Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ1979 13 Lelkllst eftir BOLLA GÚSTAVSSON og kýrnar leika við kvum sinn fíhgur” Viðar Eggertsson (Sidney) og Theodór Júlíusson (Ronald). LcikfcIaK Akureyrar SKRÝTINN FUGL - ÉG SJÁLFUR Ilöfundur: Alan Ayckbourn Þýðandi: Kristrún Eymundsdóttir Leikstjóri: Jiil Brookc Árnason Búningar: Frey>?erður Magnúsdóttir. Það mætti álíta, að forráða- menn Leikfélags Akureyrar séu allslyngir spámenn og hafi séð fyrir þau langvinnu harðindi, sem gera menn bölsýna á norðurslóð. Að lokinni strangri glímu Bjarts í Sumarhúsum á einmánuði og nokkuð fram yfir sumarmálin er nú kominn á fjalir Leikhúsins breskur gamanleikur eftir Alan Ayck- bourn, ungan höfund, sem ekki er með öllu ókunnur hér á landi. Hefur hann glatt höfuðborgar- búa og gesti úr fásinninu með léttu Rúmruski á liðnum vetri og sennilega bætt efnahag Leik- félags Reykjavíkur. Leikrit það, sem frumsynt var í Leikhúsi Akureyrar þann 26. maí sl., „Absurd Person Singular“, hefur hlotið heitið Skrítinn fugl — ég sjálfur. Kristrún Eymundsdóttir hefur snúið textanum á lipurt mál, sem leikararnir koma vel til skila, þótt mikið gangi oft á í eldhúsunum þrem, sem eru umgerð verksins. Þá umgerð hefur Hallmundur Kristinsson Sigurveig Jóns- dóttir (Marion) og Gestur E. Jónas- son (Geoffrey). teiknað og smíðað með Þráni Karlssyni og verður hvorki að verki þeirra fundið né búningum Freygerðar Magnúsdóttur. Sá sem að þessu sinni fer í leikhúsið með því hugarfari, að þangað muni hann sækja umhugsunarefni sprottið af djúpsæjum bókmenntum, fer bónleiður til búðar. Líklegt er að hann gretti áig eins og vonsvik- inn bóndi, sem á mikið hey flatt í rigningartíð og segir súr á svip, þegar hann sér til sólar að morgni dags: Þetta er bara árans dagmálaglenna. En hver sólskinsstund er dýrmæt hér um þessar mundir í þrálátri kulda- tíð, þótt hún geri ekki annað en vekja stundarkæti. Eitt er víst, að menn fá að minnsta kosti ekki timburmenn eftir það kvöld, sem þeir verja í leikhúsinu, þótt persónur í Fuglinum skritna kneifi sterkar veigar ótæpilega að hætti breskra um jól. Á þeirri hátið eiga atburðirnir að gerast, sem verkið greinir frá. Leik- stjórinn, Jill Brooke Árnason, þekkir vel til háttalags landa sinna, svo myndin ætti að vera trúverðug. Það væri hræsni, ef hér væri skrifað fjálglega um meiri háttar menningarviðburö eða glæsta leiksigra, en ódrengi- legt að halda því fram, að ein- hver hefði orðið sér til minnk- unar. Hins vegar væri nær lagi og sanngjarnt að telja, að í sýningu slappi leikarar af eftir þróttmikið vetrarstarf og sletti úr klaufunm sér pg áhorfendum til skemmtunar. Ég man, hversu mikið var hlegið, þegar kýrnar voru leystar út á vorin og tóku á s'prett með kátlegum tilburðum. Við þurfum sennilega að bíða alllengi eftir þeirri skemmtun á þessu sumri og það hafa þeir ágætu menn sennilega fundið á sér, sem völdu þetta ærslaverk. Við sögu koma þrenn hjón: Sidney, búðareigandi, og Jane, leikinn af Viðari Eggertssyni og Svanhildi Jóhannesdóttur; Ronald, bankastjóri, og Marion, sem Theodór Júlíusson og Sigur- veig Jónsdóttir leika; Goffrey, arkitekt, og Eva, leikin af Gesti E. Jónassyni og Þóreyju Aðal- steinsdóttur. Öll gæta þau þess, að láta engin þreytumerki á sér sjást og gefa þeirri leikgleði lausan taum, sem margir at- vinnuleikarar telja sér varla samboðna. Vissulega er leikhús- ið vel til fallið, að vekja menn til hugsunar um ýmiss þjóðfélags- vandamál og á það hefur verið lögð þung áhersla hin síðari ár. En verra er, ef pólitík ber lístina ofurliði eins og stundum ber við. Sú staðreynd blasir við í íslensku þjóðfélagi, að menn á öllum aldri telja sig verða að leita óheilbrigðra leiða til þess að kætast eða slaka á spenntum taugum. Ungt fólk virðist ósjald- an skorta æskugleði. Við heyrum alltof sjaldan eðlilegan og dill- andi hlátur. Skrítinn fugl — ég sjálfur er vægt ádeiluverk á alkunnan mannlegan breisk- leika, sem jafnframt laðar fram hlátur og veitir nokkra andlega hressingu. Leikfélag Akureyrar hefur tekið upp þann ágæta sið, að bjóða myndlistarmönnum að halda sýningu á verkum sínum í tengslum við leiksýningar. Að þessu sinni sýna 6 félagar úr nýstofnuðum Myndhóp á Akur- eyri myndir í forsölum Leik- hússins. Hefur þess verið gætt, að velja verk af þeirri stærð, sem njóta sín vel í fremur þröngum húsakynnum. ká AMkosumar 79 BANKASTRÆT! 7 & AÐALSTRÆTI4 / ár er Melkasumar i Herrahúsinu. Þvi flöggum við geysilegu úrvali af léttum og þægilegum sumarfatnaði frá Melka. M.a. blússum, buxum, stuttbuxum, i skyrtum, stutterma skyrtum / o.m.fl. Allt sómaklæði enda frá / Melka komin. / t i ■ i AUGL. iNGASTOFA KRISTINAR 7.88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.