Morgunblaðið - 01.06.1979, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979
15
Sigrún Jónsdóttir við eitt verka sinna.
Sýnir á Neskaupstað
SIGRÚN Jónsdóttir sýnir dagana 2. til 7. júní 30 olíumálaverk í
Félagsheimilinu Egilsbúð í Neskaupsstað. Þetta er önnur einkasýning
Sigrúnar en hin fyrri var í Vestmannaeyjum síðastliðið vor.
Athugasemd
frá landbúnaðarráðherra
Sverrir Hermannsson skrifar
enn um landbúnaðarmál í
Morgunblaðið 31. maí s.l. Kveður
nú við töluvert annan tón en í
fyrri grein hans.
Sverrir hefur það nú nokkurn-
veginn efnislega rétt eftir, sem
ég sagði í sjónvarpi 21. maí s.l.
í ríkisstjórninni náðist ekki
samstaða um ríkisábyrgð vegna
lántöku Framleiðsluráðs. Það er
kjarni málsins. Sverrir ætti
jafnframt að vita að stjórnar-
frumvörp eru aldrei flutt án þess
að ríkisstjórnin sem heild standi
að baki. Því var mér ekki heimilt
fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að
flytja slíka tillögu. Þetta hlýtur
hvert mannsbarn að skilja.
Einstökum þingmönnum var
hins vegar að sjálfsögðu frjálst
að flytja tillögu um ríkisábyrgð,
ekki síst landbúnaðarnefnd. Og
það gerði nefndin. Þar fengu
allir þingflokkar að fjalla um
málið. Tillagan hlaut stuðning
allra í nefndinni m.a. tveggja
fulltrúa Sjálfstæðisflokksins
þar.
Mikill meirihluti sjálf-
stæðismanna hlýddi hins vegar
Sighvati Björgvinssyni og hljóp
út. Seint hefði ég trúað því að
Sverrir Hemannsson færi að
skipun Sighvats.
Velkomið er að fá útskrift af
umræddum þætti í sjónvarpi. Ég
vil þó ráðleggja Sverri
Hermannssyni að fara fremur
eftir eigin dómgreind en orðum
Sighvats Björgvinssonar.
Steingrímur Hermannsson.
Raðstefna á Sauðárkróki
um skóla- os
Sauðárkróki, 30. maí.
STJÓRN kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi vestra hefur ákveðið að boða
til ráðstefnu á Sauðárkróki laugar-
daginn 9. júní um framfaramál
kjördæmisins. Ráðstefnan verður
haldin í Sæborg og hefst kl. 10
árdegis.
Til ráðstefnunnar eru boðaðir
sérstaklega fulltrúar Sjálfstæðis-
flokksins í sveitarstjórnum, en ráð-
stefnan er að öðru leyti opin öllum
áhugamönnum. Fyrirhugað er að
ræða einkum skólamál og vegamál
og munu þir Sveinn Kjartansson
vegamál
fræðslustjóri og Jónas Snæbjörns-
son umdæmisverkfræðingur flytja
framsöguerindi um þá málaflokka.
Auk þeirra mun Birgir ísi.
Gunnarsson fyrrv. borgarstjóri
ávarpa ráðstefnugesti.
Ráðstefna af þessu tagi hefur ekki
verið haldin hér áður og kvaðst
formaður kjördæmisráðs, Jón Ás-
bergsson á Sauðárkróki vænta þess
að hún gæti reynst góður vettvang-
ur fyrir sveitarstjórnarmenn
flokksins og aðra þátttakendur til
að ráða ráðum sínum, fræðast og
kynnast innbyrðis. K . .
Örn Ingi Sýnir á Akureyri
ÖRN Ingi opnar málverkasýningu
í Iðnskólanum á Akureyri 1. júní
og stendur hún til 10. júnf. Hún
verður opin daglega frá kl. 15—22
nema fyrsta daginn kl. 21—23.
Á sýningunni eru 59 verk, akryl-
málverk, vatnslitamyndir, olíu-
myndir, pastelmyndir og trémunir.
Þetta er fjórða einkasýning málar-
ans.
Á sýningunni 4. júní verða tón-
leikar. Flytjendur eru kennarar
tónlistarskólans og söngkonan Guð-
rún Kristjánsdóttir. Flutt verða
verk ýmissa höfunda og nýtt verk
eftir Marks Trith, samið undir
innblæstri frá myndunum.
LITSJONVORP
GREIÐSLUKJÖR
sem gera yöur kleift að velja vandaö
Utborgun Eftirstödvar
20% 2 mán. vaxtalaust
30% 3 mán. vaxtalaust
35%—90% 3 mán. vaxtalaust
35%—90% 4—6 mán. meö
vöxtum
100% Staögr.afsl. 5%
BUÐIN
ki AMkasumor 79
BANKASTRÆTI 7 & AÐALSTRÆTI4
í ár er Melkasumar í Herrahúsinu
Því flöggum við geysilegu úrvali af
léttum og þægilegum sumarfatnaði
frá Melka.
M.a. blússum, buxum, stuttbuxum,
skyrtum, stutterma skyrtum I
o.m.fl. Allt sómaklæði enda frá /
Melka komin. /
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 7.85