Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 07.06.1979, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. JÚNÍ1979 21 Minning: JÓN VALDIMAR JÓHANNSSON HAB hafi enn ekki verið reyndir til þrautar." Þá segir hér, „það var álit hreppsnefndar Reykholtsdals- hrepps, að ef samningar ekki tækjust, yrði hverinn tekinn leigu- námi. Nú hafa komið fram í Nd. Alþ. tvö frv. eða till. um leigunám á Deildartunguhver. Hrepps- nefndin leyfir sér að skora á flm. þessara frv. eða till. að leita eftir samræmingu og mælir eindregið með því, að teknir verði 150 lítrar á sekúndu leigunámi til 20 ára.“ Þeir tala sem sagt um 150 sekúndulítra og þar með eru þeir að sjálfsögðu að reyna að tryggja hagsmuni síns sveitarfélags. Hitaveita á öllu svæðinu sameiginlegt hagsmunamál Ég er andvígur þessu frv. og styð till. minni hl. um að því verði vísað frá. Ef sú till. verður felld, þá mun ég greiða atkv. með till. hv. þm. Éinars Ágústssonar og Alberts Guðmundssonar á þskj. 827. Þar er lagt til leigunám eins og reyndar í till. á þskj. 821 frá hv. þm. Gunnari Thoroddsen. En í þessari till. á þskj. 827 er skýrt tekið fram, að hið leigunumda skuli vera sjálfrennsli vatns. Það er veigamikið atriði vegna rétt- inda annarra á svæðinu. Með þessum hætti eru réttindi þeirra þó fremur tryggð, svo og réttur eigenda til verðmæta, sem menn vita vart í dag, hver kunna aö vera. Lagasetning sem þessi, sem hér er fyrirhuguð er óskynsamleg á margan hátt. Fyrir utan það virðingarleysi á eignarrétti, sem í þessu felst, þá er hún í andstöðu gerð við fjölda aðila, og það kann að draga dilk á eftir sér. Og því fer fjarri, að allt sé raunverulega í höfn hjá Hitaveitunni með því að fá þessi réttindi. Það hefur engin tilraun verið gerð til að ná samn- ingum við landeigendur yfirleitt á svæðinu um legu hitaveitulagn- anna, hvernig fer með rétt hita- veitunnar til umferðar yfir lönd þeirra meðan á framkvæmdum stendur, um bætur fyrir land, sem lagnir liggja um, og fleira þess háttar. Mér sýnist, að í ákafanum við að ná þessu eina atriði, sem er vissulega grundvallaratriði, er hitt allt geymt til síðari tíma. Um þetta allt hefði auðvitað átt að gera víðtækt samkomulag og slíkt samkomulag hefði hlotið að nást og hlýtui að nást vegna þess, að það eru hagsmunir allra, að hita- veita komi á öi!u þessu svæði. Það er ekki aðeins hagsmunir Akra- ness og Borgarness. Mér sýnist á þessu máli öllu, að menn hafi ekki séð mikið út fyrir hagsmuni þess- ara tveggja sveitarfélaga. (Forseti Heyri ég það rétt á ræðu hv. þm., að hann sé að nálgast land?) Já, hann er alveg að ná landi, hæstv. forseti. Hæstv. ráðh. sagði hér í sinni ræðu, að eignarnámsþola væru tryggðir 10 lítrar á sekúndu án endurgjalds og þar væri sko ekki naumt skammtað. Þetta er dæmi- gert fyrir rausn ríkisins. Fyrst er hótað eignarnámi, síðan kemur frv. og að ájálfsögðu lagasetningin í framhaldi af því. Og svo er boðið upp á það, og það tíundað ræki- lega, að það sé svo sem ekki verið að taka allt saman. Þetta eru heldur ekki sæmileg vinnubrögð. Ráðh. sagði svo hér einnig, að þegar upp hefði verið staöið, hefði borið á milli 625 millj. á nilli aðila miðað við 30 ára samning. Með slíkum orðum lætur ráðh. að því liggja, að allt þetta fjármagn, 625 millj., og meira til, renni óskipt og beint í vasa eigenda. En hér á að sjálfsögðu eftir að greiða skátta af og það er ekkert líklegra heldur en a.m.k. núv. ríkisstj. myndi finna leiðir til að ná þessu að mestu leyti til baka, ef henni þætti núv. skattalög ekki gefa nægilegan árangur að þessu leyti. Ég hef lokið máli mínu, herra forseti. „Drottinn, þú lætur manninn hverfa aftur til duftsins og segir: Hverfið aftur, þér mannanna börn. Því að þúsund ár eru í þínum augum sem dagurinn í gær, þegar hann er liðinn, já, eins og nætur- vaka. Þú eyðir þeim, þeir sofna, þeir sem að morgni voru sem gróandi gras, að morgni blómgast það og grær, að kvöldi fölnar það og visnar." Svo segir sálmaskáldið hebreska. Við erum minnt á þýð- ingu þessara orða frá degi til dags, þegar við kveðjum í dag manninn, sem við heilsuðum í gær. Hinn 26. maí lést á Landspítal- anum í Reykjavík Jón Valdimar Jóhannsson, en nóttina áður hafði hann verið fluttur í sjúkrahús vegna veikinda, sem hann hafði átt við að stríða. Jón í Sjónarhól, en sem slíkan þekkti ég hann, var fæddur í Garðbæ á Miðnesi þann 5. mars 1906. Foreldrar voru hjónin Jóhann Ólafsson og Sigrún Þórðardóttir ættuð frá Holtum í Rangárvallarsýslu. Jón var yngst- ur 8 systkina en þau voru Óttavía, Anna, Ólafía, Kristjana, Marsibil, Stefán og Sigurhans. Af þeim eru nú á lífi þau þrjú síðast talin. Faðir Jóns, Jóhann, var sjómað- ur svo og varð Jón. Hann hóf sjómennsku 14 ára gamall og það var hans lífsstarf í 40 ár, lengst af skipstjóri á eigin bátum fyrri hluta sinnar skipstjórnarævi, en síðar hjá ýmsum útgerðum. Árið 1927 hóf hann útgerð með hinum landskunna athafnamanni Guðmundi Jónssyni frá Rafn- kelsstöðum. Eignuðust þeir fyrst og gerðu út m/b Von, síðar m/b Þórólf og síðast m/b Viði. Jón var skipstjóri á þessum bátum og voru þeir gerðir út frá Sandgerði. Þetta samstarf þeirra stóð til 1937. Eftir þetta var Jón skipstjóri á ýmsum bátum m.a. m/b Ingólfi, m/b Lagarfossi o.fl. Jón var alla tíð einkar farsæll og heppinn sjó- sóknari. Missti aldrei mann og skilaði sínu fleyi heilu í höfn. Hann lauk sjómennsku 1960, en var síðan um árabil hafnarvörður hjá Sandgerðishöfn, síðar hjá Miðnes h/f., og loks hjá Loftleið- um þar til hann .missti heilsuna. Jón var einkar traustur og trúverðugur starfsmaður og mátti ekki vamm sitt vita í neinu. Jón kvæntist eftirlifandi konu sinni Guðrúnu Magnúsdóttur þann 17. maí 1929. Foreldrar Guðrúnar voru Anna Guðmunds- dóttir og Magnús Magnússon út- vegsbóndi frá Króki í Garði. Þau hjónin Guðrún og Jón bjuggu allan sinn búskap í Sandgerði, lengst'af í Sjónarhjól. Börn þeirra eru Anna Magnea gift Hauki Guðmundssyni. Búsett í Kópavogi og eiga einn son. Ásdís gift Jóni Benedikt Sigurðssyni. Búsett í Lundi S-Múlasyslu og eiga þau 6 börn. Sigrún Jóhanna gift Gunn- ari Sigurgeirssyni. Búsett í Reykjavík hún á 8 börn. Svanhild- ur ógift. Búsett í Kópavogi. Yngst er Ragnheiður Elín gift Ingimundi Ingimundarsyni. Þau búa á Varm- alandi og eiga 2 börn. Með þeim hjónum Guðrúnu og Jóni ríkti gagnkvæm virðing og ástríki. Þau voru samhent um flest, en heimilið og fjölskyldan áttu hug þeirra allan. Ég myndi lýsa Jóni svo, að hann hafi verið ágætlega atsig kominn, þrekinn vel, ihugull og athugull og drengur góður í orðs þess bestu merkingu. Hans aðal áhugamál voru skepnur, þó einkum hestar, enda var hann hestamaður góður og eignaðist marga góða gæðinga. Hann var bókamaður, las mikið og stálminnugur. Hans uppáhalds bókmenntir voru ferðaþættir og þjóðlegur fróðleikur af ýmsu tagi. Sú kynslóð, sem sleit barns- skónum um og eftir síðustu alda- mót, hefur óefað lagt þann grundvöll, sem ísland nútímans er reist á. Þessi kynslóð, sem skóluð var í þrotlausri baráttu við höf- uðskepnurnar attu ekkert nema bjartsýni á sjálfa sig og landið sitt, hún gerði allt úr engu. Ég vil hér tilgreina sögu um hrakninga, sem Jón lenti í. Það var í nóvem- ber 1929 að Jón réðist sem stýri- maður til Stefáns bróður síns á m/b Gróttu 36 tonna bát, sem Ásgeir Pétursson útgerðarmaður átti. Sigurhans bróðir þeirra var vélstjóri og auk þeirra voru 3 aðrir menn á batnum. Þeir áttu að flytja frysta síld frá Siglufirði til Sandgerðis. þeir héldu í s-austan sæmilegu veðri frá Siglufirði, en eftir nokkurra klukkutíma sigl- ingu bilaði vélin. Segl voru þá höfð uppi, en skömmu síðar snérist í norð-austan hvassvirði. Seglin rifnuðu, en náðust þó niður. Nokkrum klukkustundum síðar hafðist að koma vélinni í gang var þá slóað upp i veðrið í 3 sólar- hringa. Á þessum tíma !á báturinn undir áföllum og staðið var í stöðugum austri, vegna leka, sem kom að bátnum. Þegar veðrið lægði voru þeir djúpt út af Vest- fjörðum. Ferðin til lands tók 15 tíma og öll ferðin frá Siglufirði til Sandgerðis stóð í viku. Báturinn var talinn af, svo fagnaðarfundir voru við heimkomuna, þegar þrír bræður voru úr helju heimtir. Kaup Jóns fyrir þessa ferð voru 50 krónur. Fyrir urri þremur árum kenndi Jón þess sjúkdóms, sem varð honum að aldurtila. Hann bar veikindi sín með æðruleysi og karlmennsku. Ekki var að sjá að honum væri svo brugðið, sem raun var, er hann heimsótti okkur nokkrum dögum áður en hann lést. Jón verður jarðsunginn frá Hvalsneskirkju í dag. Við stöndum á ströndinni, fyrir landi er ferðbúið fley, það tekur stefnu til hafs, það fjarlægist, en við stöndum eftir, það hverfur við sjóndeildarhringinn. Á fjarlægri strönd handan hins mikla hafs er hópur fólks. Það kveður við fagn- aðaroþ, er fleyið, sem við kvödd- um, nálgast. Ég og fjölskylda mín vottum Guðrúnu og fjölskyldu hennar okkar dyþstu samúð. Afi minn var fæddur í Garðhæ í Miðneshreppi og var yngstur af átta systkinum og ólst þar upp. Snemma fór afi að vinna og var ekki nema níu ára gamall þegar hann dró fisk úr sjó. Faðir hans stundaði búskap og reri einnig til fiskjar eins og títt var í þá daga, á Suðurnesjum. Snemma hug tók sjómennskan afa, og fór hann að stunda sjómennsku mjög ungur að árum. Þegar afi hafði aldur og gctu fór hann í Sjómannaskólann og lauk þar prófi vorið 1928. Og var uppfrá því skipstjórnarmaður með yrhsa báta sem gerðir voru út á Suður- nesjum, aðallega frá Sandgerði, og farnaðist ætíð vel. Þegar afi hætti störfum á sjón- um fór hann að vinna í landi og var hafnarstjóri í Sandgerði um fjögurra ára bil. Síðan fór hann að vinna hjá Loftleiðum á Keflavík- urflugvelli og vann þar þangað til að heilsan brast. Ávallt gaf afi sér tíma til að tala við okkur börnin og segja okkur eitt og annað. Mun ég minnast .hans með hlýhug. Minn- ingu um góðan mann og vin okkar allra. Afi las mikið af góðum bókum, og fylgdist ávallt með öllum nýj- ungum og því sem fram fór í heiminum. Var hann mjög fróður um ýmsa hluti. Afi hafði ætíð yndi af skepnum og átti hann alla tíð góða hesta það var hans yndi að sjá um að vel færi um þá. Árið 1929 kvæntist hann ömmu, Guðrúnu Magnús- dóttur, f. 1908, og var það farsælt hjónaband, og studdu þau hvort annað í lífsbaráttunni af heilum hug. Þeim entist aldur að eiga gullbrúðkaup og var það skömmu áður en afi dó eða 17. maí 1979. Alla tíð bjuggu þau að Sjónarhóli í Sandgerði. Afi og amma eignuðust fimm dætur í sínu farsæla hjónabandi. Þær eru Anna Magnea, gift Hauki Guðmundssyni; Ásdís, gift Jóni Sigurðssyni; Sigrún Jóhanna, gift Gunnari Sigurgeirssyni; Svanhild- ur, ogift; Ragnheiður Elín, gift Ingimundi Ingimundarsyni. Ég votta ömmu minni mína dýpstu samúðar og einnig mömmu minni og systrum hennar, mökum þeirra og börnum. Afa mínum tjái ég þakklæti mitt fyrir allar samverustundirn- ar og samleiðina. Guð og góðir vættir fylgi honum til annarra heimkynna yfir móðuna miklu. Ragnar Páll Axelsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.