Morgunblaðið - 12.04.1979, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.04.1979, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1979 57 hvíta manns og fá þar í viðbót kunnáttu Eskimóa til að lifa af landinu sjálfu og færa sér í nyt hvern og einn hinna fáu úrkosta heimsskautssvæðanna — og leggja sig svo allan frarn." Vilhjálmur kynnti sér snemma mjög rækilega lifnaðarhætti Eskimóa og í leið- angri á árunum 1908—1912 lagði hann leið sína m.a. til Eski- móa-ættflokka, sem aldrei höfðu augum litið hvítan mann. Sumarið 1913 lagði hann enn upp sem stjórnandi leiðangurs, sem um fjögurra ára skeið stundaði marg- víslegar rannsóknir í norðurhéruð- um Kanada og Alaska. I þeirri ferð fór hann m.a. langar leiðir á rekís, t.d. einu sinni um 700 kílómetra. Auk þess sem Vilhjálmur og samstarfsmenn hans könnuðu áður kunn svæði ítarlegar en fyrr hafði verið gert fann hann árið 1915 nýtt land þar nyrðra. Orð og athafnir Vilhjálms urðu í upphafi mjög til að auka áhuga á heims- skautalöndunum vestra, og eftir að opinberir aðilar höfðu seint og síðar meir gert sér grein fyrir hernaðarlegri þýðingu þeirra, vaknaði enn meiri áhugi á ferðum hans. í Bendaríkjunum var gjarn- an leitað til hans sem ómissandi manns í hverju því efni sem að heimsskautslöndum sneri. Ötull rithöfundur Vilhjálmur skrifaði margar bækur og urmul tímaritsgreina. Þær bækur hans sem vakið hafa mesta athygli eru án efa „Heims- skautslöndin unaðslegu" og „Ævi- saga“ hans sem kom út að honum látnum. Bókin Heimsskautslöndin unaðslegu olli miklum deilum á sínum tíma. Þar vegsamar Vil- hjálmur lönd þessi og framtíð þeirra svo mjög, að ekki vildu allir leggja trúnað á. Tímaritsgreinar Vilhjálms skiptu hundruðum og fjölluðu m.a. um mannfræði, landafræði, fornleifafræði og lyargt fleira. Bækur Vilhjálms voru gefnar út víða um lönd, m.a. i Sovétríkjunum þar sem hann naut mikillar virðingar. íslandsferðir ísland var alla tíð ofarlega í huga Vilhjálms. Hann kom hingað síðast árið 1949. Fyrstu för sína til íslands fór hann á vegum Har- vard-háskóla til þess að rannsaka bækur og skjöl í Landsbókasafn- inu. Árið eftir kom hann hingað aftur og ferðaðist þá um landið. í þeirri ferð fór Vilhjálmur m.a. út í Haffjarðarey, að ráði séra Einars Friðgeirssonar á Borg, til þess að skoða gamla kirkjugarðinn þar, sem sjór var þá að brjóta, svo að mannabein lágu þar á víð og dreif. Þaðan hafði Vilhjálmur með sér 86 hauskúpur og nokkuð af beinum, en fann enga beinagrind heila. Þetta beinasafn var síðan sent til Harvard-háskóla til rannsókna og þaðan á Peabody-safnið til varð- veizlu. Varð það frægt fyrir það, að ekki fannst ein einasta skemmd tönn í öllum þessum hauskúpum. Sýnir það ótvírætt að tann- skemmdir hafa verið óþekkt fyrir- brigði á íslandi allt fram til siðaskipta. Vilhjálmur kom enn hér árið 1936 til þess að semja við íslenzku ríkisstjórnina um flugferðir á vegum bandaríska flugfélagsins American Airways. I því sambandi má gjarna rifja upp, að Vilhjálm- ur var mjög eindreginn stuðnings- maður þess, að flugsamgöngur milli Bandaríkjanna og Evrópu færu fram um Island. Vildi hann með þessu tryggja landsmönnum gott samband við umheiminn. Vilhjálms var mjög víða getið og minnst þegar hann lézt 26. ágúst 1962, þá 82 ára gamall. M.a. sagði eftirfarandi í leiðara Morgun- blaðsins frá þeim tíma: „Með Vilhjálmi Stefánssyni er til mold- ar hniginn einn frægasti og gagn- merkasti maður af íslenzku bergi brotinn. Enda þótt hann væri ekki fæddur á íslandi og lifði alla ævi ' :« . Wmm mmm • ■ -iÚ WM •••• . ••:■ ‘ ;:.:■■ 1 • Fáséð en iræg mynd ai Vilhjálmi iir þriðja heimskautsleiðangri hans 1913—1918. Hann sést draga sel á ettir sér til bústaðar síns. Hjá Toyota er vel fylgst meö þróun tímans. Þess vegna framleiöir Toyota ávallt bíla fyrir þá veröld sem viö lifum í. Toyota hefur þannig hlotnast margvísleg viöurkenning fyrir góöa og vandaöa framleiöslu: T.d. tvisvar hin eftirsóttu amerísku Demning-verölaun, veitt fyrir vandaöa framleiöslu og tækninýjungar. í Danmörku hefur Félag danskra bifreiðaeigenda kosiö Toyota þrisvar, sem þann bílinn sem minnst bilar g sé meö bestu endursölu. í Englandi hafa bresku Neytendasamtökin veitt Toyota viöurkenningu fyrir vandaöan bíl. í Svíþjóö hefur sænska Bifreiöaeftirlitiö eftir athugun á 127.000 bifreiöum, sett Toyota í efsta sæti meö ástand og gæöi. Bandarísku Neytendasamtökin hafa eftir athugun á 225.000 bifreiöum, gefiö Toyota úrvalsgóöa viöurkenningu. HVAÐ KAUPA SVO JAPANIR SJÁLFIR? Jú samkvæmt nýjustu tölum jók Toyota sölu sína um rúm 26% í Japan á síöasta ári. Vilji menn kaupa bíl í háum gæöaflokki, jafnframt því aö gera góöa fjárfestingu, bíl, sem svarar kröfum framtíöarinnar, þá er valiö TOYOTA fefeTOYOTA UMBOÐIÐ NÝBÝLAVEGI8 KÓPAVOGI SÍMI 44144 TOYOTA STARLET TOYOTA TERCEL Söludeild — Varahlutir — Viðgerðarþjónusta allt á einum stað TOYOTA CRESIDA Vandaðir bílar fyrir vandláta kaupendur Sjá næstu síðu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.