Morgunblaðið - 12.04.1979, Side 5

Morgunblaðið - 12.04.1979, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1979 53 tilhögun skuli höfð á flugferðum yfirleitt. Cecil Faber er ættfærður sem sonur Haralds Faber, ríkis- ráðunauts Dana í London. „Hann er þaulæfður flugmaður og kapt- einn í flugher Breta og hefur verið í stríðinu síðan 1915. Hefur hann skotið niður margar þýzkar flug- vélar.“ Þegar Faber kemur til íslandser Mbl. á staðnum og ræðir við kappann. Hann segir aðspurð- ur að líklega henti flugbátar bezt á íslandi. „Það er erfitt að finna góða lendingarstaði á þessu landi." Hann segist síðan hafa fest kaup á AVRO vél með 110 hestafla mótor fyrir félagið og geti hann haft í henni tvo farþega. Hann kveðst ætla að sýna hér fluglist og með því undirbúa flugpóstferðir sem ef til vill verði hafnar hér á landi síðar, „en það verður dýrt,“ bætir Faber við og lýkur þar með viðtalinu. Hinn 17. júlí skrifar G. Jónsson á ísafirði um mál í blaðið sem hann telur þess vert að hrint verði í framkvæmd. Þar sem ég minnist þess ekki að þessa hugmynd hafi borið á góma á ný í minni tíð birtum við þessa grein G. Jónsson- ar í heild sinni. Hann segir: „Oft hefur mér dottið í hug hverjar orsakir muni liggja til þess að enn hefur því ekki verið hreyft að grafa skipgengan skurð gegnum hið örmjóa land sem bindur Vest- firði við aðal landið. Skyldi það þó vera þýðingarlaust atriði í fram- Árni óla blaðamaður sóknarbaráttu íslands? Liggur ekki í hlutarins eðli að slíkt myndi hafa feikna áhrif á aðdrætti Norð- anlands? Ég býst við að engum dyljist að svo myndi vera. Ef sigla skyldi á gufuskipi frá Gröf í Bitrufirði til Kleifar á Breiðafirði, þá mun það taka nálægt 40 tíma, ef farin er sú skemsta leið sem nú er. En ef fyrnefndur skurður yrði grafinn, tæki siglingaleiðin milli hinna sömu staða ca 1 klst. Þýðingu skipgengra skurða ættum vér að vera búnir að þekkja af ákefð annarra þjóða að grafa þá. Þá telja þær tvímælalaust sjálf- sagðan hlut, hvar sem því verður við komið og það getur borgað sig. Og það enda þótt skurðurinn verði 20 sinnum lengri en þessi umtalaði skurður þyrfti að vera. Þráfald- lega kemur það fyrir að skip sem eru á leið til Norðurlands að vestan komast ekki lengra en að Horni sakir svo mikils hafíss. Svo langt hefur þetta gengið að til stórvandræða hefur horft oft og einatt. Þesskonar ísalög geta margsinnis enn skotið Norðlend- ingum skelk í bringu. Hvað skyldi slíkt mannvirki sem skipgengur skurður er og slítur Vestfirði frá aðallandinu kosta mikið fé? Það ætti að rannsaka." Svo mörg voru þau orð. Menn voru framsýnir hér á árum áður ekki síður en nú. Dreymdi um skipaskurði og járnbrautir og flugvélaöldin var að ganga í garð. Landhelgis- gæzla í Mbl. 12. júlí er skrifað um strandvörzluna sem hefur verið í höndum Dana. Er urgur í grein- Friðaríundurinn: Erlendar fréttir eru ekki sérlega fyrirferðamiklar á þessum tíma, en öðru hverju er þó skýrt frá gangi viðræðnanna um friðarsamninga og oft er velt vöngum yfir því hver verði framtíð Þýzkalandskeisara. arhöfundi og segir hann umbúða- láust: „Landhelgisgæzlan hefur aldrei verið jafn léleg og í ár. Vaðrskipið kom hingað með sein- asta móti og hefir það haft svo hægt um sig þann tíma að furðu sætir. Framan af var það mest- megnis í' förum milli Reykjavíkur, Viðeyjar og Hafnarfjarðar, síðan komst það vestur á ísafjörð og nú skýtur því upp eftir nokkra fjar- veru og kemur frá Færeyjum.“ Og bætt er við, og er heyranlegt að greinarhöfundi er ekki lítið niðri fyrir: „enga botnvörpunga hefur það tekið enn og þó hefur fjöldi brezkra og franskra fiskiskipa dvalið hér í vor og verið nærgöng- ulir að fornum sið. Hvernig sem á þessu getur staðið, þá er hitt víst að íslendingum er engin bót að þessari strandgæzlu, sem ekkert er nema nafnið tómt ... og þetta að hún er rekin jafn slælega og raun hefur orðið á í vor hlýtur að reka á eftir því að Islendingar taki strandvarnirnar í sínar hendur og reki sjálfir framvegis. Það getur aldrei orðið verra en það er nú.“ Þegar hér er komið sögu eru að fæðast hugmyndir um vélvæðingu í landbúnaði. Menn hafa kynnzt þessu í Ameríku og heyrt hitt og annað um „aflvélar“ og sagt að þær séu plógar, sláttuvélar, rakstrarvélar og bindingavélar, reknar með vélarafli. „Nú vinna þær þau verk, er hestarnir unnu áður,“ segir í Mbl. og bætt við að það sé bráðaðkallandi að „vinna að því að fá þessar aflvélar í þágu landbúnaðarins til að gera hann hagkvæmari.“ Segir svo að nokkur tilraunastarfsemi hafi verið gerð hérlendis og þurfi nú að herða enn betur á. I niðurlagi þessarar bar- áttugreinar er svo sagt að sam- göngurnar á landi séu svo ná- Sjá næstu síðu Gerum ekki einfalt dæmi flókið. Með IB-lánum er komið til mótsvið þarfirflestra. Innborganireru frá3mánuðum og upp í 4 ár. Hægt er að semja um framlengingar og hækkanir. Há- marksupphæð breytist jafnan með tilliti til verðbólgunnar. í IB-láni felst því raunhæf og hagkvæm lausn. Dæirá um nDkkmvaLkDSti afmörgum æm öjóóast. SPARNAÐAR- DÆMIUM SPARNAÐUR IÐNAÐARBANKINN RÁOSTÖFUNAR- MÁNAÐARLEG ENDURGR TIMABIL INNBORGUN í LOK TÍMABILS LANARPÉR FÉ MEÐ VÖXTUM ENDURGREIÐSLA TÍMABIL 20.000 60.000 60.000 120.800 20.829 * / 40.000 120.000 120.000 241.600 41.657 ^ / maii. 75.000 225.000 225.000 453.375 78.107 man. 12 40.000 480.000 480.000 1.002.100 45.549 12 60.000 720.000 720.000 1.502.900 68.324 JLw „ man. 75.000 900.000 900.000 1.879.125 85.405 man. 20.000 720.000 720.000 1.654.535 28.509 50.000 1.800.000 1.800.000 4.140.337 71.273 ou, mati. 75.000 2.700.000 2.700.000 6.211.005 106.909 illáil. Bankiþeirm sem hyggja aó fiamtíöinni Iflnaðartiankinn Aóalbaiiki og útibú

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.