Morgunblaðið - 08.04.1979, Side 1

Morgunblaðið - 08.04.1979, Side 1
64 SÍÐUR 83. tbl. 66. árg. SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1979 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Kampala: Innrásar- liðið bíð- ur átekta Nairobi — 7. aprfl — Keuter—AP FREGNIR hafa borizt af því að tanzaníska innrásar- liðið bíði átekta í útjaðri Kampala og er ástæða til að ætla að það bíði með lokasóknina þar til borgar- búar hafa forðað sér, en eftir því sem næst verður komizt er enn straumur flóttamanna frá borginni. Útlendingar í Kampala full- yrða, að allt líbýskt herlið sé nú á brott frá Úganda og hafi það verið flutt flugleið- ina frá Nakangola-herflug- vellinum, sem er 120 kíló- metra suður af Kampala. Þá er haft eftir sömu heimildamönnum að Idi Amin sé búinn að koma sér upp vígi rétt fyrir sunnan borgina og hafi hans orðið vart í miðborginni í gær- kvöldi. FJÖGUR systkin úr Vestmannaeyjum gengu í það heilaga í gær og fór athöfnin fram í Bústaðakirkju. Myndin var tekin eftir hina óvenjulegu kirkjuathöfn og með brúðhjónunum er sr. ólafur Skúlason dómprófastur, sem gaf þau saman. Ljósm. Mbl, Kristján. Byltmgardómstóll heggur á nýjaleik Systir keisarans handtekin Tehersn — 7. mprfl — Reuter AP HÁLFSYSTIR íranskeisara, Fatemeh, hefur verið handtekin og færð til yfirheyrslu í aðalfangelsið í Teheran, að því er kvöldblaðið Etela’at skýrði frá í dag. Sex menn úr herjum keisarans, þar af tveir hershöfðingjar, voru teknir af lífi í morgun, eftir leynileg réttarhöld byltingaryfirvalda. Útvarpið í Teheran skýrði frá því að aftökurnar hefðu farið fram klukkan 21.30 að íslenzkum staðar- tíma eftir fimmtán klukkustunda réttarhöld þar sem mennirnir þrír voru sekir fundnir um fjöldamorð á pólitískum mótmælendum í Teheran og mið-írönsku borginni Najahabad. Dómunum var fullnægt jafn skjótt og þeir höfðu verið kveðnir upp. Meðal fórnarlambanna,' sem að öllum líkum voru leidd fyrir af- tökusveit, voru yfirmaður Teher- an-lögreglunnar og sérstakrar upp- þotsdeildar hennar, Mohammed Teleghani, og fyrrverandi herlaga- stjóri í Najafabad, Gholan Amini-Afshar. Amini-Afshar var ákærður fyrir að hafa barið niður með ofbeldi mótmælagöngur í Najafabad og Isfahan. Hann var undirmaður Manuchehr Khrosrowadads hers- höfðingja, er var tekinn af lífi fjórum dögum eftir byltinguna þann 11. febrúar. Önnur fórnarlömb voru öll sökuð um að vera viðriðin „svarta föstu- daginn", fjöldamorðin, er hermenn skutu í hel meira en hundrað manns í mótmælagöngu í septem- ber síðastliðnum. Byltingardómstólum var leyft að taka upp þráðinn á fimmtudag og föstudag eftir hlé, sem orðið hafði Islamabad, 7. aprfl, Reuter. AP. LÖGREGLA í Pakistan hefur látið til skarar skríða gegn ofbeldis- hneigðum óeirðaseggjum, sem mótmæia vilja hengingu Ali Bhuttos fyrrverandi forsætisráð- herra. Ófriðlegt var í nokkrum borgum landsins f gær en ramm- eflt lögregiulið virðist hafa þétt- ingsfast taumhald. Allir þeir, er handteknir hafa verið, eiga nú yfir höfði sér húðstrýkingu. vegna óánægju forsætisráðherrans, Bazargans, með framferði þeirra. Tilkynning stjórnarinnar á fimmtudag bendir þó til að áfram- hald verði á réttarhöldum bylt- ingardómsstóla í Iran. í borginni Lahore, höfuðborg Punjabs, var kveikt í sextán bif- reiðum og járnbrautarsamgöngur truflaðar þar sem teinar höfðu vcrið skemmdir. Nærri Lahore, í Gujranwala, var einn maður drepinn og tveir særðir alvarlega og í Thatta, hundrað og þrjátíu kílómetra frá Karachi, er sagt að einn maður hafi framið sjálfsmorð í mótmæiaskyni. Óstað- festar heimildir herma að tveir til fjórir aðrir kunni að hafa týnt lífi. Einnig hefur frétzt að mennirnir fjórir er fundnir voru meðsekir í máli Bhuttos verði hengdir á sunnudag. Lögregla hefur notað kylfur og táragas til að dreifa mótmælagöng- um í ýmsum borgum. Hundruð manna, sem handteknir hafa verið, eiga nú yfir höfði sér fimm til tíu svipuhögg samkvæmt herlögum Zias forseta. Verða af gjafafénu Washingrton — 7. sparíl — Reuter BANDARÍKJASTJÓRN hefur í hyggju að hætta þróunaraðstoð sinni við Pakistan vegna fregna þaðan um að herforingjastjórnin sé að byggja kjarnorkuver, þar sem unnt verði að framleiða hluta í kjarnorkuvopn. Á þessu fjárhagsári nemur þróun- araðstoðin 40 milljónum bandaríkja- dala. Egyptaland: Sendiherrar heim frá Arabarikjum Kaíró — 7. aprfl — AP. EGYPTAR hafa ákveðið að kalla heim sendiherra sína í sjö Arabaríkjum. I tilkynningu egypzka utan- ríkisráðuneytisins er ástæðan sögð vera sú, að framkoma þess- ara ríkja, sem eru Saudi-Arabía, Sameinuðu furstadæmin, Qatar, Bahrain, Kuwait, Túnis og Mar- okkó, „samræmist ekki kröfum, sem gera verði til samstöðu Araba", og er hér greinilega vísað til efnahagslegra og pólitískra refsiaðgerða téðra ríkja í garð Egypta vegna friðarsamninganna við Israel. Áður hefur sendiherra Egypta í Jórdaníu verið kallaður heim, en sendiherrar Arabaríkjanna, sem hér um ræðir, fengu fyrirmæli um að hverfa heim er Menachem Begin heimsótti Kaíró á dögun- um. Fatemeh prinsessa. Hundruð eiga yfir höfði sér hýðingu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.