Morgunblaðið - 11.03.1979, Síða 1
64 SÍÐUR
59. tbl. 66. árg.
SUNNUDAGUR 11. MARZ 1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Sprengingar við
banka á Korsíku
Ajaccio, Korsíku,
10. marz. Reuter. AP.
Aðskilnaðarsinnar
sprengdu í nótt 32 sprengj-
ur fyrir utan banka í bæj-
um á Korsíku. Eru þetta
mestu sprengingar á eynni
Villot
kardináli
látinn
Páfagarði 10. marz. Reuter AP.
JEAN VILLOT kardináli og utan-
ríkisráðherra Páfagarðs síðustu tíu
árin lézt á föstudagskvöld. Hann
varð sjötíu <>k þriggja ára gamall.
Talsmaður Páfagarðs sagði, að
Villot hefði gefið upp öndina stundu
eftir að hann var fluttur til heimilis
síns af sjúkrahúsi í Rómaborg, að
eigin ósk. Þá hafði verið sýnt að
hverju dró um hríð.
Villot veiktist snögglega af bráðri
lungnabólgu á fimmtudag, og inn-
vortis blæðingum. I ljós kom að
nýrun voru einnig að mestu óstarf-
hæf.
Jóhannes Páli páfa II var tilkynnt
um lát Villots og skundaði hann þá
til einkabænahúss páfa að biðja fyrir
honum. Jean Villot var að Páli páfa
látnum sl. sumar talinn í hópi þeirra
sem kæmu til greina sem eftirmaður
hans en Villot sýndi ekki í neinu, að
hann hafði hug á því. Hann stýrði
tvívegis páfakjöri á nokkrum mán-
uðum, og þótti gera það með reisn og
prýði.
frá því að samtökin, sem
nefna sig Frelsisfylkingu
Korsíku (FLNC), endu til
aðgerða af sama tagi í júlí
síðastliðnum.
Engin slys urðu á fólki í
aðgerðunum að þessu sinni, en
fréttastofufregnum ber ekki
saman um tjón af völdum
sprenginganna. AP-fréttastof-
an sagði, að skemmdir hefðu
orðið óverulegar, en fréttastofa
Reuters sagði, að miklar
skemmdir hefðu verið unnar á
byggingum franskra banka á
eynni.
í tilkynningu frá PLNC segir,
að bankarnir á Korsíku séu sem
hengingaról fyrir efnahag eyj-
unnar og að Frakkar noti þá til
að kúga eyjarskeggja. Talið er
að tvær sprengingar fyrir utan
banka í París séu tengdar
sprengingunum á Korsíku.
Jean Villot
Fáklædd
fegurðar-
dís elti
Bretaprins
r i r • r
ut 1 S]0
Perth, Astralíu, 10. marz. Reuter.
UNDURFÖGUR stúlka í
bikinibaðklæðum elti
Karl Bretaprins um bað-
ströndina í Perth í
morgun og létti ekki
eftirförinni fyrr en úti í
sjó og henni hafði tekizt
að hafa hendur á prinsi
og þrýsta kossi á andlit
honum.
Karl prins hafði farið árla á
fætur og ætlaö að fá sér sund-
sprett í rólegheitum. Stúlkan,
sem heitir Jane Priest, uppgöt-
vaði hver þarna var á ferðinni
og sýndi samstundis tilburði til
að nálgast hann. Prinsinn lagði
á flótta en eins og fyrr segir
tókst stúlkunni að votta honum
aðdáun sína eins og fyrir henni
hafði vakað.
Norðurljós
á Júpiter
Pasadena. Bandaríkjunuro, 10. marz. AP.
Vísindamenn segjast hafa
fundið um það bil 30
þúsund kílómetra langan
norðurljósahala á stjörn-
unni Júpiter sem er í fyrsta
sinn sem norðurljós
finnast á stjörnu utan
jarðarinnar.
Norðurljósin fundust þegar
skoðaðar voru myndir frá skugga-
hlið stjörnunnar en þær voru
teknar af Voyager 1 geimfarinu
bandaríska fyrir skömmu.
Hér á jörðunni verður norður-
ljósa vart á heiðríkum nóttum og
eru talin tilkomin vegna raf-
hleðslu í jónuðu lofti. Þeirra
verður aðeins vart á norðurhveli
jarðar.
í Nauthólsvíkurlæknum í sex stiga frosti í gær.
Ljósm. Mbl. EmiHa
Fíll gekk
berserks-
gang...
Nýju-Delhi 10. marz AP.
FÍLLINN Ravindran sem var
þátttakandi í íilahlaupi í rik-
inu Tamil Nadu á Indlandi.
gekk skyndilega berserksgang
er hann var langt kominn í
þriðju umferð fflahlaupsins og
hafði vegnað þar vel.
Réðst fíllinn á nærstaddan
áhorfendahóp og meiddust átta
manns án þess að vörnum yrði
við komið. Fjölmennt lögreglu-
lið var kvatt á vettvang og
tókst þeim eftir langa mæðu að
sefa ofsa Ravindrans.
Friðarsáttmálinn
er innan seilingar
—sagði Carter við brottförina frá Egyptalandi til ísraels
Kairó, Jerúsalem, 10. marz. AP
JIMMY Carter forseti Banda-
rikjanna sagði rétt fyrir brottför
sína frá Egyptalandi í dag,, að
friðarsamningur væri innan
seilingar. „Við skulum grípa tæki-
færið nú meðan það gefst til að
undirrita friðarsamning,“ sagði
forsetinn.
Þá lýsti Carter yfir sérstökum
stuðningi við stefnu Anwar Sadats
forseta Egyptalands, í deilumálum
Stærsta stjömuþoka
sem um getur fundin
Washington, 10. marz. AP.
STJÖRNUFRÆÐINGAR
hafa nýverið komið auga á og
getað rannsakað risastóra
stjiirnuþoku með milljörðum
stjarna, sem þeir segja vera
þá stærstu sem fundist hafi
til þessa, auk þess að vera
gífurlega efnismikil.
Alþjóðlega vísindastofnun-
in tflkynnti í gær að þessi
risastjörnuþoka væri senni-
lega um það bil tíu sinnum
efnismeiri heldur en Vetrar-
brautin sem okkar stjarn-
kerfi er staðsett í, jafnframt
því sem stjarnfræðingar
nalda að nýja stjörnuþokan
sé samrunnin úr tveimur
minni fyrir ekki alllöngu
síðan.
Vetrarbrautin sem er talin
vera meðalstór þoka inniheld-
ur um það bil 100 milljarða
stjarna og þvermál hennar er
um 200 þúsund ljósár. —
Ljósár er sú vegalengd sem
ljósið fer á einu ári meo hrað-
anum 297,600 kílómetrar á
sekúndu.
Þeir sem fyrstir komu auga
á þessa risastjarnþoku voru
stjarnfræðingar vio Alþjóð-
legu vísindastofnunina í
Washington og að þeirra mati
er þvermál pessarar nýju
þoku um 600 þúsund ljósár og
inniheldur hundruð milljarða
stjarna. Stjarnfræðingar hafa
nefnt hina nýju stjörnuþoku
NGC 1961. — Það var fyrst
fyrir um hundrað árum sem
Er tíu sinnum
efnismeiri en
sú stjörnuþoka
sem við lifum í
stjarnfræðingar fengu hugboð
um að þarna væri stór
stjörnuþoka á ferðinni en þeir
hafa ekki til þessa getað rann-
sakað hana neitt né fest hana
á filmu.
Að sögn stjarnfræðinganna,
sem hata rannsakað hana nú,
er ástæðan fyrir því að hún
hefur ekki verið rannsökuð
fyrr sú, að hún er óvenjulega
langt í burtu þannig að mjög
erfitt er að greina hana frá
stjörnuþokum okkur.
Egypta og Israelsmanna, en hann
hefur jafnan verið kallaður svikari
af öðrum Arabaleiðtogum fyrir að
reyna að komast að samkomulagi
við ísraelsmenn. Carter sagði, að
með stefnu sinni hefði Sadat komið
í veg fyrir enn eitt stríð ríkjanna
sem hefði valdið miklum hörmung-
um landsmanna.
„Við erum tilbúnir að vinna með
öllum þeim sem vilja ræða um frið.
Þeir sem vinna gegn friði ísraels-
manna og Egypta eru að hindra eina
möguleikann á rau'nhæfum friði í
Miðausturlöndum," sagði Carter.
Þá vakti það nokkra athygli
frétfamanna, að Carter lét að því
liggja að Bandaríkjamenn kynnu að
endurskoða afstöðu sína til vopna-
sölu til Egyptalands þannig að hún
yrði aukin verulega. „Það er okkar
stefna að hver þjóð þurfi að geta
varið sig sjálf, sé á hana ráðist, án
þess að treysta á utanaðkomandi
stuðning," sagði Carter.
I fréttum frá Jerúsalem í dag
segir, að gífurlegar varúðarráðstaf-
anir séu þar, borgin sé nánast lokuð
allri umferð nema hermönnum og
öryggisvörðum sem gæta munu
Carters þegar hann kemur þangað.