Morgunblaðið - 09.03.1979, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 09.03.1979, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979 33 + Glæpamaðurinn „Sonur Sáms“, margfaldur morðingi í New York, afplánar þar í einu fangelsanna 315 ára fangelsis- dóm. Hann er nú 25 ára gamall. Hugsanlegt er að hann hafi möguleika á náðun er hann hefur náð 54 ára aldri. Hann myrti sex manns og særði sjö manneskjur. Honum var fyrir nokkru leyft að ræða við nokkra blaðamenn. Hann sagði m.a. í þessu samtali að einhver óskiljanleg þörf á að drepa hefði rekið sig til að fremja morðin. Skýringum á hátterni hans, sem eftir honum hafa verið hafðar, neitaði hann í samtalinu, t.d. því, að talandi hundur hefði sagt sér að fremja morðin! Hann sagðist hafa hug á því að útvega efni í bók sem + Hvorugkyns — ? — Kona þessi, sem er 38 ára gömul hefur farið í skaðabótamál í San Francisco vegna kynskipt- ingaraðgerðar, sem læknir þar framkvæmdi á konunni. — Aðgerðin misheppnaðist gjör- samlega að sögn konunnar, sem heldur því jafnframt fram að hún sé eftir aðgerðina hvorki karl né kona. — Ég veit ekki hvar ég á eiginlega heima, sagði hún er hún ræddi við blaðamenn er málið var tekið fyrir dóm í borginni. — Skaða- bótakrafan nemur 7 milljónum dollara, eða rúmlega 2.2 millj- örðum króna. + Japanski fjallgöngugarpur- inn og ævintýramaðurinn Naomi Uemura, sem fyrstur manna fór einn síns liðs yfir Norðurpólinn á síðasta ári, hefur nýlega verið heiðraður fyrir það afrek við athöfn í London. — Var hann sæmdur gull-lárviðarsveig. Ilann ávarp- aði nærstadda og hóf mál sitt á þessa leið: Þegar ég írétti að ég hefði verið heiðraður, sagði ég forráðamönnum þessarar verð- launaveitingar að heldur vildi ég berjast við ísbjörn í dýra- garðinum hér í London en eiga að flytja ræðu... Naomi sýndi fádæma hreysti í þessari Norðurpólsför, sem stóð í 57 daga. Hvorki lét hann tæplega 60 stiga gadd, bardaga upp á líf og dauða við bjarndýr buga sig, né heldur brast kjarkur hans er hann dag einn týndi sleðahundunum og missti sleð- ann sinn niður um ís. + Nýr forstöðumaður hefur verið ráðinn að dýragarðinum í Kaupmannahöfn. Stjórnar- fundur samþykkti einróma að ráða dýrafræðinginn Bent Jörgensen. — Hann setti fram það skilyrði við stjórnina að hann myndi vilja fá 8 ára aðlögunartíma í starfi sínu. Rúmlega 40 umsóknir bárust um starfið. Jörgensen er kunn- ur maður í Danmörku, einkum fyrir þætti sína í danska út- varpinu um náttúrufræðileg efni. Hann er 45 ára gamail. — Og stjórnin lét þau orð falla, að honum væri vel treystandi til að fjalla um fjárhagshliðina á rekstri dýragarðsins ekki síður en hinni hliðinni. Hann heldur á kettinum sínum, Iben. + Þetta er ítalski stjórnmála- maðurinn og foringi Lýðveldis- flokksins Ugo La Malfa, sem nú vinnur að því að leysa stjórnarkreppuna suður á ítal- íu. Malfa er þrautreyndur í ítalskri pólitík. Hann er nú 75 ára að aldri. Ekki mun ríkja almenn bjartsýni um að honum muni takast að leysa hnútinn. t.d. bæri heitið Mál Sonar Sáms. Nú hefði hann aðeins áhuga á að stunda yoga og stjörnufræði unz engill dauð- ans kæmi til sín. + Á fundi Norðurlandaráðs á dögunum, hélt Paul Ellefsen landsþingsmaður og formaður Sambandsflokksins ræðu. í henni vék hann að samstarfinu milli Norðurlandanna, — gat samstarfs íslendinga og Færey- inga, og minnti á að nú þriðja árið í röð hefðu þjóðirnar gert með sér fiskveiðisamning. Kvaðst hann vilja nota tæki- færið til að færa íslendingum þakkir Færeyinga fyrir þann skilning sem þeir hefðu sýnt þeim í orði og verki. Ellefsen er einn af fulltrúum Færeyinga sem jafnframt sitja á danska þjóðþinginu. fclk í fréttum fn Innflytjendur— Danmörk Viljum benda innflytjendum frá Danmörku á að tilkynnt hefur verið verkfall hafnarverkamanna í Kaupmannahöfn frá 24 marz, um óákveðin tíma. Síðasta skip frá okkur fyrir verkfall er m/s Laxá sem lestar 20 marz. Umboðsaðili okkar í Kaupmannahöfn er: E A BENDIX & CO A/S 17 Adelgade DK-1304 Copenhagen K SÍmi 113343 telex 15643 HAFSKIP H.F. Áhuga á flugvirkjun# flugi?? í Spartan getið þér lært: Atvinnuflugmaður Flugvirkjun Með þjálfun og kennslu í hinum fræga skóla. James Haroldson, Spartan School of Aeronautics, 8820 East Pine St P.O. Box 51133 Tulsa Oklahoma 741 51 U S A Skrifið strax i dag eftir nánari upplýsingum upplýsingabæklingur, mun verða sendur til yðar, nýir nemendur teknir inn mánaðarlega Yfir 30 íslendingar stunda nú nám í Spartan. Stærö 200x80 cm Þyngd 45 kg burðargeta 500 kg Stærð 120x57 cm Þyngd 25 kg burðargeta 150 kg GISLIJónsson & Co. H.F. Sundaborg 41. Sími 86644. KOSTAKJOR '/2 ut — V2 lanaö bigum ð lager, til afgreiðslu strax, 3 geröir af vélsleðum, Skidoo, Everest, Panther og Pantera Höfum hafið innflutning a nyjum tegundum af tengisleðum, sem eru framleiddir til vöru-, fólks- og sjúkraflutninga. Henta jafnt fyrir bændur, hjálparsveitir og ferðalanga. Vinsamlega leitiö nánari upplýsinga í síma 86644. Stærð 185x67 Þyngd 32 kg burðargeta 250 kg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.