Morgunblaðið - 01.06.1979, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979
3
Ekki orðið vart
minni bensínsölu
— segir forst jóri Olíufélagsins
„ÁSTANDIÐ í þjóðfálaiíinu er nú
þannig að samanburður er
óraunhæfur, en samt má senni-
lega segja að við höfum ekki
orðið varir við mikla minnkun á
benzínsölu,“ sagði Viihjálmur
Jónsson forstjóri Olfufélagsins
hf. aðspurður hvort olfufélögin
hefðu orðið vör við minni benzín-
sölu cftir síðustu hækkun.
Viihjálmur sagði að vegna verk-
Svavar Gestsson:
Rotterdam-
skráningin
til umræðu
ísumar
„ÉG tel fyrir mitt leyti, að
þessi Rotterdam-viðmiðun á
olfuverði sé okkur afar erfið,“
sagði Svavar Gestsson, við-
skiptaráðherra, f samtali við
Morgunblaðið f gær, „en vand-
inn er sá, að við óskuðum eftir
henni fyrir tiltölulega fáum
árum, er við tókum hana fram
yfir svokallaða Curacao-vísi-
tölu við olíuverðmyndun. Því
varð það fyrir okkar ósk að
þessi Rotterdamskráning var
tekin upp.“
Svavar sagði, að allar þjóðir,
sem keyptu unna olíu, yrðu að
una þessari Rotterdamvísitölu,
þar á meðal Svíar og fleiri.
„Aftur á móti hjá öðrum Vest-
ur-Evrópu-þjóðum er olíu-
skortur, en við höfum þó fengið
þá olíu, sem við höfum þarfn-
azt og enginn samdráttur hef-
ur orðið í olíu- eða bensínsölu.
Það hefur verið ætlunin að
taka upp þessa skráningu í
þeim viðræðum, sem fram
munu fara fyrir næsta olíu-
kauptímabil. Þær viðræður
munu fara fram nú í sumar,"
sagði Svavar Gestsson.
falla og að mörgu leyti óvenjulegs
ástands í þjóðfélaginu væri sam-
anburður erfiður og væri því ekki
hægt að segja nánar um það á
þessu stigi. Varðandi olíusölu til
skipa sagði hann að nokkur ásókn
væri í hana nú t.d. frá flutninga-
skipum, þau hefðu hingað til reynt
að fá olíu erlendis, þar sem hún
hefði verið ódýrari, en nú væri
dæmið að nokkru að snúast við. Þá
sagðist hann hafa fengið skeyti
frá erlendum útgerðaraðila þar
sem óskað var olíukaupa frá ís-
landi og sagði Vilhjálmur að sums
staðar erlendis fengju skip ekki þá
olíu sem þau þyrftu.
Bær Steinars bónda í Hlíðum undir Steinahiiðum er um þessar mundir í
sviðsljósinu þar sem í sumar fer fram taka kvikmyndar eftir sögu Halldórs
Laxness Paradísarheimt. Hefur bæ Steinars verið valinn staður í Hvalnesi
í Lóni, en þar þykir staðháttum svipa til lýsingar í sögunni. Myndina tók
Jens Mikaclsson fréttaritari Mbl. í Höfn, en starfsmenn eru nú að
undirbúa töku myndarinnar.
Blóma- og
grænmetis-
markaður í
Hveragerði
BLÓMA- og grænmetis-
markaður verður opnaður á
morgun. laugardag, í Félags-
heimiii Ölfusinga við Austur-
mörk í Hveragerði.
Það eru garðyrkjubændur í
Hveragerði sem standa að
markaðinum. Verður hann
opinn fyrst um sinn frá kl.
13—19 um helgar í sumar.
Reynt verður að hafa sem
fjölbreyttast úrval grænmetis
og blóma á boðstólunum.
Flugleiða-
þotan í
áætlunar-
flug á ný
DC-10 þota Flugleiða cr aftur
komin í reglulegt áætlunarflug
eftir skoðun þá sem framkvæmd
var að nýju á vélinni samkvæmt
beiðni bandarfskra flugmálayfir-
valda, er öllum DC-10 þotum
skráðum í Bandaríkjunum var
gert að fara f ftarlegri skoðun.
Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi
sagði að vélin hefði verið tilbúin
snemma í gærmorgun og henni
flogið til Luxemborgar kl. 10. Þaðan
hefði hún síðan flogið samkvæmt
reglulegri áætlun síðdegis í gær og
haldið áfram vestur um haf eftir
viðkomu í Keflavík. Ekkert athuga-
vert hafði fundizt við skoðunina og
var þotunni því leyft að taka upp
áætlunarferðir að nýju.
Seldu í Bretlandi
ÞRJÚ fslenzk skip hafa selt afla f
Bretlandi undanfarna daga.
Viðey RE seldi s.l. miðvikudag
167 tonn í Hull fyrir 59,2 milljónir
króna, meðalverð 355 krónur. í
gær seldi Vestri BA 61 tonn í Hull
fyrir 17 milljónir, meðalverð 277
krónur. Loks seldi Sæþór Árni VE
28 tonn í Fleetwood í gærmorgun
fyrir 10 milljónir króna, meðal-
verð 357 krónur.
seilingar. 7/7 dæmis er stutt
á vígaslóöir tveggja
heimsstyrjalda, Verdun og
Ardennafjöll.
Efþú feröast til Luxemborgar, þá
ferö þú í sumarfrí á eigin spýtur-
ræöur feröinni sjálfur-slakar á
Luxemborg, þessu litla landi sem og sleikir sólskiniö og skoöar þig
Luxemborg
Hvort heldur þú kýst ys og þys
stórborgarinnar eöa kyrrö og
friösæld sveitahéraöanna - þá
finnurþú hvort tveggja í
liggurí hjarta Evrópu.
Næstu nágrannar eru Frakkland,
Þýskaland og Belgía - og fjær
Holland, Sviss og Ítalía.
Því er þaö aö margir helstu
sögustaöir Evrópu eru innan
um á söguslóöum.
Sumarfrí í Luxemborg er hvort
tveggja ísenn einstæö skemmtun
og upplifun sögulegra atburöa.