Morgunblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 32
AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 JWoreimfclflöiíi AUGLÝSINGASÍMINN ER: 22480 iBorflimliIa&ilí FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979 Byggir S.H. verk- smiðiu í Bretlandi? Fyrsta ferðahclgi sumars- ins er framundan og hugsa sér eflaust margir til hreyf- ings. Að venju bjóða ferða- félögin upp á ýmsa mögulcika, lengri og styttri gönguferðir, og kjósa aðrir sjálfsagt að nota aðrar leiðir, t.d. flugið. Ljónm. KrÍHtján. AÐALFUNDUR Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna hófst í Reykjavík í gær. Meðal tillagna, sem lagðar voru fyrir fundinn í gær af ncfnd, skipaðri af stjórn SH, var tiliaga um stóraukna starfsemi SH á brezkum markaði, m.a. með byggingu eða kaupum á frystigeymslum og stóreflingu sölu- og markaðskerfis. Er talið að sölumöguleikar í Brctlandi hafi stóraukist og þar megi byggja upp sölukerfi með hliðsjón af sölukerfi Coldwater í Bandaríkjunum og jafnframt athuga möguleika á verksmiðjurekstri þar í framtíðinni. í ræðu, sem Gunnar Guðjónsson stjórnarformaður SH, flutti á fundinum í gær vék hann að þessu máli og sagði. „Hins vegar hafa orðið straumhvörf á síðustu tveimur árum í sölum okkar til Bretlands. Árið- 1976 var útflutn- ingur SH þangað 2.577 smálestir, en á s.l. ári var hann kominn í 11.468 smálestir. Að undanförnu hefur Ólafur Guðmundsson fram- kvæmdarstjóri okkar í London margundirstrikað skoðun sína um stóraukna sölumöguleika á Bret- landi og nauðsyn þess að bæta söluaðstöðu SH þar.“ Aðalfundur SH er haldinn á Hótel Sögu. Hann hófst í gær með því að Eyjólfur ísfeld E.vjólfsson framkvæmdastjóri SH gerði grein fyrir tillögum nefndar þeirrar sem áður er getið, sem hafði það verkefni að fjalla um framtíðar- áform SH og eflingu frystiiðnað- arins. Ein af tillögum nefndarinn- ar gerir ráð fyrir stofnun sérstaks fjárfestingarfélags til eflingar frystihúsunum. I nefndinni áttu sæti auk Eyjólfs þeir Jón Páll Halldórsson, Isafirði, Guðmundur Karlsson, Vestmannaeyjum, Knútur Karlsson, Grenivík, ÓLaf- ur Gunnarsson, Neskaupstað, og Guðmundur H. Garðarsson, Reykjavík. Þvínæst flutti Gunnar Guðjóns- son skýrslu stjórnar og kom m.a. fram í ræðu hans að útflutningur SH í fyrra var 85.008 smálestir að verðmæti 44.888 milljónir króna. Starfsemi SH í það heila gekk vel Eyjólfur ísfeld fjallaði um reikninga og fjármál en þvínæst fjölluðu Þorsteinn Gíslason for- stjóri og framkvæmdastjórarnir Árni Finnbjörnsson og Ólafur Guðmundsson um markaðs- og sölumál. Fundur hefst að nýju klukkan 14 í dag og fjallar Hjalti Einarsson framkvæmdastjóri þá um framleiðslumál. Framkomnum tillögum var í gær vísað til nefnda. Fundarstjóri er Jón Páll Halldórsson. Sjá ræðu Gunnars Guðjónsson- ar á bls 17. Dómur í handtökumálinu: Hlaut 9 mánaða fangelsi fyrir ólöglega handtöku DÓMUR var kveðinn upp í gær í handtökumálinu svokallaða. Ilaukur Guðmundsson fyrrverandi rannsóknarlögrcKÍumaður í Keflavík var fundinn sekur um að hafa undirbúið og stjórnað ólöglegri handtöku á þeim Karli Guðmundssyni og Guðbjarti Pálssyni í Vogum 6. desember 1976 og hlaut hann 9 mánaða fang- elsi. Ólafur St. Sigurðsson setudómari kvað upp dóminn. Auk Hauks hlutu fimm aðrir dóm vegna hinnar ólögmætu handtöku. Viðar Á. Olsen fyrrver- andi fulltrúi lögreglustjórans í Keflavík var fundinn sekur um að hafa gefið rangan framburð fyrir dómi og að hafa staðfest fram- burðinn með drengskaparheiti. Hlaut hann 3 mánaða fangelsi. „Huldmeyjarnar“ tvær, sem mjög komu við sögu málsins hlutu 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þær voru fundnar sekar um að hafa aðstoðaö Hauk við hina ólöglegu handtöku með því að koma fyrir áfengi í bifreið Guðbjarts, og Karls og lokka þá síðan í Voga, þar sem þeir voru handteknir. Þá var fyrrverandi lögreglu- maður í Keflavík fundinn sekur um að gefa ranga skýrslu fyrir sakadómi og hlaut hann 2 mánaða skilorðsbundið fangelsi og loks var frestað ákvörðun refsingar konu einnar í Keflavík, sem útvegað hafði annarri huldumeynni falskt fjarvistarvottorð. Sjá „Sex manns hlutu dóma ...“ á bls. 16. SEÐLABANKINN AUGLÝSIR: Eftirstöðvar fast- eignaverðs verðtryggðar Greidd verðtrygging af lánum frádráttarbaer til skatts í LÁNSSAMNINGUM milli aðila, vcrður nú heimilt að hafa verðtryggingarákvæði og verður unnt að velja á milli tveggja aðferða, segir í fréttatilkynningu Irá Scðlabanka íslands. sem geíin var út í gær. í fyrsta lagi verður heimilt að veita lán í formi skuldabréfa gegn fullri verðtryggingu, þar sem miðað sé við brcytingar lánskjaravísitölu. Vextir slíkra lána mega vcra allt að 2%, brcytilegir samkvæmt ákvörðun Seðlabankans. Lán af þcssu tagi skulu vera með veði í fastcignum eða öðrum varanlegum fjármunum og skuldabréfin ávallt skráð á nafn, og lánstími skal ekki vera skcmmri en 4 ár. í öðru lagi er hcimilt að áskilja að vcrðbótaþáttur vaxta lcggist við höfuðstól lánsins og greiðist á sama hátt og höfuðstóllinn. I fréttatilkynningu Seðlabankans segir: „Þess má vænta, að heimild til verðtryggingar lánssamninga í við- skiptum einkaaöila hafi margháttuð áhrif. í sambandi við kaupsamninga, t.d. vegna sölu fasteigna, skapar verðtryggingin grundvöll fyrir lengri lánstíma og jafnara raungildi greiðslna en tíðkast hefur að undan- förnu. Verði henni almennt beitt má auk þess búast viö að hún hafi áhrif á útborganir og kaupverð fasteigna, sem lánað er að hluta, þar sem hingað til hefur óhjákvæmilega orðið að reikna með verulegri virðis- rýrnun hins lánaða hluta.“ Þannig lauk fréttatilkynningu bankans, en áður hafði verið frá því skýrt, að hann reikni mánaðarlega iánskjaravísitölu, sem notuð verði sem viðmiðun verðtryggingar láns- fjár. Vísitaian er sett 100,0 hinn 1. júní 1979 og er samsett að % hlutum vísitölu framfærsiukostnaðar og 'h hluta byggingarvísitölu. Um láns- kjör lifeyrissjóða og fjárfestinga- sjóða segir að farið verði samkvæmt sérstökum lögum, en Seðlabankinn muni beita sér fyrir verðtryggingu nýrra lána sjóðanna, svo og verð- tryggingarákvæði nýrra spari- skírteina ríkissjóðs, miðist við láns- kjaravísitölu. , „Nýja olíuhækkimín breytir alveg stöðunni” segir oddamaður yfimefndar um fiskverðið „ÞESSI viðbótarolíuhækkun, sem hefur verið að koma fram undan- farna daga breytir alveg stöðu málsins,“ sagði Jón Sigurðsson oddamaður yfirnefndar Verðlagsráðs sjávarútvegsins, aðspurður um hvað liði ákvörðun fiskverðs, sem á að taka gildi 1. júní. „Vandinn er meiri og stærri en menn héldu. Það verðtímabil sem nú er að hefjast gildir til septem- berloka ef að líkum lætur og nýja olíuhækkunin mun því koma á verðtímabilinu og það þarf því að vanda við fiskverðs- núna,“ sagði Jón leysa þann ákvörðuna Sigurðsson. Fundur var haldinn í yfirnefnd- inni í gær en hann var stuttur. Kvaðst Jón Sigurðsson e.kki vænta tíðinda af fiskverðsákvörðun fyrr en í næstu viku. Morgunblaðið bar þessar reglur undir Ragnar Tómasson, lögfræðing og eiganda Fasteignaþjónustunnar. Hann kvaðst undrast það mjög að Seðlabankinn setti slíkar reglur um fasteignaviðskipti án þess að nokkur umræða færi fram um það áður. Sér virtist sem þessar reglur kæmu eignamönnum, sem vildu bæta lausafjárstöðu sína 'og selja fast- eignir, mjög vel. Hins vegar væru reglurnar mjög óhagstæðar ungu efnalitlu fóiki, sem væri að byrja á því að fjárfesta í fasteign. Sú stað- hæfing Seðlabankans um að reglurn- ar stuðluðu að lægra íbúðarverði kvað hann hreint fáránlegar, því að á meðan verð fasteigna á markaði væri lægra en opinbert mat aðila á eignum, brunabótamat, væri fáran- legt að ætla að þær iækkuðu verðið. Brunabótamat væri þaö matsverð, sem kosta ætti mann að reisa hús í nákvæmlega sömu mynd og það var fyrir eyöileggingu. Þá sagðist Ragn- ar óttast mjög þessar reglur og hefði hann talið heppilegra að lágmarks- lánstimi væri ekki 4 ár eins og segði í tilkynningu Seðlabankans, heldur sá lágmarkstími, sem gilti á fast- eignamarkaöinum og væri nú 6 ár. Þá hafði Morgunblaðið í gær' samband við Ævar ísberg vararíkis- skattstjóra og spurðist fyrir um það, hvort verðbótaþáttur vaxta væri frádráttarbær sem vextirnir. Hann sagði að skattalögin töluðu um vexti og verðbætur. Ef sama merking væri í því og verðbótaþætti vaxta, þá kvað hann þetta frádráttarbært sam- kvæmt núgildandi lögum. Mjólkíbúð- imarídag — VIÐ dreiíum mjólk í verzlanir á morgun svona eins og við komumst yfir með góðu móti og viðsemjendur okkar geta sætt sig við, sagði Guðlaugur Björgvinsson for- stjóri Mjólkursamsölunnar í gær. Ekki bjóst hann við sátta- fundi í dag, en kvað stjórn Mjólkursamsölunnar hafa rætt málin og talið stöðuna erfiða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.