Morgunblaðið - 09.03.1979, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 09.03.1979, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. MARZ 1979 39 > Hugi með Islandsmet • Selfyssingurinn Hugi Harðar- son setti eina fslandsmetið í karlaflokki sem sett var á Ægis- mótinu. ALLÞOKKALEGUR árangur náðist á Ægisinótinu í sundi em íram íór í Sundhöll Reykjavíkur dagana 5. og 7. mars. Eitt ís- iandsmet leit dagsins ljós, þar bætti Hugi Harðarson met sitt í 200 metra baksundi. Synti Hugi á 2:18,4 mínútum. Var met Huga jafnframt piltamet. Þá voru sett nokkur unglingamet, Þóranna Héðinsdóttir setti telpnamet í 400 metra fjórsundi kvenna á 5:38,4 mínútum. Eðvald Eðvaldsson, ÍBK, var iðinn við kolann og setti tvö sveinamet, fyrst í 400 metra skriðsundi karla, 5:10,0, og sfðan í 1500 metra skriðsundi, synti þá á 20:41,2 mínútum. Katrin L. Sveinsdóttir setti telpnamet í 1500 metra skriðsundi kvenna, synti á 19:37,4 mínútum, og loks setti Sonja Hreiðarsdóttir nýtt stúlknamet í 1500 metra skrið- sundinu, en Sonja synti á 19:17,05 mínútum. Fyrstu tveir keppend- urnir í hverri grein voru eftirfar- andi. 400 m fjórsund kvenna mín. Sonja Hreiðarsdóttir Æ 5:32,1 Ólöf Sigurðardóttir Sel. 5:36,0 400 m skriðsund karla mín Bjarni Björnsson Æ 4:16,5 Brynjólfur Björnsson Á 4:22,5 200 m bringusund kvenna mín Sonja Hreiðarsdóttir Æ 2:50,0 Margrét Sigurðard. UBK 2:59,2 200 m bringusund karla mín Ingólfur Gissurarspn ÍA 2:38,4 Sigmar Björnsson ÍBK 2:41,0 100 m skriðsund kvenna mín Margrét Sigurðard. UBK 1:05,2 Inga ísleifsdóttir Æ 1:06,7 100 m flugsund karla mín. Ingi Þór Jónsson í A 1:03,9 Bjarni Björnsson Æ 1:04,3 50 m bringusund meyja sek. Guðrún F. Ágústsdóttir Æ 41,4 Jóna B. Jónsdóttir Æ 45,6 50 m flugsund sveina sek. Ólafur Einarsson Æ 36,3 Guðmundur Gunnarsson Æ 39,5 200 m baksund kvenna mín Þóranna Héðinsdóttir Æ 2:41,7 Anna Jónsdóttir Æ 2:48,6 200 m baksund karla mín Hugi Harðarson Self. 2:18,4 Bjarni Björnsson Æ 2:24,4 4x100 m skriðsund karla mín A-sveit Ægis 5:11,5 4x100 m skriðsund karla mín A-sveit Ægis 3:58,4 1600 m skriðsund kvenna mín Ólöf Sigurðard. Self. 18:52,2 Sonja Hreiðarsdóttir Æ 19:17,0 1500 m skriðsund karla mín Bjarni Björnsson Æ 17:14,5 Hugi Harðarson Self. 17:30,2 Sundsamband íslands gaf síðan sérstakan bikar fyrir ar úr Ægi. Fékk hann 904 stig fyrir 400 metra skriðsundið, en það synti hann á 4:16,5 mínútum. Knattspyrnumenn á Spáni í verkfalli Sá fáheyrði atburður hefur nú gerst á Spáni, að leikmenn 1 og 2. deildarliðanna á Spáni, hafa farið í verkfall, þannig var ekkert leikið í deildum þessum um helgina. Skýringin á þessu er, að leikmennirnir eru þreyttir á því að ganga kaupum og sölum án þess að mark sé tekið á vilja þeirra sjálfra. Þegar samtök knattspyrnumanna á Spáni hótuðu verkfallinu, var þeim hótað á móti ýmsum refsiaðgerðum á móti, en knattspyrnumennirnir höfðu allt slíkt að engu og stóðu við hótanir sínar. Það varð til þess að tilkynnt var í aðalstöðvum spænsku knattspyrnu- félaganna að þeir verði sviptir 10% af fastakaupi sínu. Verkfall knattspyrnumannanna hafði það í för með sér að alls var 39 leikjum í 1. og 2. deildinni spönsku frestað. Ekki er talið víst að félögin láti verða úr hótunum sínum um að svipta leikmennina hluta af launum sínum. Ýmsar stórstjörnur eins og Kempes, Krankl, Bonhof, Nesskens ofl. eru með mikil fríðindi og ýmis forréttindi og víst er að félögin hreyfa ekki við þeim á neinn hátt. • Sverrir Herbertsson tekur við bikar sem veittur var markakóngi fslandsmótsins í knattspyrnu innanhúss fyrir skömmu. Sverrir var markakóngur í 2. deild íslandsmótsins utanhúss í fyrra og gaman verður að fyigjast með hvort þessi KR-ingur gerir stóra hluti í hinni erfiðu 1. deildarkeppni ísumar. Það er formaður KSÍ. sem afhendir Sverri hikarinn. og var það gert um leið og íslandsmeisturunum í innanbússknattspyrnu voru aíhent verðlaunin síðastliðinn sunnudag. íslensku unglingarnir stóðu sig vel á NM í badminton NORÐURLANDAMÓT unglinga í badminton var haldið í Málmey í Svíþjóð 3. og 4. mars. Fimm íslendingar voru meðal keppenda og stóðu þeir sig með miklum ágætum þó ekki ættu þeir sigur- möguleika. Broddi Kristjánsson vann Jön- son frá Svíþjóð með 18—14 og 15—9 en átti ekki möguleika á motí Nierhoff frá Danmörku sem vann einliðaleik pilta. Guðmund- ur Adolfsson tapaði fyrir Levin frá Danmörku og Helgi Magnús- son fékk fyrst gefinn leik en tapaði svo fyrir Norberg frá Svíþjóð. Einliðaleik pilta vann eins og áður er sagt Nerhoff frá Dan- mörku og vann hann nokkuð ör- ugglega landsmann sinn Kjeldsen sem er aðeins 16 ára og á því- möguleika áað keppa á tveimur NM í viðbót. Kristín Magnúsdóttir tapaði naumlega fyrir Tainio frá Finnlandi í þremur jöfnum lotum og Sif Friðleifsdóttir tápaði fyrir Maier frá Danmörku. Sigurvegari í einliðaleik stúlkna varð Else Thoresen en hún var einnig - Norðurlandameistari 1977 en var veik á síðasta nm. Hún vann í úrslitum Sörensn frá Danmörku í þremur lotum. LenAkselson frá Svíþjóð vann síðasta NMvar slegin út í fyrsta leik af kornungri danskri stúlku, Bernth að nafni. I tvíliðaleik pilta unnu Broddi og Guðmundur Fritz og Wihlborg frá Svíþjóð með 15—11, 10—15 og 18—16 en töpuðu fyrir Christensen og Kjeldsen sem léku til úrslita á móti Antonson og Isakson frá Svíþjóð. Svíarnir unnu í tveim lotum eftir mikinn hörkuleik með 15-12 og 17-14. í tvíliðaleik stúlkna unnu Sif og Kristín þær Almqvist og Hansen fá Svíþjóð með 15—12 og 15—5, en töpuðu svo fyrir Kristiansen og Pilgárd frá DM sem unnu í al- dönskum úrslitaleik Larsen og Maier. I tvenndarleik unnu Guðmundur og Sif Akerlund og Johanson frá Svíþjóð með 8—15,15—13 og 15—7 en töpuðu svo fyrir Hansen og Thomsen DM. Broddi og Kristín unnu Weserholm og Partio frá Finnlandi með 15—6, 6—15 og 15—11. Úrslitaleikurinn í tvennd- arleik var alsænskur. Það voru þau Jan Erik Antonson og Ann Soffie Bergmann sem unnu sigur á lands- mönnum sínum, þeim Peter Isak- son og Lene Akselson, með 18—15 og 18-13. ísiendingar geta verið nokkuð ánægðir með útkomuna í þessu móti. Að vísu eru þeir bestu frá Danmörku og Svíþjóð töluvert betri en Islendingarnir en bæði Danir og Svíar voru með keppend- ur þarna sem ekki eru sterkari en íslenskir jafnaldrar þeirra. Og Norðmenn eiga bara Else Thore- sen sem er jafnsterk og bestu Svíarnir og Danirnir. Og við verð- um að taka tillit til þess að hvergi í heiminum er meira gert fyrir unglingana en einmitt í Danmörku og Svíþjóð. I tengslum við Norðurlandamót- ið fór fram landskeppni og kepptu Islendingar við B-lið Svía og töp- uðu naumlega 3—2. Það voru þau Broddi og Kristín sem unnu ein- liðaleiki sína en tvíliðaleikirnir og tvenndarleikurinn töpuðust naum- lega. Vídavangs- hlaupi íslands frestad Frjálsíþróttasamhand Is- lands ákvað í gær að fresta Víðavangshlaupi íslands sem vera átti á Miklatúni á sunnudag, vegna þeirrar erfiðu færðar sem r á keppnisstað. Hlaupinu verður frestað um eina viku a.m.k. MÍí lyftingum íslandsmeistaramótið í lyftingum 1979 fer fram í Laugardalshöll 17. og 18. marz næstkomandi. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borizt til Lyftingasambandsins í síð- asta lagi 12. marz. Þátttöku- gjald er krónur 1.500 á hvern keppanda. Golfbíó í Grafarholti OPIÐ hús verður hjá Golf- klúbbi Reykjavíkur í Grafarholti á sunnudag klukkan 15 fyrir félaga GR og gesti þcirra. Sýndar verða golfkvikmyndir og verður reynt að vanda myndavalið eins og mögu- legt er. Kaffiveitingar verða á staðnum. Firmakeppni UMFK UMFK gengst fyrir firma- keppni í knattspyrnu dag- ana 17. —18. mars næstkom- andi. Fer keppnin fram í íþróttahúsinu í Njarðvíkum. Þátttökutilkynningar þurfa að berast í síma 2062 milli 13.00 og 15.00 næstu daga allt til 13. mars. Eyjamenn vondir ÞAÐ ríkir nú allmikil ólga og reiði meðal Vestmanney- inga vegna ferða megin- landsliða á handboltalciki í Eyjum. Um helgina átti sam- kvæmt leikskrá HSÍ að fara fram leikur Þórs og Þróttar i 2. deild íslandsmótsins í handbolta. Þróttarar mættu aldrei til leiks. Það sem Eyjamönnum gremst hvað mest er, að á sama tíma og Þróttur mætti ekki vegna samgönguerfið- leika, var lið Týs í 3. deild að leika norður á Akureyri, þannig að ekki voru sam- gönguerfiðleikar hvað þá snerti. Og þegar 3. flokkur Fram lék í Eyjum á laugar- daginn. komu strákarnir með Herjólfi. Það liggur fyrir, að ekkert var fh>gið til Eyja að morgni 'iaugardags og ekkert fyrr en um eftir- miðdaginn. Þá þykir Eyja- mönnum að Þróttarar haíi átt að snara sér til Eyja. því að ekkert var að gerast í fþróttahúsinu og ekkert einsdæmi er að leikjum sé frestað vegna slíkra tafa. Eyjaþór hefur vegna slíkra hluta ekki leikið í margar vikur og það farið að fara í taugarnar á Ieik- mönnum liðsins. því að á sama tíma og hvert liðið af öðru kemst ekki til Eyja, hafa Eyjaliðin ávallt mætt í leiki sína á meginlandinu. Þetta er engin tilviljun. Ásta*ðan felst í því, að Eyja- iiðin fljúga ávallt upp á fastaland daginn fyrir leik ef þess er nokkur kostur. Ef ekki er flogið, er alltaf hægt að bregða sér um borð í Ilerjólf og telja Eyjamenn að ef þeir geta látið sig hafa slíkt. geti meginlandsliðin það einnig. HKJ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.