Morgunblaðið - 01.12.1978, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978
— L
45
bandarískir bankar slást nú um að
veita landinu peningalán.
Miðstéttarfólkið í Chile er harð-
ánægt með þessa þróun mála, og
hinn litríki manngrúi á götum
Santiagoborgar virðist kunna að
meta fulla búðargluggana, og sjá
að verðið á verðmiðum varnings-
ins helzt stöðugt. Hinum 250
verkalýðsfélögum í Chile hefur þó
ekki verið leyft að leggja neitt til
málanna síðustu árin. Þeim er
bannað með lögum að efna til
verkfalla, og sérhver vottur vinstri
sinnaðrar starfsemi innan raða
verkalýðsfélaganna er fljótlega
kæfður. Fyrir fáum vikum voru sjö
„marxísk" félagasamtök bannfærð
og leyst upp ásamt 250 öðrum
félögum, sem voru þó aðeins
grunuð um að vera á einhvern hátt
sama sinnis og hin sjö fyrrnefndu
félagasamtökin.
Skriðdrekar byltingar-
manna sækja að forseta-
höllinni sem þegar er tekin
að loga.
Á blaðamannafundi með Pino-
chet forseta, sem haldinn var á
skrifstofu hans og ég átti kost á að
sækja ásamt allmörgum öðrum
erlendum fréttariturum, fékk ég
sjálfur að kenna persónulega á
hinni óvenjulegu aðferð, sem
forsetinn beitir, þegar hann kemur
fram opinberlega.
Leynilögregla
Hinn fjörlegi ánægjusvipur á
andliti hans breyttist skyndilega í
svip hins varkára pókerspilara,
þegar ég spurði hann um fjölda
þeirra manna, sem saknað væri,
eftir að leynilögregla hans hefði
handtekið þá. Hann svaraði því til,
að sumir þessara manna hefðu
látið lífið í bardögum, aðrir hefðu
flúið land eða þá breytt yfir nafn
og númer. Forsetinn kvað innan-
ríkisráðherra sinn vera að athuga
þessi mál. Því næst reyndi forset-
inn að snúa spurningunni gegn
mér: „Getið þér sagt mér eitthvað
um þá íra, sem hafðir eru í haldi á
Norður-írlandi?" Ég svaraði því
til, að það væri á engan hátt hægt
að bera saman Norður-írland og
Chile, þar sem kaþólska kirkjan ;
fullyrði að hún hafi óhrekjandi
sannanir fyrir því að 650 manns :
hafi horfið án minnstu ummerkja.
En nú fannst forsetanum ósvífni ?■
mín ganga einum of langt og hann
gnísti tönnum: „Þér eruð uppfullir
af hleypidómum um þetta. Þér
gangið ef til vill með einhverjar
kommúnista-grillur. Og samt eruð ii
þér kominn hingað inn í þetta
herbergi! Ég tala ekki meira við
yður!“
Seinna gekk hann fram brosandi
til þess að taka í höndina á gestum
sínum og kveðja. Starfsmenn
forsetaembættisins útskýrðu fyrir
mér, að túlkur forsetans hefði
snúið orðum mínum á enn harð-
neskjulegri veg. Samt sem áður
fann ég enn til nokkurrar ónotatil- í
finningar, og þegar ég fór, var ég :
þakklátur fyrir að vera ekki
chilíanskur blaðamaður.
En fyrstu kynnin af höfuðborg
Chiles, Santiago, vekja manni þó
ekki þá tilfinningu, að íbúarnir séu
í beinni opinskárri andstöðu við
stjórnarherra sína. Fólkið er vel
til fara. Lögreglumennirnir koma
bara vel fyrir sjónir, og það sjást
engir hermenn á götunum.
En svo fer maður að taka eftir
skuggahverfunum. Þar búa um
200.000 manns og þessi fátækra-
hverfi með sínum ömurlegu kofa-
ræksnum umkringja stórborgina,
og íbúarnir reyna að draga fram
lífið á atvinnuleysisstyrk, sem
nemur um 800 pesos (um 16.000
krónum) á mánuði fyrir hverja
fjölskyldu, — eða sem svarar einu
skóverði.
Þessi verstu dæmi um sárafá-
tækt í landinu eru heldur ekki
einustu hliðarnar á daglegu lífi
Chilebúa, sem mörgum óhnýsnum
erlendum ferðalangi kynni að
sjást yfir. Hinar hálfkæfðu raddir
úr röðum leynilegra stjórnarand-
Pinocheti hrokafullur
hermaður sem hefur fetað
sig upp í efstu rim
metorðastigans.
stæðinga geta skýrt manni frá því,
að undir þessu kyrrláta yfirborði
hafi menn ennþá fulla ástæðu til
þess að óttast leynilögreglu Pino-
chets.
Gamalkunnar
pyntingaaðferðir
A fyrstu mánuðum valdatíma
Pinovhets forseta voru þúsundir
manna handteknir, margir drepnir
en öðrum haldið lengi i fangelsi og
pyntaðir af D.I.N.A. — chileönsku
leyniþjónustunni. Nú á dögum eru
fyrir hendi áreiðanlegar skýrslur
um að fáeinir menn séu við og við
gripnir af D.I.N.A. Annars hefur
leyniþjónustunni nýlega verið
gefið nýtt opinbert starfsheiti,
C.N.I. eða miðstöð upplýsingaþjón-
ustu ríkisins. Þau fórnarlömb, sem
eru handtekin nú á dögum, fá
venjulega að fara aftur frjáls
ferða sinna eftir einn eða tvo daga,
og þetta fólk segir, að fyrri
pyntingaaðferðir séu ennþá notað-
ar við yfirheyrslur. Hinir grunuðu
séu hengdir upp á hælunum eða þá
rafstraumi sé hley'pt í gegnum þá.
Norman Kirkham.
J
furusófar-stólar-borð
Sérlega hagstætt verð
Adam er i hörku formi þessa dagana enda
aldrei veriö eins vel búinn til vetrarins. Kjallar-
inn er undirlagöur af peysum i margvíslegum
stæröum og geröum. Einhver þeirra er örugglega
viö þitt hæfi. Littu inn og kynntu þér nýju linuna
hjá Adam. Hun er glæsileg.
#'RDAm
LAUGAVEGI 47 SÍM117575