Morgunblaðið - 01.06.1979, Qupperneq 31
Faxakeppn-
in um
helgina
Faxakeppnin í golfi fer
fram á laugardaginn og
sunnudaginn á golfveilinum
í Vestmannaeyjum. Auka-
ferðir verða farnar til Eyja
keppnisdaganna báða, svo
og föstudaginn. Leiknar
verða 36 hoiur og verður
landsliðskjarnin í golfi val-
inn eftir mót þetta. Mótið
gefur stig til landsliðs.
Ársþing
HSÍ
Ársþing HSÍ 1979 verður
haldið ( félagsheimilinu á
Seltjarnarnesi dagana 8. og
9. júní n.k., en það verður
sett klukkan 19.00 á föstu-
daginn 8. júnf.
Handknatt-
leíks-
dómarar
Dómaranefnd HSÍ hvetur
alla landsdómara til þess að
senda inn til skrifstofu HSÍ
nú þegar svör við spurninga-
listanum sem þeim hefur
verið sendur. Hafi einhver
ekki fengið listann þá vin-
samlegast hafið samband við
Gunnlaug Hjálmarsson í
síma 40723 strax.
Dómaranefnd HSI.
íprótta-
námskeiö
í Hafnar-
firði
Innritun á íþrótta-
námskeið Hafnarfjarðar fer
fram í dag á Ilörðuvellinum
og í Víðistaðaskóla. 5—6 ára
drengir og stúlkur eru frá
klukkan 9—10.30, 7—8 ára
drengir og stúlkur eru frá
kl. 10.30-12.00, 9-10 ára
frá 13.30 — 15.00 og loks
11 — 14 ára frá klukkan
15.00-16.30. Þátttökugjald
er 400 krónur.
íþrótta-
námskeið
í Garöa-
bænum
Leik og íþróttanámskeið
verða starfrækt f sumar á
vegum æskulýðsráðs bæjar-
ins fyrir börn á aldrinum
6 — 13 ára. Námskeiðin
verða tvö annað í júní. og
hitt í júlí. Starfsemin verður
við Iþróttahúsið Ásgarði
fyrir íbúa Flata, Fitja, Ása,
Grunda og Arnarness. Við
Hofstaðaskóla iyrir íbúa
Lunda, Búða, Byggða, Móa
og Silíurtúns.
Innritun fer fram í
Ásgarði eða í sfma 53066
dagana 30, 31 maf og 1 júnf
frá kl 9.00 - 12.00. Þátt-
tökugjald er kr. 1000.
6,7,8 og 9 ára verða frá kl.
13.30-15.30
10,11,12 og 13 ára verða
frá kl. 9.30 - 12.00
Kynntar verða flestar
greinar íþrótta svo að börn-
in finni eitthvað við sitt
hæfi.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. JÚNÍ 1979
31
’M
Þokkalegur
árangur á
EOP-mótinu
EÓP-mótið í frjálsum íþróttum fór fram á Laugardals-
vellinum í gærkvöldi. Frekar var dauft yfir mótinu enda
óhagstætt veður til keppni. Ágætisárangur náðist þó í
nokkrum greinum. Oddur Sigurðsson KA sigraði í 100
og 200 metra hlaupum á ágætis tíma. Þá stökk Stefán
Stefánsson ÍR 1.98 metra í hástökki og var mjög nærri
því að fara yfir 2.01 m. Er Stefán mikið efni og á eftir að
bæta sig í sumar til muna. Valbjörn Þorláksson sigraði í
stangarstökkinu, stökk 4.20 m, og reyndi því næst við
nýtt íslandsmet, 4.55 m. Ekki tókst að setja met að
þessu sinni. En Valbjörn lætur ekki deigan síga þrátt
fyrir að vera orðinn 45 ára gamall.
Valbjörn Þorláksson reyn-
ir við nýtt íslandsmet í
stangarstökki 4,55. Val-
björn átti ágætar tilraunir
við þá hæð.
sek.
10.6
10.8
10.8
Kúluvarp karla: m
Elías Sveinsson FR 14.11
Pétur Pétursson ÚÍA 13.67
100 m hlaup kvcnna: Sek.
Lára Sveinsdóttir Á 12.0
Helga Halldórsdóttir KR 12.3
Stangar.stiikk: m
Valbjörn Þorláksson KR 4.20 800 m karla: sek. Langstökk kvenna: m
Aðalsteinn Bernarðsson KA 2.00 Lára Sveinsdóttir Á 5.66
200 m hlaup karla sek. Steindór Tryggvason KA 2.00.4 Helga Halldórsdóttir 5.50
Oddur Sigurðsson KA 22.0 Jónas Antonsson, KA 2.03.5 Br.vndís Hólm 5.12
Aðalsteinn Bernharðss. 22.5
Guöni Tómasson A 22.9
Kringlukast kvenna: m
400 m hlaup kvenna: sek. Guðrún Ingólfsdóttir Á 45.58
Hástökk karla: m Thelma Björnsdóttir UBK 61.2 Kristjana Þorsteinsd. Víði 33.38
Stefán Stefansson ÍR 1.98 Linda Jónsdóttir KA 62.0 Katrin Einarsd. ÍR 28.78
Karl West UBK 1.91 Helga Halldórsdóttir KR 62.7 - þr.
Skarðsmótið slær
botninn í vertíðina
Helstu úrslit í mótinu urðu þessi:
100 m hlaup karla:
Oddur Sigurösson KA
Guðni Tómasson A
Aöalsteinn Bernharðss.
110 m grindahlaup karla: sek
Elías Sveinsson FH 15.4
Þorsteinn Þórsson UMSS 16.2
Þreföld
vítakeppni!
ÍSFIRÐINGAR lentu í kröppum
dansi gegn Bolungarvfk í 1.
umferð bikarkeppni KSÍ í
knattspyrnu f Bolungarvfk f
fyrrakvöld. Eftir venjulegan
leiktfma, auk framlengingar, var
staðan 1 — 1. Hjörleifur Guð-
finnsson skoraði fyrir heima-
menn, en Ilaraldur Stefánsson
jafnaði fyrir ÍBÍ: Vftakeppni til
úrslita þurfti sfðan að halda
þrívegis því ávallt var staðan
jöfn. IBÍ vann loks og var staðan
þá orðin 12—9.
í blaðinu í gær voru birt úrslit
nokkurra leikja f bikarkeppn-
inni. Ilér fara á eftir úrslit þeirra
leikja sem ekki var getið um.
Tindastóll — Völsungur 4—1
Súlan — Sindri 2—1
Selfoss — UMFA 3—0
Þór Þorlákshöfn — Ármann
Þór gaf
Reynir — Stjarnan 0—1
ÍK'— Grindavík 2—4
Af þessum úrslitum koma á
óvart sigrar 3. deildar liða Tinda-
stóls og Stjörnunnar gegn Völs-
ungi og Reyni. Völsungar eru
reyndar í 3. deild, en voru slakari
en reiknað hafði verið með. Reynir
leikur hins vegar í 2. deild og er
því árangur Stjörnunnar athyglis-
verður. Þess má geta, að það voru
þeir Sigurbjörn Marinósson og
Sigurjón Kristjánsson sem skorðu
mörk Austra gegn Hrafnkeli
Freysgoða, en Austri vann 2—0.
A
rS
NINM5TVAL
IslrntsnSorjíI t
• Þetta eru bikararnir sem
keppt verður um á Skarðsmót-
inu.
Nú um hvítasunnuhalgina
lýkur keppnistfmabili fslenskra
skfðamanna í alpagreinum með
keppni í stórsvigi og svigi á
Skarðsmótinu svokallaða í
Siglufirði.
Á punktamótum Skíðasam-
bands lslands, en Skarðsmótið er
eitt þeirra, sem héðan í frá munu
verða kölluð bikarmót, er m.a.
keppt um stig sem keppendum
eru gefin eftir árangri í einstök-
um greinum, 25 stig fyrir 1. sæti,
20 fyrir 2., 15 fyrir 3. o.s.frv.
Sá keppandi, en keppt er bæði í
karla og kvennaflokki, sem flest
stig hlýtur, hreppir titilinn
Bikarmeistari Skfðasambands
íslands.
Kcppni þessi er að nokkru
sniðin eftir heimsbikarkeppninni
á skfðum, en í henni hefur Svíinn
Ingemar Stenmark verið
fremstur f flokki undanfarin ár.
Verslunin SPORTVAL hefur
að þessu sinni gefið mjög veglega
bikara til að keppa um, bæði
farandbikara og eignarbikara.
Um farandbikarana, en þeir eru 3,
þ.e. fyrir göngu karla, alpagreinar
kvenna og alpagreinar karla, mun
verða keppt í 5 ár en þeim síöan
komiö fyrir í bikarsafni SKÍ.
Þessi verðlaun veröa afhent viö
athöfn að móti loknu í Siglufirði.
Staöan í Bikarkeppni SKÍ er nú
þannig:
Konur: stig
1. Steinunn Sæmundsd. R. 150
2. Nanna Leifsd. A. 130
3. Ása H. Sæmundsd. R. 115
4. Hrefna Magnúsd. R. 59
5. Halldóra Björnsd. R. 58
Hér eru úrslitin um fyrsta sætiö
þegar ráöin. Steinunn Sæmunda-
dóttir, R., hefur tryggt sér sigurinn
meö „fullu húsi“ stiga og þar meö
titilinn Bikarmeistari SKÍ í kvenna-
flokki 1979. Yfirburðir Steinunnar eru
mun meiri en stigin gefa til kynna þar
sem hún hefur unniö flest mót
vetrarins meö miklum yfirburðum.
í öðru sæti er Nanna Leifsdóttir A.
meö 130 stig, en hún hefur sigraö í 3
keppnum í vetur. Nanna er ekki
örugg með annað sætið í keppninni
nema henni takist nú aö veröa a.m.k.
í 2. sæti í annari greininni, svigi eöa
stórsvigi, þar sem Ása Hrönn
Sæmundsdóttir getur náö Nönnu aö
stigum meö því aö vinna bæöi svigiö
og stórsvigið og ná þannig sama
stigafjölda og Nanna er meö nú.
Aðrar stúlkur koma ekki til greina í
bárattuna á milli Nönnu og Ásu um 2.
sætiö.
Karlar:
í karlaflokki er keppnin mun
tvísýnni, en staða efstu manna er nú þannig: Stig
1. Björn Olgeirss. Hu. 135
2. Karl Frímannss. AK. 111
3. Haukur Jóhannss. AK 101
4. Tómas Leifss. AK. 86
5. Sigurður H. Jónss. í. 78
Björn Olgeirsson, Húsavík, hefur
forystuna sem hann tryggöi sér meö
glæsilegum sigrum á Þorramótinu á
Isafiröi í marz svo og á íslandsmótinu
og punktamóti á Húsavík.
Karl Frímannsson er sá eini sem
hefur fræöilega möguleika til aö ná
Birni aö stigum, þ.e. meö því að
vinna bæöi svigið og stórsvigið, en
því aöeins að Björn verði aftar en í 2.
sæti í báöum greinum.
Hinsvegar verður Karl að vinna
báöar greinar ef hann vill tryggja sér
2. sætiö því jafnvel 5. maður,
Sigurður H. Jónsson, hefur
möguleika á að ná 128 stigum meö
sigrum í báöum greinum og þar meö
næöi Karl hugsanlega aðeins 125
stigum með því aö veröa næstur á
eftir Sigurði.
Haukur Jóhannsson sem nú er
meö 101 stig og þriöji hefur einnig
möguleika á aö ná 125 stigum með
því að sigra svigið og stórsvigiö.
Úrslit í bikarkeppni í göngu hafa
þegar verið birt. Bikarmeistari varö
Haukur Sigurösson. Ólafsfirði.
Fljótlega upp úr helginni mun
stjórn SKÍ velja landslið íslands á
skíöum fyrir næsta vetur og undir-
búningur og þjálfun liðsins mun
síöan hefjast upp úr miðjum júní.
Leiðrétting
VEGNA mistaka féll niöur einkunnagjöf nokkurra Eyjaskeggja úr leik þeirra
gegn ÍBK. Birtist hér því einkunnagjöf Eyjamanna í heild. Ársæll Sveinsson 3,
Snorri Rútsson 2, Viðar Elíasson 2, Þóröur Hallgrímsson 2, Friöfinnur
Finnbogason 2, Sveinn Sveinsson 3, Örn Óskarsson 2, Óskar Valtýsson 2,
Ómar Jóhannsson 2, Tómas Pálsson 3, Gústaf Baldvinsson 2.
Þá voru dálítil mistök í einkunnagjöf frá leik ÍA og KA. Þar stóö aö Eyjólfur
Ágústsson hafi fengiö 2. Eyjólfur var ekki meö, þar átti að standa Ólafur
Haraldsson. Þá féll og niður nafn varamanns KA, Ásbjörns Björnssonar, sem
hlaut einkunnina 1, enda lítið með.