Morgunblaðið - 26.05.1979, Qupperneq 4
4
Viðskiptavinir
athugið:
SlMANÚMER okkar
á aðalskrifstofunni
Suðurlandsbraut 4
cr ÓBREYTT
38100
Olíufélagið
Skeljungur h.f.
(Birt vesna villu í
nýju símaskránni)
LAWN-BOY
GARÐSLÁTTUVÉLIN
Það er leikur einn að
s\á með LAWN-BOY
garðsláttuvélinni,
enda hefur allt verið
gerl til að auðvelda
þér verkið.
Rafeindakveikja. sem
tryggir örugga gang-
setningu.
Grassafnari, svo ekki
þarf að raka.
3,5 hö, sjálfsmurð tvi-
gengisvél, tryggir lág-
marks viðhald.
Hljóðlát.
Slær út fyrir kanta og
alveg upp að veggjum.
Auðveld hæðarstilling.
Ryðfrí.
Fyrirferðalítil, létt og
meðfærileg.
VELDU GAROSLÁTTUVÉL. SEM GERIR MEIR
EN AÐ DUGA.
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MAÍ1979
Jónas Guðmundsson með málverkasýningu í Norræna húsinu:
Ekki tími fyrir feg-
urðina nema um helgar
Jónas GuAmundsson opnar á
laugardag málverkasýninxu (
Norræna húsinu kl. 14.00, en þar
sýnir hann um það bii 50 myndir.
MorKunblaðið hafði samband við
Jónas ojí bað hann að segja
ofurlítið frá þessari sýninjju.
— Eins og áður sagði þá verð ég
með um það bil 50 verk á þessari
sýningu og eru þau máluð núna í
vetur, en einnig eru þarna verk frá
seinasta ári. Ég sýndi síðast í
Reykjavík fyrir tveim árum, en þá
hafði ég sýningu á Kjarvalsstöð-
um.
— Ef geta á einhvers sérstak-
lega, þá hefi ég undanfarið málað
meira með olíulitum, eftir að hafa
legið yfir vatnslitum svo til ein-
vörðungu í tvö eða þrjú ár.
— En mótívin, hafa þau breyst?
— Ekki mjög mikið. Ég sýni þó
þarna nokkur portret, m.a. af Jóni
forseta, en hann átti falleg föt, og
eins er ég með mynd af Laxness,
sem er svona tilbrigði um það
Jónas Guðmundsson.
þegar Rússar borguðu honum með
loðkápu fyrir að skrifa eitthvað á
rússnesku.
— Að öðru leyti held ég mig við
atvinnulífið, fasteignir, hús, báta
og skip.
Ég bý í Grjótaþorpinu, eða við
vestanverð landamæri þess og
þetta er máttugt hverfi, maður
gengur upp þessi dimmu sund. Ég
hefi þarna gnægð viðfangsefna,
sérstakan heim, sem ég reyni að
mála.
Um sjávarmyndirnar er það að
segja að þær skipa auðvitað veg-
legan sess á sýningunni. Það er
annars undarlegt hvað íslenskir
málarar sýna hafinu lítinn sóma
núorðið, og við eigum ekki einu-
sinni orð yfir hafið eins og aðrar
þjóðir, sem eiga orð yfir sjólag og
landslag.
Annars leita ég ekki eftir öldu-
gangi, heldur athafnalífinu og því
sérstaka andrúmslofti sem aðeins
er að finna í sjávarþorpum og við
bryggjur þar sem fiskur kemur á
land.
— Þú varst með sýningu erlend-
is á dögunum. Hvernig gekk það?
— Við Valtýr Pétursson sýndum
saman í Frankfurt fyrir um það
bil tveimur mánuðum. Þetta var
virðuleg og vel sótt sýning, og verk
okkar hlutu góða dóma. Það er nú
ætlunin að snara þeim yfir á
íslensku við hentugleika, en fjöl-
mörg virt blöð skrifuðu lærðar
greinar um sýninguna.
— Nú annað er ekki um þetta að
segja, nema ég hefi ákveðin plön
um sýningar erlendis á næsta ári.
Okkur Valtý hefur verið boðið að
sýna á fleiri stöðum í Þýskalandi
og er nú verið að athuga þau mál
nánar.
— En svo aftur sé vikið að
Norræna húsinu. Hversu lengi
verður sú sýning opin?
Hún stendur þessa klassísku 10
daga, er opin tvær helgar og í
vikunni þar á milli. Þetta er
auðvitað alltof stuttur tími. Ein-
hvern veginn hefur sú hefð komist
á hér á landi að málarar drekka
rauðvín og þykjast vera að hengja
upp myndir dögum saman, og svo
eru sýningarnar aðeins opnar
rúmlega viku. Ég hefi orðið að fá
verk á þessa sýningu frá Þýska-
landi og Frakklandi og það er
dálítið mikil fyrirhöfn, fyrir svona
fáa daga.
Erlendis standa sýningar yfir-
leitt yfir í mánuð eða svo, en ef
vikið væri frá rauðvínsreglunni,
gætu sýningar hér staðið í tvær
vikur, en kannski passar það ekki í
yfirvinnuþjóðfélaginu, þar sem
menn hafa ekki tíma fyrir
fegurðina nem um helgar.
Skólapistill frá Grétu á Reyðarfirði:
„Nú má ekki minnast á ”
Reyóarfirói 23. maí
GRUNNSKÓLA Reyðarfjarð-
ar var slitið laugardaginn 19.
maí s.l. í Félagsheimilinu. í
skólanum í vetur voru 155
nemendur í 10 bekkjum. 16
nemendur 9. bekkjar luku
grunnskólaprófi, 7 kennarar
voru í fullu starfi og 4 í hálfu
starfi. Sú breyting er nú orðin
hér við skólaslit að ekki er
minnst á hver hefur hlotið
beztu einkunn í skólanum, ekki
einu sinni við þá sem útskrif-
ast við skólann. Skólastarf var
með svipuðu sniði og undan-
farin ár. Þar sem skólahúsið er
orðið fullt of lítið þarf að
kenna á tveimur öðrum stöð-
um í bænum. 9. bekk var kennt
í Félagsheimilinu og verkleg
vélfræði hefur farið fram á
verkstæði rafveitunnar. Fé-
lagslíf var fjölbreytt í vetur,
haldið var dansnámskeið á
vegum skólans og einnig var
skíðanámskeið og hússtjórnar-
námskeið fyrir 7. og 8. bekk og
var það haldið á Hallormsstað.
Skólinn fékk heimsóknir í vet-
ur er tveir námsstjórar komu.
Vilhjálmur Einarsson skóla-
meistari á Egilsstöðum hélt
fræðslufund með nemendum
og foreldrum um framhalds-
menntun á Austurlandi. Einn-
ig komu erindrekar og héldu
fyrirlestra um skaðsemi
áfengis og tóbaks og slys af
völdum rafmagns. Handa-
vinna og teikning nemenda var
til sýnis í skólanum eftir
skólaslitin. Þar var margt
fallegt að sjá, sérstaklega
handavinna drengja en hana
kennir Marteinn Elíasson.
Sundnámskeið skólabarna
byrjar núna 28. maí, og er
haldið á Eskifirði, þar sem
íþróttahúsið hér er ennþá í
byggingu. Byrjað var á húsinu
haustið 1972, en í ræðu skóla-
stjóra við skólaslitin kom fram
að í sumar yrði unnið við
innréttingar á húsinu og vonir
standa til að hægt verði að
taka hluta af húsinu í notkun
næsta vetur. Öll leikfimis-
kennsla hefur farið fram í
félagsheimilinu undanfarin ár.
Þá má geta þess að Aðal-
steinn Eiríksson glímuþjálfari
færði skólanum að jyöf útskor-
inn hrók sem skákmeistari
grunnskóla Reyðarfjarðar
hlýtur ár hvert. Að þessu sinni
hlaut hann Georg Pálsson, 13
ára. Nemendur 9. bekkjar eru
nú í 7 daga skólaferðalagi og
ráðgert er skólaferðalag með 5.
og 6. bekk í sumar. Nú þegar
skólagöngu er lokið vantar
margan unglinginn vinnu, en
ekki lítur vel út í atvinnulífi
hér í sumar en verkfallið er
farið að setja strik í reikning-
inn með margs konar vöru-
skorti.
Mikill flautukonsert var hér
á mánudagskvöld þegar bif-
reiðaeigendur mótmæltu háu
benzínverði og keyrðu flestir
bíleigendur í einni röð um
allan bæinn og þeyttu bílflaut-
urnar í 2 mínútur..
—Gréta.
Útvarp Reykjavlk
L4UG4RD4GUR
26. maí.
MORGUNNINN
7.00 Veðuríregnir. Fréttir.
Tónleikar.
7.10 Leikfimi
7.20 Bæn
7.25 Ljósaskipti: Tónlistar-
þáttur f umsjá Guðmundar
Jónssonar pfanóleikara (end-
urtekinn frá sunnudags-
morgni).
8.00 Fréttir. Tónleikar. 8.15
Veðurfr. Forustugr. dagbi.
(útdr.) Dagskrá.
8.35 Morgunþulur kynnir ým-
is lög að eigin vali.
9.00 Fréttir. Tilkynningar.
Tónleikar.
9.20 Leikfimi.
9.30 Óskalög sjúkiinga: Ása
Finnsdóttir kynnir.
(10.00 Fréttir. 10.10 Veður-
fregnir.
11.20 Þetta erum við að gera
Valgerður Jónsdóttir aðstoð-
ar börn f Egilsstaðaskóla við
gerð þessa barnatfma.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar._________________
SÍÐDEGIO
12.20 Fréttir. 12.45 Veður-
fregnir. Tilkynningar. Tón-
leikar.
13.30 í vikulokin
Umsjón: Ólafur Geirsson. Árni
Johnsen. Edda Andrésdóttir og
Jón Björgvinsson.
15.30 Tónleikar
16.00 Fréttir
16.15 Veðurfregnir
16.20 Vinsælustu poppiögin.
Vignir Sveinsson kynnir.
17.00 Tannvernd barna
Þorgrfmur Jónsson trygg-
ingatanniæknir flytur sfðara
erindi sitt.
LAUGARDAGUR
26. maí
16.30 íþróttir
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
18.30 Ileiða
Áttundi þáttur.
Þýðandi Eirfkur Haralds-
son.
18.55 Enska knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.25 Augiýsingar og dag-
skrá
20.30 Stúlka á réttri leið
Bandarfskur gamanmynda-
flokkur.
Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
20.55 Dansandi börn
Tónlistar- og danshefð
Grúsfumanna er alkunn, og
þar er tónlist snar þáttur f
menntun barnanna.
í þessari mynd dansa
grúsfsk börn og flytja þjóð-
lega tónlist.
Þýðandi Hallveig Thor-
lacius.
21.55 Þúsund dagar önnu
Boleyn
(Anne of The Thousand
Days)
Bresk bfómynd frá árinu
1969.
Leikstjóri Charles Jarrott.
Aðalhlutverk Richard
Burton, Genevieve Bujold,
Irene Pappas, Anthony
Quayle og John Colicos.
Myndin er um hjónaband
Hinriks áttunda, Engiands-
konungs. og önnu Boieyn.
Þýðandi Jón Thor Haralds-
son.
00.15 Dagskrárlok
17.20 Tónhornið
UmsjóO. Guðrún Birna
Hannesdóttir.
17.45 Söngvar í léttum dúr.
Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
KVÖLDIÐ
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 „Góði dátinn Svejk“
Saga eftir Jaroslav Hasek f
þýðingu Karls ísfelds. Gfsli
Halldórsson leikari les (15).
20.00 Illjómplöturabb
Þorsteinn Ilannesson kynnir
sönglög og söngvara.
20.45 Einingar
Þáttur með blönduðu efni.
Umsjónarmenn: Kjartan
Árnason og Páll Á. Stefáns-
son.
21.20 Kvöldljóð
Tónlistarþáttur f umsjá
Helga Péturssonar og Ás-
geirs Tómassonar.
22.05 Kvöldsagan: „Gróðaveg-
urinn“ eftir Sigurð Róberts-
son
Gunnar Valdimarsson les
(17).
22.30 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins.
22.45 Danslög. (23.50 Fréttir).
01.00 Dagskrárlok.