Morgunblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ1979
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjórn og skrifstofur
Auglýsingar
Afgreiösla
hf. Árvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Þorbjörn Guómundsson.
Björn Jóhannsson.
Baldvin Jónsson
Aöalstræti 6, sími 10100.
Aöalstræti 6, sími 22480.
Sími 83033
Áskriftargjald 3000.00 kr. á ménuöi innanlands.
I lausasölu 150 kr. eintakið.
í klóm okrara
Verðþróun á olíu hefur haft alvarleg áhrif á þjóðarbúskap
okkar, viðskiptajöfnuð, rekstrarstöðu sjávarútvegs og
fjárhagsafkomu heimila, bæði vegna húshitunar með olíu og
rekstrar fjölskyldubifreiða. Olíuinnflutningur nam um 10% af
heildarinnflutningi okkar 1978 og innflutningsverð á benzíni
og olíum er nú tvö til þrefalt hærra en meðalskráningarverð á
sl. ári.
Sú staðreynd blasir við, að ísland er háð viðskiptasamningi
með olíuverðmiðun við Rotterdammarkað. Verð OPEC-ríkja á
olíuvörum, sem flestar aðrar þjóðir sæta, hefur verið og er
verulega lægra, sem að sjálfsögu þýðir, að verðþróun á
olíuvörum hefur komið ver við okkur en aðrar þjóðir. Þessi
verðviðmiðun hefur orðið til þess, að við höfum mátt sæta mun
hærra verði hjá Sovétmönnum, sem selja okkur meginhluta
olíuinnflutningsins, en greitt er fyrir sömu vöru frá öðrum
olíuframleiðsluríkjum. Þetta sovétokur á olíu kemur t.d. fram í
því, að innkaupsverð okkar á benzíni frá Sovétríkjunum er
hærra en smásöluverð á benzíni í Bandaríkjunum.
Geir Hallgrímsson, formaður Sjálfstæðisflokksins benti á
það þegar í vetur í umræðu á Alþingi, að brýna nauðsyn bæri
til að óska eftir viðræðum við Sovétmenn um aðra
verðviðmiðun olíu en Rotterdam. Ríkisstjórn, og þá sér í lagi
viðskiptaráðherra og utanríkisráðherra, bar skylda til, þegar
verðþróun á olíu lá ljós fyrir, að bregðast við vandanum með
þeim hætti. Hagsmunir heilla atvinnugreina og hvers heimilis
í landinu kröfðust slíkra viðbragða. Þetta var því miður ekki
gert. Hugur ráðherra var bundinn við, að krónutala ríkisskatta
í olíu- og benzínverði hækkaði samstiga hinu erlenda olíuokri,
svo íslenzka heimsmetið í verðsköttun á benzíni stæði áfram.
Ríkisstjórnin, sem gæta átti hagsmuna þjóðarinnar í
milliríkjasamningum af þessu tagi, hefur ekki brugðizt rétt við
breyttum aðstæðum.
Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, segir í viðtali við
Morgunblaöið í gær, aðspurður um verð á gasolíu sem lestuð
var í Sovétríkjunum fyrir skömmu: „Þetta verð er svo
hrikalegt að það fyrirfinnst enginn kaupandi að olíufarminum,
sem er á leiðinni hingað.“ Hann sagði ennfremur: „Við höfum
verið að borga Rússum verð sem er langt fyrir ofan
heimsmarkaðsverð í marga mánuði og ríkisstjórnin hefur
hvorki hreyft legg né lið til þess að fá þessu breytt.“
Hér kemur Kristján Ragnarsson að merg málsins, sem Geir
Hallgrímsson gerði að umræðuefni á Alþingi þegar á miðjum
vetri, sem sé, að breyttar aðstæður krefjast nýrra samninga
við Sovétríkin um verðviðmiðun á olíuvörum. Svavar Gestsson,
viðskiptaráðherra, hefur verið undarlega staður í þessu máli.
Ekki leikur vafi á því að viðskiptakjararýrnun þjóðarinnar á
þessu ári, sem talin var að myndi nema allt að 8% áður en
síðasta verðsprenging á olíuvörum kom, á ekki sízt rætur í
verðþróun á olíu og Rotterdamviðmiðun. 8% rýrnun
viðskiptakjara þýðir 2,5% rýrnun á ráðstöfunarfé þjóðarinnar.
Nú þykir sýnt að þessi þróun verði enn óhagstæðari. Ekki bólar
þó á viðbrögðum viðskiptaráðherra, eða ríkisstjórnarinnar í
heild, til að taka þessi mál upp við Sovétmenn á þeirri
sjálfsögðu réttlætisforsendu, að Islendingar fái að sitja við
svipað borð um olíuverð og viðskiptaþjóðir OPEC-ríkja. Það
dugar ekki fyrir viðskiptaráðherra að segja áð um þetta verði
rætt við Sovétmenn í viðræðum í sumar. Það átti að gera strax
í vetur.
Hver útgerð í landinu, hver húseigandi, sem kyndir með olíu,
hver bifreiðaeigandi, já hver þjóðfélagsþegn verður var við
keðjuhækkanir á olíuvörum, sem m.a. eiga rætur í viðskipta-
samningi við Sovétríkin. Samningi, sem kann að hafa verið
góðra gjalda verður þá gerður var, en er fyrir löngu úr öllu
samhengi við breyttar aðstæður. Sovétríkin koma nú fram
gagnvart okkur í gerfi okrara. Við sætum mun verri
viðskiptakjörum en nokkur önnur Evrópuþjóð. Viðskipta-
ráðherra er upptekinn við heimiliserjur í stjórnarráðinu. Hann
má ekki vera að því að gæta hagsmuna þjóðarinnar gagnvart
umheiminum. Naumast stafar aðgerðarleysi hans af þjónkun
við hinn erlenda olíusala. En sjaldan hefur ráðherra brugðizt
jafn heiftarlega í jafn stóru hagsmunamáli jafn margra
þjóðfélagsþegna og viðskiptaráðherra í þessu olíumáli. Og ekki
bætir úr skák, að hann bítur höfuðið af skömminni með því að
fjölga skattkrónum ríkisins ofan á hið háa innflutningsverð,
væntanlega til að „viðhalda kaupmætti“ launa í landinu.
Samkeppni um teikningu
kirkju fyrir Selt jamames
SÓKNARNEFND Seltjarnarnessóknar cfnir til samkeppni um uppdrætti að kirkju fyrir sóknina á lóð
norðvestan við Mýrarhúsaskólann eldri. Kirkjuskipið skal rúma 250 kirkjugesti í sæti, en gert er ráð fyrir
fundarsal er rúmi 150 manns í tengslum við kirkjuskipið, þannig að opna megi á milli við fjölmennar
athafnir.
Verðlaunafé er samtals 3,1 milljónir, þar af eru fyrstu verðlaun ekki lægri en 1,5 milljón. Auk þess heíur
dómnefnd heimild til að kaupa tillögur íyrir allt að 500 þúsund krónum.
Seltjarnarnes hefur verið sér-
stakt prestakall síðan 1963, en það
var ekki fyrr en 1974 að Seltjarn-
arnessókn var stofnuð og síðan
hefur verið þar sjálfstætt safnað-
arstarf. Söfnuðurinn hefur ekki
eigin prest en prestar Neskirkju
þjóna honum. A aðalsafnaðar-
fundi í október 1978 voru sam-
þykkt tilmæli til kirkjumálaráð-
herra að hann hlutist til um að á
fjárlögum fyrir árið 1979 yrði gert
ráð fyrir prestsembætti á Sel-
tjarnarnesi. Engin kirkjubygging
er á staðnum og hefur því verið
notast við félagsheimilið f.vrir
kirkjulega starfsemi.
Tillögum skal skila til trúnað-
armanns dómnefndar Ólafs Jenss-
onar í Byggingarþjónustunni á
Grensásvegi 11 í síðasta lagi 17.
október 1979. Þar fá væntanlegir
keppendur öll keppnisgögn en rétt
til þátttöku hafa þeir sem uppfylla
ákvæði byggingarlaga.
Dómnefndina skipa: Kristín
Friðbjarnardóttir, félagsmála-
fulltrúi.formaður, séra Ólafur
Skúlason, dómprófastur, Þórður
Búason, verkfræðingur, Guðm-
undur Kr. Kristinsson, arkitekt og
Haukur A. Viktorsson, arkitekt.
Byggingarreitur hinnar fyrirhuguðu kirkju á Seltjarnarnesi, horft frá suð-vestri.
6 manns hlutu dóm
í handtökumálinu
DÓMUR var í gær kveðinn upp í dómþingi sakadóms Gullbringusýslu í handtökumálinu svokallaða. Varð
niðurstaðan sú að Haukur Guðmundsson fyrrverandi lögrcgiumaður í Keflavík var dæmdur í 9 mánaða
fangelsi. Viðar Á. Olsen fyrrverandi dómarafulltrúi í Kcflavík var dæmdur í 3 mánaða fangelsi,
„huldumeyjarnar" tvær og fyrrverandi lögreglumaður úr Keflavík hlutu 2 mánaða skilorðsbundið íangelsi
en frestað var ákvörðun rcfsingar í máli konu í Keflavík, sem útvegað hafði annarri huldumcyjunni falskt
íjarvistarvottorð. Loks var Ilaukur Guðmundsson dæmdur til þess að grciða lögmanni sínum 350 þúsund
krónur í réttargæzlu- og málsvarnarlaun og sakarkostnað krónur 450 þúsund að tveimur þriðju hlutum
eða samtals 650 þúsund krónur. Ólafur Stefán Sigurðsson héraðsdómari í Kópavogi kvað upp dóminn, en
hann var sctudómari í málinu.
Hauki Guðmundss.vni var gefið
að sök að hafa sem rannsóknar-
lögregluniaður undirbúið og
stjórnað ólöglegri handtöku á
þeim Karli Guðmundssyni og
Guðbjarti Pálssyni síðdegis mánu-
daginn 6. desember 1976 í Vogum
á Vatnsleysuströnd og hafa fyrr
um daginn látið koma fyrir á laun
í farangursgeymslu bifreiðar
Guðbjarts ferðatösku, sem inni-
hélt tvær flöskur af ótolluðu
vodka- áfengi og einn kassa af
áfengum bjór. Naut Haukur til
þessa verknaðar aðstoðar huldu-
me.vjanna tveggja, sem komu
ferðatöskunni fyrir í bifreið
Guðbjarts og lokkuðu síðan
Guðbjart og Karl undir fölsku
yfirskini til þess að aka þeim til
Grindavíkur, með viðkomu í Vog-
um, þar sem þær yfirgáfu bifreið-
ina samkvæmt fyrirfram gerðri
áætiun Hauks, samtímis því sem
hann sendi lögreglumenn til þess
að handtaka þá félaga Guðbjart
og Karl fyrir grun um áfengis- og
tolllagabrot, eins og segir í dómn-
um.
Huldumeyjunum tveimur er
gefið að sök að hafa gerst
hlutdeildarmenn í broti Hauks
með þvi að aðstoða hann við hina
ólögmætu handtöku.
Viðari Ásmundssyni Olsen er
gefið að sök að hafa sem vitni
fyrir sakadómi Hafnarfjarðar
borið ranglega og staðfest fram-
burðinn með drengskaparheiti, að
ekki hafi aðrir en hann verið
farþegar í bifreið Hauks frá
Keflavík til Re.vkjavíkur 6. des-
ember 1976, og þannig leynt því að
huldumeyjarnar margnefndu voru
þar farþegar einnig og á leið til
stefnumótsins við þá Guðbjart og
Karl.
Lögreglumanninum í Keflavík,
sem áður er minnst á, er gefið að
sök að hafa við skýrslugjöf fyrir
sakadómi Hafnarfjarðar vísvit-
andi rangfært framburð sinn með
því að leyna því að hafa séð
huldumeyjarnar í bifreið Hauks í
Vogunum, þar sem hann tók þátt í
hinni umdeildu handtöku.
Loks var konu, sem vann með
annarri huldumeyjunni við ræst-
ingar í Gagnfræðaskóla Keflavík-
ur, gefið að sök að hafa vottað
ranglega að hafa verið með henni
viö störf síðdegis daginn sem
handtakan var framkvæmd.
Taldi dómarinn að þau þrjú,
sem síðast er á minnst hafi með
háttsemi sinni torveldað mjög
rannsókn málsins.
I þeim tilfellum, þar sem
ákærðu hlutu skilorðsbundna
dóma, skal fullnusta dómsins
niður falla að liðnum þremur
árum, verði almennt skilorð
haldið. í máli síðastnefndu kon-
unnar skal ákvörðun refsingar
falla niður eftir þrjú ár, hafi hún
haldið almennt skilorð.
Sýningu Eddu lýkur í kvöld
SÍÐASTI sýningardagur á teikningum, ljósmyndum og skúlptúr Eddu
Jónsdóttur í Galleri Suðurgata 7 er í dag, föstudag. Lýkur sýningunni
kl. 10 í kvöld.
Á sýningunni eru 20 verk og hefur aðsókn verið mjög góð.