Morgunblaðið - 01.05.1979, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ1979
37
Þingmenn um
ölgerðarfrumvarpið:
Frumvarpið aðeins
vegna fjárhagsvanda
ríkissjóðs
MORGUNBLAÐIÐ leitaði í gær til tveggja þing-
manna, sem áður hafa lýst þeirri skoðun að þeir
vildu breytingar á áfengislöggjöfinni og spurði þá
um álit á frumvarpinu um einkaleyfi til handa
ríkisstjórninni á innflutningi öl- og víngerðarefna.
Þingmennirnir eru Friðrik Sophusson og Vilmundur
Gylfason.
Friðrik Sophusson kvað ljóst
að tilgangurinn með þessu
frumvarpi væri ekki að koma í
veg fyrir drykkju, heldur að
sporna við tekjurýrnun ríkis-
sjóðs og beina mönnum inn í
útsölur ÁTVR, þar sem þeim er
selt eldsterkt brennivín. Þessi
ákvörðun væri tekin og krafizt
einokunaraðstöðu fyrir ríkið á
ölgerðarefnum án tillits til þess,
hvort menn hefðu bruggað öl
ólöglega eða löglega. „Aður en
ég tek afstöðu til þessa máls, vil
ég að fram fari ítarleg endur-
skoðun á áfengislöggjöfinni í
heild, þar sem annars vegar yrði
tekið tillit til tillagna, sem fram
hafa komið á Alþingi og í
borgarstjórn um frjálsari opn-
unartíma vínveitingahúsa og
hins vegar um bjórinn. Mér
finnst kominn tími til að kannað
sé hjá þjóðinni, hvort og hvernig
hún vill breyta áfengislöggjöf-
inni.“
Þá minntist Friðrik á að í
greinargerð með frumvarpinu
væri vikið að einokun ríkisins á
innflutningi eldspýtna. Hann
kvaðst vilja ítreka þá skoðun
sína, að sér væri með öllu
óskiljanlegt, hvers vegna ríkið
þyrfti að hafa einkaleyfi á
eldspýtnainnflutningi. „Hingað
til hafa landsmenn lítt haft upp
Vilmundur Gylfason sagði,
að þetta frumvarp hefði ekki
verið rætt að neinu ráði í
þingflokknum, þannig að þær
umræður ættu að miklu leyti
eftir að fara fram. „Á þessu stigi
málsins get ég því ekki annað
sagt en þetta er óskaplegur
vandi, sem við stöndum frammi
fyrir. Þar getum við í sjálfu sér
sleppt öllum áfengisvandamál-
um, en þetta er viðurkennd
aðferð til skattheimtu, að skatt-
leggja þennan vökva, sem hefur
þessi tilteknu áhrif, og afla þar
með fjármagns til ríkissjóðs.
Nú stöndum við frammi fyrir
þeim vanda, að brugg í heima-
húsum, sem er orðinn allvina-
legur iðnaður, er orðinn mjög
útbreiddur, breytir tekjudæmi
ríkissjóðs mjög verulega. Með
hvaða hætti eigum við að snúast
gegn því? Þetta er ein leið, en í
mínum nuga eru miklar efa-
semdir um, að þetta gangi. Þetta
sé lagasetning af því tagi, sem
stór hluti samfélagsins viður-
kenni ekki, og slík lög eru ávallt
úr því einkaleyfi annað en ónýt-
ar eldspýtur, sem oft og tíðum
hafa valdið stórtjóni, vegna þess
hve lélegar þær eru.“ Að lokum
sagði Friðrik Sophusson: „Þetta
frumvarp minnir mig einna
helzt á atriði úr síðasta
áramótaskaupi sjónvarpsins,
þar sem fjármálaráðherra var
latinn vera að smala kaupend-
um í útsölur ÁTVR. Og ætli
næsta smalamennska felist í því
að setja einokun á sykur, rúsín-
ur og Tropicana, sem allt geta
verið víngerðarefni.
vond. Þessi meginsjónarmið
takast á með sér og því er ég
ekki tilbúinn til þess að tjá mig
beint. Ég fyrir mína parta er
ekki á móti bruggi, en vandinn
hins vegar er sá, að þetta er
skattheimta og þar með er þessi
heimilisiðnaður samkvæmt
strangri skilgreiningu í raun
ekkert annað en „skattsvik“.“
Hellissandur:
2-3 bátanna á línu, aðrir
bíða eftir að netabanni ljúki
Hellissandi, 28. apríl.
ER NETAVERTÍÐ lýkur eftir
helgina er alls óvíst hvað verður
hjá nokkrum bátanna héðan.
Heyrst hefur að 2 eða 3 bátar fari
á línu, en aðrir tveir munu ætla
sér að bíða eftir að netaveiðibann-
inu lýkur seinni hluta mánaðarins.
Skarðsvíkin, sem var á loðnuveið-
um í vetur, má hins vegar ekkert
gera. Minni bátarnir eru byrjaðir
á handfærum og hafa aflað sæmi-
lega.
Maímánuður hefur oft verið
mjög góður hjá bátum héðan og
t.d. fékk Skarðsvíkin um 400 tonn í
þessum mánuði árið 1972.
Skarðsvíkin hafði ætlað sér að
vera á netunum fram í miðjan
júní, en bönn sjávarútvegsráðu-
neytisins koma í veg fyrir það.
— Fréttaritari.
Hver víll ekki lengja
sumarid. •?
...þaðer hœgt meé BACO Professional gróóurhúsi
Útiræktun er erfiö á íslandi, þaö vita allir sem reynt hafa.
En í BACO gróöurhúsi hefst sumarið fyrr og ræður ríkjum, löngu eftir
aö þaö er liðið samkvæmt almanakinu.
BACO Professional merkir aö húsin séu sérlega vönduö og sterk. Þau
fást í stærðunum 8x8 og 8x12 fet. Þau koma tilbúin til uppsetningar meö
tilsniönu gleri, þéttilistum og ööru sem til þarf. Auk þess fylgja hverju húsi
þakgluggar, opnanlegir rimlagluggar, þakrennur o.fl. Nákvæmar
teikningar og leiöbeiningar um uppsetningu fylgja. Veröiö er mjög
hagkvæmt.
Höfum einnig fyrir-
liggjandi vermikassa,
álborö, álkanta, sjálf-
virka gluggaopnara
og garöyrkjuáhöld.
Hringiö og aflið
upplýsinga.
HANDID
Tómstundavörur fyrir heimili og skóla.
Laugi vegi 168, sími 29595.
LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER — LITAVER