Morgunblaðið - 11.03.1979, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 11. MARZ 1979
29
Algjör nýjung í
gólfteppaframleiöslu
Einstaklega
mjúk og falleg.
Weppi sem hæfa vel
\ á stofur og hol.
........
Þú eri bara t/J v'œrrr/rœðr? !
Farðu fre/t/ur Jre/ W? rneð
þernan c///7gu/ f
Heiladinf'ullinn er óbrotgjarn vegvísir vísindamannsins Vandráðs (Úr
Fjársjóður Rögnvalds).
teknir með valdi og þeim útrýmt í
fangabúðunum. Af virðingu við þá
sem höfðu þjáðst svo mikið breytti
ég nafninu Blumenstein í
Bohlenwinkel. Á Brússelmáli er
það heiti yfir sjoppur sem einkum
eru staðsettar fyrir framan
skólana þar sem börnin freistast
til að kaupa fánýtt glingur og
sælgæti. En kaldhæðni örlaganna
er slík að um sama leyti og bókin
kom út las ég minningargrein um
hollenskan gyðing að nafni
Bohlenwinkel."
— Hvað er Tinni gamall?
„Hann var 15 ára. Nú ætla ég að
hafa hann 17 ára.“
— Hann hætti að klæðast poka-
buxum og gengur nú í gallabuxum.
Hefur hann breyst að öðru leyti?
„Hann er ekki eins umbóta-
sinnaður. Hafandi tekið A1 Capone
höndum, hrakið Japani frá Kína,
hindrað að styrjöld brytist út,
fundið fjársjóð og komist fyrstur
til tunglsins hefur hann róast og
vitkast. Hann er ekki eins kapps-
fullur og fyrr. Líklegast af því ég
er það ekki lengur sjálfur. Ég verð
æ hlynntari skoðun Montherlants,
sem lætur eina af söguhetjum
sínum segja að stærstu ævintýrin
gerist innra með okkur.“
— Hvernig taka lesendur þess-
ari breytingu?
„Sumir eru óánægðir. Flestir
kæra sig ekki um að Tinni breyt-
ist. Þeir segja að þeim þyki vænst
um hann eins og hann var.“
— Fastheldnin er alltaf söm við
sig.
„Einmitt. Fólk gerir sér ekki
grein fyrir því að ef Tinni breytist
aldrei yrði hann fljótt leiðigjarn.
Annars jafnar fólk sig fljótt og
fylgist með Tinna af áhuga. Hver
ný bók selst jafn vel eða betur en
næsta bók á undan. Annars skrifa
ég Tinna sjálfs mín vegna. Það
gleður mig sannarlega að hann er
svona vinsæll — það hefur satt að
segja alltaf vakið undrun mína —
en ég skrifa hann fyrir mig. Hann
er hluti af mér og ég er hluti af
honum. Við höfum átt hvor annan
síðastliðin 50 ár. í upphafi var
Tinni litla hetjan sem alltaf
sigraði að lokum. Smátt og smátt
fékk manngerðin meiri fyllingu,
breyttist og bættist þar til per-
sónusköpunin var fullgerð.“
— Áttu við að hann hafi þróas
samhliða þínum eigin þroska?
„Á vissan hátt. Tinni varð til
þess að óteljandi spurningar
vöknuðu í huga mér. Spurningar
um lífið og tilveruna og þó einkum
um mig sjálfan.“
— Eru þá kostir hans þínir
eigin kostir?
„Köllum það skapgerðarein-
kenni.“
Tryggð og
vinátta
— Þú berð þá áreiðanlega sömu
virðingu og Tinni fyrir vináttu og
trygglyndi. Hefðir þú getað gert
það sem Tinni gerir fyrir vin sinn í
bókinni Tinni í Tíbet?
„Þú átt við þegar Tinni ferðast
yfir hálfan hnöttinn til að bjarga
vini sínum, sem hann dreymdi að
væri í hættu? Já. Ég hef meiri
mætur á tryggð en líkamlegu
hugrekki, sem er oft háð
aðstæðum. Tryggð og vinátta eru
hluti af skapgerðinni, háð eigin
vilja.“
— Eru teiknimyndir sannkölluð
list?
„Ég veit það ekki. Þær eru
tjáningarform sem skyndilega
hefur öðlast viðurkenningu. Öll
tjáningarform hafa fyrr eða síðar
orðið að list. Fyrir mér vakir þó
eingöngu að segja sögit.
Teikningarnar eiga fyrst og fremst
að vera lesnar ef svo má segja.
Þær eru tæki til að koma skila-
boðum til lesandans. Ég reyni ekki
að hafa þær fallegar heldur reyni
ég að auðga þær. Það er mitt
stílbragð. Ég les lítið af öðrum
teiknimyndum af ótta við að verða
fyrir áhrifum. Ég haga mér eins og
strúturinn. Má vera að ég tapi á
því en þannig er ég þó ég sjálfur.
Ég gleðst innilega yfir auknum
vinsældum teiknimynda þó að mér
finnist of mikið gert af því að
brjóta þær til mergjar, draga af
þeim dularfullar ályktanir og jafn-
vel að halda heilu fyrirlestrana um
þær. Við verðum að gera okkur
grein fyrir hlutverki okkar. Við
erum fyrst og fremst sögumenn —
þulir.“
— Hverjir eru eftirlætis-
höfundar þínir?
„Mark Twain, Jérome K.
Jérome. Svo hef ég æ meiri áhuga
á sállækningum, austurlanda-
heimspeki og öðrum leiðum
viskunnar."
— Á viskan samleið með
velgengni?
„Ég reyni að búa með báðum! Ég
hef aldrei reynt að græða á Tinna.
Vinsældir hans eru mér sífellt
undrunarefni."
— Hverjir lesa hann mest?
„Þessari spurningu er ekki
auðvelt að svara. Lesendur mínir
hljóta að eiga eitthvað sameigin-
legt úr því að þeir eru allir hrifnir
af Tinna, þótt þeir séu á mismun-
andi aldri og frá ólíkum þjóðlönd-
um. Nú eru börn þroskaðri en þau
voru áður fyrr og fullorðnir endur-
lifa æsku sína í gegnum Tinna. Nú
er einnig betur fylgst með
höfundinum sjálfum en sögu-
hetjum hans. Tinni lifði í mörg ár
án mín ef svo má segja. Þetta er
bein afleiðing þess upplýsingaflóðs
sem einkennir okkar öld.
Ef til vill naut ég þess í byrjun
hve teiknimyndir voru sjaldgæfar,
bíóin fá og sjónvarpið á æsku-
skeiði. Það skýrir þó ekki hve
lesendahópur minn er fjölbreyttur
og víðtækur, (fyrir skömmu var
farið að þýða Tinna á gallísku og
suður-kóreönsku) og úr öllum
stéttum þjóðfélagsins. Hvað á ég
sameiginlegt með fólki frá fjar-
lægustu heimshlutum? Ég veit það
ekki. Frægð er mjög dularfullt
fyrirbrigði. Af hverju vill fólk
þennan leikara en ekki hinn?“
— Nú hefur þú oft þurft að þola
ritstuld sem einkennist ýmist af
gróðafýsn eða illkvittni.
„Flestar eftirlíkingar af teikni-
myndum mínum eru of stuttar og
viðalitlar til að hafa teljandi áhrif.
Kolbeinn kafteinn er mislyndur, stundum svo hlíður og rómantíksur
(Úr Fjársjóði Rögnvalds).
En ég hef tekið eftir að margir
nýta Tinna sem tæki til að koma
hugmyndum sínum á framfæri. I
því felst mikil viðurkenning."
Framtíðin
Fær Tinni að lifa áfram eða
ætlar þú að gera það sama við
hann og Agatha Christie gerði við
Hercule Poirot?
„Drepa Tinna? Hvernig dettur
þér það í hug? Það myndi ég aldrei
gera. Lífgþróttur minn hefur
auðvitað minnkað með aldrinum,
en ég er enn fullfær um að teikna
og skrifa. Þó kemur auðvitað að
því einn góðan veðurdag að ég dey
eins og aðrir og þá verður enginn
til að skrifa Tinna. Enginn getur
gert það af þeirri einföldu ástæðu
að Tinni er ég. Hélt einhver áfram
með verk Picassós þegar hann dó?
Þú mátt ekki halda að ég sé að
bera mig saman við Picassó. Ég
tók hann aðeins sem dæmi til að
sýna fram á að Tinni er einstakur.
Ævintýri hans eru ekki skrifuð
eftir einhverri forskrift. Hann er
ekkert tema sem hægt er að skrifa
endalaus tilbrigði við. Tinni er
sköpunarverk mitt. Ég segi þetta
þrátt fyrir alla þá hjálp sem
aðstoðarfólk mitt hefur veitt mér
og sem ég er innilega þakklátur
fyrir.“
Það var ekki fyrr en ég var aftur
kominn út á götu sem ég gerði mér
grein fyrir að ég hafði alls ekki
sagt við Hergé það sem ég hafði
ætlað að segja. Ég hafði ætlað að
þakka honum fyrir ógleymanlegar
stundir æsku minnar.
Jean-Louis Gazignaire.
stundum er s/ómanh/rf/d
eg Uúö/ / Paraú/s. Ú/Uu
er sve unafe/egur öp-
zonyur, aó paa m,'
á $pe/70>/eaa „
syngur balfSóng
r&ðara/J/iá á l/ú/yu.
Stundum hefur hvuttinn Tohbi sitthvað spaklegt tii málanna að
leggja. (Úr Myrkum mánafjöllum).
Angélina
Er 7rýk() rn in f rú. Kctnctdct
mámr
Grensásvegi 13, símar 83577-83430.