Morgunblaðið - 01.12.1978, Síða 15
Sunnudag
1.
dcs. 1918
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. DESEMBER 1978
RGUNBLADID
47
6. argangr
21.
tðlublaO
RitstjAmarsimi nr. 500
|| Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen
Dagurisn
Um undanfarna áratugi hafa
vitrustu og beztu menn þjóðar
vorrar barist fyrir viðurkenningu
Dana á sjálfsögðum rétti vorum til
þess að ráða einir högum vorum.
Kú er viðurkenningin fengin, svo
ótvíræð að ekki verður um deilt.
í dag sezt íslenzka þjóðin á bekk
með fullvalda þjóðum heimsins.
Stjórnmálabarátta ver hefir ver-
ið íramsóknarbarátta í meira en
heila öld. Stig af stigi hafa leið-
togar vorir fært þjóðina nær tak-
markinu, sem hún nú er komin að.
Verzlunarfrelsi, sérmálalöggjöf og
fjárforræði, innlend stjórn, heima-
íáni — alt eru þetta merkissteinar
við þá braut, sem þjóðin hefir fet-
að til fullveldisins.
Margra er að minnast, er vér á
þessum merkilegu tímamótum
rennum huganum aftur til liðinna
tíma. Þar blasir við sveit kapp-
anna, sem ekki vissu neitt verk
göfugra, en að vinna þjóð sinni
gagn, sem aldrei þreyttust eða létu
hugfallast, þó að við ofurefli væri
að eiga. Sem trúðu á sigur rétt-
lætisins og slógu aldrei af stefnu-
skrá sinni. 1 dag mun hugur allra
Islendinga þó fyrst og fremst
dvelja í lotning við minningu hans,
•— sem. hrinti vorum hag' á leið,
með heillar aldar taki, — Jóns
Sigurðssonar, hins göfuga braut-
rjrðjanda meðal margra ágætra
stjórnmálamanna vorra. Yér minn-
umst og þeirra, sem í fylkingar-
brjósti stóðu fyrir 10 árum og
höfnuðu þeim kostum, sem eigi
voru samboðnir þjóð vorri, og
þeirra — bæði Dana og Islend-
inga — sem leystu þrautina þá, að
finna leið, samboðna báðum aðil-
um, út úr stjórnmáladeilunni
löngu og leiðu.
I dag fellur tjaldið fyrir merki-
legum þætti úr stjórnmálasögu ís-
lands. í dag hefst nýr þáttur og
eigi ómerkilegri í sögu þjóðarinn-
ar. Hún er viðurkend fullveðja
þjóð. En um leið áskotnast henni
skyldur, sem hún að vísu hefir alt-
ar haft, að eigin áliti, én eigi feng-
ið færi á að rækja, vegna forráða
sambandsþjóðarinnar. í dag stönd-
um vér augliti til auglitis við
heiminn sem íslendingar, en
ekki sem Danir, — á eigin á-
byrgð, en ekki annara. í dag fá ís-
lendingar það hlutverk, að halda
uppi sæmd yngsta ríkisinstí heim-
innm. Og vonandi finnur öll þjóð-
in til vandans, sem þeirri vegsemd
fylgir, til ábyrgðarhlutans, sem
fallinn er oss í skaut með sam-
handslögunum nýju. Það er eigi
minna um vert, að kunna að gæta
fengihs fjár en að afla þess. Og því
er það, að svo áríðandi og mikils-
vert sem oss hefir verið starf vitr-
ustu og beztu manna þjóðarinnar
í baráttunni fyrir réttinum, þá er
hitt eigi síður vandi, að gæta rétt-
a.rins. Aldrei hefir þjóðinni fremur
en nú riðið á að eiga vitra menn
og góða til þess, að verja lífi sínu
og orku í þágu þjóðar sinnarr. Og
aldrei vaknar þjóðin sjálf til með-
vitundar um ábyrgðina, sem á
henni hvílir, ef ekki nú.
Aðrar þjóðir fórna lífi sínu fyr-
ir frelsið. Frelsi þjóðar vorrar er
ekki keypt fyrir blóð. En það er
dýrkeypt samt. Lífsstarf beztu
manna þjóðarinnar hefir verið
g'oldið fyrir frelsið 'og kraftar
raargra þjóðnýtra manna, sem
unnið hefðu þrekvirki ef gengið
hefðu í sömu átt, hafa breyzt í
hita og ofstæki við núningsmót-
stöðu sundurleitra skoðana. Sam-
bandsmálið hefir ætíð verið aðal-
mál, en nauðsynleg innanlandsmál
verið í vanhirðu. Og í þeim skiln-
ingi getum vér talið oss ófriðar-
þjóð, að nú verðum vér að bæta
það innanlands, sem her þjóðar-
innar — forvígismennirnir — eigi
gat snúist við, vegna deilunnar
við aðra þjóð. Það er því öðru nær
en að við höfum fengið friðinn fyr-
ir ekki neitt. „Herkostnaðurinn“
við stjórnmálabaráttuna hefir safn-
ast fyrir í mynd vanræktra innan-
landsmála og þann herkostnað á
þjóðin að borga á komandi árum.
Þar bíður óþrjótandi verkefni, eigi
að eins beztu og vitrustu manna
þjóðarinnar, heldur einnig hvers
einstaks manns.
En til eru þeir menn með þjóð-
inni, sem vilja að engu hafa sam-
bandslögin, er í dag ganga í gildi.
Þeir neita því að vísu fæstir, að
íengin sé viðurkenning fullveldis-
ins, en álíta hana svo dýrt keypta,
að betur hefði ógert verið. Reynzl-
an ein verður réttlátur dómari um
það, hvort þeir hafa rétt fyrir sér
eða eigi. En þrátt fyrir þann skoð-
anamun, sem orðið hefir um full-
veldislögin, er fylsta ástæða til að
vænta þess, að andstæðingarnir
raeti svo mikils heill þjóðarinnar,
að þeir gangi samhuga öðrum að
starfinu sem bíður, og geri sitt til
að efla friðinn.
Og hvað Dani snertir, þá sýn-
ist svo sem að sá flokkur þeirra,
er íslendingum er andvígur, sé svo
fámennur að oss stafi ekki ný ó-
friðarhætta úr þeirri átt. Það virð-
ist vera orðin ríkjandi skoðun í
Danmörku, að betra sé að þjóðirn-
ar skilji, en að þær lifi saman í
ósamlyndi. Og með sambandslög-
unum er fenginn grundvöllur fyrir
skilnaði á friðsamlegan hátt. Hins-
vegar vona víst allir, bæði íslend-
ingar og Danir, að sambúðin verði
ísafoldaiprentsmiðja
góð, hvort sem að hún verður löng
eða stutt.--------
ísland á meiri ónotaða f jársjóðu
en flest lönd önnur. Það er undir
þjóðinni komið, hvort ísland verð-
ur íslenzkt framtíðarlatid.
íslendingar eiga betri menning-
argrundvöll en flestar aðrar þjóð-
ir. Það er undir þeim sjálfum kom-
ið, hvort þar rís sú bygging, sem
fortíðarmenningunni er samboðin.
Hátíðahöld.
Hátíðahöld verða engin í bænum
önnur en þau, að stjórnarráðið hef-
ir ákveðið að ríkisfáni Islands
skuli dreginn upp fyrsta sinni með
töluverðri viðhöfn.
Hefst athöfnin kl. 11% og fer
fram fyrir framan stjórnarráðs-
húsið. Hún byrjar með liiðra-
blæstri. Næst heldur fjármálaráð-
herra ræðu. Éi. 12 stundvíslega
verður ríkisfáninn dreginn upp og
leikið á horn á meðan. „Islands
Falk“ mun heils'a flagginu með 21
fallbyssuskoti og danskir hermenn
sýna því virðingu. Foringinn á Is-
lands Falk heldur stutta ræðu og
á eftir verður leikið á horn. Að
síðustu segir forseti sameinaðs
þings nokkur orð.
Er mælst til þess að íslenzkir
fánar verði dregnir upp um leið
og1 ríkisfáninn, víðsvegar um bæ-
inn, en að bæjarmenn flaggi ekki
fyr. Ráðherra mun hafa lokið ræðu
sinni kl. 12 stuudvíslega, og ætti
fólk því að fjölmenna fyrir fram-
an stjórnaráðshúsið fjórðungi
stundar fyrir kl. 12.
Ganga má að því vísu, að fólk
mæti prúðbúið við athöfn þessa,
enda væri annað óviðeigandi. All-
mörgum hefir verið sérstaklega
boðið að vera viðstöddum athöfn-
ina, þar á meðal ræðismönnum er-
erlendra ríkja.
Óskað er að bæjarbúar fjöl-
menni. Kappkostað verður, að at-
höfnin standi stutt, svo að eigi sé
neinum hætt við ofkælingu.
m o a o m o k
Frá sjónarheimi heitir bók eftir dr.
Guðm. Finnbogason prófessor, sem
Bókaverzun Sigfúsar Eymundssonar
hefir nýskeð gefið út, og á skilið að
verða lesin af sem flestum. Efnið er
einkennilegt, en skýrt og skemtilega
raeð það farið, eins og höfundar er
yandi.
Rafljósaskilti hefir Nýja Bíó sett
upp. Er það skrautlegt mjög og smekk-
legt, stafirnir með lömpum úr ólituðu
gleii, en umgerðin um nafnið úr ruað-
um lömpum. Alls eru lamparnir 200.
Var skilti þetta pantað 1915 í Ame-
Afgreiðslusimi nr. 500
ríku, en hefir ekki komist hingað fyr
en nú. Gott var að fá góða birtu á
þennan stað, því þar vill oft vera óróa-
samt á kvelÖin. Og nóg er eftir af
myikri í bænum samt.
í gær var augíýst í blaðinu jarðar-
för Hólmfríðar Benediktsdóttur,
Klapparstíg 2. Hún og maður hennar,
Júlíus Brynjólfsson, voru flutt í
Barnaskólann vegna lungnabólgu. Hún
dó þar litlu síðar, en í fyrrinótt and-
aðist maður hennar einnig.
Um kvefpest heitir pési eftir G.
Björnson landlækni, sem nýkominn er
út á landssjóðs kostnað. Er þar lýsing
á inflúenzunni, varnir gegn henni,
ráð þegar veikin er komin og ýmis-
legt annað. Vafalaust verður pési
þessi sendur út um land.
Dánarfregn. Siguijón Jóhannesson
frá Laxamýri er nýlátinn nyrðra.
Kveldskemtun heldur Hákansson,
eigandi Iðnaðarmannahússins, í kveld.
Verður hún býsna fjölbreytt, sex
rianna hljóðfæraflokkur undir stjóm
Þórarins Guðmundssonar fiðluleikara,
upplestur (Jóhann Jónsson stud. art.),
ræða (Bjarni frá Vogi), söngur og
smáleikurinn „Bónorð Semings“, sem
fólki þótti svo skemtilegur i haust.
J’á þar sennilega færri en vilja góða
skemtun. Arðurinn rennur allur í
hjálparsjóðinn.
Seglskip, danskt eða norskt, sem
Maneeis heitir, kom í fyrrinótt með
kolafarm til landsverzlunarinnar, 3800
smálestir. Hefir það legið hlaðið í
Bretlandi síðan snemma í sumar, en
ekki fengið siglingaleyfi fyj en nú.
Sterling fer væntanlega til hafnanna
við Húnaflóa fyiri part þessarar viku.
Strandferðin austur ferst fyrir, vegna
sóttvarnanna á Austfjörðum. Lagar-
foss liggur enn þá á Akureyri aðgerða-
laus.
Biskupinn messar í dómkirkjunni kl.
2 í dag.
Sambandslögin í Danmörku. Fimtán
landsþingsmenn kváðu hafa verið fjar-
verandi þá er atkvæðagreiðsla fór
fram um sambandsmálið í Kaupmanua-
höfn.
Eftirtekt viljum vér vekja á Liver-
poolssíðunni. Þar sjá menn margt, er
þá vanhagar um.
Erl simfregnir.
Frð fréttaritara Morgunblaðsins
Khöfn, 30. nóv.
Konungnrinn undirskrifaði sam-
bandslögin kl. 10.40 í morgun.