Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 01.03.1979, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 1. MARZ 1979 Rabbað við Karl Friðrik Kristjánsson geitabónda Þeir geta orðið myndarlegir hafrarnir, en Það er liðlega metri milli hornendanna á Þessum sem Karl Friðrik átti. Jón i Viðínesí og Karl „Þegar bændur köll- uóUp fóru punktarn- ir aó renna af stað“ Kristján Friðrik 8 ára gefur vininum brauðbita. Af tæplega 200 geitum á öllu landinu er einn stærsti geitabónd- inn í Kópavogi, Karl Friðrik Kristjánsson. Hann á 12 geitur og hefur hann lagt áherzlu á að viðhalda stofni kollóttra geita, en svo mun komið að einu kollóttu geiturnar á landinu eru f eigu hans. Undanfarin ár hefur Rann- sóknastofnun landbúnaðarins gert erfðafræðirannsóknir á þess- um kollóttu geitum og hefur Karl Friðrik leigt Rannsóknastofnun- inni geiturnar. Við röbbuðum við geitabóndann um búskap hans. „Eg byrjaði á þessu árið 1966, var á sínum tíma geitasmali í Hafra- fellstungu í Öxarfirði, en þar er fært frá þar til í kringum 1950. Ég hef líklega verið einn af síðustu geitasmölunum á landinu og oft hafði maður þetta í kring um 20 geitur í kvíum. Um 10 árum síðar, eða í kring um 1960, fór ég að veita því athygli að ég sá hvergi kollóttar geitur. Upp úr því fór ég virkilega að leita eftir kollóttum geitum og spyrjast fyrir um þær og um tíma hélt ég að þær væru útdauðar. Fyrstu geiturnar fékk ég síðan sjálfur 1966, hyndar, og voru hauðnurnar úr Öxarfirði og hafurinn úr Biskupstungum frá Kjaranstöðum. Nokkrum árum síð- ar gróf ég upp að austur í Vopna- firði væru til tvær kollóttar geitur og fékk ég aðra. Áður hafði ég þó fengið tvær kollóttar geitur og sett þær í sóttkví út í Lundey á Sundun- um, en þær hurfu þaðan og hafa ekki sézt síðan. Frá þessari einu kollóttu úr Vopnafirði hef ég síðan náð kollótt- um stofni og nú er unnið að því að gera hann arfhreinan. Vísindamenn erlendis telja að það hafi orðið litningabreyting í geitum fyrir um það bil 800 árum og það hefur valdið því að sögn vísindamanna að arfhreinar koll- óttar geitur vilja verða vanskapað- ar á kynfærum, ófrjóar eða kyn- lausar. Að beiðni franskra vísinda- manna hóf Rannsóknastofnun landbúnaðarins rannsóknir á þessu hér og því leigði stofnunin mínar geitur í 4 ár, eða síðan haustið 1975. Þykir forvitnilegt að gera þessar rannsóknir hér þar sem talið er að ekki hafi bætzt við geitastofninn hérlendis í 1100 ár. Dr. Stefán Aðalsteinsson stjórnar þessum rannsóknum. Árið 1977 fæddist einn hafur vanskapaður, en honum var lógað af slysni. Annar sem fæddist 1977 virðist ófrjór,en enginn vanskapn- aður kemur fram hjá honum. N.k. vor verður gerð litningarannsókn á honum af kanadískum kvenerfða- fræðingi. Þessari fjögurra ára rannsókn lýkur í vor, en ekki veit ég um framhaldið á málinu. í mínum geitahópi eru bæði kollóttar og hyrndar geitur, en ég hef reynt að halda við litunum í stofninum, gráhöttóttu, svarthöttóttu, goltóttu og hvítu. Á sumrin hafa geiturnar verið í Þerney undir vernd Jóns í Víðinesi. Undanfarna vetur hafa þær verið í Þormóðsdal í Mosfellssveit en áður hafði ég hins vegar haft þær í hesthúsinu hjá mér uppi í Víðidal á vetrum. Af 12 geitum eru þrír hafrar, en þess má geta að kvendýrið af kiðlingum er kallað hauðna til eins árs aldurs, eða þar"til hún á kiðling. Karldýrið er hins vegar strax kallað hafur, en einnig er tíl gamalt fornt nafn á karldýrinu og er það kjappi. Sérstakt við geitur? Þær verða ógnarlega spakar í umgengni og ég get kallað á þær þegar ég hugsa um þær sjálfur. Þá gildir að kalla kiða kið og hópurinn kemur á fullri ferð að sníkja brauð. Ég man líka eftir því í minni bernsku að bændurnir kölluðu á geitfé sitt hátt upp í hlíðar. Maður sá geiturnar í fjarska eins og punkta í fjallinu, en þegar bændur kölluðu fóru þessir punktar að renna af stað og að síðustu voru þeir komnir í einn hnapp og hópur- inn flykktist í kvíarnar."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.