Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ1979 Þingflokkur Sjálfstæðisflokks á fundi í gær: Stefnir í stöðvun atvinnuvega —Rfldsstjómin aðgerðarlaus ÞINGFLOKKUR Sjálístæðis- flokksins kom saman til fundar í K'A'r til að ræða stöðuna í landsmálum. Að fundinum loknum sendi þinxflokkurinn út svohljóðandi íréttatilkynn- inKu: „Þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins kom saman til fundar í dag. Á fundinum voru rædd þau alvarlcKU vandamál, sem nú eru uppi. vinnudeilur, stór- felld hækkun olíu- ok bensín- verðs, fyrirsjáanleg stöðvun atvinnuveganna, verði ekkert að gert. Þingflokkurinn mun fylgjast náið með framvindu mála, ekki sízt með tilliti til athafnaleysis ríkisstjórnarinnar í öllum þess- um vanda. Þingflokkurinn mun koma saman til fundar í næstu viku." Morgunblaðið sneri sér í gær til Ólafs G. Einarssonar, vara- formanns þingflokksins, og innti hann nánar eftir umræðum á - segir Ólafur G. Einarsson, varaformaður þingflokksins fundi þingflokksins. Ólafur G. Einarsson sagði, að þingmenn hefðu rætt stöðu mála almennt í sambandi við vinnudeilur, far- mannadeiluna sérstaklega og kjaramál og þá hættu sem er á stöðvun atvinnuveganna í náinni framtíð. Þá hefði verið rætt um þann drátt, sem orðið hefði á ákvörðun fiskverðs og talið, að á ríkisstjórninni stæði í þeim efn- um. Við teljum okkur hafa sannfrétt, sagði Ólafur G. Ein- arsson, að yfirnefnd hafi ekki haldi fund frá því í síðustu viku. Bersýnilegt er, að ríkisstjórnin ræður ekki við þann vanda, sem upp er kominn í sambandi við fiskverðið. Fyrirsjáanlegt er að skipin munu hætta veiðum og sigla í höfn. Það er í engum tengslum við verkbannið heldur er ástæðan einfaldlega sú, að útgerðin treystir sér ekki til að haída áfram. Vegna þessa ást- ands, sagði Ólafur G. Einarsson, og þeirrar óvissu, sem leiðir af aðgerðarleysi ríkisstjórnarinn- ar, mun þingflokkur Sjálfstæðis- flokksins fylgjast náið með framvindu mála. Ákveðið var að næsti fundur þingflokksins yrði haldinn í næstu viku. — Hver er afstaða Sjálfstæð- isflokksins til setningar bráða- birgðalaga til að leysa kjaradeil- urnar? — Grundvallarstefna Sjálf- stæðisflokksins er sú, að aðilar í kjaradeilum eigi að gera út um sín mál við samningaborðið. Bráðabirgðalög varðandi kjara- deilurnar leysa engan vanda, allra sízt ef þau ganga út á launahækkanir. Útgerð og fisk- vinnsla stefna eftir sem áður í rekstrarstöðvun vegna olíu- hækkunar og aukins kostnaðar á öðrum sviðum. Farmenn: Samþykktu text- ann með fyrirvara FARMANNA- og fiskimanna- samhand íslands samþykkti í Ka'rmorgun þann tcxta að kjara- samningi. sem aðilar í farmanna- deilunni höfðu náð samkomulagi um. í textanum eru þó engar launatölur ok var samþykkt farmanna bundin þeim fyrirvara að samkomulag næðist um viðunandi launatölur. í k&t var búizt við því að aðilar deilunnar Hafnfirðingar í skemmtiferð LIKT og undanfarin ár ætla félagar i Kiwanisklúhbnum Eldborg og eiginkonur þeirra að bjóða öldruðum Hafnfirðingum til skemmtiferðar, og verður að þessu sinni farið til llvolsvallar. Lagt verður upp frá íþróttahúsinu við Strandgötu laugardaginn I). júní klukkan 13.15. Ekið verður að Hvolsvelli og síðan niður Landeyjar að samkomuhúsinu Njálsbúð, þar sem Kiwaniskonur bera fram veitingar. Þeir sem hafa hug á þátttöku eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Bókahúð Olivers Steins í síma 500-15, Láru í síma 51090 og Kristínu í síma 50405 fyrir föstudagskvöld. gerðu grein fyrir störfum undir- nefnda. sem að þessum ramma- samningi hefðu unnið, farmcnn til sáttasemjara og vinnuveit- cndur til sáttanefndar. Lítið sem ekkert gerðist í farmannadeilunni í gær. Fyrir lágu á fundi verkfallsnefndar farmanna undanþágubeiðnir frá tveimur dagblöðum, Tímanum og Þjóðviljanum, um afgreiðslu á pappír til blaðanna, sem liggur í einum Eim§kipafélagsfossanna í Reykjavíiurhöfn. Liggur skipið utan á öðrum skipi og þyrfti háseta til þess að flytja til skipið. Því vísaði FFSI beiðninni frá á þeim forsendum að undanþága yfirmanna myndi engan vanda leysa, þar sem undirmenn væru í verkfalli auk þess sem á þeim hvíldi verkbann. Undanþága var í gær veitt fyrir Freyfaxa til áburðarflutninga. I gær höföu 37 skip stöðvast, þar á meðal voru öll skip Eimskipa- félags íslands stöðvuð, nema Hofsjökull, sem mun á leið til landsins. Þá er Mávur væntan- legur í dag til Hafnarfjarðar með bíla frá Spáni og fer því verkfallið að verða algjört. Sjálfstæðismenn í borgarstjórn: Aifldn verkefni fyrir skólafólk Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa lagt fram í borgarstjórn tillögu um aukin verkefni fyrir skólafólk til þess að draga úr atvinnuleysi meðal skólanemenda. Verður tillaga þessi rædd á fundi borgarstjórnar í dag. Tillagan er svohljóðandi: Tillaga frá borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins: Borgarstjórn lýsir áhyggjum sínum yfir því, að atvinnu- möguleikar skólafólks eru nú verri en oftast áöur, m.a. vegna samdráttar í b.vggingariðnaði og minni framkvæmda af hálfu Reykjavíkurborgar. Um þessar mundir eru um helmingi fleiri unglingar á atvinnuleysisskrá en á sama tíma fyrir ári. Borgarstjórn telur, að allt verði að gera, sem unnt er, til að útvega því skólafólki atvinnu, sem nu gengur atvinnulaust. Borgarstjórn samþykkir því að láta nú þegar hefja vinnu við sérstök verkefni, sem séu atvinnuaukandi fyrir skólafólk, en slíkt hefur áður verið gert undir svipuðum kringum- stæðum. Borgarstjórn heimilar sérstakar aukafjárveitingar í þessu skyni, og taki borgarráð nánari ákvörðun um fjárhæð, verkefnaval og ráðstöfun fjárveit- inga í samráði við borgarverk- fræðing og atvinnumálnefnd. Sigurður Þ. Árnason skipherra á Tý býður Geng Biao velkominn um borð í skip sitt. Ljósm. Mbl. ÓI.K.MaK. Skoðar söfn og fyrirtæki í dag KÍNVERSKI aðstoðaríorsætisráðherrann Geng Biao ásamt fylgd- arliði mun í dag skoða Reykjavík og heimsækja þar söfn og stofnanir. Þá mun hann fara í heimsókn í Álverið í Straumsvík og síðdegis mun hann eiga fund með nokkrum ráðherrum ríkisstjórn- arinnar. Skoðunarferðin um Re.vkjavík hefst klukkan 9 f.h. í skoðunar- ferðinni munu kínversku gest- irnir heimsækja Árnasafn, Þjóðminjasafnið og Listasafn íslands. Klukkan 11 heimsækja gestirnir Álverið í Straumsvík og þar snæða þeir hádegisverð í boði íslenzka álfélagsins hf. Klukkan 15.30 mun varaforsæt- isráðherrann hitta að máli fimm ráðherra ríkisstjórnarinnar, þá Benedikt Gröndal utanríkis- ráðherra, Kjartan Jóhannsson sjávarútvegsráðherra, Hjörleif Guttormsson iðnaðarráðherra, Svavar Gestsson viðskiptaráð- herra og Steingrím Hermanns- son dómsmálaráðherra í Ráðherrabústaðnum. Um kvöld- ið sitja kínversku gestirnir kvöldverðarboð að Hótel Loft- leiðum ásamt fleiri gestum, sem kínverski sendiherrann hér á landi heldur til heiðurs Geng Biao. í gær skoðuðu kínversku gest- irnir frystihúsið ísbjörninn í Reykjavík. Síðan fóru þeir með varðskipinu Tý til Grundar- tanga, þar sem þeir skoðuðu járnblendiverksmiðjuna. Síödeg- is skoðuðu þeir Hitaveitu Re.vkjavíkur og í gærkvöldi sátu þeir kvöldverðarboð borgar- stjórnar Reykjavíkur að Kjar- valsstöðum. „Höfum auga með Rainbow Warrior” „VIÐ munum hafa auga með Rainbow Warrior. en hvað við gerum ef á revnir er ekkert hægt að seKja um," saKði Baldur Möller ráðuneytisstjóri í dómsmálaráðuneytinu í samtaii við Morgunhlaðið í gærvköldi þeKar hann var inntur eftir því hvort landhelKÍsgæzlan myndi gera cinhvcrjar ráðstafanir til þess að vernda hvalveiðiskipin fyrir truflun af hálfu Greenpeacemanna. „Þeir á Rainbow Warrior eru nú ekki langt frá okkur." sagði Baldur, „Þetta er allt í rólegheitunum." Skuldir Tímans 90 millj. „SKULDIR Tímans umfram eignir námu um 90 milljónum króna um síðustu áramót og það er sú upp- hæð. sem við stefnum að að safna", saKði Jóhann II. Jónsson fram- kvæmdastjóri dagblaðsins Tímans, er Mbl. spurði hann í gær um fjársöfnun þá til styrktar blaðinu. sem nú er verið að hefja. Jóhann sagði, að þessar skuldir væru tilkomnar vegna hallareksturs síðuhstu þriggja ára, en á þessu ári hefði tekizt að haga rekstrinum þannig að skuldir blaðsins hefðu ekki aukizt. Jóhann kvaðst ekki geta gefið upp tölur um sölu blaðsins, en nefndi að þeir dagar sem blaðið seldizt mest væru fimmtudagar og sunnudagar og þá væru prentuð allt að 18 þúsund eintök af blaðinu. Þessi söfnun á að standa fram til 1. september að sögn Jóhanns og er jafnframt ætlunin að reyna að gera einhverjar bre.vtingar á efni og útliti blaðsins, en samdráttur í rekstri er ekki fyrirhugaður. „Við freistum þess heldur að vinna þetta upp með þessari söfnun og sjá, hvort við lifum ekki þannig af, en það segir sig sjálft að svona skuldasúpu er ekki hægt að ýta endalaust á undan sér“, sagði Jóhann H. Jónsson. Sigurður B. Gröndal látinn SIGUIÍÐUR B. Gröndai rithöfund- ur og fyrrverandi skólastjóri Matsveina- og veitingaþjónaskól- ans andaðist að Vífilsstöðum í gær eftir langa sjúkrahúsvist. 75 ára að aldri. Sigurður B. Gröndal var fæddur í Ólafsvík 3. nóvember 1903, sonur Benedikts Þorvaldssonar Gröndal bæjarfógetaskrifara í Reykjavík og konu hans Sigurlaugar' Guð- mundsdóttur. Hann var fram- reiðslumaður á Hótel íslandi í Reykjavík 1921—’24 og á Hótel Borg 1950—’60. Hann var yfirkenn- ari við Mat sveina- og veitinga- þjónaskólann frá stofnun 1955 til 1973 og settur skóalstjóri í tvö ár, auk þess sem hann vann að undir- búningi stofnunar skólans. Hann var í stjórn Félags matsveina og veitingaþjóna 1932—’44, þar af formaður í nokkur ár og formaður prófnefndar í framreiðslu 1949— ’58. Hann var gerður að heiðursfél- aga Félags framreiðslumanna 1964. Sjö bækur hafa komið út eftir Sigurð á árunum 1929—’49, skáld- sögur, ljóö og smásögur. Bækurnar eru: Glettur, Ijóð, Bárujárn, smá- - sögur, Opnir gluggar, smásögur, Skriftir heiðingjans, ljóð, Svart vesti við kjólinn, smásögur, Dansað í björtu, saga og Eldvagninn, skáldsaga. Eftirlifandi kona Sigurðar er Mikkelína María Sveinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.