Morgunblaðið - 30.11.1978, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978
19
Við þessa bæn var tónað gamalt
tónlag, sem gæti verið aftan úr
öldum, og það þurftu allir piltar að
kunna, því að hverjum þeirra var
skylt að tóna bænina a.m.k. einu
sinni á vetri. Pétur Guðdjohnsen
samdi einnig lag við kvöldbænina,
en það náði ekki mikilli hylli.
Aiþýða manna á íslandi hafði
lengi þá trú, að skólasveinar bæði
frá Skálholti og Hólum væru með
betri glímumönnum. Þeir glímdu
bæði innbyrðis í bændaglímum,
við frækna glímumenn utan skól-
anna, og jafnvel var talið, að piltar
ættu til að glíma við útilegumenn
og tröll. Ekki er að undra, þó að
nítjándualdarskólarnir hafi haldið
glímuhefðinni vakandi, enda ekki
um margar aðrar íþróttagreinar
að ræða. Bessastaðamenn glímdu
daglega að sögn Páls Melsteðs og
notuðu neðri bekk sem glimusal.
Þar voru bændaglímur háðar, og
þangað komu kennarar til að
fylgjast með. Glíman varð því til
að efla samstöðu pilta og kennara.
Þegar leikfimihús var risið við
Reykjavíkurskóla árið 1858, hófust
þar íþróttaiðkanir, sem áttu sér
ekki fyrirmyndir frá eldri skólum
á íslandi, en voru sniðnar eftir
dönskum fyrirmyndum. Hér er átt
við skylmingar og alls kyns
áhaldaleikfimi. Glíman hélt velli í
skólanum, þó að segja megi, að
hún væri á sífelldu undanhaldi.
Þess er getið í frásögn af skemmti-
ferð pilta til Hafnarfjarðar árið
1901, að þá átti að vera bænda-
blíma, og skyldu Björn M. Ólsen og
Steingrímur Thorsteinsson vera
bændur. Ef til vill áttu þessir
ágætu kennarar fremur að vera
heiðursbændur í glímunni en
alvöruglímumenn, en sagan sýnir,
að enn skemmtu piltar og kennar-
ar sér í sameiningu við glímur.
Skólarnir á Bessastöðum og í
Reykjavík voru konunglegir lærðir
skólar ásamt um það bil 20 öðrum
skólum í Danaveldi. í öllum
þessum skólum var árlega minnzt
afmælis konungs og veittir til þess
sérstakir styrkir af almannafé. Á
Bessastöðum voru gestir boðaðir
til fagnaðarins með sérstöku
boðsriti, þar sem kennarar birtu
ritsmíðar sínar. Árið 1933 var t.d.
boðað til skólahátíðar með eftir-
farandi hætti í boðsriti: „Þann 3ja
Febrúarii 1833 verður hátíð haldin
af Bessastaða Skóla, í minningu
fæðingardags vors allranáðugastá
Konúngs Friðriks Sjötta; biðjum
vér því, með þessu boðsriti,
auömjúklega og ástsamlega Skól-
ans Forstjóra og aðra Skóla vini
og velunnara, að þeir vilji ásamt
með oss þessa hátíð halda, Guði og
Konúnginum til verðugs lofs og
heiðurs." í Reykjavíkurskóla var
afmæli konungs haldið hátíðlegt
árlega út öldina. Ekki var þó
lengur boðið til þess með boðsriti,
þar sem birtar væru vísindarit-
gerðir kennaranna, heldur var
látið nægja að prenta minni þau í
ljóðum, sem flutt voru á hátíðinni.
Venjulega voru þau þrjú: minni
konungs, minni Islands og minni
rektors. Fyrir kom, að ort væru
minni kennaranna og stiftyfir-
valda. Eftir 1867, þegar fyrst var
dansað á skólahátíð, var farið að
yrkja minni kvenna. Frá 1864 til
aldamóta var skólahátíðin haldin
8. apríl eða annan dag nálægt
honum, því að allan síðari hluta
aldarinnar var Kristján IX. kon-
ungur og hann átti afmæli 8. apríl.
Ekki voru allir piltar á einu máli
um það, hvort ball væri við hæfi á
skólahátíð, og máttu heita sífelld-
ar deilur um það út öldina, þ.e.
milli ballista og rallista. Hvernig
sem staðið var að skólahátíðinni,
varð hún til að skapa tækifæri til
samfunda með kennurum og pilt-
um, þar sem menn gátu hizt utan
hins hefðbundna og hversdagslega
skólastarfs. Mun víst mega full-
yrða, að kennarar hafi oftast
þennan dag sett kíkinn fyrir
blinda augað og ekki hirt um að
fylgja ströngustu reglum um
framkomu pilta.
í áðurnefndu boðsriti frá Bessa-
stöðum var talað um forstjóra
skólans og er þar átt við stiftsyfir-
völdin, biskup og stiftamtmann.
Svo sem verið hafði á Bessastöð-
um, höfðu stiftsyfirvöldin (efór-
arnir) veruleg áhrif á skólalífið í
Reykjavíkurskóla. Þeir máttu
hlusta á yfirheyrslur, þegar þeim
þóknaðist, og þeir gátu sjálfir
verið prófdómarar. Þá úthlutuðu
þeir skólastyrkjum (ölmusum)
eftir tillögum rektors. Aðallega
komu þó efórarnir við sögu, þegar
eitthvað bjátaði á í skólanum. Valt
á ýmsu, hvort skoðanir þeirra fóru
saman við skoðanir rektors og
kennara. Fram til 1848 var æðsta
stjórn lærðu skólanna á Islandi í
höndum stjórnarnefndar háskól-
ans og lærðu skólanna í Danaveldi,
en eftir 1848, var yfirstjórn hjá
kirkju- og kennslumálaráðuneyt-
inu í Kaupmannahöfn. Stóð svo til
1874, þegar stofnað var ráðuneyti
íslandsmála í Höfn. Það tók nú við
málum Lærða skólans og hafði
umsjón með þeim til 1904.
Skólahald á Hólavelli var lagt
niður vorið 1804, og varð skólahús-
ið brátt eyðingaröflum að bráð. En
Reykvíkingar voru samt áfram
minntir á hið skammvinna skóla-
hald í bænum, ef þeir litu til
austurs upp úr bæjarkvosinni eða
komu af hafi. Þar stóð Skólavarð-
an, ekki rismikil, en áberandi, á
grýttu holtinu austan bæjarins,
skammt frá Steinkudys. Skólapilt-
ar í Hólavallarskóla hlóðu fyrstu
skólavörðuna árið 1793 og fóru þar
að fordæmi Skálholtspilta, sem
hlaðið höfðu vörðu utan túns í
Skálholti. Þessi fyrsta skólavarða
hefur verið svipuð vörðum þeim,
sem vísuðu mönnum veg á Islandi.
Þegar skólapiltar voru farnir úr
Reykjavík, var enginn til að halda
vörðunni við, og féll hún því
saman. Árið 1834 lét Krieger
stiftamtmaður endurreisa vörðuna
fyrir eigin reikning og jafnframt
leggja stíg að henni. Jón Helgason
biskup lýsir þessari skólavörðu
svo, að hún hafi verið „ferstrendur
stöpull, er mjókkaði eftir því, sem
öfar dró; en tvenn þrep voru utan á
vörðunni hvort upp af öðru með
setbekkjum vestan á móti, en
tröppur lágu upp á þrepin". Árið
eftir, 1835, samþykkti borgara-
fundur, að bæjaryfirvöld skyldu
taka við varðveizlu Skólavörðunn-
ar. Menn urðu einhuga á fundinum
um „at overtage Skolevarden for
at vedligeholdes af Byen i Hen-
seende til dens Spækning og
Malning m.m. saalænge den ikke
styrter omkuld", eins og segir í
fundargerðinni, sem var á dönsku!
Þrátt fyrir fögur fyrirheit bæjar-
yfirvalda um Skólavörðuna, fór
ástand hennar versnandi og Björn
M. Ólsen segir, að hún hafi verið
„fallin í rústir", þegar hann kom
fyrst til Reykjavíkur árið 1861.
Raunar segir Valdimar Briem í
lýsingu á Reykjavík, sem hann
skrifaði í skólablaðið Fjölsvinn
árið 1867, að varðan hafi hrunið
árið áður af fallbyssugný frá
byssum Fransmanna, sem voru að
skjóta úti á höfn. Um þessar
mundir hófu skólapiltar fjársöfn-
un til þess að endurreisa vörðuna,
og söfnuðu þeir u.þ.b. 40 ríkisdöl-
um. Þetta var þó ekki talið
nægilegt, og var því hafin almenn
fjársöfnun meðal bæjarbúa til
verksins. Ekki gekk sú söfnun vel,
og lauk þessu vörðumáli svo, að
Árni Thorsteinsson land- og
bæjarfógeti lagði fram fé úr eigin
vasa til að ljúka verkinu árið 1868.
Var Skólavarðan nú mun stærri en
áður og gerð úr tígulsteini eftir
uppdráttum Sigurðar málara.
Raunar hæðist Kristján Jónsson
(síðar ráðherra) að vörðunni í
grein í Fjölsvinni 1870 og segir
hana bröndótta og rílótta að utan,
sem væri hún fugldritin. Viðleitni
pilta til þess að taka aftur ábyrgð
á Skólavörðunni féll þannig niður,
en varðan reis að nýju og var
áfram eign bæjarbúa. Þó að piltar
ættu ekki Skólavörðuna, lá leið
þeirra oft upp að henni, og þar
hittust þeir bæði á stund ánægju
og óánægju. Þar brenndu þeir
Lisco 1898, og síðar á sama
skólaári héldu þeir fundi inni í
Skólavörðunni í hinum svonefndu
Böðvarsmálum. Varðan var því
ekki horfin úr hugum pilta.
Ef yður vantar rafritvél fyrir
heimilið eða skrifstofuna er
rétta vélin.
Gott verð. Mikil gæði.
Skipholti 21, Reykjavik,
simi 23188.
-Séljum—
reyktan lax
og gravlax
Tökum láx í reykingu
og útbúum gravlax.
Kaupum einnig lax/
til reykingar.
Sendum i póstkrölu —
Vakúm pakkað el óskað er.
ör
ISLENZK
MATVÆLI
Hvaleyrarbraut 4-6,
Hatnaiiirdi Sími: 51455
Sumarauki
fráOSRAM
vegna gæðanna
Leyft
verð
Okkar
verð
407-
639-
470-
696-
Kókosmjöl 500 gr....................................... 463.-
Síríus suöusúkkulaöi 200 gr............................. 708.-
Lyle’s sýróp 500 gr..................................... 522-
Ota haframjöl 1,9 kg.................................. 773.-
Dover hveiti 25 kg.................................... 3.374 - 3.040.-
Phillsbury’s Best hveiti 5 Ibs ......................... 390- 351.-
Cadbury kakó 454 gr. ds.............................. 1.484,- 1.349.-
Álpappír 20 m ......................................... 630.- 567.-
Möndlur, herslihnetur, valhnetukjarnar, bökunardropar, 11
bragöteg. matarlitur, krydd í úrvali, bökunarpappír, rúsínur,
súkkat, kirsuber, kúrenur, döölur, sulta.
Allt á Vörumarkadsverdi.
Opið til kl. 10
föstudag.
Opið til kl. 6
laugardag.
irumarkaðurinntif.
tMÚLA1A
v