Morgunblaðið - 01.03.1979, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979
Húsnæðismálastofnun:
Greiðir 2 milljarða
í lán í marz og apríl
Húsnæðismálastjórn hefur tekið
ákvörðun um tilhögun lánveitinga
að upphæð um 2 milljarðar króna
sem koma til greiðsiu ( marz og
aprílmánuði n.k. Aðallega er um að
ræða frumián og viðbótarlán til
þcirra er fengu frumlán og miðián
á síðasta ári svo og ián tii kaupa á
eldri fbúðum. Byggingarlánin
nema samtais 1.190 miiijónum
króna og lánin til kaupa á eldri
íbúðum eru um 820 milljónir til
kaupa á 630 ibúðum.
Lánveitingar þær, sem hér um
ræðir, eru þessar:
1) Lokalán (þ.e. 3 hluti), samtals
að fjárhæð um 338 milljónir króna,
eru veitt til greiðslu eftir 5. marz nk.
þeim aðilum, sem fengu frumlán sín
greidd eftir 10. febrúar 1978 og
miðlánin greidd eftir 10. ágúst sl.
2) Miðlán (þ.e. 2. hluti), samtals að
fjárhæð um 337 milljónir króna, eru
veitt til greiðslu eftir 10. marz nk.
þeim aðilum, sem fengu frumlán sín
greidd eftir 25. ágúst.
3) Frumlán (þ.e. I. hluti) eru veitt
Loðnan færir sig vestar
MJÖG góð loðnuveiði var á loðnu-
miðunum fyrir Suðausturiandi síð-
asta sólarhring, og samtais til-
kynntu 25 skip um afla, alls rúm-
lega 10 þús. lestir. Veiðisvæðið er
nú einkum umhverfis Ingólfshöfða
og þar fyrir vestan. Eru skipin nú
þegar farin að landa í Faxaflóa-
höfnum, og má búast við auknum
löndunum þar næstu daga. Ágætt
veður var á loðnumiðunum si'ðasta
sólarhring.
Á miðnætti í gær höfðu eftirtalin
skip tilkynnt afla til loðnunefndar:
Breki 680 lestir, Bjarnarey, 150,
Seley 400, Fífill 600, Súlan 750,
Vonin 180, Gunnar Jónsson 150,
Húnaröst 600, Albert 570, Sigurður
1300, Loftur Baldvinsson 750, Óskar
Halldórsson 350, Freyja 380, Nátt-
fari 530, Bergur II. 500, Víkurberg
260, Sæberg 650, Álfsey 150, Grind-
víkingur 970, Bjarni Ólafsson 1050,
Faxi 320, Stígandi 180, Helga Guð-
mundsdóttir 650, ísleifur 400 og
Skarðsvík með 590 lestir.
til greiðslu eftir 1. apríl nk. Nemur
lánveitingin samtals um 330 milljón-
um króna til byggingar um 275
íbúða. Hún er veitt þeim hús-
byggjendum, sem höfðu sent stofn-
uninni fullgildar og lánshæfar láns-
umsóknir fyrir 1. febrúar si. og höfðu
jafnframt sent henni fokheldisvott-
orð fyrir sl. áramót.
4) Miðlán (þ.e. 2. hluti), samtals að
fjárhæð um 183 millj. króna, eru
veitt til greiðslu eftir 10. apríl nk.
þeim umsækjendum, sem fengu
frumlán sín greidd eftir 1. október sl.
5) Lán til kaupa á eldri íbúðum
samtals að fjárhæð um 820 milljónir
króna, eru veitt til greiðslu eftir 10.
apríl nk. þeim lánsumsækjendum til
handa, sem sendu stofnunni lánsum-
sóknir sínar fyrir 1. október sl. Er
hér um 630 íbúðir að ræða.
Sámtals er hér um 5 lánveitingar
að ræða, samtals að fjárhæð um 2008
milljónir króna.
Harður árekstur varð í hálkunni I Reykjavfk í gær, er saman rákust iltil
Trabantbifreið og stór amerískur fólksbíll þar sem þeir óku samsíða eftir
Hringbrautinni til vesturs. Bflarnir eru báðir mikið skemmdir eins og
þessar myndir bera með sér, einkum minni bfllinn. Ekki er alveg ljóst hvað
olli árekstrinum, en bfiarnir óku sem fyrr segir samsíða í vesturátt eftir
Hringbrautinni. Rákust þeir saman með þeim afleiðingum að þeir fóru
báðir yfir í girðinguna á umferðareyjunni, annar yfir hina akbrautina en
sá stærri staðnæmdist á girðingunni milli akbrautanna. Ljósm. Emilfa.
Skákmótið í Miinchen:
Jafnt hjá Friðrik en
skák Guðmundar í bið
FRIÐRIK Ólafsson stórmeistari
gerði í gær jafntefli við Balashov
frá Sovétríkjunum í fjórðu umferð
skákmótsins á Hiltonhótelinu í
Flugverkfallið:
Stefnt að sáttafundum
í dag eða á morgun
STEFNT er að því að halda sátta-
fundi í deilu flugmanna og Flug-
leiða f dag eða á morgun og tjáði
Hallgrfmur Dalberg Mbl. í gær, að
tfminn væri notaður til ýmiss konar
undirbúnings þótt ekki hefðu verið
haldnir fundir nú f nokkurn tfma.
Hann kvaðst á þessu stigi ekkert
geta sagt um framvindu mála.
Aðgerðir flugmanna Flugfélagsins
munu hefjast að nýju í næstu viku.
Upplýsti talsmaður þeirra í gær, að
miðvikudaginn 7. marz yrði ekkert
flogið til Egilsstaða, Hornafjarðar
og Vestmannaeyja, en millilandaflug
yrði með eðlilegum hætti. Fimmtu-
dag 8. marz verður ekki flogið til
Vestfjarða og ekki til Kaupmanna-
hafnar. Föstudag 9. marz verður ekki
flogið til Sauðárkróks, Akureyrar né
Húsavíkur og liggur millilandaflug
niðri laugardag og sunnudag 10. og
11. marz en verður eðlilegt á föstu-
deginum. Flugmenn hafa ekki boðað
frekari aðgerðir að sinni og er þetta
samkvæmt því sem hafði verið
ákveðið áður en til frestunar þeirra
kom.
Miinchen í Vestur-Þýskalandi, en
skák Guðmundar Sigurjónssonar
og Svíans Anderssons fór í bið.
Staðan er nú þannig á mótinu, að
Spassky er efstur með 3 vinninga,
Robatsch frá Austurrfki og Ilubner
frá Vestur-Þýskalandi eru í öðru til
þriðja sæti með 2xh vinning, og
síðan kemur Friðrik Ólafsson
ásamt fleirum með 2 vinninga.
Önnur úrslit í fjórðu umferð móts-
ins urðu sem hér segir: Hubner vann
Lau, Lieb vann Pachmann, Adorjan
og Dankert gerðu jafntefli og einnig
þeir Spassky og Robatsch. Skák
þeirra Karpovs heimsmeistara og
Unzickers fór í bið, og einnig skák
Steans og Pfelgers. Að sögn Friðriks
Ólafssonar, er Morgunblaðið ræddi
við í gærkvöldi, þá er skák Karpovs
og Unzickers jafnteflisleg, en Stean
hefur líklega vinning á móti Pfelger,
en þó getur allt gerst í þeirri skák.
Friðrik sagði að enn væri of lítið
búið af mótinu til þess að nokkru
væri hægt að spá um úrslit, auk þess
sem eftir væru biðskákir og ein skák
sem frestað var í byrjun.
Sóknarsamningar:
192 með en
122 á móti
Starfsstúlknafélagið Sókn hefur
undirritað kjarasamning við við-
semjendur sína, rfkið, Reykja-
víkurborg og fleiri aðila, og er hin
almenna launahækkun á bilinu frá
9 og upp í 11%. Samningarnir voru
Matthías Á. Mathiesen um lánsfjáráætlun:
Erlendar lántökur 5 milljörðum
hærri en fjárlög gera rað fyrir
LÁNSFJÁRÁÆTLUN 1979 kemur nú til umræðu tveimur mánuð-
um eftir að fjárlög voru afgreidd, sagði Matthfas Á. Mathiesen í
umræðu á Alþingi í gær, en þarf að fá afgreiðslu samhliða
fjárlögum, ef hún á að koma að því gagni sem stjórntæki í
rfkisbúskapnum, sem að var stefnt þegar hún var upp tekin 1976.
Annríki stjórnarliða er um kennt, en það annríki kemur fyrst og
fremst fram í því að vera ósammála um alla hlutj, utan nýja
skattheimtu, sem nemur 25 til 30 milljörðum í tekjur til ríkissjóðs
1979, umfram það, sem verið hefði, að óbreyttum tekjuöflunarlög-
um frá fyrra ári.
Þjóðhagsspá, sem fjárlög og
lánsfjáráætlun eru byggð á,
hefur breytzt, svo segja má að
forsendur þær, sem á er byggt,
hafi brostið. Þannig er ljóst að
vísitöluhækkanir kaupgjalds
verða mun meiri, bæði 1. marz
og 1. júní, en við var miðað í
forsendum áætlana. Þar er held-
ur ekki tekið mið af þeirri þróun
olíuverðs, sem/ orðin er, og
skekkir áætlaðan viðskiptajöfn-
uð þjóðarinnar út á við. Sýnt er
og að ýmsir veigamiklir út-
gjaldaliðir í fjárlögum eru stór-
lega vanáætiaðir, þanrr veg að
stefnt virðist í meiri rekstra-
rhalla í ríkisbúskapnum en áður
var ætlað. Ráðgerður rekstrar-
halli ríkisstofnana, s.s. Pósts og
síma, nemur milljörðum króna.
Breyttar forsendur gera þessi
veigamiklu stjórntæki í ríkis-
búskapnum, fjárlög og lánsfjár-
áætlun, að marklitlum pappírs-
plöggum, eins og að málum
hefur verið staðið.
Lánsfjáráætlun gengur og
þvert á fjárlög á ýmsan veg, sem
undirstrikar í senn skoðanamis-
gengið hjá stjórnarflokkunum
og nauðsyn þess að afgreiða
fjárlög og lánsfjáráætlun til
opinberra framkvæmda sam-
tímis. Þannig hækka fjárfram-
lög til opinberra framkvæmda,
frá fjárlögum til lánsfjár-
áætlunar, um 50% og erlendar
Matthías Á. Mathiesen.
lántökur úr 5,6 milljörðum eins
og fjárlög gerðu ráð fyrir í 10.5
milljarða. I lánsfjáráætlun er
jafnvel gert ráð fyrir fjárráð-
stöfunum sem ekki hafa einu
sinni verið ræddar í fjár-
veitinganefnd Alþingis. Og þar
eru ýmis atriði, sem stjórnar-
flokkarnir hafa orðið ósammála
um, í grundvallaratriðum, og
fróðlegt verður að sjá, hvort
samstaða er orðin um. Nefna má
það atriði, sem ekki varðar litlu,
hver lánsfjárkjör skuli ríkja í
landinu.
Þá sagði Matthías Á.
Mathiesen að hlutfall erlendra
lána í heildarlántökum hækkaði
verulega, skv. lánsfjáráætlun,
úr tæpum 50% í 56%. Gert væri
ráð fyrir 28 milljarða króna
erlendum lánum 1979 af 51. m.
kr.
Viðskiptajöfnuður þjóðar-
búsins út á við, sem á árum fyrri
vinstri stjórnar, 1971—1974 var
neikvæður um 11 til 12% i
árslok 1974, varð hagstæður um
l'/z% 1978. Nú er sýnt að enn
stefnir til hins verra og ekki
bætir verðþróun á olíu úr þeirri
mynd, sem við blasir. Erlendar
lántökur til fjárfestingasjóða
hækka á einu ári, skv. áætlun-
inni, úr 1700 m. kr. tæpum í 5430
m. kr. í frv. sem fylgir lánsfjár-
áætlun sé hins vegar gert ráð
fyrir að skerða nokkra tekju-
stofna sjóða atvinnuveganna til
góða fyrir ríkissjóð.
samþykktir í gærkveldi með 192
atkvaeðum gegn 122. 11 seðlar voru
auðir og ógildir.
Samkvæmt upplýsingum sem
Morgunblaðið aflaði sér í gær, eru
og ýmis nýmæli í samningunum.
Þau helztu að starf húsmóður, sem
hefur störf í stöðu, sem Sókn er
umbjóðandi fyrir, fær húsmóður-
starfið viðurkennt sem fjögurra ára
starfsaldur, en áður var slíkt starf
metið til eins árs starfsaldurs og
fékkst sú viðurkenning á árinu 1976.
Slíkar konur fara nú strax í næst-
hæsta taxta félagsins.
Annað nýmæli er að 5 ára starfs-
reynsla við heimilishjúkrun, barna-
gæzlu, hjúkrun aldraðra og hjúkrun
geðsjúkra og vangefinna er nú metið
til jafns við kjaranámskeið, þ.e.a.s.
að starfsreynsla er nú metin til
náms og fæst við það 7% aukaálag á
laun. Þá er í þriðja lagi, að vinnu-
veitandi greiðir nú að fullu 3ja
mánaða fæðingarorlof eftir 3 ár, var
áður eftir 4 ár. Að öðru leyti greiðist
fæðingarorlof úr Atvinnuleysis-
tryggingasjóði eins og verið hefur.
Launatafla Sóknar er nú þannig
— innan sviga eru þær tölur sem
gilt hafa undanfarið:
Fyrsta ár 164.331 (153.580)
Eftir eitt ár 169.446 (158.361)
Eftir 3 ár 179.031 (163.141)
Eftir 5 ár 181.543
Eins og áður sagði bætast 7% við
laun eftir 5 ár í ákveðnum starfs-
greinum.
o
INNLENT