Morgunblaðið - 09.03.1979, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979
23
Höfða mál vegna
meints launamunar
karla og kvenna
JAFNRÉTTISRÁÐ hefur höfðað
mál gegn ríkinu vegna meintrar
mismununar kynja í launagreiðsl-
um fyrir störf á Kleppsspítala og
Kópavogshælinu. Er með málshöfð-
uninni byggt á lagaákvæðum frá
1976 er kveða svo á um, að greiða
skuli körlum og konum sömu laun
fyrir sams konar og jafn verðmæta
vinnu.
Jón Steinar Gunnlaugsson lög-
maður flytur málið fyrir hönd Jafn-
réttisráðs og jafnframt hefur ein
starfsstúlka sjálf höfðað mál á
hendur ríkissjóði og gert kröfur um
greiðslu launamismunar. Jón Stein-
ar sagði í samtali við Mbl., að mál
þetta væri þannig vaxið, að karlar er
gegndu störfum gæzlumanna og
aðstoðarmanna við hjúkrun væru
félagar í BSRB og tækju laun eftir
kjarasamningi þess, en konur er
gegndu sömu störfum með starfs-
heitinu starfsstúlkur tækju laun
eftir kjarasamningum starfsstúlkna-
félagsins Sóknar og væru félagar
þess. Kvað Jón mismun launa á
tímabilinu 1. júní 1976 til ársloka
1977 vera um hálfa milljón króna
Sóknarkonum í óhag og gerði fyrr-
greind starfsstúlka kröfur um
greiðslu þeirrar upphæðar. Jón sagði
áð Jafnréttisráð hefði ritað stjórnum
stofnananna bréf svo og ráðuneyti og
farið fram á leiðréttingu og niður-
staða þeirra athugana hefði verið að
stjórnirnar viðurkenndu að um mis-
mun væri að ræða í greiðslum launa
karla og kvenna, en fjármálaráðu-
neytið hefði neitað að leiðrétta þann
mun þar sem greitt væri eftir samn-
ingum tveggja stéttarfélag og starfs-
fólkið væri félagar í tveimur félög-
um. Því kvað Jón Steinar mál þetta
höfðað og væri litið á það sem
prófmál í þessu atriði og taldi hann
að hér væri um að ræða um 150
starfsstúlkur og milli 30—40 karl-
menn.
Búið er að flytja málið í undirrétti
og er dóms að vænta innan nokkurra
vikna.
Magnús Jóhannsson við verk sín á sýningunni á Hótel Borg.
Magnús Jóhannesson
sýnir á Hótel Borg
MAGNÚS Jóhannesson opnar
málverkasýningu á Hótel Borg
(Gyllta salnum) laugardaginn
10. marz kl. 15.00. Þetta er
fjórða sýning Magnúsar og eru á
henni 43 myndir unnar með
vatnslitum, akrýl og olíupastel.
Sýningin á Hótel Borg verður
opin daglega frá kl. 15.00 og
meðan veitingasalir eru opnir,
en henni lýkur 18. marz.
arast 1-2 milljarðar á ári við
fella niður opinber gjöld af
vinnuvélum og varahlutum þeirra?
S
a
BÚNAÐARÞING samþykkti m.a.
ályktun þar sem skorað er á
Alþingi og ríkisstjórn að fella
niður öil opinber gjöld, þ.e. toll,
vörugjald og söluskatt, af vinnu-
vélum og varahlutum til þeirra
þar eð slík ráðstöfun hefði í för
með sér beinan sparnað í ríkis-
rekstrinum og lækkaði fram-
kvæmdakostnað hjá bændum. Þá
er því beint til landbúnaðarráð-
herra, að hann hlutist til um, að
endurgreiddur verði tollur, vöru-
gjald og söluskattur af efni til
þeirra rekstrarbygginga í land-
búnaði, sem nauðsynlegt er að
reisa til þess að auka f jöibreytni í
landbúnaðarframleiðslunni,
skapa ný atvinnutækifæri og
styrkja afkomu þeirra búgreina,
sem þegar eru til staðar.
í greinargerð, sem allsherjar-
nefnd lætur fylgja ályktuninni,
segir m.a.:
„I þeim umræðum er sjaldan
minnzt á, hver áhrif skattheimta
hins opinbera getur haft á verðlag
og kostnað við margs konar fram-
kvæmdir. Með niðurfellingu þeirra
gjalda af vinnuvélum, sem kveðið
er á um í 1. lið ályktunar þeirrar,
er hér um ræðir, yrði beinn
sparnaður ríkissjóðs a.m.k. 1—2
milljarðar á ári fyrir utan þær
upphæðir, sem mundu sparast
hinum almenna borgara og fyrir-
tækjum, sem standa í mannvirkja-
gerð.
Af söluverði hverrar innfluttrar
vinnuvélar renna rúmlega 40% til
ríkissjóðs. Af vél, sem kostar kr.
50 millj., fær ríkissjóður rúmlega
kr. 20 millj.
Með lækkun kaupverðs vinnu-
vélar um 40% lækkar leigugjaldið
án manns um ca 'A (33%).
Á síðasta ári greiddi t.d. Vega-
gerð ríkisins um kr. 3.167 millj. í
leigu fyrir vinnuvélar, þar af leigu
fyrir eigin vélar kr. 1.347 millj.
Með lækkun leigugjalda um 'h
hefði Vegagerð ríkisins sparað
1.056 millj. kr. á árinu 1978. Á
móti þessu hefði ríkissjóður tapað
520 millj., sem voru tollur, vöru-
gjald og söluskattur af kr. 1.300
millj., en það mun hafa verið
söluverð innfluttra vinnuvéla 1978.
Vegna Vegagerðarinnar einnar
hefði ríkissjóður þannig getað
sparað 780 millj. á þessum eina lið
á árinu.
Til viðbótar þessu má benda á,
að um 34% af söluverði innfluttra
vörubíla renna til ríkissjóðs.
Með lækkun leigugjalda fyrir
vörubíla um 25% hefði ríkissjóður
getað sparað kr. 4—500 millj.
vegna Vegagerðar 1978.
Breytingu þá, sem hér um ræðir,
þarf að gera í áföngum vegna
þeirra véla, sem þegar er búið að
kaupa, eða endurgreiða að hluta
þau gjöld, sem um er rætt, til
hlutaðeigandi. Tollur af varahlut-
um í vinnuvélar er 0—35%, vöru-
gjald 18% og söluskattur 20%. Af
blandaðri varahlutasendingu
nema þessi gjöld um 27% að
meðaltali.
Gjöld til ríkisins, tollar, vöru-
gjald og söluskattur, hafa vegið
allmikið í efniskostnaði v/rekstr-
arbygginga landbúnaðarins að
undanförnu eða um 30—35% af
söluverði timburs, steypustáls,
þakjárns, þakáls og glerullar.
Við tollabreytingar, sem gerðar
voru um síðustu áramót, lækkar
þessi kostnaður niður í 30% að
meðaltali.
Endurgreiðsla á þessum skött-
um myndi geta lækkað byggingar-
kostnað nokkuð, en það hlýtur að
verða einn liður í lausn þess
vanda, sem nú er við að fást á sviði
landbúnaðarins.“
Útideild-
in hjálp-
aði okkur
Blaðinu heíur borizt eftirfar-
andi frá samtökum unglinga. sem
kallast „Pýpos“, og starfað hafa
með Æskulýðsráði Reykjavíkur:
„Við erun hér 14 unglingar, sem
störfum við Starfsemi unglinga að
Hagamel 19, og viljum koma
skoðunum okkar á framfæri um
niðurleggingu hennar (Útideildar-
innar).
í febrúarmánuði árið 1978 hóf-
um við starfsemi okkar með tveim
meðlimum Útideildar.
Síðan um sumarið fluttum við
starfsemi okkar að Hagamel 19.
Hófum við þá starfsemi okkar af
meiri áhuga.
Á rúmlega einu ári höfum við
farið í þrjú ferðalög, haldið eitt
ball í Tónabæ og eina árshátíð í
þágu Æskulýðsráðs, Fríkirkjuvegi
11. Einnig höfum við tekið félags-
málanámskeið nr. 1 og stefnum að
því að taka félagsmálanámskeið
nr. 2.
Við urðum fyrir miklum von-
brigðum, er við komumst að því, að
Útideildin yrði lögð niður. Fórum
við því niður í Skúlatún 2, þar sem
varnarþing borgaráðs hefur aðset-
ur, og hlustuðum á nokkra starfs-
menn borgarráðs ræða um Úti-
deildarmálið. Þar voru einnig
mættir fyrrverandi samstarfs-
menn okkar ásamt unglingum,
sem nú starfa með þeim í Félags-
málamiðstöðinni í Bústöðum.
Við ljúkum hér með máli okkar
með því að hvetja unglinga til að
koma á fót samskonar félagi og
okkar, og annarra, sem nú starfa
með Æskulýðsráði og Reykja-
víkurborg og nágrenni.
Með fyrirfram þökk.
Pýpos.
Algjör nýjung í
gólfteppaframleiðslu.
Einstaklega
mjúk og falleg.
\Teppi sem hæfa vel
\ á stofur og hol. /
3. Fulla atvinnu — gegn fjölda-
uppsögnum!
4. Jöfn laun fyrir sambærilega
vinnu!
5. Góðar dagvistarstofnanir fyrir
öll börn!
6. Sex mánaða fæðingarorlof fyr-
ir alla!
7. Jafnrétti til náms!
8. Samfelldan vinnudag og mötu-
neyti í skólum!
9. Kynfræðslu í skólum.
10. Ókeypis getnaðarvarnir!
11. Sjálfsákvörðunarrétt kvenna
til fóstureyðinga!
12. Styðjum þjóðfrelsisbaráttuna í
3ja heiminum!
Á fundinum verður einkum lögð
áhersla á sex fyrstu kjörorðin.
Þá er fyrirhugað að flutt verði
stutt ávörp af fulltrúum hvorrar
hreyfingar fyrir sig. Þá munu
leikarar sjá um samfellda dagskrá,
leikna, lesna og sungna um „stöðu
alþýðukvenna og barna í íslensku
auðvaldsþjóðfélagi", verkakona
frá Akranesi, Sigrún Clausen,
ræðir um „refsibónuskerfið" og
fleira verður á dagskrá. Engar-
vínveitingar verða á fundinum að
sögn aðstandenda hans.
Á blaðamannafundinum kom
fram, að ekki er ályktað um
„heimsvaldastefnu", þar sem ekki
er samstaða um það mál með
hreyfingunum tveimur; 8.
mars-hreyfingin er því fylgjandi
að fordæma „heimsvaldastefnu",
en Rauðsokkar eru því andvígir,
enda sé erfitt að skilgreina hvað sé
„heimsvaldastefna" og hvað ekki.
Angelina
Er n tjkorn iyt j'rú Ku/ruyda,
■ ,mW’rT.
írensésvegi 13, símar 83577-83430.