Morgunblaðið - 01.03.1979, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979
5
Jónas Egils-
son kjörinn
formaður
Loka F.U.S.
Aðalfundur Loka, félags
ungra sjálfstæðismanna í Lang-
holti var haldinn hinn 11. desem-
ber síðastliðinn.
Jónas Egilsson var kjörinn
varaformaður, en aðrir í stjórn
eru: Magnús Guðlaugsson, vara-
formaður, Sigrún Waage ritari,
Ásgerður Sverrisdóttir, gjald-
keri, og meðstjórnendur Halldór
Leví, Herjólfur Jóhannesson og
Þorhallur Steingrímsson.
í tilkynningu frá stjórn félags-
ins segir, að stjórnarfundir séu
haldnir á fimmtudögum klukkan
18.30 í félagsheimilinu, og eru
fundirnir opnir félögum.
Aðalræðismað-
ur Islands í
V-Berlín látinn
Aðalræðismaður íslands í Vest-
ur-Berlín, Walter W. Cobler, lést
hinn 23. febrúar síðastliðinn.
Cobler gegndi stöðu ræðismanns
og síðar aðalræðismanns íslands í
Vestur-Berlín undanfarin 16 ár.
AliOI.VslNOASÍMINN EK:
22480
JHorpimblebiti
Gefa Siglufjarðar-
bæ hundrað verk
þekktra listamanna
HJÓNIN Arngrímur Ingimundarson, kaupmaður, og
Bergþóra Jóelsdóttir kona hans hafa tilkynpt bæjar-
stjóranum á Siglufirði þá ákvörðun sína að gefa
Siglufjarðarbæ úrval listaverka, sem þau hafa safnað
á síðustu þremur áratugum.
Þarna er um að ræða 100 myndir, flestar þeirra
olíumálverk og vatnslitamyndir, en auk þess klippi-
myndir og grafíkmyndir eftir kunna innlenda og
erlenda listamenn.
Gefendurnir, sem eru til
heimilis að Grettisgötu 2 a í
Reykjavík segjast vænta þess,
að listaverkasafnið geti orðið
menningarlífi bæjarins lyfti-
stöng og jafnframt verði með
gjöfinni lagður grundvöllur að
Listasafni Siglufjarðar.
Arngrímur ólst upp á Siglu-
firði og segir hann, að þá hafi
átt þátt í ákvörðun þeirra
hjóna, að Siglfirðingar studdu
mjög og aðstoðuðu móður
hans er hún fluttist úr Fljót-
um til Siglufjarðar með
barnahóp eftir að faðir Arn-
gríms hafði misst heilsuna.
Arngrímur segir móður sína
aldrei hafa getað launað Sigl-
firðingum hlýhug þeirra og
hjálpsemi, en það vilji hann og
kona hans nú gera um leið og
þau minnist foreldra sinna
með þessari gjöf.
Samtals eru í listaverka-
safni þeirra hjóna myndir
eftir um 60 listamenn, lang-
flesta innlenda frá ýmsum
skeiðum islenskrar myndlist-
ar. Elstu myndirnar eru eftir
Jóhannes S. Kjarval en þær
yngstu eftir myndlistarmenn,
sem nýlega hafa komið fram á
sjónarsviðið.
Hér mun vera um að ræða
eitt sérstæðasta og fjölbreytt-
asta listaverkasafn í einkaeign
hér á landi og telja kunnugir
gildi þess ekki síst i því fólgið,
hve mikið er í safninu af
verkum ungra myndlistar-
manna.
Fyrirhugað er að listaverkin
verði afhent Siglfirðingum á
næsta ári, en bæjarráð Siglu-
fjarðar samþykkti í byrjun
vikunnar að þiggja með þökk-
um þessa höfðinglegu gjöf. Er
nú í athugun, hvar heppilegast
muni að koma listasafninu
fyrir á Siglufirði, þannig að
það geti orðið aðgengilegt
fyrir alla, sem áhuga hafa á að
skoða það.
(Frétt frá bæjarstjóra Siglu-
fjarðar).
Alþjóðaár barnsins
1979
Æskulýðsstarf Þjóðkirk junnar
Æskulýðsdagur kirkj-
unnar á sunnudaginn
Árlegur æskulýðsdagur þjóð-
kirkjunnar verður n.k. sunnudag
4. marz og ber hann að þessu
sinni yfirskriftina Jesús og barn-
ið. Hefur alþjóðaár barnsins haft
sfn áhrif á undirbúning og skipu-
lag dagsins segir í frétt frá
Æskulýðsstarfi þjóðkirkjunnar
er undirbýr daginn.
I tilefni dagsins hefur Æsku-
lýðsstarf Þjóðkirkjunnar gefið út
bækling, sem notaður verður við
æskulýðsmessur og samverur á
æskulýðsdeginum og síðar. Auk
messuforms og sálma er þar að
finna ávarp frá biskupi og hug-
leiðingu ætlaða foreldrum og upp-
alendum, og fjallar hún um trúar-
legt uppeldi undir yfirskriftinni
Jesús og barnið.
Þeir sem fá þennan bækling í
hendur við messu eða æskulýðs-
samveru fá hann til eignar.
Æskulýðsdagurinn mun verða
haldinn hátíðlegur í hinum ýmsu
söfnuðum landsins með sérstökum
guðsþjónustum, fundum og sam-
komum, og þar sem því verður
ekki við komið 4. mars, verða
samverur 1—2 vikum síðar.
EF ÞAÐ ER FRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐENU
Hljómburðurinn
einmitt
eins og þú
óskar þ
hann...
^KD55
f mótsetningu viðöll önnurstereo-heyrnar-
tæki getur þú á KOSS Technican/VFR stjórnað
hljómburðinum alveg eftir þínu höfði. ístaðinn
fyriraðþúhlustiráuppáhalds tónverkin eins og aðrir heyra þau, nýtur þú þess að geta
framkallað þann hljómburð sem er þér að skapi- aðeins með því að færa til VFR-stillinn.
Tæknilegar upplýsingar: 50 mm aflhátalarar • Mótstaða : 230 ohm/1 kHz
• Tíðnisvið: 10-22000 Hz • Næmleiki: 95 V-rms/1 kHz • Bjögun: Minni en 0,4%/1 kHz/100
dB SPL • Hljóðstyrkur við 1% bjögun: 108 dB/1 kHz • 3 metra gormlaga aðtaug
• „Pneumalite" eyrnapúðar. • Tenging fyrir gálgahljóðnema • Þyngd: 483 g (u/aðtaug)
Verö kr. 29.255.-
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
Pekking
feynsla
tyónust