Morgunblaðið - 14.02.1979, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. FEBRÚAR 1979
25
fclk í
fréttum
h
7 7
On fi/nzi Crímes
NoT TMER!
/ «
+ í NEW YORK — Fyrir nokkru var efnt til mótmælafundar við aðalstöðvar Sameinuðu þjóðanna í
New York gegn því að sett verði lög í V-býzkalandi um að eftir 31. des. á þessu ári verði hætt að fjalla
um stríðsglæpamál frá dögum nazista. Voru á þessum mótmælafundi m.a. fóik sem slapp lifandi úr
fangabúðum nazista og félagar í þeim alþjóðlegu samtökum, sem berjast gegn nazisma. Sá maður sem
mest og bezt hefur unnið við að elta uppi gamla nazistaforingja, sem sekir gerðust um glæpi á valdatíð
sinni, Gyðingurinn Simon Wiesenthal, berst eindregið gegn þessum ráðagerðum.
+ í DÝRAGARÐINUM. -
Þessi mynd er tekin í dýra-
garðinum í Washington-
borg á dögunum, er heim-
sókn kínverska varafor-
sætisráðherrans stóð yfir.
Kona ráðherrans, Cho Lin,
fór þá ásamt forsetafrúnni
og dóttur hennar til að
skoða dýragarðinn. — í
baksýn má sjá annan
tveggja pandabangsanna
sem Nixon voru færðir að
gjöf er hann heimsótti
Kína árið 1972, til minn-
ingar um heimsóknina.
Pandabirnirnir eru kallað-
ir Ling-Ling og
Hsing-Hsing.
+ „VIÐ skulum drekka dús!“ Þetta er mjög nýleg mynd af brezka leikaranum Peter Ustinov. Hann
virðist hafa heilmikið að gera innan um kvenfólkið. — Ekki verður betur séð en hann sé að undirbúa
dúsdrykkju með tilburðum við konuna á vinstri hönd og í leiðinni virðist hann ætla að skála við hina
konuna. — Það er eiginkona hans, Helena. Hin konan er eigandi næturklúbbsins, þar sem þessi mynd er
tekin. En hún heitir Regina og klúbburinn, sem er í Kensingtonhverfinu, ber nafn hennar. Nýlega var
Ustinov heiðraður í London. Var hann kjörinn bezti leikarinn árið 1978 fyrir leik sinn í aðalhlutverkinu
í myndinni Dauði á Níl. Þá mynd er einmitt verið að sýna um þessar mundir í Regnboganum við
Hverfisgötu.
Per Breck og Reidar Lien spila hér gegn Guðmundi Péturssyni og
Karli Sigurhjartarsyni á Norðurlandamótinu á Hótel Loftleiðum í
fyrra.
Stórmót Bridge-
félags
Reykjavíkur
Eins og komið hefur fram í
bridgefréttum munu marfaldir
Norðurlandameistarar heim-
sækja B.R. í næsta mánuði.
Norðmennirnir Per Preck og
Reidar Lien þágu boð um þátt-
töku í Stórmótinu sem í ár
verður haldið dagana 17. og 18.
marz í Krystalsal Ilótels Loft-
leiða.
Stjórn félagsins þykir mikill
heiður, að þessir menn skulu
þiggja boð félagsins og í raun-
inni íslenskum bridgespilurum
Brldge
Umsjón: ARNÓR
RAGNARSSON
með því mikill sómi sýndur. Þeir
félagar voru í sigurliði Noregs á
Norðurlandamótinu, sem haldið
var hér í Reykjavík í júní
síðastliðnum og voru þá af
mörgum álitnir besta parið í
mótinu. Oft hafa þeir vakið
athygli í alþjóðamótum og
nægir þar að nefna 6. sæti í
Sunday Times tvímennings-
mótinu í janúar, sem haldið er
árlega í London en það eitt að
vera boðin þar þátttaka þykir
sérstök viðurkenning.
Þetta er í annað sinn, sem
B.R. efnir til Stórmóts. í fyrra
tóku sænsku evrópumeistararn-
ir Göthe og Morath þátt í
mótinu og sigruðu sérstaklega
valda keppendur eftir mjög
jafna keppni. Og sami háttur
verður hafður á nú. Þeir sem
hug hafa á þátttöku í mótinu
þurfa að láta vita sérstaklega,
annaðhvort til stjórnar B.R. eða
fyrir milligöngu formanna sinna
félaga. Þátttakendur verða vald-
ir úr þeim umsóknum, sem
borist hafa þann 20. febrúar og
endanlegur listi yfir keppendur í
Stórmótinu verður kynntur
fyrir 10. marz.
í tengslum við Stórmótið
verður haldið tvímenningsmót
með þátttöku Norðmannanna.
Verður þá reynt að mæta sér-
staklega óskum um góða að-
stöðu fyrir áhorfendur og jafn-
vel reyndar nýjungar á því sviði
hérlendis. En fy'rirkomulag
þessarar sveitakeppni verður
kynnt sérstaklega síðar.
Bridgefélag
Suðurnesja
Sl. sunnudag var félagið með
kynningarmót fyrir spilara
sem ekki spila keppnisbridge.
Var það þannig skipulagt að
spilarar innan félagsins tóku
með sér spilara sem sjaldan eða
aldrei spila keppnisbridge.
Spilað var í þremur riðlum og
voru 14 pör í hverjum riðli.
Úrslit urðu þessi:
A-riðill:
Hreinn — Stefán 187
Birgir — Njáll 177
Halldór — Sólveig 173
Birkir — Margeir 173
B-riðill:
Arnór — Magnús 205
Karl — Eiríkur 177
Guðjón — Sveinn 175
Kári — Sigurður 172
C-riðiil:
Einar — Kristinn 203
Dagbjartur — Viktoría 184
Vilhjálmur — Arnar 172
Þórleif — Matthildur 168
Meðalárangur 156
Suðurnesjamenn ætla ekki að
láta þar Við sitja. Næstu
fimmtudagskvöld verður opið
hús fyrir þetta fólk og ef vel
gengur verða skipulögð mót
sérstaklega fyrir þennan hóp.
Vonast félagið til að geta eflt
bridgeíþróttina sem keppnis-
íþrótt til muna með þessari
nýbreytni.
Bridgedeild
Breiðfirðinga-
félagsins
Sjö kvölda barómeterkeppni
er hafin hjá félaginu og mættu
42 pör til leiks.
Staðan er nú þessi:
Guðlaugur Karlsson
— Óskar Þráinsson 120
Birgir Sigurðsson
— Hannes Jónsson 116
Bergsveinn Breiðfjörð
— Tómas Sigurðsson 98
Björn Gíslason
—• Gísli Víglundsson 85
Páll Vilhjálmsson
— Sveinn Helgason 73
Þuríður Muller
— Anna Guðnadóttir 65
Ólafur Jónsson
— Halldór Jóhannesson 62
Finnbogi Guðmundsson
— Sigurbjörn Armannsson 62
Jón Stefánsson
— Ólafur Gíslason 55
Næsta umferð verður spiluð á
fimmtudag og hefst keppnin
klukkan 19.45.
Keppnisstjóri er einn af okkar
reyndari keppnisstjórum og er
bankastarfsmaður. Hann óskar
eftir að hans sé ekki getið.