Morgunblaðið - 26.05.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ 1979
3
Heiðmörk lok-
að allri umferð
SKÓGRÆKTARFÉLAG Reykja-
víkur, sem annast alla umsjón
með Heiðmörk, hefur ákveðið að
loka Heiðmörkinni fyrir allri um-
ferð. Verður hún lokuð meðan
þurrviðrið, sem staðið hefur yfir
undanfarna daga, helzt, en að
sögn Vignis Sigurðssonar eftirlits-
manns er nú mjög mikil eldhætta
þar.
Mikill snjór
í Siglufirði
— NÚ ER allt að 4 m djúpir
skaflar sums staar í bænum
en um helgina bætti við mikl-
um snjó, sagði fréttaritari
Mbl. í Siglufirði í samtali við
Mbl. Varað var við snjóflóða-
hættu um helgina og sagði
fréttaritarinn, að smáflóð
hefðu fallið austan megin í
firðinum, en ekki valdið tjóni.
Um færðina sagði hann, að
hún væri tekin að lagast eftir
að rutt hefði verið á sunnudag,
en þó yrði að gæta fyllstu
varúðar á ferðum til og frá
Siglufirði. — Annars er hérna
12 stiga hiti í dag og þótt ekki
sjái til sólar erum við Siglfirð-
ingar ekkert sérstaklega
svartsýnir, enda höfum við
aldrei verið það og teljum að
brátt hljóti að bregða til betri
tíðar.
— Mjög mikil umferð var um
Heiðmörkina á fimmtudag og tal-
ið er að eldur hafi komið þar upp
vegna þess að fólk fór óvarlega
með sígarettur, sagði Vignir, og
það hefur sýnt sig nú í máimánuði
að eldur breiðir sig mjög hratt út
enda mjög þurrt, ekki hefur rignt
nema 5 mm allan mánuðinn.
Skógurinn sem brunnið hefur í
Heiðmörk að undanförnu er að
verðmæti hundruð milljóna, segir
í frétt frá Skógræktarfélaginu og
hvetur félagið fólk til að fara mjög
farlega með eld, en á svæðum
þeim sem brunnið hafa, hafa
sjálfboðaliðar unnið mikið starf
að gróðursetningu.
Kári Jónasson.
Kári Jónasson endur-
kjörinn formaður BÍ
KÁRI Jónasson fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu var endurkjörinn
formaður Blaðamannafélags íslands á aðalfundi félagsins s.l. miðviku-
dag. Kosning Kára markar þáttaskil hjá félaginu, því með henni er
rofin sú áratuga hefð að formennska í félaginu skiptist árlega milli
blaða, útvarps og sjónvarps samkvæmt ákveðinni röð.
I ræðu formannsins kom fram að
á síðasta starfsári festi Blaða-
mannafélag íslands kaup á hluta 3.
hæða húseignarinnar Síðumúli 23.
Kaupin á húseigninni var það sem
hæst bar á starfi félagsins á sl. ári
enda hefur félagið ekki áður haft
yfir eigin húsnæði að ráða. Það
kom ennfremur fram á fundinum,
að staða sjóða félagsins er góð.
Auk Kára Jónassonar voru kjör-
in í stjórn þau Bragi Guðmundsson
Vísi, sem er varaformaður, Fríða
Björnsdóttir Tímanum, Sigtryggur
Sigtryggsson Morgunblaðinu,
Ómar Valdimarsson Dagblaðinu,
Einar Örn Stefánsson Þjóðviljan-
um og Jón Óskar Hafsteinsson
Helgarpóstinum. í varastjórn voru
kjörnir Steinar J. Lúðvíksson
íþróttablaðinu, Róbert Ágústsson
Tímanum og Jónas Haraldsson
Dagblaðinu.
I launamálanefnd voru kjörin
Sigtryggur Sigtryggsson Morgun-
blaðinu, Elías Snæland Jónsson
Vísi, Fríða Björnsdóttir, Tímanum,
Guðjón Arngrímsson Helgar-
póstinum og Einar Karlsson Þjóð-
viljanum.
Kári Eiríksson ásamt einu málverkanna sem til sýnis verða á Kjarvalsstöðum.
Sýnir 72 málverk á Kjarvalsstöðum
KÁRI Eiríksson opnar í dag
málverkasýningu á Kjarvalsstöð-
um. Kari sýnir þar 72 olíumál-
verk öll unnin á síðast liðnum
tveimur árum.
Kári Eiríksson er fæddur árið
1935 á Þingeyri við Dýrafjörð.
Hann hefur stundað nám í
Reykjavík, Kaupmannahöfn,
Flórens, Róm, Mexikóborg og New
York. Hann hefur haldið 4 einka-
sýningar erlendis, síðast í Genf í
Sviss árið 1974.
Fyrsta sýning Kára hér heima
var í Listamannaskálanum við
Kirkjustræti árið 1959 og síðast á
Kjarvalsstöðum árið 1973 en hann
var fyrsti maðurinn til að taka
Kjarvalsstaði á leigu.
Sýningin sem Kári opnar í dag
er fimmta málverkasýning hans
hér heima. Þar gefur á að líta verk
máluð í gamla stíl Kára,
„stemmningar“, en einnig nýjan
stíl sem hann hefur tileinkað sér,
„geislabylgjuna". Á sýningunni
eru einnig tvær myndaraðir sem
höfundur hefur kallað „skafla-
serían" og „grænaserían“.
Rauði kross Islands:
Alþjóðlegt neyðarvamanám-
skeið á Þingvöllum um helgina
„EFNI þessa neyðarvarnanám-
skeiðs er skipulag Rauða krossins,
alþjóðlegt hjálparstarf, starf sendi-
fulltrúa Rauða krossins og þau
vandamál sem við er að glfma á
hinum ýmsu stöðum f veröldinni.“
Þetta kom fram í máli Sverre
Kilde, frá alþjóðasambandi Rauða
krossins varðandi námskeið í al-
þjóðlegu neyðarvarna- og hjálpar-
starfi sem stendur yfir á Þingvöll-
um um þessa helgi. Sverre Kilde og
René Carillo frá alþjóðasambandi
Rauða krossins og J.P. Munoir frá
alþjóðaráði Rauða krossins eru
kennarar á þessu námskeiði auk
þeirraa Guðjóns Petersens,
Ingunnar Sturlaugsdóttur og Egg-
erts Ásgeirssonar.
Á blaðamannafundi sem stjórn
Rauða kross íslands efndi til í
tilefni námskeiðsins kom fram að
hingað til hafa Svisslendingar svo
til einvörðungu verið notaðir til
hjálparstarfs þar sem ófriður á sér
stað. Alþjóðaráðið hefur hins vegar
leitast við á síðari árum að fá
þjálfað lið frá Norðurlöndunum, en
Sviss og Norðurlönd eiga það sam-
eiginlegt að njóta viðurkenningar á
alþjóðavettvangi sem friðsamar
smáþjóðir og eiga því auðveldara
með að fá viðurkenningu hinna
ýmsu stríðandi afla en margar
stærri þjóðir, að því er fram kom á
blaðamannafundinum.
Leifur Dungal læknir fer á næst-
unni til starfa í Rhódesíu á vegum
alþjóðaráðs Rauða krossins.
Nýlega var haldinn í Helsinki
fundur um þessi mál og var þar
samþykkt áætlun um þjálfun
hjálparliðs. Áætlunin verður í
þremur þrepum og verður hið fyrsta
hjá hverju landsfélagi. Námskeiðið
á Þingvöllum er einmitt slíkt nám-
skeið. Annað þrepið er síðan svæða-
námskeið þar sem grannlönd sam-
einast um þjálfunina. Síðasta þrepið
er fyrir þá sem lengst komast og er
haldið í Genf.
Loks má geta þess að Islenskur
læknir, Leifur Dungal, fer til starfa
í Rhódesíu innan skamms á vegum
alþjóðaráðs Rauða krossins. Áug-
lýst var eftir þátttöku íslenskra
lækna og varð það úr að Leifur færi
til starfa þar í þrjá mánuði. Hann
sagði á blaðamannafundinum í gær
að í Rhódesíu væri við geysilegt
flóttamannavandamál að etja vegna
ófríðarástandsins í landinu og
hundruð þúsunda eru heimilislausir.
Leifur tekur fyrst þátt í neyðar-
varnanámskeiðinu á Þingvöllum, en
að því loknu fer hann til Rhódesíu
um Kaupamannahöfn og Genf þar
sem hann tekur við fyrirmælum og
leiðbeiningum um starfið.
mmwmB
0mmi
•» ->y ■ - V ~ •.
■■ :■:■■ yíV-MsPfis
itf
ifiíi-'if.iiiS'vJMíJ
? ■ »• SKM SSWJSKSÍC!
Ferðaskrifstofan
mm
v;::.
fl Gisting í rúmgóöum og björtum íbúöum LUNA
Kynnisferöir m.a. til Feneyja, Garda, Friuli-ferö
o.m.fl.
Residence
irM&i
íftll
wmmm