Morgunblaðið - 30.11.1978, Qupperneq 46
46
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 30. NÓVEMBER 1978
!
3. deild í handknattleil^:
Fimm lið í hnappi ennþá
16 af 56lcikjum i 3. dcild karla í
íslandsmótinu í handknattleik hafa
nú verið leiknir. Ennþá verður litlu
spáð um úrslitahorfur. nema þá
helst ef hægt er að marka það, að
lið Keflavíkur ok Dalvíkur sitja
eftir í' startholunum stinalaus. Lið
Njarðvíkur kemur þeim næst að
neðanverðu eins oj? er. en 5 lið, lið
Týs, Brciðahliks, AftureldinKar,
Akraness ok Gróttu. eru í nokkuð
þéttum hnappi að ofanverðu, þegar
metið er saman stig og samsetning
lcikjanna.
Augljósar framíarir
Borið við sama tíma í fyrra má sjá
augljósar framfarir hjá flestum
liðunum í deildinni, enda er meiri
áhersla lögð á þjáífun þeirra og 5 af
þessum 8 liðum búa við ný eða nýleg
íþróttahús og að því leyti fullnægj-
andi aðstöðu.
Af liðunum ofanvert í deildinni
eins og stendur er Breiðablik eitt í
húsnæðishraki, leikur heimaleiki
sína að Varmá í Mosfellssveit og
æfir þar að hluta í miönæturtímum.
Tvö neðstu liðin búa þó við ennþá
verri aðstöðu, Keflvíkingar, sem fá
að vísu inni með heimaleiki í
Njarðvík, en hafa mjög takmarkað
svigrúm til æfinga, og Dalvíkingar,
sem æfa í mjög litlum sal og leika
heimaleikina á Akureyri.
Keflvíkingar sjá fram á úrlausn
innan skamms, en hjá þeim er
bygging íþróttahúss vel á veg komin.
Lið Breiðabliks getur einnig huggað
sig við „hús í byggingu", sem verður
geysi veglegt, en er um sinn strandað
í miðju kafi. Dalvíkingar þurfa
sennilega að bíða lengst, en hjá þeim
er aðeins enn á döfinni stækkun
íþróttahússins á staðnum.
Forvitnilegt er að líta á þjálfara-
hópinn: Týr—Helgi Ragnarsson (úr
FH), Breiðablik—Stefán Sandholt
(úr Val), Afturelding—Pétur Jó-
hannsson (úr Fram), Akra-
nes—Gunnlaugur Hjálmarsson (úr
ÍR og Fram), Grótta—Janus Guð-
laugsson (úr FH), Njarðvík—Leifur
Helgason (úr FH), Keflavík—Ómar
Guðmundsson (úr Breiðabliki), Dal-
vík—Matthías Ásgeirsson (úr KA,
Haukum og IR).
Úrslit 16 leikja
Akranes—Keflavík 26:13
Njarðvík—Grótta 25:20
Afturelding—Dalv. 26:18
Breiðabl,—Dalvík 21:17
Grótta—Keflav. 26:21
Týr—Breiðablik 21:20
Afturelding—Grótta 11:16
Eggert
til
Hauka
NÝLIÐARNIR í 1. deild.
knattspyrnufélagið Haukar i
Hafnarfirði. hafa ráðið Eggert
Jóhannesson sem þjálfara
fyrir næsta kcppnistímabil.
Eggert starfaði áöur hjá
Reyni í Sandgerði og náði mjög
góðum árangri með liðið. Hann
hefur starfað við þjálfun um
margra ára skeið og er
gjörkunnugur knattspyrnu-
málum hér á landi. Þráinn
Hauksson se:n þjálfaði liðið í
fyrra og kom því upp í 1. deild
mun taka að sér þjálfun allra
yngri flokka félagsins, en
leggja á sérstaka áherzlu á
uppbyggingu- þeirra á næstu
árum.
ÞR.
Breiðabl.—Aftureld. 20:20
Keflavik—Týr 18:25
Njarðvík—Týr 16:18
Dalvík—Akranes 16:20
Breiðabl.—Njarðv. 29:26
Keflav,—Aftureld. 17:19
Týr—Dalvík 29:20
Njarðvík—Dalvík 23:21
Leikir síðustu
helgar
Týr - Dalvik 29,20.
Dalvíkingar hófu ieikinn með
nokkrum tilþrifum og skutu Týrur-
um skelk í bringu. En eftir 10
mínútur jafnaðist leikurinn og
Týrarar tóku hann síðan í sínar
hendur, þeir höfðu skorað 18 mörk
gegn 13 mörkum Dalvíkinga í
leikhléi, og munaði þar mest um
markvörsluna, sem var með ólíkum
hætti Týrurum í vil. Þannig hélst'
þetta út leikinn og munurinn varð 9
mörk í 49 marka leik.
Af Týrurum skoruðu Sigurlás
Þorleifsson og Snorri Jóhannesson 8
mörk hvor, Þorvarður Þorvaldsson
og Ingibergur Einarsson 4 hvor,
Ómar Jóhannesson 2 og Magnús
Þorsteinsson, Snorri RútsSon og
Helgi Ragnarsson 1 hver. Sigurlás,
Snorri Jóhannesson og Egill Stein-
þórsson markvörður áttu hvað best-
an leik Týrara.
í liði Dalvíkinga var Albert
Ágústsson atkvæðamestur og skor-
aði 10 mörk, Vignir Hallgrímsson
skoraði 4, en þeir Björn Friðþjófs-
son, Einar Emilsson og Ólafur
Sigurðsson 2 hver, en Ólafur gekk
einna næstur Albert að frammi-
stöðu.
Akranes — Breiðablik 17, 19
Leikmenn Breiðabliks lentu í nokkr-
um hrakningum í Hvalfirði á leið til
þessa leiks, sem seinkuðu leiknum
um 2 klukkutíma og fækkuðu jafn-
framt leikmönnum Breiðabliks um
þrjá, sem urðu að hverfa sjóleiðina
heim aður en leikið var. I fyrri
hálfleik leit lengi vel út fyrir að
Skagamenn myndu leggja gestina að
velli, en þeim síðarnefndu tókst að
jafna markatöluna fyrir leikhlé i 9:9.
Seinni hálfleikur var síðan mjög jafn
fram á allra síðustu mínútur, en
Blikarnir skoruðu tvö síðustu mörk-
in og sigruðu. Var það vel af sér
vikið, miðað við aðstæður, og átti
markvörður Blikanna, Kristján
Andrésson, hvað drýgstan þátt í
sigri þeirra, auk þess sem Skaga-
mönnum urðu á fleiri mistök en góðu
hófi gegndi.
Mörk Breiðabliks: Hannes
Eyvindsson 6, Kristján Gunnarsson
4, Brynjar Björnsson og Kristján
Halldórsson 3 hvor, Hilmar Hreins-
son 2 og Björn Jónsson 1. — Allir
mættir leikmenn Blikanna áttu
góðan þátt í leiknum, en einna
bestan þeir Hannes og Kristján
markvörður.
Mörk Akraness: Haukur Sigurðs-
son 6, Guðjón Engilbertsson og
Kristján Hannibalsson 3 hvor,
Hörður Jóhannesson og Þórður
Björgvinsson 2 hvor og Þórður
Elíasson 1. — Liðið var í heild heldur
syfjað, en helstu tilþrif sýndi
Haukur Sigurðsson. Markvarslan
var slök.
Njarðvík — Dalvík -23,21. Þetta
var seinni leikur Dalvíkinga í 400
þúsund króna helgarreisu þeirra til
Eyja og Njarðvíkur — og enn höfðu
þeir ekki erindi sem erfiði. Þó leit
lengi vel út fyrir umtalsverðan sigur
þeirra yfir Njarðvíkingum, í leikhléi
stóð 7:10 Dalvíkingum í vil og um
miðjan seinni hálfleik 11:16. En á
síðasta stundarfjórðungnum veltist
allt um og í miklum darraðardansi
snerist leikurinn í 23:21 fyrir
Njarðvíkinga. Síðustu 11 mínúturnar
voru Dalvíkingar einum færri, vegna
útilokunar Alberts Ágústssonar.
Og í öllum leiknum voru dæmd 16
vítaköst á Dalvík, sem skiluðu 13
mörkum, en 7 á Njarðvík, sem
skiluðu aðeins 3 mörkum (sumir
segja 2 aðrir 4)! En alla vega hljóta
23'vítakastsdómar í leiknum að vera
nálægt meti. — Þess má svo geta í
framhjáhlaupi, að í leik Keflvíkinga
Tek undir orð Geirs
segir þjálfari Þórs
• Sigurlás Þorleifsson knattspvrnukappinn kunni, leikur mcð Tý í Vestmannaeyjum í 3. deildinni í
handknattleik. Hér er Sigurlás á lofti og skorar að sjálfsögðu. Myndin er tekin í hinu glæsilega iþróttahúsi
þeirrar eyjamanna.
og Aftureldingar helgina á undan
voru tveir af bestu mönnum Kefla-
víkur útilokaðir þarna syðra, Þor-
steinn Ólafsson og Sigurður Björg-
vinsson. — Það fer eftir atvikum,
hvort Aganefnd HSI veitir
áminningu eða dæmir viðkomandi í
leikbann.
Hjá Njarðvíkingum bar mest á
Hilmari Knútssyni, Gísla Eyjólfs-
syni og markvörðunum Kristjáni
Sigurðssyni og Magna Jónssyni, en
mörk þeirra skoruðu: Hilmar 8, Gísli
6, Þór Magnússon 3, Kári Gunn-
laugsson 3, Jón Olsen 2 og Stefán
Thordersen 1.
I liði Dalvíkinga var mjög skipt
sköpum frá leiknum við Týrara
daginn áður. Sveinbjörn Hjörleifs-
son markvörður varði nú mjög vel,
en Albert Ágústsson skoraði nú
aðeins 1 mark. Björn Friðþjófsson
skoraði 5, Vignir Hallgrímsson 4,
Ólafur Sigurðsson 4, Kolbeinn
Ágústsson 3, Einar Emilsson 2,
Kristján Aðalsteinsson 1 og Skarp-
héðinn Pétursson 1} auk Alberts með
sitt eina mark. Ásamt Sveinbirni
markverði reyndust Ólafur og Vignir
hvað drýgstir, en Björn átti góða
spretti.
ÞJÁLFARI Þórs á Akureyri Arnar
Guðlaugsson hafði samband við
blaðið og óskaði eftir því að það
kæmi fram að hann tæki undir orð
Geirs Hallsteinssonar í Morgun-
blaðinu síðastliðinn þriðjudag þar
sem hánn segir að þeir Bjarni
Magnússon og Jón Magnússon sem
dæmdu leik Ármanns og Þórs í 2.
deild karla sem fram fór á
Akureyri gerðu íslenskum hand-
knattleik það best að hætta að
dæma, slík hefði dómgæzla þeirra
verið í leiknum. Jón Magnússon
sagði í viðtali við Mbl. að leikur
Þórs hefði verið svo grófur að
hann ætti ekkert skylt við hand-
knattleik. Með þessum orðum
sínum undirstrikar hann hversu
litla stjórn þeir félagar höfðu á
leiknum.
ÞR.
Lætur Ali freistast?
STAÐAN
STAÐAN
Týr
Hreiðahlik
Aftureldinif
Akranes
Grótta
Njarðvík
Keflavik
Dalvik
4 0 0 93,74
3 1 1 109,101
2 1 1
2 0 1
2 0 1
2 0 2
0 0 4
0 0 5
5
75,70
63,48
62,57
90,88
68,95
92.119 0
herb.
0
VOLDUGUR auðhringur í
Suður-Afríku hefur boðið
Muhammed Ali 5,8 milljonir
Bandarikjadala fyrir að verja
titil sinn gegn lítt þekktum
hnefaleikara. Gerrie Coetzie að
nafni. Vill auðhringurinn að
slegist verði í Tokíó í Japan síðla
á næsta ári.
Talið er víst, að Ali sé alvarlega
að athuga boð þetta, enda engir
smápeningar í boði. Margir vildu
þó frekar sjá Ali berjast gegn
WBC-meistaranum Larry Holmes
og enn aðrir vildu helst sjá hann
leggja hanskana á hilluna. En
kappinn er jafnan í peningahug-
leiðingum og haft er fyrir satt, að
keppni gegn hinum óþekkta
Coetizie sé mun fýsilegri í augum
hins aldna kappa, heldur en slagur
við WBC-meistarann Larry
Holmes, sem er mikill rotari. Ali
mun líklega svara tilboðinu í
desemberlok eða snemma í janúar.
Enskur þjálf-
ari til ÍBK
NÍI MUN liggja ljóst fyrir að
Keflvíkingar ráða til starfa
enskan knattspyrnuþjálfara
fyrir næsta keppnistímahil.
Að sögn Sigurðar Steindórs-
sonar varð fyrir valinu einn af
aðalkennurum Breska knatt-
spyrnusambandsins, Tom
Trander að nafni. Mun Tom
hefja störf sín hér hjá liðinu í
byrjun apríl. Fram að þeim tíma
mun annar Breti, Ronald Smith,
annast þjálfun liðsins, en hann
hefur verið ráðinn þjálfari hjá
Reyni í Sandgerði og þjálfar
bæði liðin fram í apríl en
verður síðan eingöngu með
Reynisliðið. ÞR.
Enska
knattspyrnan
NOKKRIR leikir fóru fram í
ensku FA hikarkcppninni í gær,
aukaleikir í fyrstu umferð. Er
skemmst frá að segja, að engin
óvænt úrslit varðandi utandeilda-
félögin urðu að vcrulcika.
Úrslitin urðu eftirfarandi:
Blyth Spartans — York 3—5
Bury — Wigan 4—1
Gillingham — Reading 1—2
Runcorn — Chester 0—5
Sheffield Wed. — Scunthorpe 1—0
Wimbledon — Gravesend 1—0
Innanfélags-
mót hjá ÍR
IR-ingar gangast fyrir frjáls-
íþróttamóti í Baldurshaga undir
stúku Laugardalsvallarins í kvöld.
Keppt verður í 50 metra hlaupi
karla og kvenna og 50 metra
grindahlaupi karla og kvenna.
Mótið hefst kl. 19.45.