Morgunblaðið - 14.02.1979, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979
17
Húsnæði meðferðarheimilisins við Kleiíarveg. 1 J"sm Kmiiia-
Góður árangur
af starfinu hér
„Fyrstu fréttirnar sem við
fengum af niðurskurði fjárins til
Meðferðarheimilisins lásum við í
dagblöðunum,“ sögðu þau
Stefanía Sörheller, forstöðumað-
ur Meðferðarheimilisins við
Kleifarveg, og Ingvar Guðnason,
starfsmaður heimilisins, er blaða-
menn spjölluðu við þau.
„Ekki hafa borgarráðsmenn
haft samband eða samvinnu við
okkur. Þegar við sáum að svo
yrði áfram reyndum við að ná tali
aí borgaryfirvöldum en það gekk
ekki allt of vel.
Það sem við vitum nú er, að
húsið er talið dýrt í rekstri og talið
er að hagkvæmari og ódýrari
stofnanir. Nú þegar fjölga á í
bekkjum skólanna þá hefur kenn-
arinn ekki eins mikinn tíma til að
sinna hverjum og einstökum."
í grein í Mbl. í gær talið þið um
að þið veitið börnunum viðeigandi
meðferð. Hvers konar meðferð er
það sem hér um ræðir?
„Markmið meðferðarinnar er að
börnin fari aftur til sinna heima
og í sinn hverfisskóla. Eftir að
barnið hefur verið hér í nokkurn
tíma höfum við gert okkur grein
fyrir hver vandamálin eru sem
barnið á við að stríða og reynum
að leysa erfiðleika þess í samráði
við sálfræðilegan ráðunaut heimil-
isins. Þetta er svokölluð hverfis-
an eftir meðferð. Flestir þeirra
hafa orðið færir um að stunda
almennan skóla á ný og sameinast
sínu félagslega umhverfi án telj-
andi erfiðleika."
„Ég held að það hvernig fjöl-
skyldan er orðin hafi mikil áhrif á
börn almennt. Vinnuálagið er orð-
ið svo gífurlegt og tengslin innan
fjölskyldunnar orðin miklu minni
en áður var. Ég tel það vanti
áþreifanlega stað fyrir unglinga
15—18 ára þar sem þeir geta hist
og eytt saman frístundum. Það er
ósköp eðlilegt að þeir vilji safnast
saman eins og annað fólk og það er
ef til vill skýringin á þeim fjölda
unglinga sem safnast saman í
miðbænum. Það ættu allir að
Rætt við Stefaníu Sörheller og Ingvar Guðnason
starfsmenn Meðferðarheimilisins við Kleifarveg
lausn finnist annars staðar. Nú er
sem sagt, að við best vitum, verið
að tala um að flytja heimilið
eitthvað. Þetta er svo opið að við
vitum ekki hvort um er að ræða
flutning milli húsa eða sameining
þessa heimilis og einhverrar stofn-
unar.
„Okkur finnst það rangt að ætla
að strika eina stofnun algjörlega
út án þess að hafa haft nein kynni
af henni eða hafa kynnt sér rekst-
ur hennar áður. Og framtíðin
býður einnig upp á fleiri svona
meðferð. Meðferðin felst m.a. í því
hvernig við högum heimilislífinu
hér. Síðan er lögð áhersla á að
taka fyrir einstök hegðunarein-
kenni hjá hverjum einstökum, og
einnig öllum hópnum eins og
henta þykir.“
Hafið þið séð einhvern árangur
af starfinu?
„Við teljum að árangurinn af
starfinu hér hafi verið góður. Að
vísu höfum við starfað í stuttan
tíma en við höfum fylgst með
einstaklingum sem hafa farið héð-
skilja það að unglingar hafa þörf
fyrir félagsskap af sínum jafnöldr-
um.
Nú á að fara að leggja útideild-
ina niður sem unnið hefur meðal
unglinganna til þess að reyna að
koma til móts við þau og hjálpa
þeim. Ég tel það mjög varasamt að
ætla að leggja þá d@ild niður þar
sem unglingar eiga oft erfitt með
að fara inn á stofnanir til þess að
leita hjálpar og því er það nauð-
synlegt að hafa fólk sem fer út til
þeirra,“ sagði Stefanía að lokum.
Iþróttaráð mótmæl-
ir niðurskurði á fé
til íþróttamannvirkja
í FJÁRIIAGSÁÆTLUN Reykjavíkurborgar er gert ráð fyrir
verulegum niðurskurði á fé til íþróttamála þannig að á þessu ári
verður engu fé veitt til nýrra íþróttamannvirkja heldur aðeins til
uppbyggingar í Bláfjöllum, viðhalds mannvirkja og endurbyggingar
Sundhallarinnar. Á fundi íþróttaráðs í gærmorgun voru gerðar
bókanir um þetta mál bæði af fulltrúum meirihlutans og minnihlutans
þar sem þessum niðurskurði er mótmælt og því lýst yfir að ekki verði
við þessa aígreiðslu unað. Að sögn Eiríks Tómassonar, formanns
íþróttaráðs, hafði ráðið á prjónunum byggingu búningshcrbergja við
Laugardalslaug, Skautahöll í Laugardal og gufubað við Sundlaug
Vesturbæjar.
Sveinn Björnsson, fulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins, óskaði bókað eft-
irfarandi á fundinum í gær-
morgun:
Samkvæmt upplýsingum, sem
nú liggja fyrir um framkvæmdir
við ný íþróttamannvirki í borginni
árið 1979, verður ekki annað séð en
að brotið verði blað í byggingu
íþróttamannvirkja borgarinnar
þar Sem framlög til nýrra bygg-
inga verða stórlega skorin niður og
ekki aðhafst annað en að fram-
kvæma nauðsynlegasta viðhald
núverandi mannvirkja. Lýsi ég
undrun minni á þeirri snöggu
stefnubreytingu sem orðið hefur
hjá núverandi meirihluta borgar-
stjórnar frá því að þeir á s.l. ári
fluttu tillögu um aukin framlög til
íþróttamannvirkja, skautahallar
o.fl. Tel ég að ekki verði komist hjá
því að hækká verulega framlög
borgarinnar til uppbyggingar
íþróttamannvirkja svo komist
verði hjá algerri stöðnun.
Bókun fuiltrúa meirihlutans:
Við undirritaðir fulltrúar borg-
arstjórnarmeirihlutans í iþrótta-
ráði lýsum okkur efnislega sam-
þykka bókun Sveins Björnssonar.
Við bendum á þá staðreynd að
framlög til framkvæmda á sviði
íþróttamála eru hreinlega felld
niður meðan framkvæmdaframlög
til æskulýðsmála stórhækka. Á
vegum íþróttaráðs eru fýrirhugað-
ar framkvæmdir, sem allar
beinast að því að bæta aðstöðu
fyrir almenning i borginni til að
iðka íþróttir og viðhalda þar með
andlegri og líkamlegri heilsu sinni.
Þetta er ekki virt viðlits. Unum við
ekki afgreiðslu sem þessari, þrátt
fyrir þröngan fjárhag borgarsjóðs,
vegna þess að niðurskurður bitnar
verst á íþróttum í borginni.
Eiríkur Tómasson, Gísli Þ. Sig-
urðsson, Sigurður Jónsson.
Kemur okkur al-
gjörlega á óvart
— segja starfsmenn útideildar
— ÞAÐ kom okkur algjörlega á
óvart að leggja ætti niður starf-
semi útideildar, sögðu tveir
starfsmenn útideildar í samtali
við Mbl. er hugmyndir hafa verið
uppi um að starfseminni yrði
hætt frá aprílbyrjun. Við erum
ekki síður hissa vegna þess, að
félagsmálaráð og æskulýðsráð
sem ba'ði eiga aðild að þessu
starfi mæltu með því og lögðu
áhcrzlu á að það yrði aukið.
Ráðgert er að fella niður 18
milljón kr. fjárveitingu á þessu ári
og kváðu starfsmenn vert að hafa í
huga, að með útideild hefði á IV2
ári tekist að byggja upp samband
við milli 600 og 700 unglinga í
Reykjavík og væri slæmt ef skorið
yrði á það samband, því langan
tíma tæki að byggja það upp og
þegar útideild hefði hafið starf þá
hefðu í fyrstunni mætt starfs-
mönnum nokkur tortryggni
unglinganna en væri nú alveg
horfin. Væri nú áríðandi að halda
sambandi við þá áfram til að ná
fram markmiðum útideildar sem
væru m.a. að starfa meðal 12—18
ára barna og unglinga, skapa
gagnkvæmt traust og draga úr
hættu á að unglingar leiðist út í
afbrot og óreglu. Þá sögðu starfs-
menn útideildar, að þarna væri
náð til unglinga sem væru ekki
starfandi í neinum félögum og
ættu jafnvel enga að til að ræða
sín vandamál við, en starfsmenn
deildarinnar gætu einatt komið
þeim á rétta leið og orðið að liði.
Fræðsluráð Reykjavíkurborgar:
Efla á starf svipað og
Meðferðarheimilisins
Á fundi í fræðsluráði sem hald-
inn var mánudaginn 12. febrúar
s.l. var eftirfarandi bókun
samþykkt. 8 fulltrúar fræðslu-
ráðs samþykktu þessa bókun en
tveir sátu hjá. Kristján Bene-
diktsson formaður ráðsins og
Ragnar Júlíusson.
Vegna hugmynda um að lækka
framlag til Meðferðarheimilisins
við Kleifarveg á fjárhagsáætlun
borgarsjóðs Reykjavíkur 1979 sem
fræðsluráði hafa verið kynntar
viljum við taka eftirfarandi fram:
Heimili er fullnýtt miðað við
þann starfsramma sem þvi er
settur og börn jafnan á biðlista
eftir því að komast þar í vistun.
Eftir því sem við vitum best er
góður árangur af starfi heimilis-
ins.
Við teljum að stefna eigi að því
að efia starf af því tagi sem hér er
um að ræða vegna þess að það
miðast við þá sem eiga í miklum
erfiðleikum með að stundá skyldu-
nám vegna geðrænna og/eða fé-
lagslegra örðugleika.
Hörður Bergmann.
Þór Vigfússon
Helga Kr. Möller
Elín Pálmadóttir
Sigurjón Fjeldsted
Elín G. Ólafsdóttir
Sigurður Ulfarsson
Ilaraldur Finnsson