Morgunblaðið - 14.02.1979, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979
Útvarp í kvöld kl. 20.00:
Úr skólalífinu
Þátturinn Úr skólalífinu, í um-
sjá Kristjáns E. Guðmundsson-
ar, hefst í útvarpi í kvöld kl.
20.00.
Að þessu sinni fjallar þáttur-
inn um skipulag og baráttumál
Iðnnemasambands íslands.
Einn starfsmaður sambandsins
og þrír forystumenn þess munu
kynna starfsemi sambandsins
sem er í fjórum þáttum upp-
bygging, kjaramálabarátta, iðn-
fræðsla og þjónustustarfsemi.
Síðan verður rætt um innra
starf sambandsins, tengsl þess
við aðildarfélög, útgáfustarf-
semi, en sambandið gefur út
blaðið Iðnnemann, og þau
vandamál sem tengjast starf-
seminni. Þá verður komið inn á
kjaramál og atvinnuöryggi, en
Iðnnemasamband íslands rekur
lögfræðiþjónustu fyrir iðnnema.
Hafa fjölmörg tilfelli komið upp
þess eðlis, að nemar hafa lent í
útistöðum við meistara sinn og
lent í vandræðum með áfram-
haldandi nám. Vekur það því
upp spurningu um rétt þeirra
gagnvart meisturum og hvort
samheldni þeirra hafi komið í
veg fyrir að iðnnemi komist á
samning hjá öðrum meistara í
viðkomandi grein hérlendis.
Sjónvarp í kvöld kl. 21.20:
Gleymt er
Gleymt er þá gert er, nefnist
annar þáttur myndaflokksins
un\ Will Shakespeare, sem
hefst í sjónvarpi í kvöld kl.
21.20.
í þættinum í kvöld er lýst
ástandinu. í Lundúnum, þegar
spænska veikin hefur lagzt á
borgarbúa. Shakespeare og fé-
lagar hans ætla að hefja leik-
sýningar í hinu nýja leikhúsi
sínu, en hafa ekki fundið nafn á
þá gert er
það. Shakespeare kynnist nokk-
uð óvenjulegum manni fyrir
tilviljun. Jarlinn af Southampt-
on gerir mikið af því að bregða
sér í dulargervi og í einu slíku
kemst hann í kast við lögregl-;
una fyrir að reyna að plokka
peninga af fólki á fölskum for-
sendum. Á flóttanum lendir
hann á krá nokkurri, þar sem
leikarar sitja að sumbli, og
biður þá að hylma yfir með sér.
Útvarp í kvöld kl. 21.30:
Hvorum megin er hjartað? í
útvarpi í kvöld kl. 21.30 les
Jónas Guðmundsson frumort
ljóð.
„Um þessi kvæði er það að
segja, að þau eru frekari úr-
vinnsla úr ýmsum hugmyndum
raanna, bæði höfunda, sem ég
hef lesið og eins heyrt, og þar á
meðal kvæði úr stærðar bálkum,
sem ég hef verið að gera um
ellina og eílífðarmálin," sagði
Jónas, er hann var inntur nánar
um ljóðin.
Jónas Guðmundsson
rithöfundur
Leikritagerð Sjónvarpsins
Vaka, þáttur um listir
og menningarmál í dag-
skrárgerð Þráins Bertels-
sonar, hefst í sjónvarpi í
kvöld kl. 20.30.
Þátturinn í kvöld er
umræðuþáttur um leik-
ritagerð Sjónvarpsins og
mun Ólafur Ragnarsson,
ritstjóri Vísis, stýra um-
ræðunum. Auk hans taka
þátt í þeim Jón G. Þór-
arinsson dagskrárstjóri,
Ólafur R. Einarsson, for-
maður Útvarpsráðs, Þor-
geir Þorgeirsson, Örnólf-
ur Árnason og Gísli Al-
freðsson, formaður Félags
íslenzkra leikara.
Þá verður fólk tekið tali
á förnum vegi í Hafnar-
firði, sem lætur álit sitt í
ljós um þessi mál. Síðan
eru viðtöl við menn, sem
er málið kunnugt eða
skylt að einhverju leyti.
Koma þar fram Njörður
P. Njarðvík, formaður rit-
höfundasambands ís-
lands, Jónas Guðmunds-
son rithöfundur, Ása Sól-
veig leikritaskáld og Þor-
steinn Jónsson formaður
Félags kvikmyndagerðar-
manna.
Aðspurður kvaðst Þrá-
inn Bertelsson vonast til
þess, að fram kæmu gagn-
legar upplýsingar, svo
sem hvað varðar aðstöðu
til leikritagerðar, hvernig
unnið væri að leikriti, svo
og hvaða stefna ræður
ferðinni og yfirleitt
hvernig að málum er stað-
ið, þannig að almenningur
verði einhverju fróðari en
áður um þessi mál.
^ Útvarp Reykjavík
/VIIÐMIKUD^GUR
14. febrúar
MORGUNNINN
07.00 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi. 7.20 Bæn.
7.25 Morgunpósturinn.
Umsjónarmenn: Páli Heiðar
Jónsson og Sigmar B.
Hauksson. (8.00 Fréttir).
8.15 Veðurfregnir.
Forustugr. dagbl. (útdr.).
Dagskrá.
8.35 Morgunþuiur kynnir ým-
is lög að eigin vali. 9.00
Fréttir.
9.05 Morgunstun barnanna:
Geirlaug Þorvaldsdóttir
heldur áfram að iesa
„Skápalinga“, sögu eftir
Michael Bond (17).
9.20 Leikfimi *
9.30 Tilkynningar. Tónleikar.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
10.25 Morgunþulur kynnir
ýmis lög frh.
11.00 Horft til höfuðátta. Séra
Helgi Tryggvason les kafla
úr bók sinni „Vísið þeim
vegínn“.
< 11.25 Kirkjutónlist: Verk eftir
Felix Mendelssohn. Wolf-
Igang Dallmann leikur
Orgelsónötu nr. 3 í A-dúr og
kór Kirkjutónlistarskólans í
Westfalen syngur fjórar
mótettur; Wilhelm Ehmann
stj.
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir. Fréttir.
Tilkynningar. Tónleikar.
SIÐDEGIÐ
13.20 Litii barnatíminn.
Sigríður Eyþórsdóttir
stjórnar. Lesið úr bókinni
„Fólk“ eftir Jónas Árnason.
13.40 Við vinnuna: TónJeikar.
14.30 Miðdegissagan: „Húsið
og hafið“ eftir Johan Bojer.
Jóhannes Guðmundsson
íslenzkaði. Gísli Ágúst
Gunnlaugsson les (14).
15.00 Miðdegistónleikar:
Fílharmoníusveit Lundúna
ieikur „Scapino“ gamanfor-
leik eftir William Walton;,
Sir Adrian Boult stj. / Paul
Tortelier og Bournemouth
sinfóníuhljomsveitin leika
Konsert nr. 1 í Es-dúr op.
107 fyrir sellló og hljómsveit
eftir Dimitri Sjostakovitsj;
Paavo Berglund stj.
15.40 íslenzkt mál. Endurt.
þáttur Gunniaugs Ingólfs-
sonar frá 10. þ.m.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir)
16.20 Popphorn: Halldór
Gunnarsson kynnir.
17.20 Útvarpssaga barnanna:
„Bernska í byrjun aldar“
eftir Erlu Þórdísi Jóns-
dóttur. Auður Jónsdóttir
leikkona byrjar lesturinn.
17.40 Á hvítum reitum og
svörtum. Guðmundur Arn-
laugsson flytur skákþátt.
18.10 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
MIÐVIKUDAGUR
14. febrúar
18.00 Rauður og blár
ítaiskir leirkarlar.
18.05 Börnin teikna
Bréf og teikningar frá
börnum til Sjónvarpsins.
Kynnir Sigríður Ragna Sig-
urðardóttir.
18.15 Gullgrafararnir
Nfundi þáttur.
Þýðandi Jóhanna Jóhanns-
dóttir.
18.40 Heimur dýranna
Fræðslumyndaflokkur um
dýralff vfða um heim.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson.
19.05 Illé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.30 Vaka
í þessum þætti verða um-
ræður um leikritagerð Sjón-
varpsins.
Dagskrárgerð Þráinn Bert-
elsson.
21.20 Will Shakespeare
Breskur mvndaflokkur f
sex þáttum.
Annar þáttur: Gleymt er þá
gert er
Efni fyrsta þáttar:
WiIIiam Shakespeare lýsir
velgengni sinni í höfuðborg-
inni í bréfum til ættingja
heima í Stratíord, en forn-
vinur hans, Hamnet Sadler,
kemst að raun um annað,
þegar hann kemur til Lund-
úna.
En þar kemur að Shake-
speare fær lítið hlutverk í
Rósarleikhúsinu. Hann
kynnist leikskáldinu
Christopher Marlowe, sem
eggjar hann til dáða.
Marlowe á í útistöðum við
yfirvöld og er myrtur. Við
fráfall hans verður Shake-
speare helsti leikritahöf-
undur Rósarleikhússins.
Hann er einnig fastráðinn
leikari.
Þýðandi Kristmann Eiðss.
22.10 Þróun fjölmiðlunar
Franskur fræðslumynda-
flokkur í þremur þáttum.
Annar þáttur: Frá handriti
til prentaðs máls
Þýðandi og þulur Friðrik
Páll Jónsson.
23.05 Dagskrárlok.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Frá tónleikum í Háteigs-
kirkju 18. desember s.l.
Sernaða nr. 12 í c-moll fyrir
blásaraoktett (K388) eftir
Mozart. Flytjendur: Duncan
Campbell, ' Lawrence
Frankel, Einar Jóhannes-
son, Óskar Ingólfsson, Haf-
steinn Guðmundsson, Rúnar
Vilbergsson, Gareth Molli-
son og Þorkell Jóelsson.
20.00 Úr skólalífinu. Kristján
E. Guðmundsson stjórnar
þættinum, sem fjallar um
skipulag og baráttumál Iðn-
nemasambands íslands.
20.30 Útvarpssagan: „Eyr-
byggja saga“, Þorvarður
Júlfusson les (4).
21.00 Hljómskálamúsik,
Guðmundur Gilsson kynnir.
21.30 Hvoru megin er hjartað?
Jónas Guðmundsson les
frumort ljóð.
21.45 íþróttir. Hermann
Gunnarsson segir frá.
22.05 Ludwig Streicher leikur
á kontrabassa lög eftir Gio-
vanni Bottesini; Norman
Shetler leikur á píanó.
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
Lestur Passíusálma (3).
22.55 Úr tónlistarlffinu. Knút-
ur R. Magnússon sér um
þáttinn.
23.10 Svört tónlist. Umsjón:
Gerard Chinotti. Kynnir:
Jórunn Tómasdóttir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.