Morgunblaðið - 08.04.1979, Qupperneq 32
Eftir að veiða
um 160 þús.
tonn af þorski
ÞORSKAFLINN var um
síöustu mánaðamót orðinn 124
þúsund tonn írá áramótum, eða
um 50 þúsund tonnum meiri en
í fyrra eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær.
Morgunblaðið leitaði í gær-
morgun til Kjartans Jóhannssonar
sjávarútvegsráðherra og bar undir
hann þetta mikla aflamagn með
tilliti til þess að stefnt væri að
•280—290 þúsund tonna þorskveiði
á árinu. En samkvæmt þeim
aðgerðum, sem boðaðar hafa verið,
er leyfilegt að veiða um 160
þúsund tonn þá 9 mánuði, sem
eftir eru af árinu. Kjartan sagðist
þurfa að kynna sér málið betur og
kaus því að svara spurningum
Morgunblaðsins eftir helgi, en tók
fram að nákvæmlega væri fylgst
með aflabrögðum í ráðuneytinu.
Flutninga-
bill skemmd-
ist í eldi
FLUTNINGABÍLL frá Hofsósi
brann er hann var staddur á
Holtavörðuhéiði á föstudag á leið
til Reykjavíkur með vörur frá
Sauðárkróki.
Talið er að kviknað hafi í stýris-
húsi bílsins út frá rafmagni og
brann það, en ekki komst eldur að
flutningakassa bílsins og urðu því
engar skemmdir á varningi. Reynt
var að slökkva eldinn með slökkvi-
tækjum og fólk úr hópferðabíl sem
kom þar að, aðstoðaði með því að
moka snjó á bílinn, en stýrishúsið
er talið ónýtt og vélin svo til
einnig. BíUinn var síðan fluttur til
Reykjavíkur í gær.
45.910 íbúar landsins hafa fengið hitaveitu frá 1971:
EYJAR — Á undanförnum vikum hefur verið góður afli á Eyjamiðum, bæði heimaslóð og djúpmiðum, en
þessa mynd tók Sigurgeir í Eyjum á togaramiðunum suður af Eyjum. Einn skutarinn togar þarna með
fýlinn allt um kring. A annað hundrað fiskiskip af stærðinni eitt til fimm hundruð tonn háfa sótt í fang
Eyjamiða að undanförnu. Sjá grein á bls. 20—21.
Gjaldeyrissparnaður
5,9 milliarðar kr. á ári
HITAVEITUFRAMKVÆMDIR á árunum 1971 til 1978 hafa fært
45.910 fbúum heitt vatn til húsahitunar, þar af rúmlega 40 þúsund
manns á tímabilinu frá 1974 til 1978. Samkvæmt upplýsingum
iðnaðarráðherra á Alþingi í fyrradag er gert ráð fyrir að þetta hafi
sparað 83,6 milljónir lítra af olíu til húsahitunar og sé miðað við skráð
verð á gasolíu nú fyrir helgina og áætiaðan flutningskostnað má gera
ráð fyrir að gjaldeyrissparnaður vegna þessa sé um það bil 5,9
milljarðar króna á ári.
deildar 1,3 miiljarðar í lán, og
ityrkir til jarðhitarannsókna nema
252,3 milljónum króna. Lán til
hitaveitna nema 300 milljónum
króna. I þessu eru ekki meðtaldar
fjárveitingar til jarðhitadeildar
Orkustofnunar, sem á síðastliðnu
ári námu 396,4 milljónum króna,
en að auki hafa Rafmagnsveitur
ríkisins varið til frumathugana á
fjarvarmaveitum 2,1 milljón á
árinu 1977 og 27,8 milljónum króna
á árinu 1978. Engin erlend lán voru
tekin til Orkusjóðs á umræddu
tímabili, en hins vegar voru tekin
innlend vísitölutryggð lán.
r
Isinn lónar
frá landinu
HAFÍSINN virðist heldur vera að
lóna frá landinu þar sem lítil
norðanátt hefur ríkt að undan-
förnu og er spáð hægum vindi á
næstunni. Þó reikna veðurfræð-
ingar með að aftur geti snúið til
norðanáttar síðar um helgina.
Isinn við Horn er nú meiri á
siglingaleið en áður þar sem hann
hefur rekið úr víkum og fjörðum
við land og er sigling greiðfærust
10—12 sjómílur út af Horni og
svipað er ástatt út af Melrakka-
sléttu. Úti fyrir Norðurlandi hefur
ísinn heldur dreifzt og er sundur-
laust hrafl.
Frumvarpið
orðið
að lögum?
GERT var ráð fyrir því, þegar
Morgunblaðið fór í prentun í
gær, að frumvarp ríkisstjórnar-
innar um stjórn efnahagsmála
o.fl. yrði samþykkt síðdegis á
Alþingi í gær. Þá voru að
hefjast síðustu fundir Alþingis
fyrir páskaleyfi og voru bæði
boðaðir fundir í deildum og
sameinuðu Alþingi.
Færeyingar
aftur á
íslandsmið
FÆREYSK veiðiskip hófu
veiðar á íslandsmiðum að
nýju um síðustu mánaðamót
samkvæmt endurnýjuðum
samningi. Eru nú komnir
hingað til veiða 4 togarar og
11 línuveiðarar og halda þeir
sig aðallega útaf Suð-Austur-
landi.
Þröstur Sigtryggsson í stjórn-
stöð Landhelgisgæzlunnar tjáði
Mbl. að færeysku skipunum bæri
að tilkynna sig daglega samkvæmt
nýja samningnum og gefa upp
aflamagn. Sagði Þröstur að góð
regla hefði verið á tilkynningunum
og varðskipsmenn hefðu farið um
borð i flest skipin og sannreynt að
rétt aflamagn væri gefið upp.
Kvað Þröstur góða reynslu hafa
fengist af framkvæmd hins nýja
samnings milli íslendinga og Fær-
eyinga.
Um 40 ökumenn teknir
fyrir of hraðan akstur
LÖGREGLAN í Reykjavík var við hraðamælingar á götum borgar nn-
ar á föstudag og fram á nótt og voru teknir yfir 40 ökumenn á 70—111
km hraða. Voru t.d. teknir á Vesturlandsvegi 8 ökumenn á yfir 90 km
hraða og einn á 105 km hraða þar og að minnsta kosti 11 voru
stöðvaðir á Kleppsvegi á miiii 70 og 90 km hraða.
Framkvæmdirnar, sem um er
rætt, eru 11 hitaveitur, nýfram-
kvæmdir og viðbót Hitaveitu
Reykjavíkur í Kópavogi, Garðabæ
og Hafnarfirði. Þessar fram-
kvæmdir eru nánar tiltekið: Hita-
veita Suðurnesja, 7.160 íbúar,
Hitaveita Reykhóla, 70 íbúar,
Hitaveita Suðureyrar, 490 íbúar,
Hitaveita Hvammstanga, 480 íbú-
ar, Hitaveita Blönduóss, 850 íbúar,
Hitaveita Siglufjarðar, 2.030 íbúar,
Hitaveita Hríseyjar, 290 íbúar,
Hitaveita Akureyrar, 5.060 íbúar,
Hitaveita Reykjahlíðar, 230 íbúar,
Hitaveita Brautarholts í Biskups-
tungum, 50 íbúar, og Hitaveita
Reykjavíkur, stækkun vegna Kópa-
vogs, Garðabæjar og Hafnarfjarð-
ar, 29.200 íbúar.
I máli Hjörleifs Guttormssonar,
iðnaóar- og orkuráðherra, kom
fram að ef gengið væri út frá því að
olíunotkun til upphítunar íbúðar-
húsnæðis væru 13 lítrar á hvern
rúmmetra og að hver íbúi noti 140
rúmmetra húsnæðis, þá spöruðu
þessar hitaveituframkvæmdir
1.820 lítra á hvern íbúa á ári eða
alls 83,6 milljónir olíulítra. Sam-
kvæmt upplýsingum, sem Morgun-
blaðið fékk í gær um innkaupsverð
á gasolíu nú fyrir helgi ásamt
áætluðum flutningskostnaði, má
gera ráð fyrir að gjaldeyrissparn-
aður vegna þessa væri um 5,9
milljarðar króna.
I máli ráðherra kom fram að
lánveitingar og styrkveitingar úr
orkusjóði til jarðhitaleitar á þess-
um árum hafa verið: Til jarðhita-
Að sögn Ásmundar Matthíassonar
varðstjóra í umferðardeild lögregl-
unnar er hraðinn á götum borgar-
innar alltof mikill. Myndi lögreglan
fylgjast með honum á næstunni og
eftirlitið ekki minnka. Sagði Ás-
mundur, að reynt væri að fylgjast
með ökuhraða á sem flestum stöðum
í borginni og kæmi það yfirleitt í ljós
að ökuhraðinn minnkaði strax og
ökumenn yrðu varir við hraðamæl-
ingar; talstöðvarbílar létu hver ann-
an vita og væri það í sjálfu sér ekki
óeðlilegt, því tilgangur lögreglunnar
væri sá einn að halda ökuhraðanum
niðri.
Á föstudagskvöldið var lögreglan
við mælingar m.a. á Miklubraut og
Skúlagötu og var einn ökumaður
stöðvaður á Miklubraut á 111 km
hraða og annar á Skúlagötu á yfir 80.
Þá voru tveir teknir á Suðurlands-
braut á yfir 100 og sem fyrr segir
hafði lögreglan afskipti af yfir 40
ökumönnum á föstudaginn og um
kvöldið.