Morgunblaðið - 01.12.1978, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978
43
smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar — smáauglýsingar
Muniö sérverzlunina
meö ódýran fatnaö.
Verölistinn, Laugarnesvegi 82.
S. 31330.
Tilboð óskast
í íbúöarhúsiö aö Sólbrekku 3
Húsavík, sem er einbýlishús á
einni hæö meö bílskúr o.fl. í
kjallara. Tilboösfrestur er til 10.
des. n.k. Réttur er áskilinn til aö
taka hvaöa boöi sem er eöa
hafna öllum. Uppl. veittar í
símum 96-41477 (á daginn) og
96-41620 (eftir kl. 17.30).
3ja herb. íbúð til sölu
ca. 70 fm aö Smyrlahrauni 7,
Hafnarfiröi. Uppl. á staönum
eftir kl. 4 næstu daga.
Styrktarfélag
Fíladelfíu
heldur kökubazar aö Hátúni 2
laugardaginn 2. desember kl. 2
e.h.
Keflavík Suðurnes
Mikið af góöum fasteignum á
söluskrá. Faglegar upplýsingar
um skattalög varöandi kaup og
sölu. Geriö fasteignaviöskiptin
hjá okkur.
Fasteignir s.f.
Heiöargaröi 3.
Sölumaður Einar Þorsteinsson.
Sími 2269.
Viöskiptafr. Gunnar Þórarins-
son.
AUGLÝSINGASÍMINN ER:
22480
TRergunbfabiö
IOOF 12=l601218’ÆBg.
IOOF 1,=1601218’Æþeák
□ Gimli 59781247 — 1 atgr.
Hjálpræðisherinn
Hátíöarsamkoma heimilasam-
bandsins veröur haldin í kvöld,
1. des. Veitingar, happdrætti.
Allir hjartanlega velkomnir.
DC félagar
Fundur veröur hjá samvinnu-
nefnd Dale Carnegie klúbbanna
laugardaginn 2. des. ki. 13.00 í
Rauða Kross heimilinu viö
Nóatún. DC-fólk sem óskar eftlr
aö komast í DC-klúbb, er
velkomið á fundinn.
Stjórn samvinnunefndar.
Frá Guðspekifélaginu
Áskrifta rsími
Ganglera er
17520
í kvöld kl. 9:
Ævar Kvaran flytur erindi
„Hvernig er aö deyja"? og
svarar spurningum.
Allir velkomnir.
Stúkan Dögg.
Kaffisamsæti
verður í Templarahölllnni
sunnudaginn 3. des. kl. 3.
Dagskrá: Félagar og gestir
vejkomnir.
Þjónusturegla Guöspekifélags-
ins.
Samtök Astma-
og ofnæmissjúklinga
halda fund aö Noröurbrún 1 kl.
3 á laugardag.
Dagskrá: Starfiö á barnaárinu
og félagsmál. Kaffiveitingar.
Stjórnin.
Félag Snæfellinga
og Hnappdæla
heldur spila- og skemmtikvöld í
Dómus Medicia laugardaginn 2.
des. n.k. kl. 20.30.
Skemmtinefndin.
Kvennadeild Styrktarfélags lam-
aöra og fatlaöra
Jólafundurinn
verður í Kirkjubæ (Óháði söfn-
uöurinn) þriöjudaginn 5. des. kl.
8.
Ath: Breyttan fundarstaö.
Stjórnin.
Félagiö Angila
mun halda diskótek og Italian
Supper, laugardaginn 9. des. kl.
20.30. Stundvíslega aö Síöu-
múla 11. Aögöngumiöar veröa
seldir, laugardaginn 2. des. kl.
10—12 í Veiðimanninum Hafn-
arstræti 5, gengiö inn frá
Tryggvagötu frá mánudeginum
4. des. til föstudagskvöld 8. des.
eru aögöngumiðar afgreiddir í
Kjörgaröi, Laugavegi 59, 4. hæð
hjá Colin Porter, frá kl. 14—17.
Stjórn Anglia.
Jólakonsert978:
/
Agóðinn renn-
ur til meðferðar
geðveikra barna
Margir þekktir skemmtikraftar
koma fram og gefa vinnu sína
Jólakonsert 78 nefnast hljómleikar sem haldnir verða í Háskólabíói
n.k. sunnudag 3. dcsember kl. 22. Allir þeir sem fram koma á
hljómleikunum munu geía vinnu sína, einnig þeir sem starfa í
sambandi við þá. og ágóðinn rennur óskertur til stofnsjóðs
meðferðarheimilis fyrir geðveik börn.
Meðal þeirra sem fram koma á hljómleikunum eru Brunaliðið,
Björgvin Ilalldórsson. Halli og Laddi. Kagnhildur Gísladóttir, Magnús
Þór Sigmundsson. Kór Óldutúnsskóla. félagar úr Karlakór
Reykjavíkur, Ruth Reginalds og
íslenskra söngvara.
Hljómleikar þessir voru upphaf-
lega hugmynd Hljómplötuútgáf-
unnar h.f. Síðan hafa bæst inn í
myndina ýmsir aðilar s.s. Æsku-
lýðsráð Reykjavíkur og geðdeild
Barnaspítala Hringsins. Undir-
búningur hljómleika þessara hefur
staðið í rúmlega einn mánuð.
Löggilt endurskoðendaskrifstofa
hefur verið fengin til að sjá um
bókhald og uppgjör hljómleikanna
á sunnudaginn. Þeir sem að
undirbúningi hljómleikanna vinna
hafa sótt um niðurfellingu opin-
berra gjalda vegna hljómleikanna
en ljóst er að greiða verður fulla
leigu fyrir Háskólabíó.
Aðstandendur hljómleikanna
hafa myndað með sér undirbún-
ingsnefnd sem eftirtaldir aðilar
skipa: Jón Olafsson forstjóri
Hljómplötuútgáfunnar, Magnús
Kjartansson hljómlistarmaður,
Omar Einarsson f.h. Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur, Páll Asgeirsson
yfirlæknir geðdeildar Barnaspít-
ala Hringsins, Pjetur Þ. Maack
cand theol. og Ómar Valdimarsson
blaðamaður.
A blaðamannafundi sem hald-
inn var í tilefni hljómleikanna
koma það fram að á landinu nú eru
30—50 geðveik börn, eða 1,9 börn í
hverjum árgangi 2ja til 16 ára
barna og fæst þeirra fá meðferð
sem talist getur fullnægjandi.
Barnageðveiki er oft kölluð ein-
hverfa og sagði Páll Asgeirsson að
einkenni hennar væri það að
börnin mynda ekki eðlileg tengsl
við foreldra sína og hafa ekki
áhuga á umhverfi sínu heldur lifa í
sínum eigin innra heimi. Sjúkdóm-
ur þessi var uppgötvaður fyrir 40
árum en geðdeild við Barnaspítala
Hringsins var ekki stofnuð fyrr en
árið 1970. Áður var þessi sjúkdóm-
ur ekki greindur fyrr en orðið var
átta manna söngsveit þekktra
of seint að hefja meðferð og börn
þessi vistuð á heimilum fyrir
vangefið fólk. Páll sagði að ef
meðferð geðveikra barna hæfist á
unga aldri væri oft hægt að ná
góðum árangri, gera börnin að
nýtum þjóðfélagsþegnum í fram-
tíðinni, en það heyrði til undan-
tekninga að hægt væri að lækna
þennan sjúkdóm. Vegna mikils
rúmleysis sagði Páll að oft væri
ekki í annað hús að venda með
geðveik börn en vista þau á
stofnunum fyrir vangefna. Hann
kvað þessi börn þurfa á sérhæfðri
kennslu að halda og myndu
aðstæður fyrir meðferð geðveikra
barna fyrst og fremst batna ef
komið væri upp meðferðarheimil-
um og sérhæfðum skólum fyrir
þau. Á dagdeild Barnaspítala
Hringsins, eru nú 7—8 börn en
önnur eru á heimilum sínum eða á
stofnunum fyrir vangefna.
Á síðasta ári var stofnað félag
sem nefnist Umsjónarfélag Ein-
hverfra barna. Meðlimir þess eru
fyrst og fremst foreldrar geð-
veikra barna og starfsfólk það sem
unnið hefur með börnin. Formaður
þessa félags er Guðni Guðnason.
Guðni sagði að markmið félagsins
væri í fyrsta lagi að koma upp
heimili fyrir geðveik börn eftir að
út af geðdeild væri komið. I öðru
lagi er markmið félagsins að
stuðla að menntun starfsfólks til
kennslu og umönnunar geðveikra
barna.
Guðni á sjálfur geðveikt barn og
sagði að það væri þungbært fyrir
foreldra, að komast að raun um að
barnið þeirra væri geðveikt.
„Þegar barnið er um 2ja ára
gamalt er hægt að greina geðveik-
ina. Þegar sú vitneskja er fyrir
hendi eru sporin erfið fyrstu árin,“
sagði Guðni.
Vorumarkaðurinn hf.
Húsgogn
jT
káetustíl
i
99
Svefnbekkir — hillueiningar — skrifborö
— kollar — fataskápar — kistill —
kommóður.
Opiö til kl. 10 föstudag
Opiö til kl. 6 laugardag