Morgunblaðið - 01.06.1979, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979
29
U ^
VELVAKANDI
SVARAR j SÍMA
0100 KL. 10—11
FRÁ MANUDEGI
umgengni viö sjúklinga og bág-
stadda, þótt einnig verði annars
vart.
Gæti ég trúað, að stúlkurnar
sem fordæma starfsfólkið á
„Grund" hefðu einmitt átt að bata
um með hljóðlátum handtökum í
stað þess að fordæma „yfirkon-
una“, sem sjálfsagt hefur misskil-
ið hlutxerk sitt, ef sagt er rétt frá.
Fjarri sé það mér að mæla þeim
bót, sem níðast á sjúkum og
umkomulausum.
Hér mætti margt segja. En
Grund á það skilið, að þar sé bjart
um bekki og ganga bæði úti og
inni. Hlutverk starfsfólks og
stjórnar þar er eitt hið vandasam-
asta eins og umhyggja fyrir um-
komulausum alltaf verður.
Eg hef haft þar umgang um
áratugi og átt þar um tíma mína
nánustu, bæði fósturföður og móð-
ur mína og marga vini. Sjálfsagt
hefur oft verið erfitt. En sérstak-
lega vegna þess, að þar er alltaf
yfirfyllt allt vistrúm og verður að
taka á móti fólki sem þarf sérmeð-
ferð á sjúkrahúsum, sérstaklega
Þessir hringdu . . .
• Hver er Rósa
frænka?
Ingibjörg Invadóttir hringdi í
Velvakanda. Ingibjörg sagði að
fyrir nokkru hefði Rósa nokkur
sem kvaðst vera frænka hennar
hringt í hana og sagst hafa bækur
föður Ingibjargar í láni. Ingibjörg
sagðist hafa verið veik er konan
hringdi en síðan hefði hún
árangurslaust reynt að hafa sam-
band við þessa Rósu, en faðir
Ingibjargar, Ingvi Hannesson, er
nýlátinn. Kvað Ingibjörg þrjár
Rósur vera í sinni ætt en þær
könnuðust ekki við að hafa hringt
né hafa í láni bækur sem faðir
hennar ætti. Vildi því Ingibjörg
koma því á framfæri hér í
Velvakanda að þessi Rósa frænka
hennar hringdi í hana hið fyrsta.
SKÁK
Umsjón:
Margeir Pétursson
Hvítur mátar í þriðja leik
Á Skákþingi íslands 1979, sem
fram fór nú um páskana kom þessi
staða upp í siðustu umferð í
landsliðsflokki, í viðureign þeirra
Björns I'orsteinssonar. sem hafði
hvítt og átti leik, og Jóhanns
Iljartarsonar.
25. IIxffi+! og.svartur gafst upp,
því að eftir 25 ... gxfö 26. Dxf6+
Kg8 27. Hh8 er hann mát.
geðveikum. Það er blátt áfram
hræðilegt að þurfa að vista geð-
veika á margbýlisstofum innan
um veikburða og vesæla. En
umgengni þá, sem þessi „Helgar-
póstur“ lýsir, hefi ég aldrei orðið
var við. Og sé hún til, þá er hún
sérstakt fyrirbæri, sem ætti strax
að laga á sínum stað.
Hins vegar hafa allir þeir, sem
ég hef séð þar að störfum einkum
hin síðari ár, sýnt ástúð og
umburðarlyndi. Ég þekki þar kon-
ur og karla að störfum, sem eru
meðal bezta fólks, sem ég hef
kynnzt, bæði yngri og eldri þjón-
ustur.
Fátt væri ungum stúlkum holl-
ari menntun og heillavænlegri en
vinna þar um tíma, kynnast erfið-
leikum og raunum og „bæta þar
um borða", með brosi og alúð
æskunnar.
Aðsókn að Grund eru raunar
bezta sönnun þess, hve yfirleitt
hefur verið þar vel að verki staðið
um áratugi, án óhófs og aura-
sóunar, sem nú er trúað á til að
bæta hvert böl. En slíkt er hjátrú
af helzta tagi. Forstjórinn, hann
Gísli, og læknarnir eru vissulega
réttir menn á réttum stað. Þar er
og verður dómur reynslunnar í
öndvegi. Auðvitað ætti eldra fólk
allt að vera heima hjá börnum og
afkomendum eða á eigin vegum
meðan kraftar endast.
Margt stefnir nú í þá átt, að þar
séu margar óskir að rætast. En
sjálfsagt verður slíkt aldrei handa
öllum. Og vissulega má miklu
betur gera innan hæla og utan. Sé
borið saman við aðbúð umkomu-
lausra „niðursetninga“ og
„órnaga" fyrir nokkrum áratugum
í moldarkofum á íslandi eru elli-
heimili nútímans hreinasta para-
dís. Samt verða allir, sem þar
starfa og dvelja að muna hvert
andartak, að það eru einstakl-
ingar, sem allir þrá ástúð og
skilning, sem þar dvelja, en ekki
ópersónuleg númer á nafn-
skírteinum.
Virðing þeim, sem virðing ber.
Þar á eldra fólkið alltaf að vera í
hásætum. Þótt einhverjir séu
„vitlausir og ruglaðir" eru þar
einnig hinir vitrustu og beztu.
Rvk. 29. maí 1979.
Árelíus Níelsson.
Bryggjan í
Nauthólsvík
Á meðfylgjandi mynd er
bryggja sem Bretar smíðuðu á
hernámsárunum. Bryggja þessi er
í Nauthólsvíkinni og er nú sú eins
sem unglingar og bátaeigendur
geta notað þar um slóðir.
Maður nokkur hafði samband
við Velvakanda til þess að vekja
máls á því að bryggja þessi er nú í
mikilli niðurníðslu. Langaði hann
að vita hvort ekki ætti að gera
eitthvað til þess að bæta hana eða
hvort það væri tiigangurinn að
aðstöðuleysi bátaeigenda ætti að
vera algjört eins og við hafnirnar í
Reykjavík.
sat
■ *
• Bryggjan i Nauthólsvík.
HÖGNI HREKKVÍSI
Husqvarna
MÓTORKNÚNAR
GARÐSLÁTTUVÉLAR
&
Mótorinn er
Amerískur.
[BRIGGStSTRATTOW]
(Fjórgengis vél)
Viðurkenndasti smá
mótor í heimi.
Notar hreint bensín,
smurolían sér. Það
auöveldar
gangsetningu auk þess
er „start niður gírað“
Tvennskonar hnífabúnaöur
SLÆR ÚT Á KANTA
Útsölustaðir víða um land
/
\iuinax .ylfisxáVyiOn kf.
góðar
eitthvaö fyrir alla!
öAKTlCA
t ''éapon
JSS-3
? * « **
PRAKTICA
3 geröir
Verö frá kr. 76.550-
Linsur: 29, 35, 135,
180 og 300 mm
COSINA
2 geröir
Verö frá kr. 143.350
Winder (sjálftrekkari)
Linsur: 28, 135 og 200
mm.
35—150 mm ZOOM og
70—210 mm ZOOM
CANON AE-1
og fleiri geröir.
Verö frá kr. 200.230.-
Winder og alsjálfvirk leift-
urljós.
Linsur: 24, 28, 35, 100,
135 200 og 300 mm.
MYNDAVÉLA-
TÖSKUR
ÞRÍFÆTUR
og gífurlegt úrval
HOYA filtera
og annarra fylgihluta.
Góð vél tryggir góða mynd
og viö bjóöum bestu greiðslukjörin!
Opiö laugardaga kl. 10—12.
Verslið hjá
fagmanninum
LJOSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI f78 REYKJAVIK SIMI8S8.1t,