Morgunblaðið - 01.05.1979, Page 45
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 1979
23
íslandsmet hjá
Jóni í 3. €00 m
JÓN Diðriksson UMSB setti nýtt íslandsmet í 3.000 metra hiaupi
á mikilli hlaupahátíð í bænum Troisdorf í Vestur-Þýzkalandi á
laugardag er hann hljóp vegalengdina á 8:09,1 mínútu. Bætti
hann þar með þriggja ára gamalt met Ágústs Ásgeirssonar ÍR
sem hljóp á 8:17,6 í Englandi fyrir réttum þremur árum.
Ekki tókst Mbl. að ná tali af Jóni og rabba við hann um hlaupið,
en skv. þeim upplýsingum sem Mbl. aflaði sér varð Jón í um
tíunda sæti í hlaupinu, sem var liður í árlegri langhlaupahátíð
félags hans, LG Jagermeister Bonn-Troisdorf.
Á mótinu var sett vestur-þýzkt met í 10.000 metra hlaupi og var
þar að verki hinn knái hlaupari Karl Fleschen. Hljóp hann á um
27:37 mínútum og bætti um nokkrar sekúndur met Detlefs
Uhlemanns sem er í sama félagi og Jón. Var met Uhlemanns því
tekið af honum á hans eigin heimavelli. Uhlemann var ekki meðal
keppenda á mótinu.
Arangur Jóns bendir til þess að hann sé í góðri æfingu og að
búast megi við góðum árangri frá honum í sumar. _ ágás.
• Jóhanna Halldórsdóttir Fram tekur við veglegum
bikar úr höndum Tómasar Árnasonar fjármálaráð-
herra, en hún var kosinn besti leikmaður íslands-
mótsins af fyrsta landsliðshóp kvenna sem gaf
bikarinn. Er Jóhanna vel að titlinum komin.
Atli með
tilboð
ATLI Hilmarsson, stór-
skytta úr Fram og einn
hinna efnilegri leikmanna,
sem fram hafa komið síð-
ustu tvö til þrjú ár í hand-
boltanum hefur fengið mjög
glæsilegt tilboð frá sænsku
2. deildar liði. Liðið sem
heitir Skövde, er nýkomið
upp úr 3. deildinni þar í
landi og ætlar sér stóran
hlut næsta keppnistímabil.
í spjalli við Mbl. sagði
Atli að tilboð þetta væri
sérlega glæsilegt, hann
fengi ibúð, bíl og peninga-
greiðslur vænar, ef hann
reyndist vera maðurinn,
sem félagið væri að leita að.
f bréfi sem Atli fékk fyrir
skömmu var lögð á það
áhersia að hann kæmi strax
i byrjun mái til að forráða-
mcnn féiagsins gætu kannað
varninginn. Aðspurður
hvort hann ætlaði að fresta
gæfunnar, sagði Atli að
hann hefði meiri hug á að
ljúka námi sínu hér heima,
en hann stundar nám við
menntaskólann í Hamra-
hlið. — gg.
— o — o — o —
Einar út
FYLKIR, scm féll úr 1. deild
í þá næstu íyrir neðan í
handboltanum í vetur, verð-
ur að ölium líkindum án
eins af máttarstólpum sín-
um á næsta keppnistímabili.
Það er hinn hávaxni Einar
Einarsson sem verður ekki
með, ef að líkum lætur.
Sagði kappinn í stuttu
spjalli, að hann væri að fara
að nema verkfræði erlendis.
Missir Fylkis er tilfinnan-
legur, því að Einar er einn
sterkasti leikmaður liösins
bæði i sókn og vörn.
- gg.
—o—o—o— /
Karl Ben
til Fram?
MBL. hefur það eftir góðum
heimildum, að handboltalið
Frammara sé komið á
fremsta hlunn með að ráaða
þjálfara fyrir næsta keppn-
istímabil. Er það Karl Bene-
diktsson, sem er í sigtinu.
Karl er kunnur þjálfari,
þjálfaði m.a. Víking í þrjú
keppnistímabil með góðum
árangrj fyrir fáum árum.
Sigurbergur Sigsteinsson sá
um þjálfun liðsins í vetur,
en hann mun snúa sér heils
hugar að því eingöngu að
Icika með liðinu næsta vet-
ur.
- gg.
Norðurlandameistararnir Gústaf Agnarsson og Guðmundur Sigurðsson. Gústaf
besta afrek mótsins samkvæmt stigatöflu. Guðmundur hefur nýhafið keppni aftur
eftir nokkurt hlé og er því frammistaða hans frábær.
Frábær árangur
á NM í lyftingum
ÍSLENSKA landsliðið í lyfting-
um náði frábærum árangri á
Norðurlandamótinu sem fram
fór í Ringsted í Danmörku um
helgina, tvö gull og þrenn
silfurverðlaun var uppskeran
og var hún síst of mikil.
Árangur þriggja kappanna er
athyglisverður, árangur Guð-
mundar Sigurðssonar, sem
vann gull i sínum flokki, en
stutt er síðan Guðmundur hóf
að æfa lyftingar á nýjan leik
eftir langt hlé. Silfurmennirnir
Guðgeir Jónsson og Birgir Þór
Borgþórsson eru nýskriðnir í
fullorðins flokk úr unglinga-
flokki og lofa góðu að vera
komnir í fremstu röð svo íljótt.
Auk Guðmundar varð Gústaf
Agnarsson einnig Norðurlanda-
meistari i sínum flokki. Gústaf
keppti í 110 kg flokki, snaraði
160 kg og jafnhattaði 200 kg,
samtals 360,0 kg. Hafði Gústaf
algera yfirburði í sínum flokki.
Guðmundur keppti í 100 kg
flokki og hafði einnig umtals-
verða yfirburði. Snaraði Guð-
mundur 142,5 kg, jafnhattaði
190 kg, lyfti því samanlagt 332,5
kg-,
Ágúst Kárason keppti í yfir-
þungavigt og hreppti silfrið.
Snaraði Ágúst 135 kg, jafnhatt-
aði 170 kg, samanlagt 305 kg.
Nákvæmlega eins lyfti Birgir
Þór Borgþórsson, sem keppti þó
í mun léttari flokki, 90 kg flokki,
hlaut Birgir silfur í þeim flokki.
Þriðju silfurverðlaunin hlaut
Guðgeir Jón Jónsson, sem
keppti í 85 kg flokkinum. Guð-
geir snaraði 125 kg, jafnhattaði
165 kg og lyfti því samanlagt 290
kg-
Sökum þess hve fáir skipuðu
íslenska liðið, nægði þessi frá-
bæri árangur aðeins til að
hreppa fjórða sætið í stiga-
keppninni. Þar voru Svíar sterk-
astir, Finnar höfnuðu í öðru
sæti, Norðmenn í því þriðja, þá
íslendingar og loks Danir.
Aukaleikur UMFA
og Stjörnunnar?
AFTURELDING vann Stjörn-
una i siðari leik liðanna um
hvort liðið leikur í 2. deild og
hvort í þeirri þriðju næsta
keppnistimabil. UMFA vann á
sunnudaginn með 15 mörkum
gegn 13 og þar sem Stjarnan
vann fyrri leikinn 25—23,
töldu UMFA-menn að sætið í 2.
deild væri tryggt vegna fleiri
marka á útivelli. Fögnuðu
leikmenn UMFA af fádæma
innlifun, en svo kann að fara að
allt breytist í vonbrigði eftir
sem áður.
Afturelding er ekki með 2.
deildar sætið tryggt, einfaldlega
vegna þess að það hefur ekki
verið tekin um það ákvörðun
hvort að svo sé, sagði Bergur
Guðnason í dómstóli HSÍ þegar
Morgunblaðið spurði hann um
mál þetta. Það kom nefnilega
glöggt fram eftir leikinn að
Varmá, að Stjörnumenn skildu
ekkert í því hverju UMFA-menn
voru að fagna. Bergur sagði enn
fremur, að HSÍ myndi fjalla um
málið á morgun og væri á þessu
stigi engin leið að vita hver
niðurstaðan yrði.
Sagði Bergur að Ólafur Aðal-
steinn Jónsson formaður móta-
nefndar HSÍ, hefði spurt sig um
skoðun sina á málinu og væri
hún sú, að eðlilegast væri að
liðin léku þriðja leikinn sem yrði
hreinn úrslitaleikur, enda liðin
jöfn að markatölu eins og væri.
Bergur hélt áfram og sagði að í
reglum IHF væri þetta gjarnan
notað, þ.e.a.s. að láta útimörk
ráða þegar markatala væri að
örðu leyti jöfn, en IHF-reglurn-
ar væru svo ýtarlegar vegna
þess að það gæti reynst erfitt að
láta þjóðlönd leika fleiri leiki en
ætlað væri í fyrstu. Yfir því
hvíldi stórt spurningarmerki
hvort svo strangar reglur ættu
að gilda innanlands. En Stjarn-
an og Afturelding verða að bíða
til miðvikudags eftir því að fá úr
því skorið hvort 2. eða 3. deildin
verði hlutskipti þeirra næsta
vetur og það verður að segjast
eins og er, að það er miður að
ekki skuli liggja fyrir hvernig
slíkum úrslitaleikjum skuli
háttað áður en þeir hefjast, því
að í þessu tilviki kann það að
kosta ólýsanleg vonbrigði
hvernig sem úrskurðurinn fellur
hjá HSÍ
— KK.