Morgunblaðið - 26.05.1979, Blaðsíða 1
40 SIÐUR OG LESBOK
117. tbl. 66. árg.
LAUGARDAGUR 26. MAÍ1979
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Fjórir lágu í
valnum en ETA-
menn sluppu
Madrid. 25. mal. AP.
VÍÐTÆK leit stendur nú yíir á Spáni að hryðjuverkamönnum ETA.
sem í gær myrtu þrjá herforingja og bifreiðastjóra þeirra í Madrid.
ÖryggisKæzla hefur verið stórefld, en þetta ódæði er hið mannskæð-
asta. sem ETA á sök á frá því að stjórn Francos lét af völdum á Spáni.
Sjónarvottur segir að hryðju-
verkamennirnir hafi verið tveir og
hafi þeir skotið af vélbyssum á
bifreið herforingjanna. Þegar bif-
reiðin hafi síðan numið staðar
hafi annar mannanna kastað
handsprengju inn um afturdyr, en
síðan hafi báðir tekið til fótanna,
komizt inn í bíl, sem beið þeirra,
og ekið brott á ofsahraða. Bifreið
hryðjuverkamannanna fannst síð-
ar skammt frá morðstaðnum, en
ekkert hefur spurzt til mannanna
tveggja.
sjúkrahús. Herforingjarnir voru
allir háttsettir. Þeirra á meðal var
Luis Gomez Hortiguela, fyrrum
hershöfðingi, sem að undanförnu
hefur verið starfsmannastjóri
hersins.
ETA-hreyfingin hefur lýst sig
ábyrga fyrir morðunum, en ETA
berst fyrir aðskilnaði Baskalands
frá Spáni.
Slökkvilið að störfum við þotuflakið í gærkvöldi. Viðgerðaskýli American Airlines á flugveliinum var gert
að lfkhúsi til bráðabirgða. (AP-símamynd).
Aftakan
tók 5
mínútur
Starke. Florida. 25. maí. AP.
FIMM minútum eftir fyrsta
raflostið lýstu yfirvöld ríkis-
fangelsis Fiorida því yfir að
dauðadómi yfir murðingjanum
John A. Spenkelink hefði verið
fullnægt. Fjórum mfnútum áð-
ur en aftökuathöfnin hófst
hafnaði hæstiréttur í Washing-
ton með fjórum atkvæðum
gegn tveimur því að taka til
greina beiðni fangans um að
aftökunni yrði slegið á frest.
Þetta er í fyrsta skipti á tólf
árum, sem sakamaður er tek-
inn af lífi gegn viija sínum í
Bandaríkjunum. en Gary Gil-
more, sem líflátinn var í Utah
fyrir tveimur árum. baðst ekki
vægðar. í Bandaríkjunum bfða
nú 522 fangar þess að dauða-
dómi yfir þeim verði fullnægt.
Rafmagnsstóllinn, sem
Spenkelink (sjá litlu mynd-
ina) endaði ævi sfna f.
Nýstúdentar frá Menntaskólanum við Sund
Ljósm.: RAX
Chicaico. 25. mal. AP. Rcutcr.
DC-10 breiðþota frá American Air-
lines með 272 innanborðs fórst
í flugtaki írá O’Hare-flugvelli í
Chicago klukkan 20.03 að ís-
lenzkum tfma f kvöld. og komst
enginn lffs af. Þotan skall niður f
Ijósum logum um 800 metra frá
brautarenda, rétt við hjólhýsa-
stæði þar sem fjöldi manns hafði
aðsetur. Samkvæmt sfðustu
fregnum varð ekki manntjón á
jörðu niðri, en vitað er að tvennt
að minnsta kosti er illa haldið af
brunasárum. Lengi vel var óttazt
að margir kynnu að hafa orðið
fyrir brennandi flakinu og voru
sjúkrahús á þessum slóðum við-
búin að taka við miklum fjölda
slasaðra, en þremur tfmum eftir
að slysið varð var neyðarástandi
aflýst, þar sem Ijóst var orðið að
slysfarir hefðu ekki orðið telj-
andi á jörðu niðri.
Þetta er mesta flugslys, sem
orðið hefur í Bandaríkjunum, en
flestir hinna látnu voru á leið í
leyfi til Kaliforníu. Þotan átti að
fljúga í einum áfanga til Los
Angeles.
Sjónarvottum, sem eru fjöl-
margir, ber yfirleitt saman um að
annað hvort hafi vinstri hreyfill
þotunnar sprungið eða hann hafi
losnað frá búk þotunnar er hún
var komin í um það bil 65 metra
hæð. Hafi flugmaðurinn þá greini-
lega reynt að sveigja þotuna til
hægri, en trjónu hennar hafi þá
skotið upp á við. Því næst hafi
þotan sveigt harkalega til vinstri,
og hafi hún þá þegar verið orðin
alelda.
Þegar síðast fréttist logaði enn í
flakinu og var unnið að því að ná
jarðneskum leifum hinna látnu úr
brakinu, en ekki hafði þá fundizt
eitt einasta lík, sem unnt væri að
bera kennsl á.
O’Hare-flugvöllur er fjölfarn-
asti flugvöllur veraldar. Um ein
Ímilljón manna fer um völlinn á
viku hverri, og flugtök og iending-
ar eru að jafnaði 130 á klukku-
stund.
Meirihlutast j órn
mynduð i Finnlandi
Ilclsinki. 25. mai AP.
NÝ meirihlutastjórn fjögurra
flokka tekur við völdum í Finn-
landi á morgun, laugardag.
undir forsæti Maunu Koivisto.
seðlabankastjóra, sem er i Jafn-
aðarmannaflokknum.
Sex ráðherrar í stjórninni eru
úr Miðflokknum, fimm úr Jafn-
aðarmannaflokknum, þrír úr
Kommúnistaflokknum og tveir úr
Sænska Þjóðarflokknum, en einn
er utan flokka.
Stjórnarmyndunarviðræður
hafa verið langar og strangar, en
tveir mánnuðir eru liðnir frá
þingkosningum í Finnlandi. Þing-
menn stjórnarflokkanna eru 134
að tölu, en þingsæti eru 200.
Enn
skelfur
ströndin
Bcljcrad. 25. maí. AP.
64 MEIDDUST, þar af 10
alvarlega. er jarðskjálfti varð
enn á suðurströnd Júgóslavíu
í gærkvöldi. Skjálftinn mæld-
ist 5,6 á Richters-kvarða, og
segir Tanjug-fréttastofan að
þetta sé mesti skjálfti sem
komið hafi síðan á páskum, en
þá létu um 100 manns lífið, auk
þess sem stórtjón varð á mann-
virkjum.
í skjálftanum í gær varð
verulegt tjón, aðallega á hús-
um, sem verið var að reisa úr
rústum eftir páskaskjálftann.
Herforingjarnir þrír munu allir
hafa látið lífið um leið og hand-
sprengjan sprakk, en bifreiðar-
stjórinn lézt af sárum sínum
skömmu eftir að hann kom í
DC-IO fórst með 272
manns innanborðs