Morgunblaðið - 12.04.1979, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 12.04.1979, Blaðsíða 20
68 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 1979 AIi „bab“ Höfundur Babisma, Ali nokkur Múhammeð, hélt því fram á fyrst að hann væri aðeins „bab“, eða milliliður, sem Ihmam Mahdi hefði til að komast í samband við jaröneskar verur. Brátt aflagði hann þó „bab“-titilinn og lýsti sig þann, sem beðið hefði verið, sjálf- an Ihmam Mahdi. Ali „bab“ varð ekki langlífur í landinu frekar en aðrir spámenn. Honum var snar- lega varpað í dýflissur eftir að hann tilkynnti um heilagleika sinn. Þar mátti hann dúsa, unz hann var líflátinn í Rabriz árið 1850, en áður hafði hann valið sér arftaka. Ekki vildi þó betur til en svo, að trúflokkurinn klofnaði fljótlega þar sem hálfbróðir nýja leiðtogans, sem hafði látið sér nægja „bab“-titilinn, kom og sagð- ist vera „sá, sem Allah mundi láta birtast". Því var „bab“ raunar búinn að spá, þótt áreiðanlega hafi það verið ætlun hans að ákveða sjálfur hver það yrði og hvenær sá yrði kallaður fram á sjónarsviðið. Meirihluti Babista tók yfirlýsingu hálfbróðurins sem góða og gilda vöru, og nefndi flokkur hans sig Baha’i. Aðrir héldu tryggð við „bab“ og voru lengi væringar með þessum trúflokkum. Babistar eru nú nánast úr sögunni, en Baha’i-menn hafa boðað trú sína víða um lönd og teygir hreyfing þeirra anga sína um allan heim, meira að segja til Islands. Ahmad frá Punjab Sá, sem Ahmadyyar kenna sig við, kvaðst ekki aðeins vera hinn langþráði Ihmam Mahid, heldur einnig Messías, það er að segja Jesús Kristur. Þar til Ahmad kom fram höfðu Múslimar ævinlega dregið skýr mörk milli þessara tveggja persónuleika og haldið því fram að Kristur hafi alls ekki verið krossfestur á Golgata. Hafi Allah tekið Krist ljóslifandi til sín inn í himininn, en sent í hans stað ófreska veru, sem hafi undirgeng- izt krossfestinguna, og sé hinn lifandi Kristur því væntanlegur til jarðar á ný. Ahmad kenndi hins vegar að Kristur hefði vissulega verið krossfestur, en lærisveinar hans hafi náð honum lifandi af krossin- um. Hafi hann lagt leið sína til Kasmír er hann var gróinn sára sinna. Þar hafi hann endað ævi sína löngu síðar og sé grafinn á tilteknum stað í borginni Srina- gar. Ahmad hélt því fram að af dauða Krists í Kasmír leiddi að hann ætti ekki eftir að snúa aftur til jarðar, enda hafnaði hann endurfæðingarkenningum. Ahmad kvaðst birtast í mynd Krists, í anda hans og krafti. Hann líkti eftir honum í fasi, og kenningar hans bera vott um kristilegt um- burðarlyndi. Hann boðaði frið á jörðu og miklar sögur fara af kraftaverkum hans. Ahmad and- aðist árið 1909, og hafa fylgjendur hans síðan starfað í tveimur flokk- um, sem hafa aðalstöðvar í Lahore en hinn í Kadia. Hfeyfingin er fjölmenn og stendur fvrir trúboði í mörgum löndum. Kaba og hluti Fórnarmoskunnar. Við dyr Kaba. Að snerta Kaba og steininn helga er einhver æðsta sæla, sem iallið getur Múslim ískaut. Til vinstri er steinninn helgi, sem til hlífðar er greyptur í siliur. HADDSJ Samkvæmt siðalögmálinu er það skylda sérhvers manns, er játar trú íslams, sem felur í sér skil- yrðislausa undirgefni við Allah, að fara helgiför til Mekka að minnsta kosti einu sinni á ævinni. Slíkt ferðalag kallast Haddsj, eða helgi- förin mikla. Á tímum Múhameðs skyldi Haddsj farið einu sinni á ári, en er Islam breiddist út um lönd og álfur varð ekki hjá því komizt að slaka á þeirri kröfu. Næst á eftir kristinni trú er Islam sú trú, er flestir játa. Heimildum um fjölda Múslima í heiminum ber ekki saman. Ætla má þó að þeir séu um fimmtungur mannkyns, eða um 800 milljónir, en Islam er ríkjandi trú í fjörutíu heimslöndum. Af þessum aragrúa kemst vitaskuld ekki nema örlítið brot til Mekka, en pílagrímum hefur fjölgað á síðari árum. Aldrei hefur annar eins fjöldi komið til Mekka og á síðasta Haddsj, en þá varð tala þeirra um tvær milljónir. Heita má að nú orðið komi allir pílagrímar flugleiðina til Jedda, sem er skammt frá Mekka, því að járnbrautir koma ekki að gagni í þeirri sandhrúgu, sem Arabíu- skagi er. Haddsj-tíminn er í síðasta mán- uði Islamársins, en í því eru 354 eða 355 dagar og tólf mánuðir. Hlaupár er annað og þriðja hvert ár, þannig að Haddsj færist fram um 11 daga á ári, miðað við kristilegt tímatal. Þótt sjálfur Haddsj-tíminn standi ekki yfir nema í tvær vikur er allt undirlagt í Mekka og Jedda í tvo mánuði sakir hins gífurlega fjölda píla- grímanna. Gestrisni er gömul dyggð meðal Araba, en þrátt fyrir það ríkir öngþveiti meðan Haddsj stendur yfir. Skipulagningu hefur að vísu farið mjög fram á síðustu árum, en til skamms tíma varð WHO, heilbrigðisstofnun Samein- uðu þjóðanna, að annast sóttvarn- ir og ýmsa neyðarþjónustu píla- gríma, sem fjölmargir eru á frum- stæðu menningarstigi. Þá hefur skipulag þessara þjóðflutninga ekki verið sem skyldi og eru þess ófá dæmi að fólk úr fjarlægum löndum hefur velkzt í reiðileysi í pílagrímabúðum árum saman, þar sem heimferðin hafði af einhverri ástæðu brugðizt á sínum tíma. Margir pílagrímanna þola ekki hnjaskið, sem ekki er hægt að komast hjá í ferðalagi sem þessu, enda eru þeir flestir komnir á efri ár þegar þeim hefur tekizt að aura saman fyrir draumaferðinni. Er því mikið um dauðsföll, en svo vel vill til að Múslim getur ekki hlotnazt meira hnoss en það að enda ævi sína í Haddsj. Hámark sælunnar er að deyja á heimleið, en næstbezt er að kveðja táradal- inn með Mekka fyrir stafni. Sá, sem ekki kemst til Mekka á ekki annars úrkostar en að senda annan fyrir sig til að firra hinum verstu örlögum. Tíðkast mjög að íbúar heilla þorpa skjóti saman og sendi fulltrúa í Haddsj. í Mekka Enginn heiðingi má koma til Mekka. Áður en pílagrímur stígur á hina heilögu jörð, íklæðist hann sérstökum búningi, „ihram“, sem raunar er ekki annað en tvær hvítar voðir, sem haldið er saman með bandi. Þær fáu konur, sem ráðast í slíkan leiðangur, klæðast svörtum skikkjum, bera hvítan höfuðbúnað og eru til að sjá ekki ósvipaðar kaþólskum nunnum. Þessi fábrotni klæðnaður píla- grímanna er tákn þess að fyrir augliti Allah eru allir Múslimar jafnir. Hvítar súlur afmarka helgi Mekka nokkru áður en komið er að borginni. Innan markanna má ekki granda nokkurri skepnu eða skerða hár á höfði nokkurs manns. Heldur ekki láta falla styggðaryrði eða hafa kynmök. Við komuna til Mekka er haldið beina leið til Fórnarmoskunnar, sem byggð er í kringum mikið torg, en á því miðju gnæfir Kaba, helgasta vé Islams. Kaba er teningslaga stein- hleðsla, fimmtán metrar að hæð, hol að innan. Á þessu mannvirki sem vart vekur athygli fyrir fegurð eða önnur slík sérkenni eru miklar dyr, slegnar gulli og silfri. Þeim er lokið upp einu sinni á ári, meðan Haddsj stendur yfir, og er hvelfingin þá þvegin innan hátt og lágt, að sjálfsögðu í samræmi við flókin siðaboð. Hvelfing Kaba hefur staðið auð allt frá því að Múhameð hreinsaði hana af ósómanum forðum. Meðan Haddsj stendur er Kaba hjúpuð svörtu silkiklæði, gullsaumuðu tilvitnun- um í Kóraninn, og er klæðið endurnýjað á hverju ári. Ólýsanleg er sú reynsla sögð að líta Kaba fyrsta sinni. Mun það mörgum pílagrímum allt að því ofraun. Suma svimar, aðrir fá krampaflog, missa málið, bresta í grát, falla í yfirlið eða sýna önnur ofsafengin geðbrigði. Þegar sú geðshræring er liðin hjá er farið að hyggja að fyrstu helgiathöfn- inni sem er í því fólgin að ganga sjö sinnum rangsælis í krinum Kaba. Reynt er að snerta og helzt kyssa steininn helga, sem hjúp-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.