Morgunblaðið - 30.11.1978, Page 37

Morgunblaðið - 30.11.1978, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978 37 MEKKA Stórglæsileg skápasamstæða með höfðingjasvip Mekka skápasamstæðan frá Húsgagnaverksmiðju Kristjáns Siggeirssonar hefur vakið sérstaka athygli fyrir smekklega hönnun, fallega smíði og glæsilegt útlit. Þér getið valið um einingar, sem hæfa yður sérstaklega, hvort sem þér óskið eftir plötuhillum, vín- og glasaskáp, bókaskáp, hillum fyrir sjónvarp og hljómburðar- tæki, o.s.frv. 1 Mekka samstæðunni má velja fallegan hornskáp, sem gerir yður mögulegt að nýta plássið til hins ýtrasta. Mekka er einnig með sérstaka hillulýs- ingu í kappa. Mekka samstæðan er framleidd úr fallegri eik. Hún fæst ólituð, í brúnum lit eða í wengelit. Mekka er dýr smíði, sem fæst fyrir hagkvæmt verð. Mekka gefur stofunni höfðinglegan blæ. Skoðið Mekka samstæðuna hjá: ÚTSOLUSTAÐIR: Kristján Siggeirsson hf. Ólafsvík: Híbýlaprýði Ólafsfjörður JL-húsið Augsýn h.f. Verzl. Bjarg h.f. Trésmiðjan Fróði h.f. Verzl. Stjarnan Reykjavík: Akureyri: Akranes: Blönduós: Borgarnes. Bolungarvík: Húsavík: Hafnarfjörður Keflavík: Kópavogur: Neskaupstaður: Húsgagnaverzl. Höskuldar Stefánssonar Verzl. Virkinn Hlynur s.f. Nýform Duus Skeifan Verzl. Kassinn Verzl. Valberg h.f. Húsgagnaverzl. Sauðárkróks s.f. Kjörhúsgögn Bólsturgerðin JL Húsið, útibú Vestmannaeyjar: Húsgagnaverzl. Marinós Guðmundssonar Sauðárkrókur: Selfoss: Siglufjörður: Stykkishólmur: FRAMLEIÐANDI: KRISTJÁN SIGGEIRSSON HF. HÚSGAGNAVERKSMIÐJA. Eigendur ferðaskrifstotunnar Ulympo hf. talið frá vinstri Friðjón Sæmundsson framkvæmdastjóri, Jesus Potenciano, Stefán Einarsson og Gísli Maack. Olympo hf - Ný ferða- skrifstofa stofnuð FYRIR skömmu var ný ferða- skrifstofa, Olympo h.f.. stofnuð í Reykjavík og verður hún til húsa í Norðurveri við Nóatún. Eigend- ur fyrirtækisins eru Friðjón Sæmundsson, Gísli Maack, Jesus Potenciano, Bragi Kristjánsson og Stefán Einarsson. Hægt er að fá alla almenna flugfarseðla innanlands sem utan. Einnig er áætlunarferðir til Florida á þriggja vikna fresti og flogið til Lundúna tvisvar í viku. Þá eru einnig ferðir til Glasgow og Kanaríeyja, en þangað stendur til að hafa sérstakar hópferðir á næsta ári. Fyrirtækið hyggst vinna að nýjungum í ferðamálum, en þeirra verður nánar getið síðar. Lögð er áherzla á að veita góða þjónustu og vonast til að starfsemi fyrir- tækisins verði til þess að auka fjölbreytni í ferðavali. Framkvæmdastjóri ferðaskrif- stofunnar er Friðjón Sæmundsson, en aðalfararstjórar eru Jesus Potenciano og María Kristjáns- dóttir. Fjárfestingahandbókin: Gagnlegt uppsláttarrit um fjárfestingar og viðskipti vændum afnot meiri gæða síðar. Til þess að geta tekið skynsamleg- ar ákvarðanir í þessum efnum er nauðsynlegt að hafa aðgang að góðum upplýsingum og bók eins og Fjárfestingahandbókin getur í því sambandi komið að góðu gaghi. ÚT ER komin hjá útgáfufyrir- tækinu Frjálsu framtaki fyrra bindi Fjárfestingahandbókarinn- ar. en hún er samin á vegum Fjárfestingarfélags íslands undir ritstjórn Gunnars Helga Hálfdan- arsonar viðskiptafræðings. í inn- gangi bókarinnar segir að henni sé ætlað „að kynna helztu fjár festingarmöguleika svo og að auka almenna þekkingu og skiln- ing á þessum hlutum með því að gefa eins ftarlegar upplýsingar og leiðbeiningar og kostur er. Ennfremur er handbókinni ætlað það- hlutverk að upplýsa, að hvaða atriðum ber að hyggja áður en fjárfestingarákvarðanir eru teknar.“ I Fjárfestingahandbókinni kennir margra grasa og hefur þar verið safnað saman miklu gagn- legu efni um fjárfestingarmál og ýmis algeng viðskipti þeim skyld, sem vafalaust getur komið mörg- um þeim að gagni, sem ekki hafa kynnt sér þessi mál fyrr eða um þau hugsað. Bókin er vel skipulögð og efnið á þann veg fram sett að hún ætti að vera handhæg til uppsláttar fyrir þá, sem vilja kynna sér einstök atriði án þess að lesa bókina alla. Sérstakir kaflar eru um öll helztu fjárfestingar- form, sem völ er á hérlendis og eru þeir jafnýtarlegir og vænta má í riti sem þessu. ^ I upphafi bókarinnar er greirít frá markmiðum fjárfestingar al- mennt og algengustu fjáröflunar- Eðlilega er í bókinni mikið fjallað um vexti og vaxtaút- reikning og greint er frá ýmsum tegundum vaxta og nokkuð fjallað um vaxtastefnu stjórnvalda almennt. í bókinni er tekin ótvíræð afstaða gegn þeirri lág- vaxtastefnu, sem ríkt hefur á Islandi undanfarna áratugi, enda hefur sú stefna gert sparendum og fjárfestum erfitt að varðveita fjármuni sina og fá af þeim arð. Hins vegar er matsatriði hvort heppilegt er að skoðunum höfundar bókarinnar á atriði eins og þessu, sé ljáð mikið rúm í bók af þessu tagi, jafnvel þótt hann hafi rétt fyrir sér. Á a.m.k. einum stað í bókinni er möguleikum hérlendis. Fjárfesting er þar skilgreind sem „allar þær ráðstafanir fjármuna, sem áhrif geta haft á framtíðina." Sá sem gerir slíkar ráðstafanir er í bókinni kallaður „fjárfestir", sem mun nýyrði. Er orð þetta að dómi undirritaðs vel heppnuð þýðing enska orðsins „investor". Skilgreining bókarhöfundar á fjárfestingu er jafngóð og hver önnur einföld skilgreining þessar- ar stafsemi. Þeir sem fjárfesta eru með því að hnika til í tíma neyzlu sinni, fresta því að njóta einhverra gæða nú, gegn því að eiga í Gunnar Hálfdanarson talað um „raunvexti" í merking- unni „jákvæðir raunvextir", en þessi ruglingur er nú mjög algengur í dagblöðum og víðar., Raunvextir, þ.e. sú ávöxtun sem fjárfesting skilar eftir að tekið hefur verið . tillit til verð- mætarýrnunar af völdum verð- bólgu eru vitaskuld annað hvort jákvæðir eða neikvæðir (eða núll), en það er merkingarleysa að tala aðeins um „raunvexti". Bókar- höfundur gerir sér hins vegar grein fyrir þessu og talar á öðrum jstöðum í bókinni um raunvexti sem annað hvort jákvæða eða neikvæða. Nokkuð ber á endurtekningum í Fjárfestingahandbókinni, en þær verða vart hvimleiðar þeim, sem nota bókina til uppsláttar. Prent- villur eru nokkrar en fæstar alvarlegar. I bókinni eru aug- lýsingar á víð og dreif og eru þær nokkuð til lýta en ætla má að þær geri bókina ódýrari en ella fyrir kaupandann. Kostur bókin þó 8900 krónur. í heimildarskrám höfundar gætir stundum nokkurr- ar ónákvæmni. Þar segir t.d. að ýmsar upplýsingar séu fengnar frá aðilum eins og Hagvangi, fasteignasölum, Húsnæðismála- stofnun og fleirum án þess að tilgreint sé nánar hvaðan hvað er komið. Greinilegt er að mikil og vönduð vinna hefur verið lögð í bók þessa. Síðara bindi verksins, sem ekki er enn komið út, hefur að geyma ýmsar töflur sem notaðar eru við fjármálalega útreikninga og í tengslum við skuldabréfaviðskipti. Mun það bindi væntanlegt á markað í byrjun næsta árs. Fyrir þá sem ekki þekkja fjárfestingar- mál á íslandi til botns er góð fjárfesting í Fjárfestingahandbók- inni. Geir H. Haarde.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.