Morgunblaðið - 08.04.1979, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. APRÍL 1979
25
Kökubasar og flóamarkað-
ur í Öskjuhlíðarskóla í dag
Kökubasar og flóamarkaður
verður í Öskjuhlíðarskóla
v/Reykjanesbraut (gegnt
Fossvogskirkju) sunnudaginn 8.
aprfl kl. 14.
Öskjuhlíðarskóli er skóli fyrir
þroskaheft börn og unglinga.
Nemendum skólans hefur undan-
farin ár gefist kostur á 2 mánaða
sumardvöl. Dvalið hefur verið í
ýmsum heimavistarskólum á
Suður, Vestur- og Norðurlandi.
Ræstingarkonur Öskjuhlíðar-
skólans munu nú eins og undan-
farin ár sjá um kökubasar, en
ágóða hefur verið varið til að
greiða eldri nemendum iaun fyrir
ræstingarstörf í sumardvöl.
Auk kökubasars mun að þessu
sinni verða flóamarkaður til ágóða
fyrir ýmsa starfsemi foreldra og
kennarafálags Öskjuhlíðarskóla,
en félagið sér m.a. um rekstur
sumardvalar.
Mikið af góðum kökum og
munum verður á boðstólnum.
Bréf Sovétmanna um
olíutanka og hafnar-
aðstöðu 1 Reykjavík
( framhaldi af fréttum og skrifum Morgunblaðsins um tilboð Sovétmanna
um aðstoð við byggingu olfutanka í Reykjavík hefur Morgunblaðinu borizt
bréf frá Vilhjálmi Jónssyni, forstjóra Olfufélagsins hf., með afriti af bréfi,
sem viðskiptafulltrúi Sovétrfkjanna á íslandi hefur sent félaginu um þetta
efni. Bréf þetta fer hér á eftir f fslenzkri þýðingu svo og fslenzk þýðing á
bréfi þvf, sem sovézka viðskiptafulltrúanum barst frá „Latvian Steamship
Company“ í Sovétríkjunum varðandi þetta mál, en íslenzku olfufélögin
fengu afrit af þvf bréfi frá viðskipafrulltrúanum.
Bréf skipafélagsins
til viðskiptafulltrúans
„Með tilvísun til bréfs yðar
varðandi viðkomu tankskipsins
„TSESIS" í Reykjavík, ferð 26/9/78,
tilkynnum vér hér með eftirfarandi:
1. Dæling í landleiðslur getur því
aðeins átt sér stað að um það sé
beðið af móttakendum og aðeins
dælt með lofti. Dæling í leiðslurn-
ar með sjó, eftir að dæling á olíu
hefur átt sér stað, er tengd
áhættu vegna mengunar eða
vatnsblöndunar farmsins og getur
því aðeins átt sér stað að móttak-
endur afhendi skriflega beiðni þar
sem tekið sé fram, að skipið sé
undanþegið allri ábyrgð af
hugsanlegum afleiðingum
dælingarinnar.
2. Nauðsynlegt er að móttakendur
farmsins leggi til örugga bryggju
til bindingar skipanna.
3. Taka á sjó-ballest samtímis land-
dælingu á farmi getur því aðeins
farið fram að móttakendur farms-
ins afhendi skriflegt leyfi, þar
sem tekið sé fram, að skipið sé
ekki ábyrgt fyrir hugsanlegri
sjómengun farmsins, enda sé gætt
fyllstu varúðarráðstafana af
hendi skipsins.
4. Varðandi meðhöndlun rússneskra
tankskipa í íslenskum höfnum,
telur Latvian Steamship Company
að vegna veðurfars og siglingarað-
stæðna sé Reykjavíkurhöfn óörugg
(„unsafe") sökum tíðra storma,
ófullnægjandi dráttarbáta, og
höfnin tryggir ekki nægilegt öryggi
fyrir tankskipin við bindingar og
landdælingar.
5. Varðandi kröfu skipstjóra, sem
sett var fram í gegnum umboðs-
mann skipsins, um að móttak-
endur greiði bætur vegna hreins-
unar á dekki skipsins af olíu
þeirri, sem fór til spillis hjá
starfsmönnum móttakenda, telur
skipafélagið kröfu þessa algjör-
lega sanngjarna og bendir á að
nauðsynlegt sé að olíufélögin geri
nauðsynlegar ráðstafanir til að
hindra óhreinkun tankskipanna."
Bréf viðskiptafulltrúans
til Olíufélagsins
„Sem umsjónarmönnum með olíu-
flutningum frá Sovétríkjunum til
íslands hefur okkur virzt olíufélögin
aðeins panta nóg til að fullnægja
þörf líðandi stundar og ekki leggja
fyrir umframbirgðir sökum tak-
markaðs geymslurýmis.
Vegna sérstakra aðstæðna í
Reykjavíkurhöfn er aðeins hægt að
afferma flutningaskip af ákveðinni
hæð og lengd en enn aðrar aðstæður
valda því að geymslurými eru
skorður settar og ekki unnt að taka
við viðbótarvarningi.
Af þessum sökum kemur það
olíufélögunum í vissan bobba að geta
ekki sinnt kröfum viðskiptaaðilans,
þegar V/O „Sojuznefteexport" á
erfitt með að gera út sérstaklega
útbúið skip til að afhenda farminn.
Það er skoðun okkar að bezta
leiðin til að vinna bug á áðurnefnd-
um annmörkum sé að olíufélögin
komi sér upp viðbótargeymum í
Reykjavík. Ókkur er aufúsa í að
fræða yður um að V/O „Mashino-
export" í Moskvu telur sig geta séð
yður fyrir olíugeymum með þetta í
huga.
Fyrirtækið hefur sent okkur vöru-
skrá sína yfir tilbúnar stálplötu-
rúllur fyrir birgðageyma og væri
okkur ánægja í að senda yður hana
til umhugsunar.
Geymissamstæðan innifelur eftir-
farandi: botn í rúllum (3,2 metrar í
þvermál, 12 metrar á lengd, þyngd
allt að 37 tonn), geymisþil, einnig í
rúllum (þvermál 3,2 metrar, lengd 12
metrar, þyngd allt að 62 tonn), þak í
bútum (pakkinn allt að 10 tonn) auk
viðbótarhluta svo sem a) stokka b)
þakgrinda c) hring- og sporöskju-
lagaðra lúkuopa d) að- og fráveitu-
hólka (þvermál eins og kaupandinn
óskar) til áfyllingar og aftöppunar e)
ljóskastara til að koma fyrir á þaki
f) mælipípa.
V/O „Mashinoexport" getur einnig
afhent annars konar geymaútbúnað
gegn viðbótarþóknun: loft- og
öryggisventla, eldvara, sýnistaka
o.sv. frv. Kaupendur panta og ákveða
sjálfir sérstakan fjölda og tegund
þeirra tækja, er koma á upp í
samræmi við tæknilegar þarfir
þeirra. V/O „Mashinoexport “ getur
einnig útvegað raftæki til járnsuðu-
viðgerða.
Ganga má frá einni samstæðu, er
tæki 1000 teningsmetra (grunnur og
vélakostur, kranar, rafsuðutæki efni
og áhöld til staðar) á þremur til
fimm dögum, með fimm til sjö
sérhæfðum mönnum. Undir sömu
kringumstæðum gætu níu til
fimmtán menn komið fyrir
2000—20000 teningsmetra geymi á
níu til þrjátíu dögum.
Afhendingartími er sex til níu
mánuðir eftir að pöntun hefur
borizt. Verð fer eftir gerð, máli og
magni pöntunar og myndi V/O
„Mashinoexport" meta það eftir
móttöku pöntunarinnar.
Það er von okkar að þér hafið gagn
af þessum upplýsingum.
Vonumst eftir svari."
TVT l ii r i • AUGLÝSING ——
Nelson blyteinar
Tæknibylting í netaveiðum
síðustu sendingar á þessu vori væntanlegar um helgina.
undan að afgreiða í
pantanir.
Hafa Nelson teinarnir
hlotið mikið lof meðal
skipstjóra, þeir séu sterk-
ir og endingargóðir,
standi vel mál og vindi
ekki upp á sig. Sumir hafa
haldið því fram að ekki sé
völ á betri blýteinum.
A miðvikudag var verið að
skipa upp úr Skaftá send-
ingu af NELSON blýtein-
um. Voru þeir allir seldir
fyrirfram og afhentir
kaupendum um leið og
rúllurnar komu í land.
Von er á tveimur skipum
til landsins um helgina
með sendingar af
NELSON blýteinum.
Eitthvað mun enn óráð-
stafað úr þeim
sendingum, sem verða
þær síðustu á þessu vori.
Netasalan hf í Reykjavík
flytur inn NELSON
blýteinana, sem notið
hafa mikilla vinsælda á
þessari vetrarvertíð.
Nelson blýteinarnir eru
arftaki NELSON
teinatógsins, sem vinsælt
hefur verið meðal
íslenzkra sjómanna um
árabil.
Svo mikil eftirspurn
hefur verið í blýteininn að
Netasalan hefur ekki haft
NELSON blýteinum skipað upp úr Skaftá.
Fullkominn
kíðabúnaöur
fyrir alla fjölskylduna
Þegar hönnun og framleiðsla skiða er annars vegar
standa fáir - ef nokkrir - Austurrikismönnum á
sporði. Nú býður Sportval ótrúlegt úrval hinna
heimsfrægu skíða þeirra - og allir finna skiði við sitt
hæfi.
Fjölskyldur, byrjendur, áhugamenn, keppendur, -
leiðin liggur í Sportval.
SP0RTVAL
I Vió Hlemmtorg-simar 14390 &
SALOMON 727
Frönsk tækni, byggð á áratuga reynslu, nýtur sín til
fults í Salomon öryggisbindingunum, - ..óruggustu
öryggisbindingunum*'
Caber. Allir eru sammála um fegurð og gæði itölsku
Caber skónna. Þægilegir en traustir - sannkölluð
meistarahönnun og framleiðsla.