Morgunblaðið - 30.11.1978, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NOVEMBER 1978
17
Stykkishólmur:
Dvalarheimili
aldraðra vígt
Stykkishólmi, 27. nóv.
DVALARHEIMILI aldraðra í
Stykkishólmi var formlega opnað
og tekið til notkunar laugardag-
inn 25. þ.m. að viðstöddu fjöl-
menni. Heilbrigðisráðherra og
þingmönnum kjördæmisins hafði
verið boðið að vera viðstaddir
athöfnina en sökum anna og
erfiðrar færðar gat enginn þeirra
mætt.
Vígsluathöfnin hófst með því að
sveitarstjórinn Sturla Böðvarsson
bauð gesti velkomna og séra Gísli
Kolbeins flutti bæn og vígði
heimilið. Sveitarstjóri gat þess að
breyting á húsnæðinu, en gamla
heimavistin við skólann var tekin
undir dvalarheimilið, hefði hafist í
fyrra og margir lagt hönd á
plóginn. Fyrstu dvalargestir hefðu
flutt inn í ágúst s.l. og nú við
opnunina væru 15 dvalargestir
þarna en alls tæki héimilið 16
vistmenn. Forstöðukona heimilis-
ins er Guðlaug Vigfúsdóttir en
framkvæmdanefnd byggingar
skipuðu ásamt sveitarstjóra þeir
Einar Karlsson og Gissur
Tryggvason.
Kostnaður við breytingu og
fullgerð heimilisins eru rúmar 29
milljónir og af þeim eru rúmar 6
milljónir gjafir frá einstaklingum
og félögum.
Ýmsar gjafir bárust á vígslu-
daginn auk þeirra sem áður höfðu
borist og greindi sveitarstjóri frá
þeim og þakkaði hverjum og
einum hans hlut.
Að breytingunni unnu heima-
menn hver á sínu sviði. Sigurður
Magnússon fyrrum hreppstjóri
sem senn á 99 ára afmæli og kona
hans Ingibjörg sem er á 95.
aldursári voru viðstödd vígsluna
en þau hjón hafa gefið heimiiinu
bókasafn sitt sem er hið vegleg-
asta og eins gaf Björn Jónsson
Kóngsbakka í Helgafellssveit
heimilinu bókasafn sitt og er nú
unnið að skráningu safnanna.
Þá afhenti sveitarstjóri Ellert
Kristinssyni oddvita lykla heimil-
isins og flutti Ellert snjallt ávarp
og lýsti stöðu aldraðra í Hólmin-
um i dag og þeim breytingum sem
áorðnar væru frá því fyrst var
hugað að stofnun elliheimilis í
bænum, en það var 1944 að
hreppsnefndin myndaði sjóð, Elli-
heimilissjóð, sem starfað hefir
síðan. Sýsiunefndin kaus árið 1958
nefnd til að athuga um þessi mál
fyrir sýsluna í heild en ekki náðust
samningar í þessu máli milli
byggðarlaganna. Árið 1976 var svo
kosin framkvæmdanefnd vætan-
legrar byggingar og teiknaði Jósef
Reynis arkitekt heimilið fyrir
nefndina.
Einar Karlsson flutti nokkur orð
og færði dvalarheimilinu gjöf frá
Verkalýðsfélaginu og einnig
ávarpaði príorinna st. Fransiskus-
systra og færði heimilinu gjöf frá
þeim systrum.
Heimilið er allt hið vandaðsta
og fólkið sem þar dvelur mjög
ánægt og þakklátt og hefir beðið
um að koma á framfæri hjartan-
legu þakklæti til allra sem að
þessu heimili hafa staðið og er það
gert hér með.
Hreppsnefndin hefir nú á döf-
inni ýmsa aðra þjónustu við
aldraða og mun það verða skoðað á
næstunni að því er sveitarstjóri
sagði í ávarpi sínu.
Fréttaritari.
Spörum
ekki #
ökuljósin
„Nú erum við búin að fá okkur
Philips litsjónvarpstæki, og ég get sagt
þér það, að ég var búinn að ganga hús úr
húsi að kíkja á litinn hjá kunningjunum,
áður en ég skellti mér á Philips. Sko,
maður þarf að geta borið saman, til þess
að geta áttað sig á því hvað maður vill.
Svo heyrir maður, að þetta sé allt sama
tóbakið, að þetta sé allt eins en það er nú
öðru nær ...
Við vitum að Philips stendur fram-
arlega í tækninni, nú, og svo sér maður
það, sem maður sér. Litirnir eru svo
eðlilegir að maður hefði bara ekki trúað
þessu.
Blessaðu líttu til okkar í kvöld og
taktu konuna og krakkana með. Ég vil
endilega að þið sjáið í okkar tæki áður en
þið ákveðið hvað þið ætíið að kaupa.
Geriði það ...
Jón ereinnaf okkar
bestu sötumönnum
samt vinnur hann
alls ekki hjá okkur
Hann notar hvert tækifæri til að
segja kunningjunum frá því, hvað Philips
litsjónvarpstækið hans sé frábært.
PHILIPS
litsjónvarpstæki með
eðlilegum litum.
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 15655
Kiartanlútiusson
Bræóraborgarstiq 16 Sími 12923-19156
Kjartan Júlíusson
Regínfjöll að
haustnóttum
og aðrar frásögur
Halldór Laxness var hvatamaður aö útgáfu þessarar bókar og ritar
snjallan og skemmtilegan formála, þar sem segir m.. a. á þessa leid:
„... þessar frásagnir af skemtigaungum Kjartans Júlíussonar um regin-
fjöll á síóhausti geröu mig aö vísum lesara hans. Úr stööum nær bygö-
um velur þessi höfundur söguefni af mönnum sem lenda í skrýtilegum
lífsháskum, tam vegna príls í klettum ellegar þeir eru eltir uppi af mann-
ýgum nautum; stundum stórskemtilegar sögur. Einneigin segir hann
sögur um svipi og ýmiskonar spaugelsi af yfirskilvitlegu tagi ... þessi
kotbóndi haföi snemma á valdi sínu furöulega Ijósan, hreinan og per-
sónulegan ritstíl, mjög hugþekkan, þar sem gæöi túngunnar voru í há-
marki...“
Sérstæð bók — sérstædur höfundur, sem leiddur er til sætis
á rithöfundabekk af fremsta rithöfundi íslands.
*■ * * * * ******t*««««A