðu Hauks.
Þá fóru fram frjálsar umræður
um rafveitumál og var þar meðal
annars rætt um eftirtalin málefni:
Tryggingu raforkuskulda, Sam-
ræmingu heimtaugagjalda, götu-
ljósagjalda og gjalda til sveitarfé-
laga, og loks var rætt um tengi-
skilyrði. Þá flutti Kristján Jóns-
son, rafmagnsveitustjóri stutta
skýrslu um samanburð á beinni
rafhitun og fjarvarmaveitum.
Þessum 20. vetrarfundi Sam-
bands íslenskra rafveitna lauk svo
með því, að fundarmenn fóru í
skoðunarferð að hinni nýju að-
veitustöð Rafmagnsveitu Reykja-
víkur við Barónsstíg og í gær-
kvöldi var síðan sameiginlegt
borðhald fundargesta, en þeir voru
fjölmargir víðs vegar að af land-
inu.
Aðalfundur Sambands íslenskra
rafveitna verður háldinn í vor og
hefur fundarstaður verið ákveðinn
Bifröst í Borgarfirði.
Bók Thors Vilhjálmsson-
ar um Kjarval komin út
IfJÁ bókaútgáfunni' IÐUNNI er
komin út bók Thors Vilhjálmson-
ar. KJARVAL. en texti bókarinn-
ar birtist á annarri bók með allt
öðru sniði árið 1964, þá prýdd
margvíslegum myndum eftir
Kjarval, cftirprentunum teikn-
inga og málverka frá ýmsum
skeiðum ævi hans. Hefur sú bók
veriðð ófáanleg lengi, en hún var
geíin út af Hclgafelli. Texti
hókarinnar var saminn óháður
myndunum sem fylgdu honum,
eins og Thor Vilhjálmsson segir í
eftirmála sínum að þessari út-
gáfu, og var því horfið að því ráði
að prenta hann sjálfstæðan ásamt
ljósmyndum af Kjarval sem ná-
inn vinur hans, Jón Kaldal. tók á
ýmsum æviskeiðum. Á bókakápu
scgir svoi
„Þessi bók er ævintýri líkust,
saga eins mesta og einkennileg-
asta listamanns, sem uppi hefur
verið hér á landi, í meðferð
höfundar sem skrifar svipmestan
og hugmyndaríkastan stíl sinnar
kynslóðar. Thor rekur sögu Kjar-
vals, lýsir háttum hans og list á
afar persónulegan hátt, gerir
KJARVAL
hvert smáatriði lifandi og sögu-
legt, þó að stíllinn sé yfirleitt
hraðari en oft endranær í verkum
hans. Að miklu leyti er bókin
sprottin af nánum kynnum þess-
ara manna, löngum samtölum
þeirra og ferðalögum saman."
Kennarasamband
Vesturlands fundar
FUNDUR Kennarasambands
Vesturlands var haldinn í Hótei
Borgarncsi fyrir nokkru. Fráfar-
andi stjórn skilaði aí sér verkum
og hin nýja tók við.
Gunnar Hjartarson setti fund-
inn og lýsti í stórum dráttum
störfum síðustu stjórnar. Því
næst var gengið til kosninga
stjórnar og fór hún á þennan vegi
Jón Friðberg Hjartarson,
Akranesi, formaður, Halla
Guðmundsdóttir, Laugagerðis-
skóla, ritari, Ólafur Torfason,
Stykkishólmi, gjaldkeri og með-
stjórnandi Gunnar Svanlaugsson,
Reykholti. I varastjórn: Jón Karl
Einarsson, Akranesi, formaður,
Einar Guðmundsson, Akranesi,
ritari og Þorsteinn Guðmundsson,
Kleppjárnsreykjum, gjaldkeri.
Þá voru einnig kosnar deildar-
stjórnir Vesturlandsdeilda Lands-
sambands framhaldsskólakenn-
ara, Sambands grunnskólakenn-
ara og Bandalags háskólamanna.