Morgunblaðið - 01.06.1979, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 01.06.1979, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ1979 13 Sissy Spacek og Shelley Duvall fara með tvö aðalhlutverkin í „Þrjár konur“. Hvítasunnumynd Nýja bíós: Verðlaunamynd frá kvik- myndahátiðinni í Cannes 77 Ferðir um hvítasunnuna: Útískemmtun að Kolviðariióli— hópferðir í Þórsmörk og víðar HVÍTASUNNUMYND Nýja bíós verður bandaríska kvikmyndin „Þrjár konur“ (3 Women). Höf- undur handrits, framleiðandi og leikstjóri er Robert Altman en tónlistin er eftir Gerald Busby. Með aðalhlutverkin í myndinni fara Shelly Duval, Sissi Spacek og Janice Rule. „Þrjár konur" er sjötta myndin sem Shelly Duval leikur í, undir stjórn Roberts Altmans. Þar á meðal eru kvikmyndirnar M-A-S-H og „Nashville". „Þrjár konur" greinir frá sambandi tveggja stúlkna sem starfa á hressingarheimili fyrir eldra fólk en er líður á myndina kemur Rætt um frekari aðgerðir á f é- lagsfundi FÍB Félag fsl. bifreiðaeigenda gengst næstkomandi miðviku- dagskvöld fyrir almennum félagsfundi að Hótel Borg í Reykjavík og hefst hann kl. 20.30. Fundarefnið er áframhald- andi aðgerðir félagsins til að mótmæla benzínverði. Að sögn Sveins Oddgeirssonar framkvæmdastjóra félagsins verða frummælendur þeir Hörður Einarsson ritstjóri og Sveinn Torfi Sveinsson og munu þeir fjalla um hvert eigi að vera næsta skref félagsins í mótmæla- aðgerðum og verða síðan umræður um málið. Sveinn kvað þennan fund eiginlega eiga að vera eins konar hugmyndabanka og yrði reynt að ákveða á honum hvað gera skuli. þriðja stúlkan til sögunnar. Sögu- þráðurinn er byggður upp á draumi og er harin því nokkuð flókinn og samband stúlknanna er breytilegt. Shelly Duvall var kjörin besta leikkonan fyrir leik sinn í „Þrjár konur" á kvikmyndahátíðinni í Cannes 1977. FÖSTUDAGINN 1. júní opna þrír finnskir listamenn málverkasýn- ingu í Eden í Hveragerði. Listmál- ararnir eru Elína 0. Sandström, Juhani Taivaljarvi og Liisa Urholin-Taivaljarvi. Sýna þeir um 100 olíumálverk, landslags- og blómamyndir. Frú Sandström hefur haldið fjöl- margar sýningar hér á landi og er þetta í fimmta skiptið sem hún sýnir í Eden. Sækir hún fyrirmynd- ir sínar til náttúrunnar en einnig HVÍTASUNNAN virðist ekki hafa verið eins mikil ferða- mannahelgi hérlendis nú sfðustu tvö til þrjú árin eins og áður var. E.t.v. er ástæðan sú, að hvíta- sunnan hefur verið fremur snemma á ferðinni og skólum vart lokið. Aðeins er vitað um eina skipu- lagða útiskemmtun nú um hvíta- sunnuna. Reiknað er með, að á vegum ferðafélaga og hópa verði a.m.k. tvö hundruð manns f Þórs- mörk, einnig er nokkur þátttaka í aðrar skipulagðar innanlands- ferðir. Ungmennafélag Hveragerðis og Ölfus gengst fyrir hvítasunnu- hátíð að Kolviðarhóli um helgina. Hátíðin hefst á föstudagskvöldið og lýkur á mánudagskvöld. Verða þar ýmis skemmtiatriði og leikið fyrir dansi. Samkvæmt upplýsing- um frá Bifreiðastöð íslands er óljóst, hver þátttakan verður á hátíðinni frá höfuðborgarsvæðinu, en þeir eru viðbúnir að fara a.m.k. þrjár sætaferðir þangað á dag. Reiknað er með að mest verði um ungt fólk á útihátíðinni. Nokkuð má nefna að gömul hús í vestur- bænum eru meðal viðfangsefna hennar að þessu sinni. Juhani Taivaljarvi er íslending- um einnig að góðu kunnur, en hann sýndi meðal annars hér i Norræna húsinu árið 1971. Kona Juhani, Liisa, sýnir hér í fjórða sinn, en hún á um 20 blómamyndir á sýningunni. Málverkasýningin verður sem fyrr segir í Eden í Hveragerði og hefst föstudagskvöld kl. 20 og stendur yfir til 10. júní. er um pantanir á hópferðarbif- reiðum hjá B.S.I. fyrir starfs- mannafélög og aðra hópa, er leggja munu leið sína í Þórsmörk, Borgarfjörð og fleiri staði. Ferðafélag Islands er með þrjár lengri ferðir um helgina. Farið verður í Þórsmörk á föstudags- kvöld og verið fram á mánudag. í þá ferð höfðu látið skrá sig laust eftir hádegið í gær um 100 manns. Einnig verður farið í ferð til Kirkjubæjarklausturs — Skafta- fell og ónnur ferð verður á Snæ- fellsnes. Ferðafélagið er einnig með þrjár dagsferðir. Á hvíta- sunnudag er ferð í Straumsvík og Straumssel, er það róleg göngu- ferð. Annan í hvítasunnu verður farið í tvær ferðir. Annars vegar á Kambabrún — Núpahnjúk — Ölf- us, sem er ný gönguleið og hins vegar Esjuganga. Hjá Útivist fengust þær upplýs- ingar að farið yrði í þrjár lengri ferðir, þ.e. í Húsafell og Snæfells- nes og einnig í Þórsmörk. Lagt er upp í allar þessar ferðir á föstu- dagskvöld og komið til baka á mánudag. Þegar höfðu í gær látið skrá sig um 70 manns á Snæfells- nes, 55 í Húsafell en færra í Þórsmörk. Þar verða einnig farnar þrjár dagferðir. Á laugardeginum Lambafell — Leiti, gönguferð, á hvítasunnudag Staðarborg — Flökkuvík, og á annan í hvíta- sunnu verður gengið á Esju. Farfuglar verða einnig með skipulagða ferð inn í Þórsmörk og höfðu u.þ.b. 30 manns látið skrá sig í eftirmiðdag í gær. Á ferðaskrifstofunum fengust þær upplýsingar, að nú þegar væru sumarferðir til sólarlanda í fullum gangi. Nokkrir hópar hafa lagt upp í síðustu viku og aðrir eru á förum. Þátttaka virðist góð, en þó ber nokkuð meira á því nú en áður, að fólk ferðist á eigin vegum með aðstoð ferðaskrifstofanna í stað þess að fara í svonefndar „pakkaferðir". Flestir fá m jólk en enginn nógumikla — VIÐ fengum fyrstu mjólkur- sendinguna kl. hálftólf í morgun, en síðan höfum við fengið tvær smásendingar, þannig að þetta hefur alltaf slitnað sundur hjá okkur, sagði Jóhannes Jónsson verzlunarstjóri i verzlun Slátur- félags Suðurlands í Austurveri í samtali við Mbl. í gær. Jóhannes sagði að talað hefði verið um að næg mjólk yrði á boðstólum, en hjá þeim hefðu verið skammtaðir 2 1 af mjólk og 1 af súrmjólk, en hann sagðist ekki vita hvernig yrði með mjólk í dag. — Flestar verzlanir hafa fengið nokkra mjólk í dag, eftir því sem ég hefi kynnt mér, sagði Jóhannes, en enginn haft nóg og hefur fólk flest tekið því vel. — Hins vegar er allt vitlaust í lambakjötinu og fólk hefur í dag verið að birgja sig upp þannig að við höfum ekki haft undan við að afgreiða, það hefur vaxið síðustu daga og verið mest í dag, sagði Jóhannes að lokum. Finnar sýna í Eden NÚ ER SÓL 0G HITI í P0RT0R0Z 0G P0REC Austurstræti 17, símar 26611 og 20100. Beztu gististaöirnir 1. flokks hótel meö öllum þægindum 3. júní — uppselt 24. júní laus sæti. Hagstæðir greiðsluskilmánar. Patnið tímanlega. úgóslavía

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.