Morgunblaðið - 08.04.1979, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 08.04.1979, Blaðsíða 29
29 100 ára minning: Margrét Kristjana Þorsteinsdóttir Man ég ennþá frá unglingsárum mínum í Hnífsdal, hversu oft ég leit stóran og glaðan barnahóp að leik við heimili sín á Brekku í Hnífsdal. Öll voru börn þessi hlaðin lífsorku og athafnaþrá, sem leitaði útrásar í leikjum þeirra og kom ekki að sök þótt aldursmunur væri nokkur, því hinar skæru barnsraddir báru þess ljóst vitni að þau undu glöð við sitt. Það geislaði frá þeim hjartans gleði og ánægja yfir hlutskifti þeirra við leik og glens. Börn þessi áttu hinir kunnu Heimabæjarbræður, afla- og athafnamennirnir Halldór Pálsson, Jóakim og Páll Pálssynir og konur þeirra. Síðar komu svo til leiks börn þeirra Margrétar Þorsteinsdóttir og Hjartar Guðmundssonar er þau uxu úr grasi, en börn þeirra kunnu einnig að skemmta sér, er þau höfðu vit og þroska til. Öll þessi lífsglöðu börn áttu góðar og umhyggjusamar mæður, sem vöktu yfir velferð þeirra við leik og störf. Á mæðrunum hvíldi fyrst og fremst uppeldi þeirra, þar sem feðurnir voru oft fjarverandi vegna atvinnu sinnar, því sjór var sóttur af kappi á vertíðum. Þessi efnilegu og veigefnu börn urðu dugnaðarfólk heima og heiman. Margrét Kristjana Þorsteins- dóttir, sem þessar æfiminningar eru helgaðar var fædd á Eiði í Súðarvíkurhreppi 9. apríl 1879 og ólst þar upp hjá foreldrum sínum Þorsteini Jóakimssyni og Guðrúnu konu hans. Síðar flutti fjölskyldan til ísafjarðar. Árið 1903 giftist Margrét Jóakim Pálssyni í Hnífsdal, einum hinna kunnu Heimabæjarbræðra, voru þau gefin saman 15. septem- ber. Þau stofnuðu heimili að Heima- bæ. Margrét bjó manni sínum fallegt og aðlaðandi heimili, þar voru ættingjar og vinir ætíð Danmörk — 14 ára stúlka vill skrifast á við jafnaldra stúlku. Áhugamálin eru skemmtileg tón- list, góðar bækur, handbolti o.fl. Helle Larsen Sandermarken 34 6690 Gording Danmark. NOREGUR — 19 ára stúlka vill skrifast á við fólk 18 ára og eldra. Má gjarna vera kristið, en þó er það ekkert skilyrði. Hennar áhugamál eru margvísleg, en þau helztu að lesa bækur og skrifa bréf. Olaug Rita Vatnamot Grude 4365 Hellvik i Eigersund Norge. SRI LANKA (CEYLON) - 24 ára karlmaður sem hefur að áhuga- máli að hlusta á útvarp, íþróttir, safna myndum og frímerkjum og að eignast sem flesta vini. E.A. Sumith Dharmasena No: 102 Mihindu Mawatha Eriyawa Rambukkana Sri Lanka. SVÍÞJÓÐ — 13 ára stúlka. Henn- ar áhugamál eru blóm, leikfimi, sund og síðast en ekki sízt er hún mikill Travolta-aðdáandi. Anna-Karin Rönning Varvsgatan 31 c/o Nyberg 82400 Hudiksvall Sverige. velkomnir, enda bjuggu í nágrenninu bræður og móðir Jóa- kims. Ekki var þeim Margréti og Jóakim lengi samvistar auðið, því hann veiktist af lungnabólgu, sem leiddi hann til dauða 13. desember 1914. Eins og nærri má geta var sár harmur kveðinn hinni ungu ekkju og börnunum, sem voru mjög ung að árum við lát Jóakims. Þau Margrét og Jóakim höfðu eignast 8 börn, en misst 3 í bernsku, 5 voru á lífi, allt dætur sú elsta 10 ára, en sú yngsta á fyrsta ári. En dæturnar voru þessar: Helga, Sigríður, Aðalbjörg, Guðrún og María. Hjá þeim hjónum Margréti og Jóakim hafði dvalist um tíma ungur efnismaður Hjörtur Guðmundsson fæddur að Kotum í Mosvallahreppi í Onundarfirði 2. febrúar 1891. Hann varð formaður á minni mótorbát Jóakims m/b Fram. Þessi ungi maður var vel látinn á heimilinu og naut trausts þeirra hjóna. Hjörtur var á heimili þeirra hjóna er Jóakim lést og hefur heimilinu verið mikill styrkur að honum. Hjörtur fer svo í Sjómanna- skólann í Reykjavík og útskrifast þaðan vorið 1916 og fer þá heim til dvalar á heimili Margrétar. Haustið 1916 þann 13. október gengu þau í hjónaband Margrét og Hjörtur. Hér var í mikið ráðist af ungum manni að taka að sér ekkju með 5 börn og veita stóru heimili forstöðu. Hjörtur var kjarkmikill og dugandi maður og Margrét stjórnsöm og úrræðagóð húsmóðir. Það kom fljótt í ljós, að Margrét hafði hreppt góðan eiginmann, sem reyndist stjúpbörnum sínum besti faðir. Þau Margrét og Hjörtur eignuðust 4 börn, 3 dætur og 1 son, Elísabetu, Kristjönu, Ingibjörgu og Jóakim. Margrét var vinamörg enda einstök kona að öllu hátterni og ekki síst gagnvart þeim er minna máttu sín. Eg kyntist ekki Margréti náið fyrr en seint á æfi hennar, að vísu kom hún oft á heimili það, er ég dvaldist á hjá þeim hjónum frú Ingibjörgu Kristjánsdóttir og Guðmundi Sveinssyni kaupmanni og útgerðarmanni, en þangað bar margan gest að garði. Margrét Þorsteinsdóttir var ein af stofnendum kvenfélagsins í Hnífsdal og lét sér mjög annt um það alla tíð. Eftir að ég gekk í þjónustu Hraðfrystihússins h/f í Hnífsdal var ég tíður gestur á heimili þeirra Margrétar og Hjartar, en hann var einn af stofnendum fyrirtækisins og í stjórn þess. Ég átti því oft erindi á heimili þeirra vegna starfs míns, en þangað var ávallt gott að koma, því heimilið var mjög aðlaðandi og þau hjón elskulegt fólk, sem gott var að blanda geði við. Hjört Guðmundsson hafði ég þekkt áður og átt góð viðskifti við. Dætur Margrétar og sonur fengu góð gjaforð og var Margrét amma margra efnilegra og velgef- inna barna, sem glöddu hana mjög á efri árum. Eg vil nú í tilefni af 100 ára árstíðar Margrétar Þorsteins- dóttur þakka henni hlý og góð kynni. Blessuð sé minning hennar. Einar Steindórsson « frá Hnífsdal. IflDAK Skiptir það mestu máli hvað þú færð fyrir peningana. Enn einu sinni hefur okkur tekist að slá verðbólgunni við og getum nú boðið 79 árgerðina af SKÖDA AMIGO frá kr. 1.8707ÓÖÖ. Sölumenn okkar veita allar nánari upplýsingar. LÉU tJ JÖFUR HF. Áuóbrekku 44-46, Kópavogi, sími 42600.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.