Morgunblaðið - 01.06.1979, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979
19
Hvað geta böm og unglingar
gert í sumar?
Sund-, íþrótta- og
leikjanámskeið
Sund-, íþrótta- og leikjanám-
keið verða haldin í sumar fyrir
börn og unglinga.
Sundnámskeið verða á fimm
stöðum í borginni og eru þau
aetluð börnum fæddum 1972 og
eldri. Hvert námskeið er 18—20
klukkustundir. Kennsla fer fram
alla virka daga, nema laugar-
daga, og er þátttökugjaldið 4.500
krónur. í sundlaugunum í
Laugardal verður eitt námskeið
5. til 29. júní en innritun hófst í
gær, 30. maí.
Tvö námskeið verða við Sund-
laug Vesturbæjar 5. til 29. júní
og 3. til 27. júlí. Innritun í þau
hófst einnig í gær.
Eitt námskeið verður við
sundlaug Breiðagerðisskóla 5.
júní til 29. júní og fer innritunin
fram í anddyri Breiðagerðis-
skóla í dag 1. júní milli kl. 15 og
19.
í sundlaug Fjölbrautarskólans
í Breiðholti fer fram eitt
námskeið 5. júní til 29. júní.
Innritun fer fram í sundlauginni
í dag milli kl. 16 og 19.
Eitt sundnámskeið verður í
sundlaug Breiðholtsskóla í sum-
ar frá 5. júní til 29. júní. Innrit-
unin í það námskeið fer einnig
fram í dag milli kl. 16 og 19.
íþrótta- og leikjanámskeiðin
eru ætluð börnum á aldrinum 6
til 12 ára og verða haldin dagana
5. júní til 19. júní.
Kennsla fyrir 6 til 9 ára börn
fer fram á morgnana frá kl. 9 til
10.15 á Melavelli, Laugardals-
velli, leikvelli við Árbæjarskóla
og á íþróttavelli við Fellaskóla.
Kennsla fyrir sama aldurshóp
fer fram kl. 10.30 til 11.45 á
leikvelli við Álftamýrarskóla, á
leikvelli við Fossvogsskóla,
íþróttavelli Þróttar við Sæviðar-
sund og á leikvelli við Breið-
holtsskóla.
Kennsla fyrir 10 til 12 ára
börn fer fram eftir hádegið kl.
13.30 til 15 á Laugardalsvelli,
Melavelli og á íþróttavelli við
Fellaskóla.
Kenndar verða frjálsar íþrótt-
ir, knattspyrna og ýmsir aðrir
leikir. Innritun í námskeiðin fer
fram á kennslustöðum en þátt-
tökugjaldið er 500 krónur. Nám-
skeiðunum lýkur síðan með
íþróttamóti á nýja frjálsíþrótta-
vellinum í Laugardal 19. júní kl.
14.
Leiðrétting
í Hugmyndapottinum í gær
urðu tvenn mistök. í uppskrift-
inni að jarðaberjatertunni féll
niður hluti af kreminu, þannig
að útkoman varð sú, að botnarnir
og kremið var allt í einum hræri-
graut.
Uppskriftin er rétt svona:
Botnarnir: • 150 g smjör eða
smjörl. • 150 g sykur • 3 egg •
150 g hveiti • 1 tsk. lyftiduft • 3
msk. mjólk • Kremið: • 3 blöð
matarlím • 2 eggjarauður • 2
msk. sykur • 1 msk. maizenamjöl
• 2'k dl kaffirjómi (eða mjólk) •
'k tsk. vanillusykur • 2 dl rjómi.
í öðru lagi slæddist inn meinleg
villa um tímann, sem ísinn átti að
vera í ofninum, en þar stóð 465
mínútur en átti að sjálfsögðu að
vera 4—5 mínútur.
II3U(3
Lánstími
* r j '7 *
2 man.
3 mán.
4—6 mán.
3mán.
20%
30%
35-95%
35-95%
100%
Það er /án
að skipta við
SPARISJÓÐINN
Ný símanúmer
EPARBlÍDOUR
HAFNARFJARÐAR
Strandgötu 8—10
sími
5PARI5lÍDÐUR
HAFNARFJARÐAR
Noröurbær Reykjavíkurvegi 66,
54000 "51515