Morgunblaðið - 14.02.1979, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979
11
Ekkert heimili ætti aö vera án þess öryggis, sem
reykskynjari veitir. Eldur getur brotist út hvar sem er og
hvenær sem er. Þetta einfalda og ódýra öryggistæki
getur bjargað mannslífi, þaö gefur frá sér löng
sírenuhljóð ef um reyk í íbúöinni er aö ræöa. Einfalt í
uppsetningu og fyrirferöarlítiö.
c Sunbeam
heimilistæki sf
HAFNARSTRÆTI 3 — 20455 — SÆTÚN 8 — 1 5655
í gámum af þessu tagi fer nú vöruflutningur fram með DC-10 þotu
Flugleiða, en þessi er af stærri gerðinni.
Farsölumenn Flugleiða héldu fund á íslandi nýlega: Frá vinstri: Léon
Wecker, Luxemburg; Mike Cohan, Chicago; Alfred J. Shea, New York:
Joe Danaher, New York; Sigurður Matthfasson, yfirmaður farmsölu-
deildar í Reykjavík, og Gunnar Olsen, einnig hjá farmsöludeild í
Reykjavík.
hún aukist nokkuð milli áranna
1977 og 1978, og hefði Flugleiðum
tekizt að halda sínu þrátt fyrir
samkeppni. Fyrra árið nam flutn-
ingur rúmum 6.682 tonnum, en
8.363 tonnum á síðasta ári. Til
Islands voru flutt 2.458 tonn, en
frá landinu 1.006 tonn og hafa
þessir flutningar aukist nokkuð
hratt á síðustu árum. Árið 1969
voru flutt 931 tonn til landsins,
1.609 tonn ‘72 og 1.729 tonn árið
‘75. Árið 1969 voru flutt 297 tonn
frá landinu, 557 tonn ‘72 og 562
tonn ‘75. í póstflutningum hefur
aukning orðið heldur minni eða úr
952 tonnum árið 1976 í 989 tonn á
síðasta ári.
— Við erum bjartsýnir á árið
1979 sögðu farmsölumennirnir, við
reynum að ná meiri flutningum
frá Islandi en verið hefur til að ná
jafnvægi og okkar fólk gerir sér
far um að aðstoða íslenzka útflytj-
endur við að afla markaða erlend-
is.
Aukmng á útflutningi
iðnaðarvara um 56%
Á árinu 1978 voru fluttar út iðnaðarvörur fyrir 34,8 milljarða króna
sem er 56% aukning frá árinu áður þegar flutt var út fyrir 22,3
milljarða. Af þessari upphæð nam ál og álmeimi 77 þúsund tonnum
eða fyrir 23,6 milljarða, en var 74 þúsund tonn eða fyrir rúma 14,9
milljarða árið áður.
Aukning í útflutningi annarra iðnaðarvara en áls nam á árinu 51%
og varð mest aukning í verðmæti í skinnaiðnaði 78% en magnið jókst
þar um 23%. Síðan segir í frétt frá Útflutningsmiðstöð iðnaðarins um
útflutning sl. árs:
Aukningin bæði í magni og
verðmæti milli áranna 1977 og ’78
var í lagmetisiðnaði, en útflutn-
ingur hans jókst í verðmæti úr
1206 m.kr. í 2000 m.kr. eða um 67%
en magnið jókst um 7%.
Eins og áður er ullariðnaðurinn
langstærsta útflutningsgreinin og
jókst útflutningur ullarvara úr
3441 m. kr. í 4529 m. kr. eða um
32%. Hér varð aftur á móti mikill
samdráttur í magni, samtals 128
tonn. Hér munar mest um sam-
drátt á Sovétmarkaði er nam
samtals 193 tonnum.
Kísilgúrútflutningur dróst lítil-
lega saman af ástæðum sem öllum
’Si Lítið barn hefur
JÍ' lítsð sjónsvið
eru ljósar nú voru flutt út rúmlega
20 þús. tonn á 226 millj. kr.
Samtals nemur útflutningur
ofantaldra vörutegunda um 9.9
milljörðum króna.
1.3 milljarðar skiptast svo milli
fjölmargra vörutegunda. Þar ber
alveg sérstaklega að nefna útflutn-
ing Hampiðjunnar, sem rúmlega
þrefaldaðist að verðmæti og nem-
ur nú 343.2 m. kr. Þá ber og að
nefna þangmjöl, sem var flutt út
fyrir 278 m. kr., málning og lakk
fyrir um 269 m. kr. og
pappaumbúðir fyrir um 187 m. kr.
Útflutningur annarra vöruhópa
náði ekki 100 m. kr.
Samkeppni í fragt-
flutningum ekki síður
en í farþegaflutningum
Rætt við fraktsölumenn Flugleiða
Nokkrir starfsmanna Flug-
leiða, þeirra er sjá um fraktflutn-
inga félagsins, sátu í Reykjavík á
tveggja daga fundi nú í fyrri viku
þar sem rædd voru málefni frakt-
flutninga félagsins. Mbl. ræddi
við þá þegar fundum þeirra var
að ljúka, en hann sátu auk starfs-
manna farmsöludeildar hérlendis
fulltrúar félagsins í Luxemburg,
New York og Chicago.
— Þessir fundir okkar eru
haldnir einu sinni á ári, sagði
Sigurður Matthíasson forstöðu-
maður farmsöludeildar Flugleiða
og á þeim ræðum við starfsemi
síðasta árs og skipuleggjum sölu-
starfsemina á þessu ári og í þetta
sinn er það sérstaklega með tilliti
til notkunar DC-10 þotunnar, sem
gerir okkur kleift að inna af hendi
ákveðna þjónustu sem við ekki
gátum áður.
— Nýja DC-10 þotan gerir
mögulegt að flytja varninginn í
gámum, sagði Alfred J. Shea
forstöðumaður fraktdeildarinnar í
New York, en svæði hans nær
einnig yfir Baltimore og Chieago,
þ.e. þá staði í Bandaríkjunum er
áætlunarflug Flugleiða nær til, en
gámarnir tryggja mun betur en
áður örugga meðferð varnings,
rými vélarinnar er betur nýtt og
ýmiss konar annað öryggi er í því
fólgið að nota gáma. Við munum á
þessu ári leggja sérstaka áherzlu á
þá flutninga, hér er um að ræða
nútímatækni, mjög hentuga flutn-
ingaaðferð enda hafa flutningar
með flugvélum aukist mjög að
undanförnu og við höfum orðið
varir við það einnig.
Þeir nefndu einnig að breiðþot-
an gerði mögulega flutninga á
stærri hlutum en áður hefði verið,
svo og þyngri einstökum stykkjum,
áður var mest hægt að flytja um
500 kg stykki, en nú er mögulegt
að flytja einstök stykki allt að 1465
kg að þyngd, en það er hægt vegna
aukins rýmis vélarinnar og er því
hægt að koma fyrir í henni stærri
stykkjum en áður hefur verið.
— Við erum að reyna að koma
Islendingum meira til þess að nota
flugið sem flutningaleið, sagði
Léon Wecker yfirmaður farmsölu-
skrifstofunnar í Luxemburg og í
því sambandi er verið að skipu-
leggja betri þjónustu frá löndun-
um í kringum Luxemburg svo sem
Hollandi, Belgíu, Þýzkalandi og í
gegnum okkar hendur fara einnig
vörur sem koma frá Italíu og
löndum þar í grennd. Annars
reynum við að ná til alls megin-
landsins með flutninga og segja
má að flutningatækifærin til Is-
lands séu nokkuð góð þar sem við
getum notað ferðirnar til New
York, Chicago og Baltimore, en
heldur færri tækifæri eru í Banda-
ríkjunum. En við getum samt sem
áður komið varningi mjög fljótt á
áfangastað, ég segi ekki á 24
tímum, en 48 er alveg viðráðanleg-
ur tími fyrir okkur. Það er ómet-
anlegt að geta boðið viðskiptavin-
um uppá slíkt, enda byggist fragt-
flutningur á því að hann gangi
sem fljótast fyrir sig.
Þeir fraktsölumennirnir voru
sammála um að mikil samkeppni
ríkti meðal flugfélaga um frakt-
flutninga, ekki síður en farþega og
væru Flugleiðir að vinna að því á
öllum stöðum að styrkja stöðu sína
hvað varðaði fraktina, enda hefði