Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ1979 Frímerkj asýning r og landsþing LIF dagana 7.-10. júní Ék hef áður getið þess í þætti, að frímerkjasýniníí verður hald- in hér í Reykjavík 7, —10. júní n.k., og um leið heldur Lands- samband íslenzkra frímerkja- safnara 12. þing sitt sunnudag- inn 10. júní. Munu rúmlega 20 fulltrúar víðs vegar að af land- inu sitja þingið, en þó er að vonum drjúgur hluti þeirra úr roðum Félags frímerkjasafnara og héðan af höfuðborgarsvæð- inu. Merkasta málið, sem lagt mun verða fyrir þetta landsþing, eru ný lög fyrir L.Í.F. Taka þau við af eldri lögum — eða stofnskrá svokallaðri, sem gilt hefur lítt breytt frá upphafi. Segja má, að nú hafi brýna nauðsyn borið til endurskoðunar og lagfæringa, þar eð eðli Landssambandsins breyttist verulega viö inngöngu F’.F. í það 1977. Um leið voru öll frímerkjasamtök hér á landi sameinuð innan vébanda L.I.F., og við það styrktist sambandið eðlilega mjög og varð áhrifa- meira en áður var. Af því leiddi aftur, að ákveða þurfti ýmislegt betur en gert var í fyrri lögum og skerpa um leið ýmis ákvæði þess til þess að treysta Lands- sambandið sem bezt, svo að það gæti orðið sá tengiliður milli frímerkjafélaga í landinu, sem það á að vera. Eðli málsins samkvæmt hlýtur samt hluti þessara laga ævinlega að verða eins eða svipaður og áður var, þar sem hann er sniðinn eftir lögum og reglum Alþjóðasam- bands frímerkjasafnara (F.I.P.). Engu að síður verður hvert aðildarland F.I.P. að sníða sín lög nokkuð eftir eigin þörfum og staðháttum. Þar sem ég hef sjálfur átt þátt í þessari end- urskoðun laganna með formanni L.Í.F'., Sigurði P. Gestssyni, er mér málið bæði vel kunnugt og um leið sk.vlt. Þess vegna þori ég að fullyrða, að hin nýja gerð laganna horfir víða til bóta frá því, sem áöur var, en auðvitað má alltaf deila um einstök atriði. Því er við búið, að þetta laga- frumvarp eigi eftir að taka einhverjum breytingum í með- förum þingsins — og þá vænt- anlega á enn betri veg. F r ímer k jasýningin Frímerki 79 Frímerkjasýning verður svo haldin dagana 7,—10. júní. Hef- ur það verið stefna L.I.F. síðustu árin að freista þess að hafa litla frímerkjasýningu í sambandi við árlegt landsþing. Er það einkum gert fyrir innlenda safnara, sem þannig fá tækifæri til „að viðra“ söfn sín eða hluta af þeim, ef svo má að orði komast, svo að aðrir safnarar eigi þess kost að kynn- ast þeim að einhverju leyti. Dómnefnd dæmir svo hvert safn, sem er í samkeppnisdeild, og hlýtur það að verða sýnendum hvatning til að vanda bæöi efni og allan frágang. Þegar þetta er ritað, hef ég ekki séð sýningarskrána sjálfa, en aftur fengið nokkrar upplýs- ingar frá sýningarnefnd. Alls eru sýnendur 24, og eiga þeir efni í 88 römmum. Verður ís- lenzkt efni í 65 römmum og erlent í 23 römmum. Flestir þátttakendur eru íslenzkir safn- arar, en nokkrir erlendir félagar hafa sent efni, og er það allt íslenzkt. Af því er ljóst, að það eru einvörðungu íslenzkir safn- arar sem eiga erlenda efnið á sýningunni. Sýningarnefndin hefur látið gera sérstakan veggskjöld með merki sýningarinnar til sölu og minja um sýninguna. Eins hefur verið útbúin sérstök sýningar- blokk og svo umslög. Er það svo Frfmerkí eftir JÓN AÐAL- STEIN JÓNSSON sem venja hefur verið, enda verður pósthús starfrækt á sýn- ingunni og notaöur sérstimpill. Sýningin verður opin á fimmtudag og föstudag frá kl. 17—21 og laugardag frá kl. 14—21 og svo á sama tíma á sunnudeginum 10. júní, en þá lýkur henni. Vil ég eindregið hvetja alla safnara til að fjöl- menna á sýninguna og eins aðra þá, sem gaman hafa af að virða fyrir sér frímerki, umslög, bréfspjöld og stimpla af margs konar gerðum. Frímerkjauppboð F.F. 9. júní Svo sem nefnt var í síðasta frímerkjaþætti, 19. maí, heldur Félag frímerkjasafnara lítið frí- merkjauppboð í tengslum við Frímerki 79 og þing L.Í.F. laug- ardaginn 9. júní. Verður þar boðið upp ýmiss konar frímerkjaefni, en númerum stillt í hóf — eða 90 alls., Fer vel á að hafa þetta uppboð ekki stórt í sniðum, því að ekki er rétt að leiöa athygli sýningargesta um of frá sjálfri sýningunni. Hins vegar finnst mér vel til fallið að hafa frímerkjauppboð í sam- bandi við landsþing L.Í.F. og frímerkjasýningu. Það eykur bæði almennt á fjölbreytni og gerir atburöarrásina skemmti- legri en ella þessa daga, og hinu má ekki heldur gleyma, að úm leið fá fulltrúar utan af landi og aðrir gestir tækifæri til að bjóða í áhugaverða hluti. Ég nefndi síðast, að óvenjumikið yrði boðið upp af stimplum, og er óþarft að rifja það upp aftur. Hér má einungis bæta því við, að bréfspjöld verða þarna nokkur og eins heil umslög með frí- merkjum á. Kæmi mér ekki á óvart, að áhugi yrði verulegur í þessu efni. Uppboðsefnið verður sýnt á uppboðsstað í Álftamýrarskóla, stofu 1 (suðurálmu), laugardag- inn 9. júní kl. 13—14.30. Allir þeir atburðir, sem gerast dagana 7.—10. júní í frímerkja- heiminum hér á landi og laus- lega hefur verið vikið að hér að framan, fara fram í Álftamýr- arskóla í Reykjavík. Er sá staður á marga lund ákjósanlegur fyrir frímerkjasýningar, svo sem þeir muna, sem sáu Frímex 77 fyrir tveimur árum. Frumherji fallinn frá Hinn 28. maí sl. lézt í Borgarspítalanum í Reykjavík Sigurður Ágústsson rafvirki. Ég hygg, að enginn frímerkjasafn- ari lái mér, þótt ég minnist hans hér í þættinum með örfáum orðum, svo þekktur sem hann var meðal safnara fyrir ágætt og óeigingjarnt starf í þágu þeirra. Hann var einn af frumherjum Félags frímerkjasafnara og hef- ur setið iengur í stjórn þess en nokkur annar. Féll það snemma í hlut hans að annast um her- bergi félagsins að Amtmannsstíg. Eins hvíldi útgáfa fyrstadags- umslaga F.F. á herðum hans um mörg ár. Sýndi hann í öllum störfum sínum mikla ósérplægni og drenglyndi og það langt út fyrir raðir félagsmanna F.F. Verður skarð hans vissulega vandfyllt og hætt við, að margur sakni vinar í stað, þótt ekki væri fyrir annað en umsjón með fyrstadagsumslögum fyrir marga félagsmenn. Tala ég þar sjálfur af reynslu. Eins hefur engin frímerkjasýning svo verið haldin hér á landi frá upphafi, að Sigurður Ágústsson hafi ekki lagt þar hönd á plóginn og það allt á sinn hljóða og hógværa hátt. Fyrir það þakka allir safn- arar honum nú að ieiðarlokum. Þeir, sem þekktu hann gerst, munu örugglega minnast hans á verðugan hátt á öðrum vett- vangi, svo að þessi orð skulu ekki höfð fleiri um hinn fallna sam- herja. Hvað geta börn og unglingar gertí sumar? Leikvellir og starfsvellir á 44 stöðum í borginni REYKJAVÍKURBORG starí- rækir 34 gæsluvelli um alla borgina, þar sem séð er fyrir gæslu barna á aldrinum 2ja til G ára. Leikvellirnir eru opnir alla virka daga nema laugar- daga frá 1. mars til 1. nóvem- ber. frá kl. 9-12 og 13.30 til 17.00 og frá 1. nóvember til 1. mars frá kl. 10 til 12 og 13.30 til 1G. Gæslukonur ákveða hve lengi barnið skal dvelja á vellinum dag hvern eftir aðstæðum. Eru foreldrar hvattir til að búa börn sín vel er það sækir lcikvöllinn. Borgin mun einnig starf- rækja 10 starfsvelli í sumar, við Vesturvallagötu, við Ár- bæjarskóla, við Breiðholts- skóla, við Ölduselsskóla, við Vesturberg, við Fossvogsskóla, við Hlíðaskóla, við Laugarnes- skóla og við Álftamýrarskóla. Starfsvellirnir eru opnir í júní, júlí og ágúst alla virka daga nema laugárdaga frá kl. 9 til 12 og 13 til 17. Starfsvellirnir eru fyrst og fremst ætlaðir börnum á aldrinum 6 til 12 ára. Foreldri eða forráðamanni er heimilt að dvelja með barni sínu og hjálpa því við smíðar. Spónarplötur í öllum þykktum fyrirliggjandi. Sænsk úrvalsvara. Marinó Pélursson h.f. Sundaborg 7. Sfmf 81044. “'l*í ÖfeY' i' ■ ‘Wif1

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.